Morgunblaðið - 13.07.1976, Page 32
18
MOKGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUOAOUK 13. JÚLI 1976
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. JULI 1976
19
DRUT ÆTLAR SER
AÐ RJÚFA EINOKUN
BANDARÍKJAMANNA
— ÞAÐ verður erfitt a standast
þær kröfur sem til min eru gerðar.
en ég mun gera mitt bezta til þess
að hafa Olympiutitil með mér
heim til Frakklands. Það er kom
inn timi til þess að rjúfa 40 ára
einokun Bandarikjamanna á titlin-
um.
Það var franski grindahalupar
inn Guy Drut sem mælti þessi orð
I viðtaii við fréttamenn er hann
lagði af stað frá heimalandi sinu
til Olympiuleikarma i Montreal, en
að margra áliti á þessi 25 áta
gamli Frakki góða möguleika á að
hreppa gullverðlaunin i 110 metra
grindahlaupi. en i þeirri grein er
hann nú heimsmethafi, og hefur
ekki tapað siðan á Olympiuleikun-
um ! Munchen 1972, er Banda
rikjamaðurinn Rod Miiburn sigraði
hann i úrslitahlaupinu Þá var
Drut litið þekktur og afrek hans
aflaði honum það mikilla vinsælda
i heimalandi hans, að siðan hefur
hann ekki þurft að gera annað en
að æfa grindahlaup, og það hefur
hann líka gert ósvíkið. Allt frá
leikunum í Munchen hefur hann
æft fimm klukkustundir daglega,
sex daga vikunnar, og segír hann
að slikt sé forsenda þess að kom-
ast i fremstu röð.
— Ég hef ekki mikla árhyggjur
af undankeppninni i Montreal,
sagði Druf i nefndu viðtali við
fréttamenn. — Það eru aðeins
Bandarikjamennirnir sem ég ótt-
ast i úrslitahlaupinu. en reynslan
hefur sýnt að þeir geta lengi bætt
við sig Þó held ég að það geti
tæpast verið að þeir séu i betri
æfingu en ég. og slikt hefur geysi-
lega mikið að segja i jafn erfiðri
keppni og Olympiuleikarnir eru.
Guy Drut setti heimsmet í 110
metra grindahlaupi á móti sem
fram fór í Berlín i ágúst í fyrra og
hljóp þá á 13,0 sek. í ár er bexti
árangur hans 13,1 sek. og náði
hann þeim árangri á móti i Norð
ur Frakklandi i júni. Hann álítur að
sigurvegarinn I Montreal þurfi að
setja nýtt heimsmet i úrslitahlaup
inu, og er sjálfur viss um að hann
eigi að geta hlaupið á 12.8—12,9
sek
Raymond Dubois, þjálfari Druts,
óttast Bandarikjamennina ekki
eins mikið. — Bandarikjamenn-
irnir hafa ekki nógu góða tækni,
sagði hann. — Sá sem ég held að
verði erfiðastur er Alejandro
Casanas frá Kúbu, þ.e.a.s. ef hann
brotnar ekki niður áður en að
úrslitahlaupinu kemur
Drut segir að það sem hvað
erfiðast hafi verið fyrir sig í sam-
bandi við undirbúning leikanna í
Montreal hafi verið að hann hafi
aldrei verið látinn f friði — Ég var
alltaf með hundrað manns á bak-
inu, sagði hann, — allir vilja gefa
mér ráð, — blaðamenn vilja við-
tök, stelpurnar vilja að ég sofi hjá
þeim. Ég vit vera i friði með þjálf-
ara minum.
Guy Drut er af enskum ættum,
og var afi hans þekktur knatt-
spyrnumaður i Englandi á sinum
tfma. Það var þvi mikið rætt um
iþróttir i fjólskyldu hans, og þegar
Drut byrjaði að æfa fylgdist öll
fjölskyldan með honum og hvatti
hann til dáða Þetta varð mjög til
þess að ýta undir metnað hans, og
sjálf soryggi. en einmitt þetta
tvennt hefur fært Drut enn nær
settu marki en flest annað.
Guy Drut kemur að markl I öóru sæti á leikunum 1 Miinehen
1972 sjönarmun á eftir bandaríska blökkumanninum Rod Mil-
burn.
Bandaríska Olympíuliðið:
— VIÐ höfum ef til vill farið með
fleiri stjörnur áður til Olvmpíu-
leika, en óhætt er að fullvrða að
bandariska liðið er skipað mjög
jöfnum og frábærum fþrótta-
mönnum, sagði talsmaður banda-
rfska frjálsfþróttasambandsins að
loknu úrtökumóti Bandarfkjanna
fyrir Olympíuleikana í Montreal,
sem fram fór f Eugene f Oregon
fyrir skömmu. Meðal þeirra sem
þar tryggðu sér rétt til þátttöku í
leikunum f Montreal voru tveir
gullverðlaunahafar frá Olympfu-
leikunum í Miinchen, fjórir
heimsmethafar, fjórir kornungir
spretthlauparar, auk margra
þekktra íþróttamanna sem verið
hafa í fremstu röð að undanförnu.
Eins og oftast áður fara Banda-
rfkjamenn þó ekki með sitt
„sterkasta" lið til Montreal, þar
sem þær reglur gilda þarlendis,
að þrfr fyrstu menn í úrtökumót-
inu eru sendir til leikanna og
gildir einu hver árangur þeirra er
í úrtökumótinu og hvort aðrir
hafa gert betur skömmu áður.
Hins vegar er breiddin slík f
handarískum frjálsíþróttum, að
þó að svo fari á úrtökumótinu að
frægir kappar heltist úr lestinni,
þá er valinn maður í hverju rúmi
í Olympíuliðinu.
Þetta var í fyrsta sinn sem úr-
tökumót Ifarla og kvenna fór sam-
tímis fram í Bandarikjunum og
var keppnisfyrirkomulagið ná-
kvæmlega hið sama og verður á
Olympíuleikunum í Montreal.
Gífurlegur áhugi var á keppninni
í Eugene, svo sem bezt má sjá af
því að áhorfendur voru samtals
um 150 þúsund talsins.
Fyrir suma bandaríska
frjálsfþróttamenn var mót þetta
endalok keppnisferilsins. Meðal
þeirra var hinn gamalkunni
grindahlaupari, Ralph Mann, sem
hlaut silfurverðlaun í 400 metra
grindahlaupi á Olympíuleikunum
í Munehen 1972.
— Hvar eru allir ungu grinda-
hlaupararnir spurði Mann fyrir
úrslítahlaupið, en i því fékk hann
svo svar frá þeim Quentin
Wheller sem er 21 árs, Mike
Shine sem einnig er 21 árs og
Edwin Moses sem er 20 ára. Þeir
skutu Mann ref fyrir rass, þannig
að hann verður að láta sér það
nægja að fylgjast með Olympfu-
leikunum sem áhorfandi.
Meðal þeirra sem margir voru
búnir að bóka sem örugga sigur-
vegara í Montreal, en verða að
sitja heima eru Steve Williams
spretthlaupari og millivega-
lengdahlauparinn Marty Liquori.
Williams sem verið hefur nær
ósigrandi í spretthlaupunum að
undan förnu og hefur jafnað
heimsmetið í greininni nokkrum
sinnum varð fyrir smávægilegum
meiðslum í Eugene sem leiddu til
þess að hann varð ekki meðal
þriggja fyrstu. Liquori, sem er nú
27 ára, varð að hætta í 5000 metra
hlaupinu og sagði eftir á að það
hefði fyrst og fremst verið vegna
þess að hann hefði ekki verið
kominn i nægjanlega gott form.
— Hefði úrtökumótið verið víku
siðar, er ég ekki í vafa um að ég
hefði verið meðal keppenda í
Montreal, sagði Liquori.
Gullverðlaunahafarnir tveir frá
leikunum i Munchen sem munu
freista þess að verja titil sinn i
Montreal eru þeir Frank Shorter
sem sigraði í maraþonhlaupinu og
Randy Williams sem sigraði í
langstökkinu. Shorter lét sig ekki
muna um að sigra í tveimur
greinum í úrtökumótinu, fyrst
10.000 metra hlaupi og siðan
maraþonhlaupi. Virðist hann vera
í geysilega góðri æfingu, enda lít-
ið gert annað en að hlaupa síðan
hann hreppti Olympíutitilinn
1972. Þegar hann var að því
spurður eftir úrtökumótið hvort
hann áliti sig eiga möguleika á að
verja titilinn, svaraði Shorter því
heimsmetið í tugþraut og bætti
það raunar i úrtökumótinu úr
8.524 stigum í 8.538 stig, en sá
árangur verður þó ekki viður-
kenndur sem met, þar sem notuð
var garhla aðferðin við timatöku,
þótt sjálfvirk tímataka væri til
staðar.
Að venju ætla Bandarikjamenn
sér stóran hlut i spretthlaupun-
um, og tefla fram til þeirrar
til að hann færi til þess ti)
Montreaí, en í hlaupinu yrðu
sennitega 50—60 keppendur sem
ætluðu sér sigurinn.
Þeir sem keppa með Shorter i
10.000 metra hlaupinu verða Bill
Rodgers og Garry Björklund, en
sá siðarnefndi sýndi af sér mikla
hörku í úrtökumótinu. Hann
missti af sér skóinn i hlaupinu og
tafðist um margar sekúndur við
að koma honum aftur á sig. Hann
lét þetta óhapp samt sem áður
ekki á sig fá og kom þriðji i mark-
ið.
Randy Williams, sem var aðeins
19 ára þegar hann sigraði í
MUnchen, álti i harðri baráttu
með að komast á leikana í Montre-
al. Hafnaði hann í þriðja sæti á
úrtökumötinu á eftir Arnie
Robinson, sem hlaut bronsverð-
laun í Munchen og Larry Myicks
sem varð annar.
Heimsmethafarnir i bandariska
liðinu sem keppir í Montreal eru
þeir Dave Roberts sem á metið í
stangarstökki, Dwight Stones,
heimsmethafi í hástökki, Mac
Wilkins, heimsmethafi í kringlu-
kasti og Bruce Jenner sem á
Bandarísku stangarstökkvararnir Dave Roberts, neðri myndin og Earl
Bell, efri myndin. Að margra áliti mun baráttan um gullið í Montreal
standa milli þeirra.
Mac Wilkins — heimsmethafi I kringlukasti og líklegur Olympíusigurvegari f sinni grein.
keppni kornungum, en bráðefni-
legum hlaupurum. Meðal þeirra
eru Harvey Glanee sem er 19 ára
og sigraði í 100 metra hlaupi úr-
tökumótsins á 10,11 sek., Houston
McTear sem er einnig 19 ára og
Millard Hampton sem sigraði í
200 metra hlaupi úrtökumótsins á
20,10 sek. Yngsti spretthlaupari
Bandaríkjanna á leikunum er að-
eins 17 ára. Sá heítir Dwayne
Evans og varð hann fjórði í 100
metra hlaupinu og komst því í
boðhlaupssveitina.
Elstu menn í bandaríska
Olympíuliðinu í frjálsum íþrótt-
um eru jafnaldrarnir Jay Silvest-
er og Ron Laird. Silvester keppir
nú i fjórða sinn í kringlukasti á
Olympíuleikum, en Ron Laird
keppir í göngu. Aðrir Olympíufar-
ar sem komnir eru yfir þrítugt
eru Willie Davenport sem varð
annar í 110 metra grindahlaupi
úrtökumótsins — gullmaður i
þessari grein frá leikunum 1968,
— og keppir nú í fjórða sinn á
Olympíuleikum, George Woods,
silfurverðlaunahafi í kúluvarpi
frá leikunum 1972 og Larry Walk-
er sem keppir í 20 kílómetra
göngu. Allir eru þessir k.appar 33
ára.
Meðal bandarísku Olympiufar-
anna nú er Rick Wohlhuter sem
sigraði bæði í 800 og 1500 metra
hlaupi úrtökumótsins í Eugene,
en slíkt er næsta fátítt.
Wohlhuter hefur undanfarin ár
verið í fremstu röð millivega-
lengdahlaupara í heiminum og
þykir mörgum sennilegt að hann
láti ekki sinn hlut baráttulaust í
Montreal, jafnvel þótt andstæð-
ingarnir séu ekki minni karlar en
John Walker og Filbert Bayi.
Það vakti mikla athygli á úr-
tökumótinu að ungur piltur, Bill
Jankunis að nafni sigraði heims-
methafann í hásHikki Dwight
Stone, næsta örugglega, en
Jankunis hefur að undanförnu
æft með Stone og lært af honum.
Þetta var fyrsti ósigur Stones á
móti utanhúss á þessu keppnis-
tímabili, og virtist hann ekki
leggja ýkja hart að sér, eftir að
hann hafði tryggt sér þátttökurétt
á leikunum, og var það mál sumra
hlaðamanna er fylgdust með
keppninni að Stone hefði ekki
gert það sem hann gat, bæði til
þess að auka sjálfstraust félaga
síns og eins til þess að búa sig
undir að taka tapi í Montreal.
Þriðji bandaríski keppandinn i
hástökki á Olympíuleikunum
verður James Barrineau, sem
stökk sömu hæð og Stones á úr-
tökumótinu.
Kvennaliðið sem Bandaríkja-
menn senda nú til leikanna er
sennilega til muna sterkara en
fyrr. Náðu stúlkurnar mjög góð-
um árangri á úrtökumótinu og
bættu nokkur bandarisk met. Sú
el vakti hvað mesta athygli var
hin 16 ára Rhonda Brady sem
hljóp 100 metra grindahlaup á
13,25 sek. sem er 1/100 úr sek-
úndu betri tími en gildandi
bandarískt met. Flestar stúlkn-
anna eru kornungar — 18—19
ára, og er talið líklegt að margar
þeirra kunni að koma á óvart í
keppninni. Bandaríkjamenn
senda þó ekki fullskipað kvenna-
lið til keppninnar i Montreal, þar
sem konurnar náðu ekki í nokkr-
um greinum þeim lágmörkum
sem alþjóða-OIympíunefndin
hafði sett sem skilyrði fyrir þátt-
töku fleiri en eins keppanda frá
hverju landi.
Hér á eftir fara nöfn banda-
rísku frjálsíþróttakeppendanna á
Olympíuleikunum í Montreal:
100 metra hlaup: Harvey Glance,
Houston McTear og Steve
Riddick
200 metra hlaup: Millard Hamp-
ton, Dwayne Evens og Mark Lutz
400 metra hlaup: Maxie Parks,
Herman Frazier og Fred New-
house
800 metra hiaup: Rick
Wohlhuter, James Robinson og
Mark Enyeart
1500 metra hlaup: Rick
Wohlhuter, Matt Centrowitz og
Mike Durkin
10.000 metra hlaup: Frank
Shorter, Craig Virgin og Garry
Björklund
110 metra grindahlaup: Charles
l'rost, Willie Davenport og James
Owens.
400 metra grindahlaup: Edwin
Moses, Quentin Wheeler og Mike
Shine
Hástökk: Bill Jankunis, Dwight
Stones, James Barrineau
Langstökk: Randy Williams,
Arnie Robinson, Larry Myicks
Þrístökk: James Butts, (eini
keppandinn)
Stangarstökk: Dave Roberts, Earl
Bell og Terry Porter
Kúluvarp: A1 Feuerbach, George
Woods og Pete Shmock
Kringlukast: Max Wilkins, John
Powell og J ay Silvester
Sleggjukast: Larry Hart (eini
keppandinn)
KONUR
100 metra hlaup: Brenda
Morehead, Chandra Cheesebor-
ough og Evelyn Ashford
200 metra hlaup: Þær sömu og i
100 metra hlaupi
400 metra hlaup: Derba Sapenty,
Sheila Ingram, Rosalyn Bryant
800 metra s hlaup: Madeline
Manning Jackson, Cyndy Poor og
Kathy Weston.
1500 metra hlaup: Cyndy Poor,
Jan Merill og Francie Larrieu
100 metra grindahlaup: Khonda
Brady, Derby Laplante og Pat
Donnelly
Ilástökk: Paula Girven, Conny
Iluntley og Pam Spencer
Langstökk: Kathy McMillan,
Sherron Walker og Martha
Watson
Spjótkast: Kathy Smidt, Sherry
Calvert og Karin Smith
Fimmtarþraut: Jane Frederick,
Gale Fitzgerald og Marilyn King.
vaunn maður
[ HVERJU RÚMI
íþróttirnar ofar flestu ööru
AUSTUR-ÞJÓÐVERJAR ÆTLA SÉR 35 GULL í MONTREAL
MEÐAN hið frækna austur-þýzka sund-
fólk var önnum kafið við að setja hvert
heimsmetið af öðru á úrtökumóti fyrir
Olympíuleikana I Montreai, fór fram
íþróttamót f útjaðri Berlínar þar sem
Ines Baumgartner hljóp 800 metra
hlaup kvenna á tveimur mfnútum og
þrjátfu sekúndum. Afrek hennar vakti
enga eftirtekt enda ekki ógnun við
heimsmetið sem er vel innan við tvær
mfnútur. Ines er heldur alls ekki full-
vaxin stúlka. Hún er aðeins 12 ára, en
hún, ásamt þúsundum þýzkra skóla-
harna, hefur iðkað hlaup sfðan hún yar
tfu ára.
Börn á skólaleikvöngunum og hinar
þekktu íþróttastjörnur Austur-Þjóðverja
eiga það sameiginlegt, að þau eru upp-
skera áætlunar um að Austur-Þýzkaland
verði mesta íþróttaveldi heimsins. Ar-
angur þeirrar áætlunar er þegar farinn
að sjást i verki, þar sem Austur-
Þjóðverjar hafa á siðustu fjórum árum
hlotíð 99 verðlaun á Olympiuleikum, þar
af 31 gullverðlaun á leikunum i Múnth-
en. Sapporo og í Innsbruck. Nú búast
Austur-Þjóðverjar við þvi að þeir muni
hljóta 30—35 guilverðlaun á leikunum i
Montreal og hyggjast sækja sum þessara
gullverðlauna á vigstöðvar sem hingað
til hafa verið álitnar óvinnandi þ.e. ná
þeim af bandaríska sundfólkinu
Þegar tekið er tillit il þess að i Austur-
Þýzkalandi eru nú um 17 milljónir íbúa
tekur uppskera þeirra á Olympiuleikum
langt frarn uppskeru stórveldanna:
Bandarikjanna og Sovétríkjanna, sem
hafa margfalt fleiri íbúa.
I ÖÐRU SÆTI
A VETRARLEIKUNUM
A vetrarleikunum i Innsbruck í Aust-
urríki i vetur hlutu Austur-Þjóðverjar
næst flest verðlaun. Það voru aðeins
Sovétmenn sem fengu fleíri verðlaun. I
Múnehen varð Austur-Þýzkaland í þriðja
sæti, á eftir Sovétrikjunum og Banda
rikjunum, og þá hlutu sundstúlkur
þeirra engin gullverðlaun. Nú eiga þær
samtals ellefu heimsmet og bendir það
sannarlega til þess að uppskeran verði
meiri í Montreal.
Margir hafa velt því fyrir sér hver sé
ástæðan fyrir svo frábærum árangri
austur-þýzka iþróttafóiksins, Þegar mál-
ið er skoðað niður i kjölinn kemur í ljós
að þarna er ekki um neitt kraftaverk að
ræða. Upphafið að öllu saman er fundur
æðstu manna rfkisins sem haldinn var
fyrir luktum dyrurn fyrir tfu árum. Þar
var eínfaldlega ákveðið að nota iþrótta-
fólk til þess að auglýsa landið og þjóð-
Kornelia Ender — margir spá þvf að
hún verði jafn atkvæóamikil á leikunum
í Montreal og Shane Gould var á leikun-
um í Munchen.
skipulag þess og gerð áætlun til fimnt
ára hvernig staðið skyldi að málum. Þeg-
ar sú fimm ára áætlun rann út var ný
áætlun gerð og nú tnun þriðja fimtn ár
áætlunin senn fullbúin. Ekki búast
stjórnmálamennirnir við þvf að Austur-
Þýzkaland hafi þá þegar náð settu
marki, og eru því tilbúnir að gera fjórðu
fimrn ára áætlunina ef með þarf. Þótt
ekki hafi þessar áætlanir komið fram i
dagsljósið, er vitað að þær gera ráð fyrir
að Austur-Þýzkaland eigi svo og svo
marga gullmenn á flestum stórmötum
sem um er að ræða.
Til þess að markmiðið náist er ekkert
til sparað. Börn eru teKln í þjálfun þegar
á unga aldri, og síðan eru þau beztu
valin úr, og þeint séð fyrir öllu sem til
þarf til þess að gera þau að afreksfólki á
fullorðins árum. Hlaup lnes, sem minnzt
er á í upphafi, er því ekkert annað en
hluti af hennar skyldunámi, og ræðst
það síðan af mati eftirlitsmanna hvort
hún er hæf til áframhaldandi æfinga eða
hvort hún á fremur að sinna einhverju
öðru sem hún er hæfari tiL
FULLKOMIÐ KERFI
Vestur-þýzkir blaðamenn sem fengið
hafa leyfi til þess að heimsækja skóla i
Austur-Þýzkalandi og kanna hvernig
þjálfun ungmenna er háttað, eru sam-
mála um að kerfið sé fullkomið tii þess
að skapa afreksfólk. Það er íþrótta
háskölinn i Leipzig sem hefur umsjón
með allri skipuiagningunni, og má nefna
sem dæmi að hluti af þjálfun ungling
anna eru nokkurs konar Ólympiuleikar
Þýzkalands, og er tilgangurinn meó leik
um þessum að venja börnin allt frá unga
aldri við hinn 'sérstæða anda og seið-
magn sem fylgir Olympíuleikum. Á
þessa unglingaleika komast aðeins þeir
beztu og tilhögun leikanna er mjög svip-
uð tiihögun „alvöru" Olympíuleika. Bak
við svífur svo sá andi yfir vötnunum að
ef einhver vinnur góð íþróttaafrek þá sé
það i þágu föðurlandsins og kommún
ismans.
— Þótt þetta sé í sjálfu sér heillandi.
er það jafnframt ógeðslegt, segja vestur-
þýzku blaðamennirnir. Stundum fannst
okkur börnin hreinlega vera eins og
vélmenni, og þvf meira sem þau urðu
eldri og komust betur inn í hugsunar-
háttinn á bak við keppnina. Vökul augu
þjálfaranna virtust hvila á þeim á nóttu
sem degi, og það var haria fátitt að sjá
gleði i andliti barnanna og unglinganna
sem voru að keppa. Það var ekki einu
sinni að sjá að sigurinn gleddi þau, né
heldur verðlaunin, en þeim var alltaf
verið að úthluta. Það var sama hvort við
komum i leikfimisal sex ára barna eða
fullorðins fólks, allstaðar voru verð
launapallar.
IÞRÖTTIR FYRIR
ALMENNING
Það fer þcTekki hjá því, þrátt fyrir allt,
að áætlunargerð rikisins um afreks-
iþróttafólk hefur leitt það af sér að
iþróttaiðkanir eru meiri meðal almenn-
ings i Austur-Þýzkalandi, og íþrótta
áhugi er þar ntjög almennur. Af hálfu
stjörnvalda er Iika mjög mikið gert til
þess að almenningur hafi sent bezta að
stöðu til útivistar og hreyfingar, og við
flest meiriháttar atvinnufyrirtæki er
íþróttaaðstaða slík að varla er hægl að
hugsa sér hana fullkomnari.
Blaðamennirnir vestur-þýzku sem
skrifuðu unt iþróttaiðkanir Austur
Þjóðverja sögðu, að þeim virtist sama
hugarfars gæta hjá nágrönnununt sinum
og hjá bandariskum blökkumönnum
íþróttir eru eina leióin til þess að komast
á toppinn I samfélaginu. Þegar þjóðfé
lagið býr þessum hugsunarhætti beztu
mögulegu ytri skilyrði er varla annars að
vænta en að verðlaunin streymi inn
segja þeir.
Austur-þýzka frjálsiþróttafólkið sem sigraði f siðustu Evrópuhikarkeppni — það ætlar sér stóran hlut á Olympfuleikunum
í Montreal. og er ekki að efa að það fer heimleiðis með góðmálma í farangrinum.