Morgunblaðið - 13.07.1976, Qupperneq 26
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGÚR 13. JULI 1976
Pat úr
lífshœttu
Long Beach, Kalifomfu,
12. júlf— AP.
Patricia Nixon er nú úr lífs-
hættu, en líðan hennar er enn
slæm eftir hjartaslagið, sem
hún fékk s.l. miðvikudag. Frú
Nixon er lömuð vinstra megin
eftir áfallið, og segja læknar,
að ekki fáist úr því skorið fyrr
en eftir þrjá mánuði hvort hún
muni ná sér að fullu.
— og Formósumenn fara a.ö.1. til síns heima
kynnti s.l. sunnudag, að Olympíu-
leikarnir færu fram eins og upp-
haflega var gert ráð fyrir, þrátt
fyrir þá afstöðu Kandastjórnar að
banna íþróttamönnum frá For-
mósu að keppa þar fyrir hönd
Lýðveldisins Kina. Killanin
lávarður sagði í dag, að fyrrnefnd
tillaga um þátttöku Formósu-
manna hefði verið tilraun til
málamiðlunar, en ákvörðun
nefndarinnar um að halda leik-
ana þrátt fyrir ágreininginn við
Kandastjórn hefði einungis verið
tekin vegna allra þeirra
keppenda, sem hefðu undirbúið
þátttöku sína i leikunum árum
saman. Killanin sagði ennfremur,
að vissulega hefði komið til
greina að aflýsa Olympíuleikun-
um, en nefndin hefði valið þann
kost að gera það ekki, þar sem slik
ákvörðun hefði getað haft þær
afleiðingar, að hún hefði ekki
lengur áhrif á framkvæmd
Olympíuleikanna.
Á fréttamannafundi var Killan-
áttunni áfram. Mér er sama þótt
ég fái glóðarauga. Ég ris upp
aftur, og það mun Alþjóða-
olympíunefndin einnig gera.“
A fundinum gagnrýndi Killanin
Kandastjórn harðlega, og sagði,
að allur heimurinn væri búinn að
fá nóg af stjórnmálamönnum,
sem væru að skipta sér af íþrótt-
um. Sagði hann Kandastjórn hafa
gengið á bak orða sinna, því að í
samningi sínum við Alþjóða-
olympiunefndina hefði stjórnin
heitið óhindraði þátttöku allra
þeirra iþróttamanna, sem sam-
þykktir væru af nefndinni, auk
þess sem hann hefði fært For-
mósu-málið í tal við fulltrúa
Kanadastjórnar oftar en einu
sinni á siðasta ári, og þá hefði
ekki verið orðað, að þar yrði um
Framhald á bls. 35
Montreal — 12. júlf — AP
ALLAR horfur eru nú á því, að
Formósu-menn hætti við þátttöku
f Olympfuleikunum, sem hefjast í
Montreaf n.k. laugardag. Þeir
hafa hafnað málamiðlunartillögu
Killanins lávarðar, forseta Al-
þjóðaolympfunefndarinnar
(IOC), um að þeir taki þátt f
göngunni við opnunarathöfnina
og beri þar fána Olympíunefndar-
innar og merki með heiti
Alþjóðaolympfunefndarinnar.
Formósu-menn segjast ætfa að
hætta við þátttöku verði banni
Kanadastjórnar við þvf að þeir
beri fána Lýðveldisins Kína við
opnunarathöfnina haldið til
streitu.
Alþjóðaolympiunefndin til-
Aftaka málaliðanna
orsakar versnandi
samskipti við Angóla
segir Henry Kissinger
Luanda — l.issabon. 12. júlf —AP.
AFTAKA málaliðanna fjögurra f
Angóla s.l. laugardag hefur vakið
mikla athygli, og hafa rfkisstjórn-
ir Bretlands og Bandarfkjanna
fordæmt aðgerðir stjórnarinnar í
Angófa á þeirri forsendu, að það
brjóti ekki í hága við alþjóðalög,
að menn gérist málaliðar. Þegar
málalokin voru kunn, sagði
Henry Kissinger utanrlkisráð-
herra Bandarfkjanna, að aftakan
mundi hafa f för með sér versn-
andi samskipti Angóla og Banda-
rfkjanna.
Áður en aftakan fór fram höfðu
þjóðarleiðtogar og málsmetandi
einstaklingar beint því til Agost-
ino Neto, forseta Angóla, að hann
þyrmdi lífi málaliðanna, en hann
hafnaði gjörsamlega slíkri mála-
leitan.
I útvarpsræðu sagði Neto, að
náðun kæmi ekki til greina þar
sem málaliðarnir hefðu bakað
íbúum Angóla þjáningar og slík
hegðun yrði ekki liðin á Afrískri
grund. Hann tók sérstaklega
fram, að aftakan ætti ekki sízt að
verða þeim víti til varnaðar sem
hygðust gerast málaliðar i
Rhodesíu og Namibíu, og „hvitir
leigumorðingjar ættu ekkert er-
indi til Afríku i því skyni að berj-
ast gegn því að meirihlutinn fengi
réttmæt völd i sinar hendur."
Þrír málaliðanna, sem líflátnir
voru á laugardaginn, voru Bretar,
en einn var Bandarikjamaður.
Bandaríski öldungardeildar-
þingmaðurinn Charles Mathias
var í Lissabon þegar fréttin um
ERLENT
aftökuna barst og beið þar eftir
vegabréfi til Angóla, en þangað
ætlaði hann til að freista þess að
fá dauðadómnum yfir bandaríska
málaliðanum Daniel Gearhart
hnekkt. Bandaríska sendiráðið í
Lissabon hefur farið þess á leit
við stjórnina í Angóla, að lík
Gearharts verði látið af hendi svo
hægt sé að jarðsetja hann i
Bandaríkjunum, en svar hefur
enn ekki fengizt við þessari ósk.
Óstaðfestar fregnir af aftök-
unni herma, að hún hafi farið
fram að viðstöddu fjölmenni í Lu-
anda kl. 17 að staðartima, og hafi
sendiherrar nokkurra ótil-
greindra ríkja verið meðal áhorf-
enda.
13 málaliðar hlutu dóma í rétt-
arhöldunum í Angóla í sfðasta
mánuði. Þeir niu, sem enn eru á
lífi, hafa verið dæmdir í 16—30
ára fangelsi fyrir þátttöku sína í
borgarastríðinu, þar sem MPLA
vann sigur með þátttöku um 14
þúsund manna liði kúbanskra
hermanna og vopnastyrk frá
Sovétríkjunum.
in að því spurður, hvort hann
hygðist láta af formennsku í
Alþjóðaolympíunefndinni eftir
þessi málalok, en hann svaraði
þrunginni röddu: „Auðvitað
hætti ég ekki. Ég mun halda bar-
Harðir
jarðskjálft-
ar í Panama
PanamafeorK — Washington,
12. júlf — AP.
FJORIR harðir jarðskjálftar
urðu nálægt landamærum
Kólumbfu og Panama s.l. sunnu-
dag, og mældist sá mesti 7.1 stig á
Richterskvarða. Fregnir hafa
ekki horizt af slysum á mönnum,
en nokkrar byggingar hrundu til
grunna. Erfiðleikar hafa verið á
samhandi við jarðskjálftasvæðið
og eru fregnir þaðan enn nokkuð
áreiki.
Spánn:
Víðtækar kröfur um
náðun pólitískra fanga
Madrid. 12. júlt — AP.
LÖGRFGLAN í Madrid tvístraði
mótmælafundi á aðaltorgi borgar-
innar s.l. sunnudag. en á fundin-
um voru 2—300 manns, sem
kröfðust náðunar pólitfskra fanga
og óhindraðrar starfsemi verka-
lýðsfélaga. Kommúnistaflokkur
Frank Sinatra
í hjónaband
Nrw Vork. 12. júll — AP.
BRÚÐKAUP Frank Sinatra og
Barbra Marx fór fram f Palm
Springs f Kalifornfu s.l. sunnu-
dag. Brúðkaupið fór fram að
sveitasetri Walter Annen-
bergs, sem eitt sinn var sendi-
herra Bandarfkjanna í Bret-
landi.
Um 120 gestir voru viðstadd-
ir brúðkaupið — þar á meðal
Spiro Agnew, fyrrverandi
varaforseti Bandaríkjanna, og
Ronald Reagan, sem keppir að
því að verða frambjóðandi
Repúblíkanaflokksins í for-
setakosningunum. Gregory
Peck og Kirk Douglas voru
einnig meðal gesta.
Áður hafði verið tilkynnt að
brúðkaupið yrði haldið í októ-
ber n.k.
Spánar boðaði til fundarins, en
hann er eini stjórnmálaflokkur
landsins, sem ekki hefur fengið
heimild til að starfa þar. Fundur-
inn orsakaði umferðaröngþveiti
og kom til handtöku einhverra
fundarmanna, en lögreglan vildi
ekki segja hve margir þeir voru.
Sama dag gengust vinstri sam-
tök sem kenna sig við lýðræðis-
lega samhæfingu, fyrir fundi í
Sevilla, þar sem krafizt var náð-
unar pólitískra fanga og höfðu
samtökin leyfi yfirvalda til fund-
arhalds. Fundinn í Sevilla sóttu
um 15 þúsundir manna, og fór
hann friðsamlega fram, en aðal-
ræðumaður á fundinum var leið-
togi sósíalista, Felipe Gonzales.
Mótmælaalda hefur gengið yfir
landið að undanförnu, og í síðustu
viku er talið, að alls hafi um 250
þúsundir tekið þátt í fundum og
öðrum aðgerðum i því skyni að fá
yfirvöld til að sleppa pólitiskum
föngum úr haldi.
Þegar Juan Carlos tók við kon-
ungdómi eftir lát Francos þjóðar-
leiðtoga Spánar í nóvember s.l.
náðaði hann 6 þúsund fanga, en
þeir voru flestir venjulegir af-
brotamenn, sem afplánuðu væga
dóma. Að sogn Manuels Fraga,
sem nýlega lét af embætti innan-
ríkisráðherra, eru um 650 póli-
tískir fangar í fangelsum á Spáni.
Búizt er við breytingum á refsi-
lögum landsins þegar þing kemur
saman um miðjan mánuðinn, og
er jafnframt talið, að konungur
hafi falið Suarez stjórnarmyndun
af þeirri ástæðu að hann sé helzt
fær um að koma slíkri lagabreyt-
ingu í gegnum þingið.
Þad var ekki nema von, að maðurinn tæki til fótanna
og leitaði skjóls, því að haglið, sem á honum dundi var
á stærð við dúfuegg. Myndin er tekin í Frankfurt s.l.
fimmtudag, en þá kom fyrsta úrkoman eftir þurrkana
miklu. Veðurguðirnir hafa sannarlega þurft að fá
útrás því að haglið reif seglskyggni i sundur og braut
gluggarúður. (AP-mynd).
Olympíuleikarnir:
I0C lét undan Kanadastjórn