Morgunblaðið - 15.10.1976, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. OKTÖBER 1976
7
Draumurinn
um stóriðju
Halldór Blöndal vara-
þingmaður Sjðlfstæðis-
flokksins í Norðurlands-
kjördæmi eystra ritar
eftirfarandi grein i
íslending á Akureyri:
„Draumurinn um stór-
iðju á Norðurlandi er orð-
inn gamall og má rekja
hann aftur til Einars
skálds Benediktssonar.
Siðan hefur þessi . hug-
mynd skotið upp kollinum
af og til og um hrið verið
fastur liður i margvislegri
áætlunargerð um byggða-
þróun. Ástæðan fyrir þvi
er sú, að stóriðjan hefur
tengzt virkjun fallvatn-
anna i hugum okkar. Við
höfum séð sem er, að
stórvirkjun fær ekki
staðizt fyrir okkar litla
markað, heldur þarf ein-
hvers konar orkufrekur
iðnaður til að koma. Þetta
er ennþá Ijósara nú, eftir
að fyrir liggur, að nægi-
legt heitt vatn er á Lauga-
landi fyrir hitaveitu
Akureyrar.
Hið jákvæða við álver i
strjálbýli er að sjálfsögðu
það, að þar vinna um
500—600 manns. Um
3000 manns mundu
m.ö.o. hafa lifsviðurværi
sitt af verksmiðjunni
beint og óbeint. Um sinn
myndi slik fjölgun raska
atvinnulifi og hafa ófyrir-
sjáanlegar félagslegar af-
leiðingar. Á hinn bóginn
er þess að vænta, að
fjölgunin hefði jákvæð
áhrif til lengri tima litið.
Á hinum fámennari
stöðum myndi hvers
konar tækni kunnátta.
verkþekking og þjónustu-
starfsemi fylgja i kjölfar
álverksmiðju. Ég get þvi
ekki undir neinum kring-
Halldór Blöndal
umstæðum fallizt á þá
skoðun Sigurðar Óla
Brynjólfssonar. bæjarfull-
trúa Framsóknarflokksins.
að Akureyringar eigi að
beita sér gegn álveri
annars staðar, þótt þeir
telji það ekki henta hér
við Eyjafjörð.
Hér er ekki á
neitt hættandi
Ég skrifa þessa grein til
þess að taka undir
varnaðarorð Tómasar
Inga Olrich á bæjar-
stjórnarfundinum og gera
þau að minum. Við verð-
um að gæta að þvf, að
Eyjafjörður er eitt mesta
landbúnaðarhérað !
Norður-Evrópu. Fjörður-
inn er djúpur og langur og
verður kyrr. oft svo dög-
um eða vikum skiptir.
sem eykur hættu á meng-
un stórkostlega. Mér
segja að vfsu fróðir menn,
ap hætta ág flúor mengun
vegna álbræðslu sé
hverfandi nú orðið, jafn-
vel engin. Svo hafi
hreinsibúnaði fleygt fram.
Vel má það satt reynast,
en hér er ekki á neitt
hættandi. Miklu fremur
hvetur þetta til þess. að
það sé fhugað i alvöru,
hvort ekki sé nú timabært
að flytja sig austar og
norðar. Mér virðast t.d.
ytri skilyrði i Norður-
Þingeyjarsýslu vel fallin
til sliks verksmiðjurekstr-
ar og leyfi mér að vænta
þess að þvi verði gefinn
fyllsti gaumur. Á það er
að lita, að Alþingi hefur
einróma samþykkt sér-
staka landshlutaáætlun
fyrir héruðin norður þar.
En af ástæðum mér
ókunnum heyrast þau
ekki nefnd i þessu
sambandi'
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
ak;lysin(;a-
SÍMINN F.R:
22480
1
Sólaðir
Nýir
amerískir
DEIK
Sendum
í póstkröfu
um land allt
snjó-hjólbarðar
í flestum stærðum
MJÖG HAGSTÆTT VERÐ
ATLAS
snjó-hjólbarðar
með
hvíturn hring
GOn VERÐ
lélMi&ll
Smiðjuvegi 32-34
Símar 4-39-88 & 448-80
Kúrekastígvél
med
hrágúmmísólum
Litir:
Ijósbrúnt og brúnt
Verð 8510,-
Póstsendum
Opið laugardaga.
Skósel,
Laugavegi 60,
sími 21270
■
IMýkomið
Óbleiað léreft
Köflótt bómullarefni
Einlit bómullarefni
Denimefni
einlit — röndótt
Frottéefni
margir litir
Rifflað flauel
Egill íacobsen
Austurstræti 9