Morgunblaðið - 12.06.1976, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JUNI 1976
D ■ d g 0 4 Sfe
r
SEM kunnugt er sigraði sveit
Stefáns Guðjohnsen nokkuð ör-
ugglega í nýafstöðnu Islands-
móti f sveitakeppni. 8 sveitir
tóku þátt f keppninni og var
fyrirfram búist við spennandi
keppni. 3 sveitir höfðu par úr
landsliði. ein sveitin skipuð
unglingalandsliði og ein sveitin
hafði verið f tilraunalandsliði
Páls Bergssonar.
Urslit fyrstu umferðar gáfu
spámönnum byr undir báða
vængi því þar gerðist margt
sem ekki hafði verið við búist.
Sveit stig
Böðvars vann sveit Hjalta 15—5
Ólafs H. vann Ölafs G. 18—2
Bogga Steins vann
Jóhanns 17—3
Stefáns vann Jóns B. 17—3
Það kom mjög á óvart ósigur
Hjalta og Jóhanns. Þá hafði
sveit Stefáns verið 30 stigum
undir i hálfleik á móti Jóni —
en náði sér vel á strik í síðari
hálfleiknum og sigraði 17—3.
t annarri umferð urðu úrslit
þessi:
Sveit stig
Jóhanns vann Ólafs H. 14—6
Hjalta vann Ólafs G. 17—3
Jóns vann Böðvars 16—4
Stefáns vann
Boggu Steins 12—8
Úrslit þriðju umferðar:
Jóns vann Ólafs G. 13—7
Jóhanns vann Hialta 15—5
Ólafs H. vann
Boggu Steins 20—0
Stefáns vann Böðvars 13—7
Sveit Ólafs H. Ólafssonar
hafði átt góða leiki og var í
efsta sæti en sveit Stefáns var
eina sveitin sem ekki hafði tap-
að leik.
Crslit fjórðu umferðar:
Sveit stig
Hjalta vann
Boggu Steins 20—-h2
(Þetta voru einu mínusstigin í
öllu mótinu)
Jóns og Jóhanns gerðu
jafntefli 10—10
Böðvars vann Ólafs G. 16— 4
Stefáns vann Ólafs H. 16— 4
Úrslit fimmtu umferðar:
Böðvars vann Jóhanns 15— 5
Sveit Jóns vann
Boggu Steins 17 — 3
Stefán tapaði fyrir 17 — 3
Ólafi G. 9— 11
Staðan var nú orðin þannig
að Stefán hafði nauma forystu,
67 stig, en sveit Hjalta hafði
sótt sig eftir lélega byrjun og
var komin í annað sætið með 64
stig. Sveit Jóns hafði 59 stig og
sveit Böðvars fylgdi i humátt á
eftir með 57 stig og kom það
mörgum á óvart.
Úrslit sjöttu umferðar:
Jóns vann Ólafs H. 20—0
Boggu Steins vann
Böðvars 11—9
Jóhanns vann Ólafs G 20—0
Stefáns vann Hjalta 15—5
Þá var aðeins einni umferð
ólokið og höfðu fimm sveitir
ennþá möguleika á að vinna
mótið. Fjórar efstu sveitirnar
áttu að spila innbyrðis (Sveit
Stefáns við Jóhanns og sveit
Jóns við Hjalta) og ef úrslitin
yrðu hagstæð fyrir sveitirnar
með færri stigin þá átti sveit
Böðvars Guðmundssonar mögu-
leika á að vinna mótið. Staða
efstu sveitanna var nú þessi:
Stefáns 82 stig, Jóns 79 stig,
Hjalta 69 stig, Jóhanns 67 stig
og Böðvars 66 stig.
I hálfleik í siðustu umferð
hafði Böðvar yfirburðastöðu á
móti Ólafi H. 40—3, Stefán
hafði 11 punkta forskot á móti
Jóhanni en mjög jafnt hjá
Hjalta og Jóni.
Sveit Stefáns átti alla mögu-
leika á að sigra og tvöfaldaði
forskot sitt á móti fyrrverandi
íslandsmeisturunum i síðari
hálfleik. Urslitin voru ráðin,
sveit Stefáns varð sigurvegari.
Lauk leiknum með 15 gegn 5.
Sveit Hjalta sigraði sveit Jóns
Sveitarstjóri Islandsmeistar-
anna, Stefán Guðjohnsen.
13—7 og Ólafur H. og félagar
höfðu snúið dæminu við í hálf-
leik og sigruðu 16—4. Leik
Ólafs G. og Boggu Steins lauk
með sigri Ólafs 16—4.
Lokastaðan varð því þessi:
Sveit Stig
Stefáns J. Guðjohnsen 97
Jóns Baldurssonar 86
Hjalta Elíassonar 82
Jóhanns Þ. Jónssonar 72
Böðvars Guðmundssonar 70
Ólafs H. Ólafssonar 67
Ólafs Gislasonar 43
Boggu Steins 41
Keppnisstjóri var Agnar
Jörgenson en í mótsstjórn
Ragnar Björnsson og Tryggvi
Gíslason. I mótslok voru veitt
verðlaun fyrir keppnir á veguin
BSl á sl. vetri.
XXX
FRA BRIDGEFÉLAGI
BLÖNDUÓSS
Sveitakeppni félagsins hófst
9. janúar sl. og urðu úrslit þau
að sveit Hallbjörns Kristjáns-
sonar sigraði. hlaut 119 stig. 1
sveit Hallbjörns eru ásamt hon-
um Ari H. Einarsson, Eggert
Guðmundsson, Vilhelm
Lúðvíksson og Halldór Einars-
son.
Röð efstú sveita varð annars
þessi:
Sveit stig
Guðmundar Theódórssonar 112
Jóns Hannessonar 106
Sigurðar H. Þorsteinssonar 84
Alls tóku 9 sveitir þátt í
keppninni.
XXX
Minningarmót var haldið um
Ara Hermannsson og Jónas
Halldórsson. Þessi keppni var i
einmenningsformi og er keppt
um farandbikar sem Fróði'hf.
hefir gefið. Þátttakendur voru
24 og voru spilaðar 3 umferðir.
Urslit urðu þau að Asa Vil-
hjálmsdóttir sigraði, hlaut 545
stig. Röð efstu manna varð ann-
ars þessi:
Hallbjörn Kristjánsson 543
Ari H. Einarsson 536
Björn Friðriksson 533
Sveinn Ellertsson 522
XXX
Meistarakeppnin í tvímenn-
ing hófst 9. apríl sl. og tóku 12
pör þátt í keppninni. Spilaðar
voru þrjár umferðir en þetta
var síðasta keppni vetrarins.
Urslit urðu þau að Kristín
Jóhannesdóttir og Þorsteinn
Pétursson sigruðu örugglega,
hlutu 572 stig. Röð efstu para
varð annars þessi:
Guðmundur Theódórsson —
Ævar Rögnvaldsson 531
Ari Arason —
Jóhann Ævarsson 515
Sigurður Kr. Jónsson —
Guðbjartjur Guðmundsson 504
A.G.R.
____________________21_
Tæplega 10
þúsund far-
þegar komu
til landsins
í maí s.l.
t MAIMANUÐI s.l. komu 9723
farþegar með flugvélum og skip-
um til landsins, þar af 3551
tslendingur og 6172 útlendingar.
Af útlendingunum voru Banda-
rfkjamenn flestir, eða 2217, Svfar
næstir eða 821 og V-Þjóðverjar
voru þriðju f röðinni, eða 785.
Sambærilegar tölur fyrir árið
1975 voru 8761 farþegi, 2837 Is-
lendingar og 5924 útlendingar.
Frá áramótum til maíloka komu
30,840 farþegar til landsins en
voru 30,013 á sama tíma í fyrra.
Þar af voru 17,021 útlendingur (í
f.vrra 18,217) og 13,819 Is-
lendingar (í fyrra 11,796).
Framangreindar tölur koma
fram í yfirliti útlendingaeftirlits-
ins.
Annar sovézkur
marskálkur látinn
Moskvu, 10. júní. AP.
MIKHALL Katukov marskálkur,
sem stjórnaði skriðdrekaher í sið-
ari heimsstyrjöldinni og gegndi
síðar ýmsum mikilvægum em-
bættum í landvarnarráðune.vtinu.
lézt í dag eftir langvarandi veik-
indi
Sergei Shtemenko marskálkur
lézt 23. apríl og Andrei A.
Grechko marskálkur. fyrirrenn-
ari Dmitri F. Ustinovs, núverandi
landvarnaráðherra, lézt 26. apríl.
Farley látinn
New York, 10. júni. AP.
JAMES A. Farley, fyrrverandi
póstmálaráðherra og sá sem
tryggði Franklin D. Roosevelt út-
nefninguna i forsetaframboð fyr-
ir demókrata 1932. lézt i dag, 88
ára að aldri. Hann varð formaður
demókrataflokksins eftir sigur
Roosevelts.
Félagsheimili HREYFILS
í kvöld kl. 9—2. (gengið inn frá Grensásvegi).
Fjórir félagar leika
Aðgöngumiðar i síma 85520 eftir kl. 8.
Fyrsti dansleikur
sumarsins að
A Arnesi
HAUKAR
með góðan kæting
I KVOLD I
Sjómannadagurinn á morgun
Unglingadansleikur uppi annað kvöld
Paradís ieikUr
Sætaferðir frá B.S.Í., Laugarvatni, Þorlákshöfn, Sel-
fossi og Hafnarfirði.
L FESTI GRINDAVÍK j