Morgunblaðið - 02.06.1976, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JUNl 1976
r
Alit talsmanna stjórnarandstöðunnar:
MORGUNBLAÐIÐ hafði í
gærkvöldi samband við
talsmenn stjórnarand-
stöðuflokkanna og spurði
um álit þeirra á
samningnum við Breta.
Birtast svör þeirra hér:
Ragnar Arnalds:
Það hefði
ekki átt að
semja við
Breta
RAGNAR Arnalds, formaður
Alþýðubandalagsins hafði eftir-
farandi að segja um samningana
við Breta:
Þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins:
Almennur
stjórnmála-
fundur í
Þorlákshöfn
ÞINGMENN Sjálfstæðisflokksins
í Suðurlandskjördæmi, þeir Ing-
ólfur Jónsson, Guðlaugur Gfsla-
son og Steinþór Gestsson, efna til
almenns stjórnmálafundar í Þor-
lákshöfn á morgun, fimmtudag, 3.
júní kl. 20.30. Á fundinum mun
aðallega verða rætt um landhelg-
ismálið. Allir eru velkomnir á
fundinn meðan húsrúm leyfir.
Yfirlitssýning á
verkum Barböru
YFIRLITSSYNING á verkum
Barböru Árnason verður opnuð á
Kjarvalsstöðum 27. júní n.k. og
stendur hún einn mánuð.
Eiginmaður hinnar látnu lista-
konu, Magnús Á. Árnason, og son-
ur þeirra, Vífill MagnúSson, beina
þeim tilmælum til eigenda verka
eftir hana að þeir hafi samband
við þá sem fyrst í tilefni sýningar-
innar.
,,Með þessum samningi, er Bret-
um heimilað að veiða 35—40 þús-
und tonn af fiski innan íslenzku
fiskveiðilögsögunnar fram til 1.
desember. En um Ieið þýðir samn-
ingurinn, að samningurinn við
Vestur-Þjóðverja gildir áfram og
tryggir þeim 90 þúsund tonna afla
á næstu 18 mánuðum. Ég hefði
talið tvimælalaust að ekki ætti að
semja vió Breta, og rifta um leið
samningnum við Vestur-
Þjóðverja. Það er nefnilega alveg
ljóst, að Bretar munu krefjast
þess þegar þessi nýi samningur
rennur út að fá að veiða jafnlengi
og Þjóðverjar, eða fram til 1. des-
ember 1977, eða i heilt ár eftir að
samningurinn rennur út. Þetta
gera þeir með því að láta EBE
beita okkur efnahagsþvingunum,
en ákvæðið um bókun 6 i hinum
nýja samningi er einmitt svo loðið
að Bretar geta túlkað það sér I
hag. Ég vil að lokum segja það, að
það er skýlaus krafa að Alþingi
fjalli um þessa samningagerð.
Slíkt samræmist 21. grein stjórn-
arskrárinnar, þar sem segir að
engar kvaðir megi leggja á land
né landhelgi nema með samþykkt
Alþingis. Ég trúi því ekki að ríkis-
stjórnin ætli að sniðganga þessa
grein stjórnarskrárinnar, sérstak-
lega þegar flest bendir til þess að
meirihluti þjóðarinnar sé andvig-
ur samningum við Breta.“
Guðmundur
í 2.—3. sæti
Havana, 1. júní. Reuter.
BORIS Gulko frá Sovétrfkjunum
hélt forustu sinni á Capablanca-
skákkeppninni á Kúbu eftir 12.
umferð, sem leikin var á mánu-
dagskvöld. Guðmundur Sigur-
jónsson “r f 2. til 3. sæti ásamt
Yuri Razuvaey frá Sovétrfkjun-
um.
Sex efstu mennirnir eftir 12
umferðir eru:
1. Gulko, Sovétr. 7H vinning
2. — 3. Guðmundur og Razuvaey,
7 vinninga
4. Peev, Búlgaríu, 6'h vinning
5. — 6. Beliavski, Sovétr., og Ulf
Andersson, Svíþjóð, 6 vinninga.
Benedikt Gröndal:
Miklir
annmarkar á
samningnum
BENEDIKT Gröndal, formaður
Alþýðuflokksins, sagði eftir-
farandi:
„1 tilkynningunni, sem Alþýðu-
flokkurinn gaf út um helgina, sá-
um við mikla annmarka á þess-
um samningum. Við Alþýðuflokks
menn teljum að þeir hafi veru-
lega galla og þess vegna erum við
andvígir þeim. Að vísu er það
mikilvægt, að mannslif eru ekki í
hættu lengur, en við erum ekki
sammála íslenzku ráðherrunum,
sem samningana gerðu, að viður-
kenning sé nægilega skýr. Þá var
t.d. í norsku samningunum að við
getum ákveðið aflamagnið sjálfir,
en samkvæmt þessum samning-
um getum við ekki ákveðið afla-
Landshappdrætti
Sjálfstæðisflokksins:
2 dagar
eftir
EFTIR tvo daga verður dregið i
hinu glæsilega ferðahappdrætti
Sjálfstæðisflokksins. Happdrætt-
ið þakkar öllum þeim fjölmörgu,
sem sýnt hafa eindreginn
stuðning við happdrættið og Sjálf-
stæðisflokkinn. Jafnframt þvi
hvetur það þá, sem enn hafa ekki
gert skil að láta af því verða áður
en það er um seinan. Það auð-
veldar allt starf skrifstofu happ-
drættisins i Reykjavík og umboðs-
manna þess úti á landi.
Skrifstofan í nýja Sjálfstæðis-
húsinu að Bolholti 7 er opin þá
daga, sem eftir eru, til kl. 23 að
kvöldi, simi 82900. Þeir, sem ekki
eiga heimangengt geta hringt i
skrifstofuna og mun andvirði
miða þá sótt til þeirra.
magnið sjálfir, a.m.k. ekki næstu
6 mánuði. Ennfremur finnst mér
ekki nógu vel um framhaldið bú-
ið, þ.e. um gagnkvæma samninga.
Við hefðum átt að notfæra okkur
aðstöðu okkar á meðan hún var
sterkust til að knýja fram stefnu-
yfirlýsingar um að þeir muni að-
stoða okkur við að fá í Norður-
sjónum síldarkvóta ef við óskum
eftír því. Við þetta bætist sú
alvarlega staðreynd, að fiskurinn
er bara ekki til, og við getum
staðið andspænis því eftir eitt ár,
að við þurfum að fara að skera
niður okkar eigin afla. Þetta eru
bara dæmi, en ég tel ekki rétt að
ræða samninginn nánar fyrr en
ég hef séð hann í heild og fylgi-
skjöl hans.
Leiðrétting
TVÆR prentvillur, urðu í ræðu
Sveins Benediktssonar i tilefni 50
ára afmælis Isaksskóla, sem birt
var í blaðinu i gær. Sagt var að
ísak Jónsson hefði farið í náms-
fcrð um Norðurland árið 1926 en
átti að vera um Norðurlönd. Þá
var sagt að Aðalbjörg Sigurðar-
dóttir hefói átt sæti i skólanefnd í
38 ár en átti að vera 28 ár. Þetta
leiðréttist hér með.
Karvel Pálmason:
Þjóðverjar
þeir einu
sem geta
hrósað sigri
þingflokks Samtaka frjálslvndra
og vinstri manna, sagði eftir-
farandi:
„Svona við fyrstu yfirsýn, get
ég ekki annað séð en þeir einu
sem geti hrósað sigri séu Vestur-
Þjóðverjar með sinn langa
samning. Þeir standa með
pálmann i höndunum. Um
þennan samning, sem búið er að
Framhald á bls. 31.
Hjólreiðar
heiisubót
BARNAREIÐHJÓL
UNGLINGAREIÐHJÓL
FULLORÐINSREIÐHJÓL
ÞRÍHJÓL OG STIGIN
ÖKUTÆKI FYRIR BÖRN.
Mesta úrval landsins hjá okkur.
FALKINN
Suðurlandsbraut 8 — simi 84670
á tréverk í garöi og húsi.CUPRINOL viðarvörn
sér inn í viðinn og ver hann rotnun og fúa.
I Slippfé/agið íReykjavíkhf
Má/ningarverksmiðjan Dugguvogi
Sfmar 33433og33414