Morgunblaðið - 02.06.1976, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JUNI 1976
TEPPAVERZLUNIN
FRIÐRIK BERTELSEN,
LÁGMÚLA 7, SÍMI 86266
Vertíðarafli
Stykkishólms-
báta með
Afmœliskveðja:
Björgvin Jónsson
minna móti
Stykkishólmi 30. maí.
VERTlÐ lauk fyrir nokkru I
Stykkishólmi. Var afli með
minna móti hér eins og víða
annars staðar. Mestan afla var
m.b. Þórsnes S.H. 209 með, 570
tonn á netum og I allt frá áramót-
um 730 tonn. En Þórsnesið var á
línu frá áramótum þar til neta-
veiðar hófust eftir verkfall. Skip-
stjóri er Kristinn Ó. Jónsson.
Þórsnes er nú að búast á Ifnuveið-
ar.
Grásleppuveiði er mikil hér i
vór og eru þær stundaðar af mörg-
um. Hafa menn komið að landi
með veiði sem skiptir hundruðum
stykkja og eru hrognin söltuð sem
fyrr til útflutnings, en gráslepp-
unni verður annars að henda því
ekki er hægt að nýta hana til
neins nema hengja upp lítinn
hluta og láta það síga. Er leitt til
þess að vita að geta ekki nýtt
þetta til matar á einhvern hátt.
Barna- og gagnfræðaskólanum
í Stykkishólmi var slitið við há-
tíðlega athöfn f Stykkishólms-
kirkju t gær. Skólastjóri, Lúðvíg
Halldórsson, taiaði til nemenda
og skýrði námsárangur og afhenti
nemendum prófskírteini. 25 ára
gagnfræðingar afhentu við skóla-
slit smásjá til kennslu í skólanum.
Ýms verðlaun voru afhent fyrir
Ég vil enda þessi orð mín með
því að færa þeim hjónum kærar
þakkir fyrir hinar ógleymanlegu
móttökur á heimili þeirra á af-
mælisdaginn, og slíkt mun hinn
stóri hópur er þar var hugsa.
Kæri vinur, lifðu heill um langa
ævi.
Jói.
40 ár og hún hefur ávallt verið á
einn veg, traust og elskuleg, enda
maðurinn traustur og framúr-
skarandi heiðarlegur og ábyggi-
legur bæði til orðs og æðis. Ég tel
mig mikinn gæfumann að hafa átt
þess kost að kynnast jafngóðum
manni.
Allir þeir mörgu er hafa honum
kynnst ljúka upp einum munni
um að þar sé á ferðinni góður og
traustur þjóðfélagsþegn, enda
hefur hann unnið til þess sjálfur
að öðlast þann orðstir. Á löngum
starfsferli hefur hann unnið að
margvíslegum störfum, þótt aðal-
starf hans hafi verið að sjá borg-
arbúum fyrir fiski í pottinn, eins
og Reykvikingar vita. Fiskbúðin
Sæbjörg á Laugaveginum sannar
það best, þótt að hann reki fleiri
búðir. Þótt ég leggi ekki út í það
að ræða um ævistarf þessa góða
manns, vil ég geta þess að hann er
mikill bindindismaður og hefur
unnið mikið að bindindismálum,
enda líka i stjórri stúkunnar.
Björgvin er í blóð borin athafna-
þrá eins og hann hefur sýnt um
langa ævi.
Vinur minn, Björgvin Jónsson
kaupmaður, Blönduhlíð 29,
Reykjavík, varð sjötugur þann 26.
maí sl. Mér, sem þessa kveðju
sendi, er bæði ljúft og skylt að
minnast hins góða drengs á þess-
um merki tímamótum ævi hans.
Vinátta okkar hefur staðið í 30 —
Þar sem um hann hefur verið
skrifað bæði í Morgunblaðinu og
Alþýðublaðinu tel ég mig ekki
hafa ástæðu til þess að hafa þessa
kveðju öllu lengri. Ekki verður þó
skilið við þessa kveðju öðru vísi
en að geta þess að Björgvin er
kvæntur hinni elskulega frænku
minni, Þórunni Björnsdóttur frá
Reyðarfirði, sem alla tíð hefur
staðið við hlið mannsins síns eins
og klettur í hafinu. Ekki má ég
skiljast svo við þessa stuttu af-
mæliskveðju að ég ekki minnist á
þá einstökunærgætnisemBjörg-
vin hefur ætíð sýnt aldraðri
tengdamóður sinni. Innri maður
Björgvins kemur þar berlega
fram.
Nylon gólfteppi í fallegum litum.
Við tökum mál — sníðum og önnumst ásetningu.
Verð fyrir alla. Teppi fyrir alla.
GREIÐSLUSKILMÁLAR.
Athugið verð hjá okkur áður en þér festið kaup annars staðar.
Barnasöngur
FYRR á árum voru karlakórar
næstum einu frambærilegu
tónflytjendurnir og blandaðir
kórar áttu mjög erfitt upp-
dráttar. Af og til reyndu ýmsir
góðir menn að stofna blandaða
kóra og jafnvel barnakóra, en
hvað sem þvf olli, þá urðu þeir
ekki langlffir f landinu. Nú
hefur þetta breytzt svo, að
blandaðir kórar eru orðnir
ómissandi og virtir tónflytjend-
ur og unglinga- og barnakórar
okkar eru teknir að keppa við
erlenda kóra. Kór Öldutúns-
skóla f Hafnarfirði hefur nú
um nokkur ár staðið f fremstu
röð barnakóra á Norðurlöndum
og ásamt skólakór Menntaskól-
ans f Hamrahlfð, sungið við
góðan orðstfr vfða um lönd.
Á tónleikum i Háteigskirkju,
nú fyrir skömmu, söng kórinn
nokkur innlend og erlend lög.
Kórinn er ekki eins góður og
oft áður, enda er hér um að
ræða að nokkru nýendurskipu-
lagðan kór, sem tekur tíma að
þjálfa. Hætt er við að þjálfun
leiði til þess að sönggleðin verði
litil og var ekki laust við það á
köflum.
Tðnlist
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
I lagi Páls P. Pálssonar við
texta eftir Stein Steinarr, voru
börnin ekki eðlilega kát, heldur
eins og þegar vel siðuðum börn-
um er sagt að láta eins og þau
séu kát. Lag Páls er skemmti-
legt en átti ekki beint vel við í
þessu umhverfi og má vera, að
þar sé skýringin á óeðlilegri
kátínu barnanna.
Páll hefur sent frá sér mörg
skemmtileg söngverk undan-
farið og er hann laginn að fella
saman tónhugsun og texta á
gamansaman hátt. Á þessum
tónleikum voru og frumflutt
þrjú barnalög eftir Hallgrim
Helgason. Lögin eru falleg og
vel unnin, en flutningur þeirra
var einum of einlitur til að lag-
ferlið kæmi skýrt fram. Egill
Friðleifsson er duglegur og
vandvirkur stjórnandi, en ein-
um of einstrengingslegur í mót-
un söngs og laga, sem rænir
flutninginn allri kátínu, en
mettar hann varasemi og með-
vitaðri nákvæmni.
Eins og að framan greindi er
fsl. söngmenning önnur nú en
fyrir nokkrum árum og er það
spá mín, að á næstu árum mun-
um við eiga þess kost að hlusta
á góða ísl. barnakóra flytja alls
konar tónlist, bæði í sjálfstæðu
starfi og innan skólanna, eig-
andi þátt í framþróun fsl. tón-
menntar.
Framhald á bls. 31.