Morgunblaðið - 15.10.1976, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 15.10.1976, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1976 MATTHÍAS Bjarnason, sjávarút- vegsráðherra, undirritaði reglu- gerð um 200 mílna fiskveið ilög- sögu fslands hinn. 15 júlí 1975. í dag er eitt ár liðið frá því að þessi reglugerð tók gildi og af því tilefni hefur Morgunblaðið átt stutt samtal við sjávarút- vegsráðherra um útfærsluna, þann árangur, sem af henni hefur orðið og horfurnar fram- undan. Ferviðtalið við Matthías Bjarnason hér á eftir: Stærsti sigurinn — Hvaða árangur hefur að þínum dómi náðst á árs afmæli útfærslunnar? — Með útfærslu í 200 mílur var jafnframt tekin ákvörðun um, að íslendingar nýttu fiskveiðílög- sögu sína einir í framtíðinni, segir Matthías Bjarnason. Hins vegar var okkur fullkomlega Ijóst, að við gætum ekki í einu vetfangi losnað við veiðar erlendra sjómanna innan 200 mílnanna eins og dæmin sanna frá fyrri útfærslum. Ég vil í þessu sambandi benda á, að 1958 varð nokkur samdráttur í veiðum erlendra manna á íslands- miðum, þannig að afli erlendra fiskiskipa minnk- aði úr 53,1% í 48,3% 1959 en hins vegar fór hlutdeild útlendinga í heildarafla aftur nokkuð upp á við, þannig að 1962 eru þeir með 52,4% og komast hæst 1967 í 53,5%. Það er rétt að geta þess að á árunum 1 958— 1 973 að báðum árum meðtöldum, er meðaltalsveiði útlendinga 47,9% en á árinu 1974 fer maðaltalsveiðin niður í um 38% og ég hygg, að 1975 sé hlutdeild útlend- inga um 33% og á þessu ári fer hún örugglega neðar. Þessar tölur sýna, að útfærslan I 200 mílur hefur þegar borið góðan árangur þrátt fyrir það, að hún byggðist á einhliða ákvörðun íslendinga sjálfra og ennþá höfum við ekki að baki okkur alþjóðasamþykkt, sem við þó gerum ráð fyrir, þegar við gáfum fiskveiðireglugerðina út, að mundi verða orðin að veruleíka seint á þessu ári. Ég tel, að stærsti sigur okkar í landhelgismálinu hafi verið hinn svonefndi Óslóarsamningur við Breta. Með þeim samningi minnkar veiði Breta um allt að 40 þúsund tonn á þessum 6 mánuðum. Mikilvægasta atriðið var þó viðurkenning brezku ríkisstjórnarinnar á yfirráðum íslendinga yfir 200 mílna fiskveiðilögsögu. í samningum þeim, sem áður voru gerðir, eins og samningnum frá 1973, var ekki um nokkra slíka viðurkenningu að ræða. Þáverandi ríkisstjórn og meginþorri þáverandi stjórnarandstöðu töldu þá samninga vera það mikilsvirði til þess að halda friðinn á miðunum og í samskiptum þessara þjóða, að það bæri ekki að hika við að gera þetta samkomulag þótt Bretar veittu enga viðurkenningu á umráðarétti íslend- inga yfir 50 mílna fiskveiðilögsögu. Skrifin í Degi — Fyrir nokkru birtist forystugrein f Degi, málgagni Framsóknarflokksins á Norðurlandi, þar sem því var haldið fram, að Sjálfstæðis- menn hefðu skipulagt rógsherferð á hendur forystumönnum Framsóknarflokksins til þess að breiða yfir það, að Framsóknarmenn hefðu komið f veg fyrir að óhagstæðari samningar hefðu verið gerðir. Hvað viltu segja um mál- flutning af þessu tagi? — Ég tel að þessi skrif Dags séu hin mesta markleysa. Landhelgismálið hefur verið rætt á tugum funda i ríkisstjórn og milli einstakra ráð- herra og landhelgisnefndar og við sérfræðinga og embættismenn. Ég hef aldrei orðið þess var, að það hafi orðið ágreiningsefni milli þessara sam- starfsflokka, að annar þeirra hafi viljað ganga inn á tiltekin atriði en hinn ekki. Við höfum ráðherrar, sem einstaklingar, metið hverníig málin hafa stað- ið í það og það skiptið og ég held að það sé óhætt að segja, að enginn ráðherra hafi verið á því að ganga til samninga við Breta á þeim grundvelli, sem sendimenn þeirra buðu upp á i fyrstu samn- ingaviðræðum. Ég vil hvorki væna þá eða aðra um Matthfas Bjarnason, sjávarútvegsráSherra, undirritar reglugerSina um 200 mflna fiskveiSi- lögsögu íslands hinn 15. júlf 1975. Oslóar- samningur- inn stærsti sigurinn — segir Matthías Bjarnason sjávar- utvegsráðherra í samtali við Morgunblaðið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.