Morgunblaðið - 15.10.1976, Side 39

Morgunblaðið - 15.10.1976, Side 39
kCnfa* Gallabuxur og flauelsbuxur í úrvali. KÓRÓNA BÚÐIRNAR MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15.0KTÓBER 1976 UTGERÐARNENN Litli leikklúbburinn á ísafirði: TEDDINGTON örygg- isrofarnir fyrir Ijósa- vélar fyrirliggjandi. S. STEFÁNSSON & CO. H.F. Grandagarði 1B sími 27544 „Vid byggjum baðhús” Isafirði 6. okt. HJÁ Litla leikklúbbnum á Isa- firði eru æfingar langt komnar á finnska nútímagamanleiknum, „Við byggjum baðhús“ eftir Finn- ann Johan Bargum. Frumsýnt verður á Alþýðuhúsinu fimmtu- daginn 14. október kl. 20.30 og er þetta frumflutningur á verki höf- undar hér á landi. Það er í mörg horn að líta síð- ustu vikuna fyrir frumsýningu fyrir þá sem starfa með L.L., og það sem gera þarf verður aðeins gert í frlstundum því að allir eru í vinnu annars staðar. öll tækifæri eru notuð, matartímar, kvöld og jafnvel nætur til að mála, smíða, lita og sauma. Þó að skellinaðran hafi loksins fengist að láni, þá á leikmunavörður eftir að finna þessa réttu skó á frk. Pajölu og Lind vantar ennþá jakka o.fl. o.fl. Smiðirnir eru að leggja síðustu hönd á sánuna (baðhúsið), ljósa- menn að hengja upp kastara, tengja og finna þá liti sem þarf I lýsinguna. Framkvæmdastjóri er á höttum eftir aðstoðarfólki fyrir hin mannfrekari undirbúnings- störf. Verið er að undirbúa leik- skrá fyrir prentun, taka myndir, vinna auglýsingaspjöld. Hljóð- færaleikarinn æfir sig og leikar- arnir stunda æfingar af kappi. En auðvitað verður öllu þessu að vera lokið fyrir frumsýningu. Höfundurann Johan Bargum (1943) er talinn í fremstu röð ungra rithöfunda í Finnlandi I dag. Fyrsta bók hans, smásagna- safnið „Svart hvítt“, kom út árið 1965 er hann var aðeins 22 ára. Síðan hefur henn sent frá sér þrjár skáldsögur og þrjú leikrita hans, sem öll voru frumflutt á „Lilla Teatern“ i Helsingfors, hafa verið gefin út f bókarformi, eftir að hafa hlotið hinar beztu viðtökur leikhúsgesta og gagnrýn- enda um alla Skandinavíu. t riti finnska bókasafnsfélags- ins „Finnskar bókmenntir frá 1965“, sem kom út á síðast liðnu ári, segir um Johan Bargum: „Styrkur hans felst í hinum hversdagslegu og hnitmiðuðu samtölum og skyldi þá engan furða að hann hafi einnig hlotið mikið lof sem leikritahöfundur í skandinaviskum leikhúsum." Fyrir utan að hafa skrifað sögur og leikrit, hefur Bargum skrifað kabarett-þætti ásamt Clars Anderson (Fjölskyldan, Iðnó 1975) og fleirum fyrir „Lilla Teatern". Einmitt þessa dagana, þegar „Við byggjum baðhús" er frumsýnt hér á tsafirði, eru þeir Bargum og Anderson að skrifa einn einn kabarettinn. Borgþór S. Kærnested hefur þýtt leikritið fyrir Litla leik- klúbbinn og kunnum við honum beztu þakkir fyrir það og tillit hans við hinn bágborna fjárhag klúbbsins. Leikstjórinn, Kári Halldór, er L.L. ekki ókunnur með öllu, því að áður en æfingar hófust I byrj- un september, var hann með nám- skeið í leiktækni sem stóð yfir í 2 vikur. Kári hefur fengist við al- hliða leikhússtörf hér heima og erlendis m.a. við leikhús i Kaup- mannahöfn og stundað fram- haldsnám við Ríkisleiklistar skól- ann I Stokkhólmi, og s.l. vetur kenndi hann við Leiklistarskóla Islands. Leikarar eru: Ásthildur Þórðar- dóttir, Birgir Edvardsson, Finnur Gunnlaugsson, Guðni Ásmunds- son, Guðrún Eiríksdóttir, Hansfna Einarsdóttir, Jón Oddsson, Magn- ús J. Magnússon, Margrét Geirs- dóttir, Reynir Ingason, Sarah Vil- bergsdóttir og Trausti Hermanns- son, en alls eru það 25 manns sem vinna að þessari uppsetningu. Vegna mikils áhuga vina og vel- unnara Litla leikklúbbsins sunn- anlangs, er I bigerð að skipu- leggja leikhúsferðir vestur á tsa- fjörð frumsýningarhelgina. En eins og fyrr segir verður „Við byggjum baðhús" frumsýnt i Al- þýðuhúsinu fimmtudaginn 14. október kl. 20.30, önnur sýning föstudaginn 15. og þriðja laugar- daginn 16. okt. á sama tíma. Með þökk fyrir birtinguna Kári Halldór Kristfn Hálfdáns. parkel BYG GIN G AVÖRU VERSLU N KÓPAVOGS SF NÝBÝLAVEGI 8 SÍMI:41000 TIMBURSAIAN KÁRSNESBRAUT 2 BYKO 3m fagmennimirverzla, jr óhætt nú viðarklæðningu á veggi, í loft jlf. Verðið er hagstætt. iuverðið hið hagstæðasta aðinum, vonum við. Ulpurnar eftirspurðu nýkomnar Terylenebuxur margar gerðir. Mjög lágt verð. Skyrtur, peysur, nærföt ofl., nýkomið á lágu verði. Opið föstudaga til kl. 7 og laugardaga til kl. 12. Andrés, Skólavörðustíg 22A. Bazar Systrafélagið Alfa heldur sinn árlega bazar að Hallveigarstöðum, sunnudaginn 1 7. október kl. 2 e.h. Margt góðra muna og kökur. Allt á góðu verði. Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.