Morgunblaðið - 13.07.1976, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13.JULÍ 1976
29
fclk í
fréttum
Aðgátskalhöfð....
+ Boli getur stundum verið
erfiður viðureignar eins og
portúgalski nautabaninn
Parreirita Cigano fékk að
reyna á Plaza de Toiros leik-
vanginum f Lissabon nú fyrir
skömmu. Skömmu áður en
myndin var tekin hafði
Parreirita haft f frammi
loddaraskap og ffflalæti við
mikinn fögnuð áhorfenda en
boli hefur greinilega ekki
kunnað eins vel að meta fram-
komu nautabanans og þvf fór
sem fór. Parreirita var sendur á
spftala en mun hafa sloppið við
meiriháttar meiðsli og er Ifðan
hans nú eftir atvikum.
„Hvað ætl-
ar pabbi að
gera þegar
hann verður
stór?”
+ BÍTILLINN fyrrver-
andi, Paul McCartney
hefur að undanförnu ver-
ið á hljómleikaför um
Bandaríkin ásamt hljóm-
sveit sinni Wings — en
að sögn sérfróðra hefur
förin verið ein samfelld
sigurganga fyrir hann og
hljómsveitina. Blöð
vestra tala um „endur-
komu McCartney“ og
telja að vinsældir hans
séu nú engu minni en
þegar Bítlarnir voru og
hétu. Linda, eiginkona
Pauls, sem leikur á pianó
í hljómsveitinni hefur þó
fengið misjafna dóma
sem hljómlistarmaður
en Paul kærir sig kollótt-
an. „Hún er konan mín
og ég vil hafa hána með,
hvað sem tautar,“ segir
Paul. I förinni eru einnig
börn þeirra hjóna og er
þeirra vel gætt af lífverði
á meðan mamma og
pabbi leika listir sinar á
sviðinu, „Börnin elska
tónlist,“ segir Linda, „en
þau skilja þetta tónlistar-
stúss ekki fullkomnlega
og spyrja oft hvað pabbi
ætli að gera þegar hann
verður stór.“
— Minning
Guðjón
» Framhald af bls. 27
jafnan meðfætt og ávanið að vera
allur í starfinu. Hann hlaut virð-
ingu og vinsemd margra starfsfé-
laga sem kveðja hann saknaðar-
kveðju. Guðjóni var ekki hugleik-
ið að dvelja við störf sín i fjöl-
mennu umhverfi. Hann kunni að
meta kyrrðina og njóta hennar.
Hann kunni vel við sig á skrifstof-
unni sinni, þar sem hann hafði
prúðan og vinsamlegan starfsfé-
laga og hlýhugurinn teygði sig
yfir borðið og létti störfin án
margra orða. Þarna var gott að
koma, dvelja nokkrar mínútur í
starfshléi, blanda geði og finna
ylinn, sem eftir var, þegar út var
gengið og hurð féll að stöfum.
Arið 1949 gekk Guðjón Ölafsson
í hjónaband. Eiginkona hans var
Auður Þórðardóttir frá Hergilsey
á Breiðafirði. Voru þau hjónin á
sama aldursári. Þau eignuðust og
ólu upp 6 mannvænleg börn.
Tveir elstu synirnir stunda að
loknu undirbúningsnámi iðnaðar-
störf, sá þriðji er byrjaður á við-
skiptafræðinámi við Háskólann,
en þrjú yngri börnin eru á
bernsku og æskuárum. Auður lif-
ir mann sinn.
Þegar Guðjón Ólafsson vann við
Kaupfélag Hvammsfjarðar áttum
við margt saman að. sælda. Ég
vann þar stundum um tíma sem
aukastarfsmaður og dvaldist þá
oft á heimili hans. Þessi samvera
og samstarf treysti stöðugt vin-
áttu okkar. Eftir að ég varð eins-
konar nágranni hans, sem auka-
starfsmaður á skattstofu Reykja-
víkur, fann ég sama vininn aftur
og endurnýjaði kunningsskapinn.
Það sem mér verður minnisstæð-
ast frá því timabili er sá hetju-
skapur, sem hann sýndi á sein-
ustu mánuðum ævinnar, þegar
banasjúkdómurinn herjaði og
leitað var i þróunar í starfinu til
seinustu stundar. Undir þetta veit
ég að munu taka margir starfsfé-
lagar hans og vinir úr þeim 70
manna hópi, sem störfuðu í ná-
lægð hans. Með undrun og aðdáun
var horft á orustu þá, sem þarna
var háð. En nú er hugsað til
þeirra nánustu með virðingu og
samúð. Það er dýrmæt og vand-
meðfarin eign minning um trygg-
an vin og góðan dreng
Geir Sigurðsson,
frá Skerðingsstöðum.
Nýkomið
__ • _ -■ ®
TY]^T*1 TT^ 0lrlr0
í fjölbreyttu úrvali
Gardinuhúsið,
Ingólfsstræti 1 A, simi 16259.