Morgunblaðið - 13.07.1976, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13, JULÍ 1976
15
Marteinn
til Trier
og Elmars
ALLAR líkur eru á þvf að Mar-
teinn Geirsson úr Fram verði
næsti Islendingur sem skrifar
undir atvinnusamning f knatt-
spyrnu. Marteinn hefur nú
fengið tilboð frá þýzka 2. deild-
ar félaginu Eintracht Trier, lið-
inu sem Elmar Geirsson leikur
með, og fór Marteinn utan f
sfðustu viku til þess að kanna
aðstæður og hugsanlega samn-
inga. Þá gerði félagið honum
tilboð, sem Marteinn mun
sennilega ganga að.
— Ég er tiltölulega ánægður
með þetta tilboð og tel það mér
hagstætt, sagði Marteinn f við-
tali við Morgunblaðið f gær, en
þá var hann að leggja af stað til
Finnlands með fslenzka lands-
liðinu. — Aðstæður eru allar
mjög góðar þarna, og greini-
lega mikill áhugi. Liðið vann
sig upp úr 3. deild á fyrra og
þar með var það gert að at-
vinnuliði, en fram til þess tfma
hafði verið hálfatvinnu-
mennska hjá félaginu.
Marteinn sagði að forráða-
menn félagsins myndu koma til
Finnlands og fylgjast með
landsleiknum þar, og sennilega
yrði gengið formlega frá samn-
ingnum að þeim leik loknum.
SKAGAMENN verSa fyrir nýju
áfalli nú um mánaSarmótin, en þá
mun markvörður liðsins, DavlS
Kristjánsson, flytjast til Sviþjóðar
meS fjölskyldu sina. Er DavíS sá
fimmti úr íslandsmeistaraliSinu
frá i fyrra sem hættir að leika með
liðinu i sumar, en hinir eru Jón
Alfreðsson Haraldur Sturlaugsson
og Hörður Jóhannesson, sem
lögðu skóna á hilluna, og
Matthias Hallgrímsson, sem fer i
hálfatvinnumennsku i Sviþjóð.
— Það er óneitanlega dálitið
leiðinlegt að fara frá þessu svona
á miðju keppnistimabili, sagði
Davið Kristjánsson i viðtali við
Morgunblaðið i gær, — en mig
langar til að breyta til. og það er
miklu heppilegra fyrir mig að fara
utan núna. sérstaklega vegna
skólans sem börnin munu fara i.
Ég hef hugsað mér að hafa knatt-
spyrnuskóna með, og vonast til
þess að komast i einhvert lið þar
ytra, þótt ég hafi reyndar ekki enn
kannað möguleika á sliku.
Hörður Helgason mun að öllum
likindum taka við stöðu Daviðs i
Akranesmarkinu, en hann hefur
æft vel með þvi að undanförnu og
var aðalmarkvörður liðsins um
tima i fyrra er Davíð var frá vegna
meiðsla. Þá mun Sigurður
Haraldsson, sem var annar aðal-
markvörður Vals í fyrra, vera
innritaður í ÍA, en hann hefur
ekkert æft með þvi t sumar, hvað
sem verður, þegar Davið er farinn.
ÍSLENZKA sundfólkið hélt af stað áleiðis til Montreal I gær, en það
mun hefja keppni fyrst islenzka íþróttafólksins. Myndin var tekin af
sundfólkinu í gærmorgun, en þá hafði það ekki fengið Olympiubún-
inga sina afhenta. Talið frá vinstri: Sigurður Ölafsson, Þórunn Al-
freðsdóttir, Vilborg Sverrisdóttir og Guðmundur Þ. Harðarson, þjálf-
ari. Minni myndin er af Ágústi Ásgeirssvni i Olympiujakkanum, sem
hann fékk síðdegis í gær.
Tveir hættir við
Olppíuþátttöku
- íslenzka sundfólkið hélt utan í gær
FYRSTU íslenzku keppendurnir sem fara til Ólympíuleikanna í
Montreal héldu af stað þangað með Loftleiðaflugvél í gær. Var þetta
sundfólkið: Sigurður Ólafsson, Vilborg Sverrisdóttir og Þórunn
Alfreðsdóttir og með þeim fór þjálfari þeirra og flokksstjóri, Guð-
mundur Þ. Harðarson. Sundkeppni leikanna hefst strax fyrstu dagana,
þannig að sundfólkið hefur aðeins nokkra daga til þess að kynna sér
aðstæður þrátt fyrir að það fari á undan aðalhópnum, sem mun fara
með Loftleiðavél beint til Montreal síðdegis á fimmtudag.
Nú er endanlega séð að tveir
þeirra sem valdir voru til
Ólympiufararinnar munu ekki
fara. Það eru þeir Gústaf Agnars-
son lyftingamaður og Erlendur
Valdimarsson kringlukastari.
Gústaf er meiddur, en Erlendur
telur sig ekki nógu góðan um
þessar mundir til þess að taka
þátt i jafnerfiðu móti og Ólympíu-
leikarnir eru. I gær var óvíst um
hvort Stefán Hallgrímsson myndi
fara, en hann hefur átt við
meiðsli að stríða að undanförnu.
— Stefán mun fara til læknis í
dag, og eftir þá skoðun verður
sennilega endanlega ákveðið
hvort hann fer eða ekki, sagði
Sveinn Björnsson, aðalfararstjóri
íslenzka hópsins á Ólympíuleik-
unum.
Morgunblaðinu höfðu borizt um
það fregnir að búningur Ólympiu-
faranna hefði ekki verið tilbúinn,
þegar þeir áttu að koma og sækja
hann. Sagði Sveinn, að upphaf-
lega hefði átt að afhenda búning-
ana á föstudaginn, en ekki getað
orðið af því, m.a. vegna þess að
sumir hefðu trassað að koma og
máta þá. Þvi hefði verið ákveðið
að bíóa með að afhenda þá unz
allir tækju við þeim í einu. — Það
mun ekki standa á búningunum,
sagði Sveinn, — og fékk t.d. sund-
fólkið sem fór í gær sína búninga
með skilum. íslenzku keppend-
urnir á Ólympíuleikunum munu
klæðast islenzkum búningum
jafnt í keppni og utan vallar. Bún-
ingurinn er frá Gefjun h.f., eii
æfingabúningur er frá Henson.
sportvörugerðinni. Eins og fram
hefur komið í Morgunblaðinu er
búningur sá er íslenzka íþrótta-
fólkið klæðist við setningaathöfn
leikanna mjög litríkur — blár
jakki, ljósar buxur og rauð skyrta.
Sveinn Björnsson sagði að Loft-
leiðir hefðu sýnt Ólympíuförum
mikla velvild i sambandi við
ferðalagió vestur, þar sem flog-
ið yrði beint til Montreal. Alls
mun fara héðan um 40 manna
hópur, auk nokkurra sem fara á
vegum Ferðaskrifstofu rikisins,
er hafði umboð til miðasölu hér-
lendis. Auk Ólympíukeppend-
anna og fararstjóra þeirra, flokk-
stjóra og þjálfara, fara héðan
Gísli Halldórsson formaður is-
lenzku Ólympíunefndarinnar,
Bragi Kristjánsson, ritari
Olympíunefndar, KSÍ-mennirnir
Ellert B. Schram og Friðjón
Friðjónsson, sem sitja munu þing
alþjóðaknattspyrnusambandsins.
Þá munu fara þrir íslenzkir
fréttamenn til leikanna, þeir
Ágúst I. Jónsson frá Morgunblað-
inu, Jón Ásgeirsson frá Ríkisút-
varpinu og Sigurður Magnússon
frá íþróttablaðinu.
TVEIR LAIMDSLEIKIR
UNGLINGA í KVÖLD
í KVÖLD fer fram á Laugardalsvellinum unglingalands-
leikur í knattspyrnu milli íslendinga og Færeyinga. Eru
það lið skipuð piltum sem eru á aldrinum 16—18 ára.
Leikurinn hefst kl. 20.00. Á sama tíma hefst í Færeyjum
landsleikur pilta sem eru á aldrinum 14—16 ára.
höggum i keppninni, og var 9
undir pari.
Næstu menn voru Ballesteros
og Jack Nicklaus sem báðir
léku á 285 höggum. Var þetta i
fimmta sinn sem Nicklaus hafn-
ar i öðru sæti i þessari keppni
frá þvi að hann tók fyrst þátt i
henni árið 1966.
Meðfylgjandi mynd sýnir
John Miller hampa verðlaunum
sinum i mótinu.
BANDARÍKJAMAÐURINN
John Miller sigraði í hinni
miklu golfkeppni „British
Open“ sem lauk á Royal Birk-
dale golfvellinum um helgina.
Sigurinn var þó ekki fyrirhafn-
arlaus, þar sem Miller var
tveimur höggum á eftir hinum
19 ára gamla Spánverja,
Severiano Ballesteros, er
keppni síðasta dagsins hófst.
En Miller lék hreint stórkost-
lega siðustu 18 holurnar og var
þá sex undir pari, eða á 66
höggum. Miller lék alls á 279
MILLER LÉT EKKI
AÐSÉRHÆDA
Snillingurinn
Jack Nicklaus
sýnir golf á
Nesvellinum
í lok ágúst
GOLFSNILLINGURINN
Jack Nicklaus, sem um
helgina varð í þriðja sæti
í ensku meistarakeppn-
inni og hefur þrisvar
sinnum verið kosinn
íþróttamaður ársins í
Bandaríkjunum mun að
öllum líkindum sýna golf
á Nesvellinum 22. áaúst
nk. Ekki er alveg gengið
frá þessu máli, en mik-
ið þarf að breytast til að
ekki verði af sýnikennslu
Nicklaus.
Það er blessaður laxinn, sem
dregur Nicklaus hingað til
lands í sumar, og persónuleg
vinátta hans við einn af
meðlimum Golfklúbbs Ness
gerir það að verkum að hann
ætlar að sýna þar. Nicklaus hef-
ur áður komið hingað til lands I
laxveiði og lfkað dvölin hér á
landi mjög vel. Fyrir þá sem
ekki eru .málum kunnugir er
óhætt að segja að Nicklaus sé
einn albezti kylfingur I heimi
og nafn hans álfka þekkt meðal
kylfinga og nafn Johanns
Crvuff meðal knattspyrnuunn-
enda.