Morgunblaðið - 13.07.1976, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAG'UR 13. JULÍ 1976
Njósnir. skrifstofustörf.
HANDTOKUR njósnara kommúnista
í V Þýzkalandi hafa verið tíðar að
undanförnu, og nýlega lét yfirmaður
v-þýzku leyniþjónustunnar Richard
Meier, hafa það eftir sér, að starfs-
aðferðir þessara njósnara séu úrelt-
ar. Hann sagði, að þetta gerði
v-þýzku leyniþjónustunni hægt um
vik, og kunni svo að fara, að á
næstunni verði njósnarar komm-
únistaríkjanna í landinu allir hand-
teknir.
Á undanfömum mánuðum hefur
sú spurning vaknað hvort handtökur
njósnaranna stafi af þvi, að í V-
Þýzkalandi sé meira um njósnir en 1
öðrum löndum vestan járntjalds, eða
hvort ástæðan sem sérstakur ötul-
leiki v-þýzku leyniþjónustunnar.
Sennilega kemur hvort tveggja til,
en þessar stórfelldu uppljóstranir
hófust i maímánuði 1974, þegar
Guillaume hjónin alræmdu voru
handtekin. Gúnther Guillaume var
einn nánasti samstarfsmaður Willy
Brandts, sem þá var kanslari V-
Þýzkalands. Handtaka hjónanna
leiddi til stjórnmálakreppu, sem náði
hámarki með þvi að Willy Brandt sá
sig tilneyddan til að segja af sér, og
æ siðan hafa njósnir haft veruleg
áhrif á stjórnmál i landinu.
Réttum tveimur árum eftir að Guill-
aume-hjónin voru sett undir lás og sfá,
eða nú í maí, var Helga Berger hand
tekm fyrir njósnir í þágu A-Þjóðverja
og Sovétmanna Helga Berger er 35
ára og starfaði sem ritari í utanríkis-
ráðuneyti V-Þýzkalands um 10 ára
skeið Henni er gefið að sök að hafa
látið a-þýzkum og sovézkum njósnur-
um í té mikilvægar upplýsingar um
öryggi V-Þýzkalands, — upplýsingar,
sem voru algjört trúnaðarmál fárra
manna á æðstu stöðum. Handtaka
Helgu Berger er í þann veginn að leiða
til samskonar ástands og varð þegar
upp komst um Guillaume, og er talið
að það muni hafa veruleg áhrif á
þingkosningarnar, sem fram eiga að
fara í landinu eftir þrjá mánuði
Guillaume-málið bitnaði fyrst og
fremst á Willy Brandt og flokki sósíal-
demókrata, en Berger-hneykslið kemur
sér emkum illa fyrir kristilega demó-
krata, þar sem einn af helztu forvígis-
mönnum þeirra, Heinrich Böx, er
bendlaður við það
Heinrich Böx er fyrrverandi sendi-
herra og var um skeið yfirmaður stofn-
unar þeirrar, sem fjallar um utanríkis-
mál á vegum flokks kristilegra demó-
krata Böx var handtekinn skömmu
eftir að upp komst um Helgu Berger
Honum var sleppt eftir yfirheyrslur, en
liggur þó undir grun um aðild að
njósnamáli þessu
Klaus Wöhler innanhúsarki-
tekt og njósnari. Hans er
ákaft leitað, en þrátt fyrir það
að v-þýzka leyniþjónustan
hafði hann undir smásjá mán-
uðum saman áður en hann
hvarf, er þetta eina myndin,
sem til er af honum.
Alvarlegra en
Guillaume-málið
í Ijós hefur komið, að mál Helgu
Berger er enn alvarlegra en mál
Gúnther Guillaumes Sá tími, sem ætl-
að er, að Guillaume hafi haft beinan
aðgang að mikilvægum upplýsingum,
er aðeins sá hálfi mánuður sem hann
dvaldist ásamt Brandt-hjónunum í
sumarleyfi þeirra í Noregi Helga Ber-
ger hafði hins vegar beinan aðgang að
slíkum upplýsingum í 10 ársamfleytt,
og hún lét það stórkostlega tækifæri
svo sarmarlega ekki ónotað
Njósnaferill Helgu Bergerhófst þegar
hún gerðist einkaritari Heinrich Böx
árið 1966, en hann var þá viðskipta-
fulltrúi v-þýzka sendiráðsins í Varsjá og
formaður sendinefndar, sem vann að
bættum tengslum Pólverja og V-
Þjóðverja um þær mundir Síðar varð
Helga Berger einn þeirra einkaritara
háttsettra embættismanna í utanrikis-
þjónustunni, sem auðsýndur er mestur
trúnaður.
Á þessum 10 árum hefur hún starf-
að fyrir ýmsa æðstu menn þjónustunn-
ar, m a Egon Bahr, sem á sinum tíma
hafði yfirumsjón með framkvæmda-
atriðum í scmbandi við ,,austur-
pólitík" Brandts Síðast var hún einka-
ritari Lautenschlágers ráðuneytisstjóra,
en hann annast m a. vopnaviðskipti
fyrir hönd sambandslýðveldisins.
Iðin og fórnfús
Helga Berger var iðin og sístarfandi,
að því er fyrrverandi samstarfsfólk
hennar segir. Flest kvöld, sem hún
hafði til eigin umráða, dvaldist hún á
heimili Heinrich Böx, fyrrverandi yfir-
manns síns M.a. varði hún þessum
kvöldum til að hreinrita fyrir hann
skýrslur hans til utanríkismálanefndar
Kristilega demókrataflokksins.
,.Hún var eins og dóttirin í húsinu",
lét 4rú Böx m a hafa eftir sér þegar
Helga hafði verið handtekin En hún
var líka annað og meira, því að í Ijós
hefur komið, að Heinrich Böx hafði
lykil að íb\jð Helgu og notaði hann
þegar hann heimsótti hana á síðkvöld-
um. Við húsleit í íbúðinni eftir hand-
tökuna fundust bréf til Helgu frá Hein-
rich, og er tónninn í þeim allfrábrugð-
inn þeim, sem menn nota við dætur
sínar Er talið að þau hafi staðið í
ástarsambandi allt frá því er þau störf-
uðu saman í Varsjá.
Böx var fyrsti blaðafulltrúi Konrads
Adenauer Hann fór frá Adenauer í
fússi, og líklegt er að við það hafi KGB
fengið augastað á honum Áhuginn
hefur ekki minnkað við það, að Böx var
sá aðili, sem sá um peningagreiðslur
Kristilega demókrataflokksins til syst-
urflokkanna í Portúgal og á Ítalíu, auk
þess sem hann hafði allan þann að-
gang sem hann kærði sig um að leyni-
skjölum um utanríkis- og öryggismál,
sem rædd voru í þingflokki kristillegra
demókrata, þar eð hann var forstöðu-
maður utanríkismálastofnunar flokks-
ins.
Helga Berger lét sér ekki nægja að
standa í ástarsambandi við Heinrich
Böx meðan hún dvaldist í Varsjá, held-
ur kynntist hún. þar Klaus nokkrum
Wöhler. Ymist kvaðst hann vera innan-
Höfum til sölu mjög góða 155 fm. efri sérhæð ásamt
risi yfir allri hæðinni og stórum bílskúr.
Skipti á góðri neðri sérhæð, með stórum stofum og
þvottaherb. á hæðinni koma vel til greina.
Eignaþjónustan
Sími26650.
13 tonna bátur byggður 1972 í mjög góðu standi og
vel búinn tækjum. Bátur í sérflokki, sem getur verið
til afhendingar strax.
Eignaþjónustan
Sími 26650.
—— Vesturbær ................
Til sölu ca 130 fm. ibúð á efrihæð á GÓÐUM stað í
Vesturbæ nálægt MIÐBÆ,. LAUS FLJÓTT við góða
útborgun.
Laugarnesvegur
Til sölu ca 95 fm. ibúð á 4. hæð (3 herb) ásamt stórri
geymslu i kjallara. Yfir ibúðinni er óinnréttað ris, bar
er möguleiki á að innrétta 2 til 3 herbergi eða
baðstofuloft. ÍBÚÐIIM ER LAUS MJÖG GOTTVERÐ.
Laugarnesvegur
Til sölu 2ja herb. endaib. á 2. hæð. LAUS STRAX.
Hávallagaía
Til sölu PARHÚS við Hávallagötu. Hornhús. Stór
bilskúr.
í smíðum við Eskihlíð
Af sérstökum ástæðum eigum við enn til sölu 3ja
herb. ibúðir í húsi sem hafin er smíði á í ESKIHLÍÐ.
íbúðunum verður skilað að mestu fullbúnum á næsta
sumri.
ATH. að skila þarf umsókn til Húsnæðismálastj. fyrir
1. sept. nk.
FASTEIGNAMIÐSTÖÐIN
AUSTURSTR. 7,
.......-SÍMAR 20424 14120. .........
Sveinn Benediktsson:
Markaðsfréttir
Sveinn Benediktsson ritar grein í nýútkomið dreifi-
bréf Félags ísl. fiskmjölsframleiðenda um markaðsmál,
óeirðir í Perú, lýsisverð og fyrstu loðnuna, og fer grein
þessi hér á eftir í heild:
Markaðsverð á fiskmjöli og lýsi
hefur farið mjög hækkandi síð-
ustu tvo mánuði, en verðlagið þó
verið háð miklum sveiflum, eink-
um fyrir áhrif frá soyabauna-
verði.
F’ramleiðsla á jurtaolíum og
mjöli úr pressuðum jurtakjörnum
fór mjög vaxandi á 2. ársfjórðungi
1976, en búizt er við að draga
muni verulega úr framleiðslunni
á 3. fjórðungi þessa árs.
I 25 tilteknum löndum er áætl-
að, að framleiðslan á pressuðum
jurtakjörnum muna hafa aukizt
um meira en 16% samanborið við
fyrra ár og um 8,9% miðað við
tímabilið október/marz 1975/
1976.
Meginhluti aukningarinnar
stafar af aukinni pressun á soya-
baunum i Bandarikjunum, Sovét-
ríkjunum, Brasiliu og Vestur-
Evrópu. F'ramleiðsla á mjöli úr
jurtakjörnum jókst um 20% á síð-
asta ársfjórðungi á móti 12% í
október/marz. Jurtaolía jókst um
14.4%.
Talið er, að fóðurskortur á viss-
um svæðum í Vestur-Evrópu
muni auka eftirspurn á fóður-
blöndum, einkum fyrir nautpen-
ing.
Fregnir hafa borizt um það síð-
ustu daga, að Sovétríkin og fylgi-
riki þeirra hafi fest kaup á miklu
magni af soyabaunum og margs-
konar kornvörum i Kanada,
Bandarikjunum, Brasilíu, Argen-
tínu og fleiri löndum. Er fullyrt,
að kaup þessi nemi a.m.k. 22
milljónum tonna. Þessar fregnir
hafa þó ekki fengizt staðfestar.
Sumir telja, að þetta gífurlega
magn kunni að vera enn meira
enda þurfi mikið til að bæta úr
uppskerubresti 1975/76, sem talið
hefur verið, að nemi 80 milljón-
um tonna, miðað við fyrirfram-
gerða áætlun um heildarupp-
skeru til manneldis og fóðrunar
búpenings.
XXX
Síðustu sölur á loðnumjöli, sem
fóru fram i gær, námu US dollur-
um 6.70/6.72 fyrir proteineinung-
una í tonni cif Stóra-Bretland. Af-
skipun i júlí/ágúst. Voru alls seld
300 tonn af loðnumjöli á þessu
verði í gær. Skömmu eftir að söl-
urnar fóru fram féll verðið á fisk-
mjöli verulega á vörumarkaðnum
í Chicago, en hækkaði aftur i dag.
Birgðir Efnahagsbandalags
Evrópu (EEC) af smjöri og
mjólkurdufti úr undanrennu hafa
enn farið vaxandi, þrátt fyrir
þurrkana og viðleitni til þess að
minnka birgðirnar af þessum
landbúnaðarafurðum.
8. júli 1976.
Óeirðir í Perú
1 Dreifibréfi FÍF nr. 3/1976 var
sagt frá því állítarlega, að herfor-
ingjastjórnin í Perú hefði, að ráði
Hafrannsóknastofnunarinnar i
Perú (IMARPE), ákveðið, að
hinn 15. marz, þegar veiði átti að
hefjast fyrir alvöru, skyldu ekki
fara á veiðar fleiri skip en 400 af
fiskiskipaflotanum, sem hefur
verið þjóðnýttur að öllu leyti
ásamt verksmiðjum, sem aflann
vinna, sem ríkisfyrirtæki, er
nefnist Pesca-Peru.
F’ormaður Sjómannasambands-
ins krafðist þess, að send yrðu á
veiðar 600 skip, hvað sem liði
tillögum Hafrannsóknastofnunar-
innar, er taldi óhjákvæmilegt að
draga úr sókninni vegna smáfisks
(Peladilles) og til þess að koma í
veg fyrir frekari ofveiði en orðin
væri, því ansjóvetustofninn væri í
bráðri hættu.
Þegar kröfu formanns Sjó-
mannasambandsins var ekki
sinnt, boðaði hann verkfall. Lét
herforingjastjórnin þá handtaka
formanninn. Eftir 2—3 daga þóf
hófst vinna að nýju. Hafði stjórn-
in þá hótað að ráóa aðra menn á
bátana, ef fyrirmælum hennar
yrði ekki hlýtt.
Veiðarnar gengu verr en vænzt
hafði verið. Mjög erfitt reyndist
aó fá áreiðanlegar fréttir af veið-
unum. Virtust þær bregðast að
mestu leyti nema syðst fyrir hinni
löngu strandlengju. Námugröftur
var á heljarþröm, vegna verðfalls
og fjárhagsörðugleika, verðbólga
og atvinnuleysi hraðvaxandi. Of-
an á þetta bættust náttúruham-
farir og mörg og ólík þjóðarbrot.
(Sbr. Dreifibréf FÍF nr.
14/1973).
Um síðustu mánaðamót sauð
upp úr. Brutust þá út alvarlegar
óeirðir í Lima, höfuðborg lands-
ins. Lýsti herforingjastjórnin þá
yfir neyðarástandi í landinu,
bannaði fundahöld og fyrirskip-
aði algert útgöngubann að nætur-
lagi. Skotið yrði fyrirvaralaust á
hvern þann, sem þá væri á ferli.
Talið er nú, að ansjóvetuveiðin
muni stöðvast við um það bil 2.5
milljón tonna veiði, eða við svipað
magn og i maflok í fyrra. En eftir
er að sjá, hvernig veiðin verður
frá því í september til áramóta.
Margir óttast að hún kunni aftur
að bregðast jafnhrapallega og þá.
Góðar horfur eru nú á. soya-