Morgunblaðið - 20.08.1976, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. AGUST 1976
— Robert Dole
Framhald af bls. 1
andi“, eins og hann orðaði það, og
átti þar við Jimmy Carter, fram-
bjóðanda Demókrataflokksins.
Jimmy Carter hafði í dag sam-
band við forsetann, til að óska
honum til hamingju með útnefn-
inguna.
Sigur Fords yfir Reagan hefur
víða mælzt vel fyrir, og málgögn
kommúnistaflokks Sovétríkjanna
sö'gðu i dag, að þetta væri fyrst og
fremst ósigur öfgaaflanna f
bandarískum stjórnmálum. Það
var ekki fyrr en síðla á aðfarar-
nótt fimmtudagsins, að úrslit at-
kvæðagreiðslunnar á flokksþing-
inu lágu fyrir, en Ford sigraði í
fyrstu atrennu með 1.135 atkvæð-
um gegn 1.052. Voru úrslitatöl-
urnar að heita má þær sömu og
fréttastofur bandarískra sjón-
varpsstöðva gerðu ráð fyrir þegar
í fyrrakvöld.
Viðbrögðin við úrslitunum voru
áköf meðal þingfulltrúa eins og
vænta mátti. Stuðningsmenn
Fords tóku að dansa og syngja,
þegar víst varð um sigur forset-
ans, og forsetafrúin sat klappandi
á palli í skauti fjölskyldunnar,
meðan litskrúðugum biöðrum
rigndi yfir hana í hundraðatali.
Lúðrar voru þeyttir og keðjudans
var stiginn, en þótt „Fordararnir"
væru ærslafullir í sigurvímunni,
voru hinir vonsviknu stuðnings-
menn Reagans þó enn hávaðasam-
ari. Varð uppistand mikið á þing-
inu, og missti fundarstjóri öll tök
á samkomunni um hrið, þar sem
rödd hans í hátalaranum kafnaði í
hávaðanum. Konur úr liði Reag-
ans brustu sumar hverjar í grát,
og beizkustu stuðningsmenn hans
létu að þvi liggja, að þeim mundi
veitast erfitt að Ijá Ford fylgi sitt
i forsetakosningunum.
Ronald Reagan tók ósigrinum
þunglega, og rödd hans brast
þegar hann sagði I kveðjuræðu til
stuðningsmanna sinna í dag:
„Auðvitað er ég vonsvikinn yfir
því sem gerðist í gærkvöldi, en
málstaðurinn er ekki úr sögunni.
Baráttan fyrir honum er sú bar-
átta, sem mun endast mér meðan
ég lifi."
Innan Repúblikanaflokksins
kvíða margir því, að erfitt muni
reynast að eyða klofningi flokks-
manna áður en kosningabaráttan
hefst fyrir alvöru. Ásakanir Reag-
ans á hendur Ford fyrir flokks-
þingið voru aðallega á þá lund, að
hann væri ekki nægilega sterkur
leiðtogi, auk þess sem hann hefði
gert afdrifarík mistök í utanríkis-
málum, og hafa ábyrgir stuðn-
ingsmenn Reagans haft orð á því,
að þetta muni verða forsetanum
að fótakefli, þannig að honum
takist ekki að sigra Carter í kosn-
ingunum. Sjálfur hefur Ford lýst
því yfir, að hingað til hafi kosn-
ingabarátta hans misst marks, og
muni hann nú gera ráðstafanir til
að snúa vörn í sókn. Stjórnmála-
skýrendur telja, að val hans á
varaforsetaefninu sé liður í þeirri
viðleitni.
— Dómur í haust
Framhald af bls. 36
tekjuskatts að fjárhæð samtals kr.
3.226.809,- og jafnframt með sama
hætti komist hjá greiðslu útsvara
fyrir sömu skattár að fjárhæð
samtals kr. 1.518.690.-. Loks var
Sigurbirni gefið að sök stórfelld
vanræksla og óreiðusemi í bók-
haldi vegna fyrrgreinds veitinga-
reksturs.
Máli þessu var vísað til dóms-
meðferðar við sakadóm Reykja-
víkur, og eru dómkröfur ákæru-
valds þær, að ákærðu verði
dæmdir til refsingar, sviptir leyf-
um til vínveitinga og veitingasölu
og til greiðslu alls sakar-
kostnaðar.
Fyrrgreindar upphæðir á verð-
lagi þess tíma, sem svikin áttu sér
stað nema samtals tæplega 38
milljónum króna.
Dómkröfur ákæruvaldsins eru
þær, eins og að framan greinir, að
ákærðu verði dæmdir til refsing-
ar og þeir sviptir leyfum. Aftur á
móti hafa skattyfirvöld hafið inn-
heimtuaðgerðir vegna vanskil-
anna i samræmi við sínar niður-
stöður. Hefur verið greint frá því
í Mbl. tvo síðustu daga, að lögmað-
ur Sigurbjörns Eiríkssonar hefur
áfrýjað lögtaksgerðum sem fram
hafa farið og sömuleiðis uppboðs-
skilmálum, og að sögn Guðmund-
ar Vignis Jósefssonar gjald-
heimtustjóra, er þetta i fyrsta
skipti sem slíkt gerist í sögu stofn-
unarinnar.
Samkvæmt upplýsingum Har-
alds Henrýsonar, sakadómara var
ákærðu, Sigurbirni og Magnúsi,
birt ákæran samdægurs, en þá
sátu þeir báðir í gæzluvarðhaldi i
Síðumúlafangelsinu í sambandi
við rannsókn Geirfinnsmálsins.
Málið var sent til sakadóms
Reykjavíkur frá embætti ríkissak-
sóknara og var það þingfest fyrir
dómnum 19. marz s.l. Verjendur
ákærðu, Ingi Ingimundarson hrl.
f.h. Sigurbjörns og Hafsteinn
Baldvinsson hrl. f.h. Magnúsar,
óskuðu framhaldsrannsóknar á
tilteknum at
Málið stendur þannig nú, að
verjendur hafa fengið frest til að
skila vörnum, en þeir höfðu óskað
eftir löngum fresti, þar sem þeir
hefðu iitinn aðgang haft að skjól-
stæðingum sínum vegna gæzlu-
varðhaldsvistar þeirra.
Þegar vörnum hefur verði skil-
að verður málið tekið til dóms.
Meðdómendur Haralds Henrýson-
ar í málinu eru Ragnar Ölafsson
hrl. og Árni Björnsson hdl., en
þeir eru báðir endurskoðendur að
menntun.
— Miki
Framhald af bls. 1
sér ábyrgð á Lockheed-málinu,
þar sem hann hafi verið varafor-
sætisráðherra þegar meintar
mútugreiðslur til Tanaka hafi far-
ið fram. Meðal þeirra þingmanna,
sem greiddu atkvæði með tillögu
um fundarboðið, voru þeir Takeo
Kukuda, varaforsætisráðherra, og
Mauaqoshi Ohira, fjármálaráð-
herra, en þeir hafa báðir þótt
líklegir sem eftirmenn Mikis.
— Danmörk
Framhald af bls 1
af hundraði, sem er lágmarkshlut-
fall ef flokkurinn á að fá þing-
menn kjörna. í öðru lagi eru
áhrifamenn i dönsku efnahagslifi
andsnúnir kosningum nú, en á
síðari árum hefur forysta danska
iðnaðarins í auknum mæli ljáð
Frjálslynda vinstri flokknum
stuðning sinn. íhaldsflokkurinn
vonast nú til að geta styrkt tengsl
sín við ráðandi öfl í atvinnulifinu,
þar sem Frjálslyndi vinstri flokk-
urinn var andvígur efnahags-
málafrumvarpinu.
Ihaldsflokkurinn fer ekki dult
með þá skoðun sina, að efnahags-
ráðstafanirnar hefðu þurft að fela
í sér meiri skattaívilnanir en raun
ber vitni, meiri stuðning við iðn-
aðinn í landinu og frekari sparn-
að í opinberri sýslu.
En að>einu leyti var látið undan
kröfum ihaldsmanna. Rikisstjórn-
in hætti við fyrirætlanir sinar um
að leggja einnar krónu gjald á
hverja ávisun, sem innstæðueig-
endur skrifa. Afgreiðslu tilhögun-
ar um skatt á hráefni til orku-
framleiðslu, sem ætlað er að
stemma stigu við óhóflegri orku-
notkun, var frestað, en tillagan
verður tekin fyrir þegar regluleg-
ir þingfundir hefjast að nýju I
haust. Vafasamt er hvort tillagan
nær fram að ganga þar sem marg-
ir þingmenn eru þeirrar skoðun-
ar, að hún setji atvinnulífinu
óeðlilegar skorður. Þó er vitað, að
Sósíalíski þjóðarflokkurinn, sem
að öðru leyti var á móti frumvarp-
inu, styður tillöguna um orku-
gjaldið, og eykur það Hkur á því
að hún verði samþykkt.
Nú er ljóst að stjórn Ankers
Jörgensen situr áfram enn um
sinn. Formaður Kristilega þjóðar-
flokksins hefur lýst því yfir, að
ekki verði um það að ræða að
fulltrúar hans og Róttæka vinstri
flokksins taki sæti í stjórninni.
Báðir studdu flokkarnir efna-
hagsmálafrumvarpið, og var um
það rætt, að þeir gengju til stjórn-
arsamstarfs. Enda þótt orðið
hefði af þessu samstarfi, hefði
stjórnin samt sem áður enn orðið
minnihlutastjórn, og sjá þessir
tveir smáflokkar sér hag í því að
vera óháðir, sérstaklega þar sem
þeir hafa nú öðlazt neitunarvald
þegar um er að ræða tillögur
stjórnarinnar í efnahagsmálum.
Sams konar áhrif hafa nú fallið i
skaut flokki miðdemókrata, sem
einnig studdu frumvarpið. Á móti
kemur, að flokkar þessir geta
ekki flutt tillögur, sem stríða
gegn anda frumvarpsins, sem nú
er orðið að lögum.
Þær ráðstafanir, sem stjórnin
hefur nú öðlazt samþykki til að
framkvæma í efnahagsmálum,
munu gilda næstu tvö árin.
— Landsbanki
Framhald af bls. 36
leitað til fjölda banka og útibúa
og ég veit ekki annað en allir
hafi orðið við þessu."
— Er hægt að halda svona
ávisanahring gangandi án að-
stoðar starfsmanna viðkomandi
bankastofnunar?
„Ég vil nú ekkert tjá mig um
þetta. Málið er á því stigi að ég
tel það ekki rétt. En eftir að
Reiknistofa ba bankanna tók til
starfa er þetta útilokað á höfuð-
borgarsvæðinu. Hún hefur
miklu betri tök á þessu en áður
var og starf hennar samsvarar
því að ávísanakönnun fari fram
daglega."
Stefán Gunnarsson, banka-
stjóri Alþýðubankans:
„Sakadómur fékk I vetur út-
skrift á ákveðnum reikningum
viðskiptaaðila bankans, eftir að
hafa lagt fram ósk um það. Af
þeim reikningum, sem skoðaðir
voru I það heila, held ég að
einungis mjög fáir þeirra hafi
verið hér við bankann. Ég held
að þetta mál hafi komið til i
sambandi við Geirfinnsmálið."
— Telur þú að hægt sé að
halda.svona ávísanahring gang-
andi nema með aðstoð banka-
starfsmanna?
„Þessari spurningu treysti ég
mér ekki til að svara. En hinu
er ekki að leyna, að ef menn
leggja sig í líma við að svindla
eru anzi margar leiðið til Fþjóð-
félaginu.“
Valtýr Guðjónsson, útibús-
stjóri Samvinnubankans í
Keflavík:
„í marz 1974 var kaupmaður
einn i Keflavík I viðskiptum við
bankann í rúma 30 daga. Á
þessu tímabili fór fram ávisana-
könnun á vegum Seðlabankans
og lenti kaupmaðurinn í henni.
Var reikningi hans lokað strax
og hefur kaupmaðurinn ekki
verið með reikning hér síðan.
Eftir að þetta átti sér stað, var
óskað eftir upplýsingum um
viðskipti þessa manns, en siðan
þá hefur engin beiðni komið
hingað í bankann um upplýs-
ingar um einstaka viðskipta-
menn hans og þetta umrædda
mál er löngu afgreitt. Ég þekki
ekkert til þessa máls, sem nú er
i fréttunum og þetta var mjög
glannaleg frétt sem kom í Vísi
um daginn, að þessir glæfra-
fuglar sem talað er um hafi
stundað þetta fals i samráði við
útibú úti á landi. Nú liggja þau
öll undir grun. Það þarf að
birta nöfn og hreinsa þá sem
saklausir eru.“
Páll Briem, útibússtjóri Bún-
aðarbankans i Mosfellssveit:
„Nei, sakadómur hefur ekki
óskað eftir neinum upplýsing-
um um viðskipti við þetta úti-
bú.“
— Kron
Framhald af bls. 2
það sótti um í Kópavogi og fallizt
hafði verið á breytingar þær, sem
Kron fór fram á.
I félagstíðindum Kron í júlí sl.
sagði hins vegar um þetta mál:
„Mikið hefur verið rætt og ritað
um stórmarkaðinn sem Kron var
synjað um að koma á stofn í húsa-
kynnum SlS við Sundahöfn. Mál-
in standa þannig í dag, að Kópa-
vogskaupstaður hefur gefið vil-
yrði fyrir lóð, en stjórn Kron telur
þá lóð of litla undir stórmarkað.
Enn standa yfir viðræður við
borgaryfirvöld um hentuga lóð
undir stórmarkað í Reykjavík og
á meðan þær viðræður fela í sér
einhverja von um viðunandi
lausn verður beðið með ákvörðun
varðandi lóðina I Kópavogi.“
— Blaðamenn
Framhald af bls. 2
Höskuldssyni í gær, en fékk þau
svör, að hann ræddi ekki við
blaðamenn þann daginn. Blaðið
hafði samband við Baldur Möller
ráðuneytisstjóra í dómsmálaráðu-
neytinu og spurði hvort hann
teldi aðgerðir fulltrúans og
lögreglunnar lögmætar. Baldur
kvaðst ekki hafa aðstöðu til að tjá
sig um þetta mál, og visaði á yfir-
sakadómara, en til hans hefði lög-
fræðingur blaðamannanna snúið
sér og leitað skýringa á málinu.
Mbl. reyndi árangurslaust að ná
sambandi við Halldór Þorbjörns-
son yfirsakadómara í gærkvöldi.
Árni Páll Jóhannsson ljósmynd-
ari sagði í samtali við Mbl. i gær,
að örn Höskuldsson sakadóms-
fulltrúi hefði ýtt sér á undan hon-
um inn í húsakynni Sakadóms og
skipað sér að afhenda allar filmur
sem hann hefði á sér auk þeirrar
er i myndavélinni var. Er ljós-
myndarinn neitaði hefði fulltrú-
inn skipað rannsóknarlögreglu-
mönnum sem með honum voru að
taka filmurnar af honum. Árni
sagðist loks hafa afhent film-
urnar, en á aðeins einni þeirra
voru myndir af Schtitz. Var hon-
um að þvi búnu sleppt og fékk
hann þær filmur sem Schlitz var
ekki á afhentar siðar um daginn,
en hinni filmunni var haldið eftir.
Að sögn Berglindar Ásgeirs-
dóttur virtist Schiits sjálfur ekki
kippa sér upp við það að myndir
væru af honum teknar, og hvorki
hann né túlkur hans gerðu
athugasemdir við myndatöku ljós-
myndarans. Hún sagði að hvorki
hún né Árni Páll hefðu fengið
nokkrar skýringar á framkomu
sakadómsfulltrúans og lögregl-
unnar og hefði Ragnar Aðal-
steinsson lögfræðingur nú málið
til meðferðar fyrir þeirra hönd.
Ragnar Aðalsteinsson fékk
greinargerð frá þeim um málið og
óskaði þess í gær að fá skýrslu frá
Sakadómi um málið, en blaða-
mennirnir voru ekki yfirheyrðir á
meðan þeim var haldið I húsa-
kynnum Sakadóms.
Mbl. fregnaði í gær að stjórn
Blaðamannafélags Islands hygð-
ist koma saman til fundar í dag og
ræða mál þetta.
— Æfing
á Akureyri
Framhald af bls. 2
náðist strax, aðra síðar, eins og við
var að búast
— Helztu atriðin, sem ábótavant
var, voru að okkar dómi þessi 1)
Bein símalína er milli flugturns og
slökkvistöðvar, en nú kom greini-
lega fram eins og raunar var vitað
um áður, að hún þarf Ifka að ná til
lögreglustöðvar og sjúkrahúss. 2)
Nokkur smáatriði I boðunarkerfi þarf
að lagfæra 3) Greinilega kom í Ijós,
að lögreglulið, sem er á vakt, er ekki
nógu fjölmennt í slíkum tilvikum.
Lágmark er að tveir séu á lögreglu-
stöð, tveir á slysstað og fjórir til
fimm við umferðarstjórn á ýmsum
stöðum f bænum. í morgun voru
aðeins fimm eða sex menn á vakt og
þess vegna varð að kveðja út frf-
vaktarmenn Þess má geta að ekki
hefur verið fjölgað í lögregluliði
Akureyrar í fimm eða sex ár.
— Annars erum við ánægðir,
sagði Ófeigur Eiríksson að lokum Ef
ekkert fyndist athugavert, þyrfti eng-
ar æfingar, en nú er að reyna að fá
bætt úr þeim ágöllum, sem komu f
Ijós. En þetta var bara smáæfing,
aðeins undirbúningur undir stóræf-
ingu sem verður haldin síðar, við
segjum auðvitað ekki hvenær.
Tómas Búi Böðvarsson slökkvi-
liðsstjóri hafði þetta að segja:
— Ég er mjög ánægður með
mennina Slökkvibílar okkar voru
komnir á slysstað sex mfnútum eftir
útkall, en þá var slökkvibfll flug-
vallarins þegar kominn þangað
— Hins vegar verð ég að segja þá
sorgarsögu, að flugvöllurinn er
mjög vanbúinn slökkvitækjum og
öðrum eldvarnarbúnaði og í annan
stað að slökkvilið Akureyrar hefur
engan búnað til að fást við flugvélar-
bruna Þetta þurfum við að gera
okkur Ijóst
— Slökkviblll flugvallarins er að
vísu vandaður og óslitinn, en orðinn
alveg úreltur Hann hefur þrjá
megingalla: 1) Hann er alltof hæg-
gengur og seinn f svifum, en hver
sekúnda skiptir máli í flugvélar-
bruna 2) Hann hefur aðeins duft,
en ekki það slökkviefni, sem hentar
bezt 3) Hann er of afkastalítill, duft-
ið klárast nærri strax og við þessar
aðstæður og mikinn hita kviknar
strax í aftur, þegar reyknum frá
duftinu svifar frá undan golu, jafnvel
þó að tekizt hafi að slökkva um
stund Þetta kom allt vel í Ijós í
morgun, en var svo sem vitað fyrir
— í annan stað vantar kraftmeira
froðutæki, sem dregur nokkra tugi
metra Froðutækið sem slökkvilið
Akureyrar á dregur ekki nema
11—12 metra og er ætlað til að
slökkva olíuelda í húsum eða bátum,
en menn komast ekki svo nálægt
flugvélarbruna vegna hins gffurlega
hita
— Ég veit að á Keflavíkurflugvelli
er verið að leggja til hliðar stóra og
öfluga slökkvibfla, sem kæmu að
prýðilegum notum hér Þeir eru
nýtfzku bflar á allan hátt, en eiga að
vfkja fyrir enn stærri bílum Al-
mannavarnanefnd Akureyrar hefur
skorað á Flugmálastjórn og Varnar-
máladeild utanríkisráðuneytisins að
hlutast til um að þessum bílum verði
komið fyrir á flugvöllum landsins
svo sem hér á Akureyrarflugvelli og
vonandi verður það gert Sv.P.
— Amin
Framhald af bls. 1
Ugandastjórn muni gjalda
líku líkt og verði ekki skirrzt
við blóðsúthellingum, ef nauð-
syn krefur.
Israelsstjórn hefur lýst því
yfir, að mark verði ekki tekið á
orðsendingu þessari, en f
henni hafi Idi Amin gefið
Jitzhak Rabin viku frest til að
verða við kröfum sínum.
- Sovételdflaugar
Framhald af bls. 1
orkusprengjukúlum. Þá væru
nýjustu gerðir sovézkra orr-
ustuþotna þannig úr garði gerð-
ar, að flugþol þeirra væri allt að
helmingi meira en þeirra
þotna, sem notaðar hefðu verið
hingað til, og gætu þær flestar
beitt kjarnorkuvopnum.
Hershöfðinginn sagði, að Atl-
antshafsbandalagið yrði að
grípa til skjótra ráðstafana,
þannig að örugglega væri hægt
að mæta hvers konar árás af
hálfu Varsjárbandalagsrfkj-
anna, þar sem leyniskýrslur
gæfu til kynna, að Rússar hefðu
stórlega endurbætt bæði kjarn-
orkuvopn og vopn, sem notuð
eru i návígi, á síðustu árum.
— Vöruskipta-
jöfnuður
Framhald af bls. 2
júlí I fyrra fyrir 1.394,1 milljón en
fyrir 247,0 milljónir i ár. Á þessu
ári hefur verið flutt inn fyrir
678,1 milljón fyrir Kröflunefnd
þar af 263,1 i júlimánuði, en í
fyrra var enginn innflutningur til
Kröflunefndar fyrstu sjö mánuði
ársins.
Við samanburð við utanríkis-
verzlunartölur 1975 verður að
hafa I huga, að meðalgengi
erlends gjaldeyris í júlí 1976 er
talið vera 11,3% hærra en það var
í sama mánuði 1975 og í
janúar—júli 14,0% hærra.
r
— A hvaða stigi
Framhald af bls. 36
nema kröfur í það 330 milljónum
króna.
Hið svokallaða spíramál er í
raun 7 sjálfstæð smyglmál á spíra
eða áfengi. Nokkur þeirra, a.m.k.
3, ef ekki 4, eru enn i dómsmeð-
ferð í Sakadómi Reykjavíkur, eitt
bíður afgreiðslu hjá saksóknara-
embættinu og nokkrum hefur lok-
ið með sátt.