Morgunblaðið - 15.10.1976, Síða 5

Morgunblaðið - 15.10.1976, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. OKTÖBER 1976 5 Dr. Bragi Jóseps- son skipaður rann- sóknarlögreglumaður Yfirsakadómari hafði mælt með öðrum í starfið DÓMSMALARÁÐHERRA, Ólaf- ur Jóhannesson, hefur skipað dr. Braga Jósepsson uppeldisfræðing rannsðknarlögreglumann við sakadðm Reykjavfkur. Dr. Bragi var einn 8 umsækjanda um starf- ið, en meðal umsækjenda voru þrfr starfandi lögregiumenn. Hafði yfirsakadómarinn, Halidðr Þorbjörnsson, gert tillögu til dðmsmálaráðherra um að Dðra Hlfn Ingðlfsdðttir lögreglumaður fengi starfið. Aður hafði Halldðr leitað umsagnar allra yfirmanna rannsðknarlögreglunnar og höfðu þeir allir mælt með Dðru Hlfn, en hún hefur starfað við rannsðknar- lögregluna frá þvf f sumar. Halldór Þorbjörnsson sagði í samtali viö Morgunblaðið I gær, að umsóknarfrestur um starfið hefði runnið út f september. Sótti dr. Bragi um starfið. Sagði Halldór að dr. Bragi hefði einu sinni áður sótt 'um starf rann- sóknarlögreglumanns, en þá ekki fengið. Rétt fyrir lokun sakadóms í gær hafði yfirsakadómari ekki fengið formlega tilkynningu frá ráðuneytinu um ráðningu dr. Braga í starf rannsóknarlögreglu- manns. Hins vegar tilkynnti Bald- ur Möller ráðuneytisstjóri yfir- sakadómara ákvörðun ráðherra sfmleiðis á þriðjudaginn. Að- spurður sagði Halldór Þorbjörns- son, að dómsmálaráðherra hefði aldrei áður gengið i berhögg við óskir yfirsakadómara um það hverja hann vildi fá til starfa við rannsóknarlögregluna. Dr. Bragi Jósepsson hefur á undanförnum mánuðum sótt um allmörg embætti í fræðslukerf- inu, nú síðast aðstoðarskólastjóra- stöðu við Fjölbrautarskólann í Breiðholti, en ekkert þessara em- bætta hefur hann fengið. M.R. að fá lang- þráð olnbogargmi Ríkisstjórnin fær lántökuheimild til kaupa á lóðunum umhverfis skólann t FJARLÖGUM næsta árs er heimild til rfkisstjórnarinnar til að taka lán f því skyni að festa kaup á húseignum í næsta nágrenni Menntaskðlans f Reykjavfk og að sögn Guðna Guðmundssonar rektors er þarna um að ræða fjðrar hús- eignir en fimm húsalððir sem menntaskðlinn á að fá til um- ráða. 1 viðtali við Morgunblaðið sagði Guðni raunar, að mál þetta ætti sér afar langan að- draganda, þvf þegar árið 1849 hefði Sveinbjörn Egilsson, rektor, ritað kanselfinu f Kaup- mannahöfn bréf, þar sem hann kvartaði yfir skorti á matar- rými skðlasveina og yfir litlu olnbogarými utan húss. Siðan leið rúm öld þar til aukið var við húsakost skólans en það var árið 1963 að nýbygg- ingin Casa Nova var reist í olíu- portinu svonefnda. Það ár fékk skólinn einnig það fyrirheit rík- isstjórnar, að hann skyldi fá til umráða allt svæðið kringum skólann upp að lóðunum við Þingholtsstræti en eignarnáms- heimild hvíldi á öllum þessum lóðum frá árinu 1949. Sagði Guðni, að núverandi ríkisstjórn væri að efna þetta fyrirheit frá 1963 og færi vel á þvl, þar sem í ár væri 130. starfsár skólans í Reykjavfk. Guðni sagði, að þarna væri alls um að ræða fjögur hús en fimm lóðir, og þar á meðal væri hús og lóð KFUM og K við Amtmannsstíg. Varðandi auk- inn húsakost skólans sagði Guðni, að brýnast væri að koma upp samkomu- og leikfimisal fyrir skólann, en hann hefði nú yfir að ráða elzta leikfimisal hér á landi og væri þar ákaflega þröngt um íþróttaiðkanir, sér- staklega í ljósi vaxandi áhuga á knattleikjum alls konar, þó að þessi salur hefði á sfnum tíma verið vagga handknattleiksins hér á landi. Settur vega- málastjóri Snæbjörn Jðnasson hefur verið settur vegamálastjóri fyrst um sinn, en hann hefur verið for- stjðri tæknideildar Vegagerðar rfkisins. Embætti vegamálastjóra hefur verið auglýst laust til umsóknar með umsóknarfresti til 20. nóvem- ber og segir f fréttatilkynningu frá Samgönguráðuneytinu að Snæbjörn sé settur í embættið þar til þvf verður ráðstafað varan- lega, þó ekki lengur en til 1. des- ember nk. Náttfari laus úr gæzlu MAL innbrotsþjðfsins, sem sókn málsins lauk og var Náttfara nefndur hefur verið Náttfari, er þá sleppt. nú til lokaafgreiðslu hjá saka- dðmi Reykjavfkur. Verður málið sent rfkissaksóknara til ákvörð- unar eftir helgina. Náttfari var úrskurðaður f 60 daga gæzluvarðhald þegar hann var handtekinn. Gæzluvarðhaldið var ekki framlengt þegar rann- INNLENT TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS KARNABÆR AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a SÍMI FRA SKIPTIBORÐI 28155

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.