Morgunblaðið - 20.08.1976, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. AGÚST 1976
5
Færeyingar þá ákvörðun að færa út fiskveiðimörk sin í
tvö hundruð mílur og birtist hér afstöðukort af hinum
nýju mörkum.
Búizt við harðnandi
átökum í Líbanon
Beirút — 19. ágúst — Reuter.
ÞÓTT bardagar f Beirút hafi ekki verið eins harðvftugir í dag og í gær,
hafa þeir haldið áfram, þrátt fyrir samkomulag hinna stríðandi afla
um vopnahlé f fbúðahverfum borgarinnar. Falangistar og Palestfnuar-
abar stððu að samkomulaginu, en Ifbanskir vinstrimenn undir forystu
Kamals Jumblatts og frjálslyndi þjóðernissinnaflokkurinn (NLP)
með Camille Chamoun innanrfkisráðherra f fararbroddi hafa ekki ljáð
máls á vopnahléi. Báðir þessir aðilar hafa virt að vettugi samninga um
vopnahlé, sem falangistar og Palestfnuarabar hafa gert að undan-
förnu.
Sumir stjórnmálaskýrendur f Beirút telja, að styrjöldin f landinu
muni enn magnast f næsta mánuði, þar eð styrjaldaraðilar muni allir
freista þess að styrkja stöðu sína áður en kjörinn forseti landsins,
Elias Sarkis, tekur við embætti hinn 23. september.
Utvarpsstöðvar hægri og vinstri
manna hafa báðar skýrt frá því að
Saeb Salam, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Lfbanons, hafi hitt
Pierre Gemayel, leiðtoga falang-
ista, að máli í dag til að reyna að
stöðva sprengjuárásir á ibúða-
hverfi í Beirút, en Salam mun nú
leitast við að miðla málum milli
vinstri manna og falangista, þann-
ig að vopnahléssamningurinn frá
því i gær verði haldinn.
Talið er að embættistaka Elias
Sarkis geti orðið til þess að auka
líkur á friðarsamkomulagi, og
þess verður nú vart, að hægri
öflin i Líbanon verða æ hlynntari
þvi, að landinu verði skipt. Virð-
ist helzt koma til greina að skipta
landinu milli múhameðstrúar-
manna annars vegar og kristinna
manna hins vegar, en þegar er
slík skipting að vissu leyti orðin
staðreynd, þótt ekki hafi hún
hlotið formlega staðfestingu. Með
falli Tel Al-Zaatar í síðustu viku
og úthverfisins Nabaa, sem að
mestu leyti hefur verið byggt mú-
hameðstrúarmönnum, í byrjun
ágúst, eru síðustu vigi múhameðs-
trúarmanna i austurhluta Beirút
úr sögunni.
Þótt horfur virðist á því að
vinstri sinnaðir Líbanir og falan-
gistar geti útkljáð sin mál. leysir
það ekki vandamál viðvikjandi
þeim Palestinuaröbum, sem eru i
Libanon, en hægri öflin I landinu
hafa gert tillögu um, að þeim
verði skipt niður í öll Arabalönd í
samræmi við ibúatölu viðkomandi
ríkja.
Að sögn útvarpsstöðva bæði
Framhald á bls. 22
Fjöldamorð við
háskóla í Úganda
FREGNIR frá Uganda herma að
fyrr i þessum mánuði hafi allt að
100 stúdentar við Makererehá-
skólann i Kampala verið myrtir af
hermönnum Ugandastjórnar eftir
að stúdentarnir höfðu á útifundi
krafizt þess að syni Amins, Tab-
an, yrði visað úr háskólanum, en
að sögn stúdentanna er hann ólæs
og hefur aldrei gengið i skóla, ef
undanskildir eru tveir mánuðir í
Moskvu, en faðir hans sendi hann
þangað til að nema flugvélaverk-
fræði. Sendu Sovétmenn Taban
heim að tveimur mánuðum liðn-
um. í júní sl. innritaðist Taban í
verkfræðideild Makerereháskóla,
en skipti skömmu siðar yfir í
tungumálanám.
Það mun hafa verið 5. ágúst sl.,
sem þessi útifundur var haldinn
og er Taban frétti af honum fór
hann til föður síns og skýrði hon-
um frá málavöxtum. Amin fyrir-
skipaði hermönnum sínum þegar
í stað að brjóta stúdentahreyfing-
una á bak aftur. Vitni að atburð-
inum segja að þegar hermennirn-
ir hafi ráðizt inn á háskólasvæðið
hafi margir stúdentar verið skotn-
ir til bana eða reknir í gegn með
byssustingjum. Um 500 stúdentar
voru þá teknir í gæzluvarðhald,
en þeir sem særðir voru, voru
látnir liggja i blóði sinu og komið
i veg fyrir að nokkur gæti komið
þeim til hjálpar. Þegar rökkur
féll á færðist ró yfir háskólasvæð-
ið og stúdentarnir, sem höfðu flú-
ið, sneru aftur til svefnálma
sinna. Um kl. 3 þá nótt sneru
hermennirnir aftur og réðust inn
í kvenna- og karlavistir. Var
fjölda stúlkna nauðgað og þeim
misþyrmt á hinn hroðalegasta
hátt og karlar myrtir.
Allt skólahald við háskólann
hefur legið niðri frá þvi að þessir
atburðir gerðust og um 800 stúd-
enta er saknað. Er talið að flestir
þeira séu i felum I Uganda og biði
eftir tækifæri til að flýja land.
Brezku blöðin Observer og
Guardian birtu um siðustu helgi
frásgnir af þessum fjöldamorðum
frá fréttariturum 'sínum I Dar
—es Salaam i Tanzaniu, sem hafð-
Framhald á bls. 22
Við veitum
10% afslátt af öllum vörum
íverzlunumokkar
til mánaðamóta.
TtZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
(IL'ii) KARNABÆR
W AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a Simi frá sklptiboröi 28155