Morgunblaðið - 12.11.1976, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1976
5
Olympíumótið í Haifa:
Hálfi vinning-
urinn réð miklu
Haifa, 11. nóvember, einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Einari S. Einarssyni.
Eins og komið hefur fram, þá urðu Bandarfkjamenn Olympfu-
meistarar í skák f fyrsta sinn, og stálu því sem næst titlinum frá
Hollendingum, sem höfðu leitt mótið svo til allan tfmann, en urðu
að lokum að sætta sig við annað sætið. tsland hafnaði sem kunnugt
er f 20. sæti með 27. vinninga, en hefði verið f 11.—19. sæti ef það
hefði fengið 'A vinningi meira. Svona getur hálfur vinningur skipt
miklu oft á tfðum.
Annars varð röð þjóðanna þessi:
1. Bandaríkin 37 v, 2. Holland 36,5 v. 3. England 35,5 v. 4. Argentina
33 v, 5. V-Þýzkaland 31 v. 6. ísrael 29.5 v. 7. Sviss 29 v, / Kanada 28,5
v. 9. Spánn 28.5 v. 10. Kolumbfa 28 v. 11.—19. Austurríki, ítalia,
Noregur, Chile, Wales, Paraquay, Finnland, Svíþjóð, með 27,5 v.
20—22. ísland, Filipseyjar og Nýja Sjáland 27 v. 23—25. Belgia.
Venezúela og Danmörk 26.5 v. Aðrar þjóðir fengu færri vinninga.
Þess má geta að Færeyingar höfnuðu í 44 sæti með 21,5 v.
Island tók nú þátt í Olympíuskákmóti í 18. sinn, og hefur tekið
þátt í þeim samfellt frá árinu 1952, en slík mót eru haldin annað
hvert ár. mótum. Hér á eftir fylgir yfirlit um árangur Islands i þessum
Ár Mótsstaður Fjöldi landa Röð Sæti
1930 Hamborg 18 15
1933 «• Folkestone 15 15
1936 Munchen 21 19
1937 Stokkhólmur 19 16
1939 Buenos Aires 27 16 1. í B-fl
1952 Helsinki 25 23 5. í C-fl
1954 Amsterdam 26 12 12. í A-fl
1956 Moskva 34 14 2. í B-fl
1958 Munchen 36 22 10. í B-fl
1960 Leipzig 40 23 11. í B-fl
1962 Varna 37 37 11 i B-fl
1964 Tel Aviv 50 29 1. í C-fl
1966 Havanna 52 11 11. í A-fl
1968 Lugano 53 22 8. i B-fl
1970 Siegen 60 27 3. í C-fl
1972 Skopje 63 24 7. í B-fl
1974 Nizza 73 22 6. í B-fl
1976 Haifa 48 20 Monrad
Sovétríkin hafa borið sigur úr bítum á síðustu 12 Olympíumótum
eða siðan 1952, en á mótinu í Haifa voru þau fjarri góðu gamni,
ásamt öðrum austantjaldslöndum og Arabalöndum.
Á hvíldardegi í miðju móti var mótsgestum boðið i skoðunarferð
um Galileu í hermannafylgd, um söguslóðir Biblíunnar og land
kraftaverkanna. Reyndar má segja að tími kraftaverkanna sé enn
ekki liðinn hér i ísrael, svo ótrúleg sem saga þjóðarinnar er hér
síðasta aldarfjórðunginn eða svo. íbúatala hefur meira en fjórfald-
ast, er nú yfir 3 milljónir manna og stórstigar framfarir hafa orðið á
öllum sviðum þrátt fyrir þrotlausa_baráttu gyðinga fyrir tilverurétti
sínum. Baráttan hefur kostað offjár og 10 þúsund manns látið lífið í
baráttunni frá því lýðveldið var stofnað 1948.
Á leiðinni til Galileuvatns, sem i biblíusögunum heitir Genesaret-
vatn, var komið við í Megiddo, rústum þorpsins, sem jafnað hefur
verið við jörðu a.m.k. 22 sinnum í gegnum tíðina. Komið var til
þorpsins Tiberias, þaðan sem lagt var á vatnið eins og forðum og
siglt til þorpsins Kapernaum, en þar tók fyrsta kristniboðsstöðin til
starfa fyrir tæpum 2000 árum. Genesaretvatn liggur 206 metra
undir yfirborði sjávar og er álíka stórt og Þingvallavatn. Saga er
sögð af Skota einum, sem kom að vatninu einu sinni og vildi fá
leigðan bát, en honum þótti leigan dýr. En þetta er nú ekkert
venjulegt vatn, var honum sagt, þetta er vatnið sem frelsarinn gekk
á. Já, nú skil ég, sagði þá Skotinn og skyldi engan furða. 1 dag ganga
menn á vatninu á sjóskíðum og róa til fiskjar á stálbátum.
í Kapernaum var skoðað hálfhrunið samkunduhús, ekki ósvipað
því, sem Jesús boðaði fagnaðarerindið í og á sama stað. Einnig voru
sýndar leifar af húsi Símonar, sem síðan var nefndur Pétur, og
gerðist postuli meðfram Genesaretvatni. Að austanverðu liggja
Golanhæðir, sem Ísraelar tóku af Sýrlendingum í 6 daga stríðinu
1967 og er nú orðið samheiti fyrir staði, sem þykja ófriðlegir.
Um leið og fararstjórinn segir söguna af töku Golanhæða, skýtur
hann við og við inn setningum, sem þessum: Héðan var Maria
Magdalena ættuð, hér var fjallræðan flutt, hér metaði Kristur
mannfjöldann o.s.frv. Það fer því ekki hjá því að manni verði
undarlega innanbrjósts. Ekið er um Nazaret, þar er aragrúi kapella,
annars frekar óhreinn bær, sérstaklega gamli hlutinn, Arabahverf-
ið.
Svo er að sjá að kapellur og musteri hafi verið reist á svo til öllum
biblíusögulegum stöðum, m.a. uppi á Taborfjalli, þar sem Jesús
birtist lærisveinum sínum á ný. Á leiðinni til Hifa er bent á leiðina,
þar sem Kristur steig upp til himna og þorpið Nain er þar, en þar
vakti Kristur upp son ekkjunnar.
Ennfremur var komið við i kibbutz, samyrkjubúi, að nafni Afi-
kim, ábökkum Jórdan, einu því stærsta í Israel. Er þetta undarlegt
samfélag 1500 manna, sem hafa allt sameiginlegt nema fötin sin og
tannburstann. Félagsrekin búskapur og iðnaður er á háu stigi.
Hermenn með alvæpni fyqlgdu bilalestinni og gæzluvörður var i
hverjum bíl. Ferðin gekk nokkuð hægt vegna þess viðbúnaðar og
ekki sist talstöðvarviðskiptanna er fram fóru áður lagt var af stað
eftir hvern áfanga. ísraelar vildu að ekkert henti Olympíugesti sina,
enda komust allir klakklaust á leiðarenda og á knallið „sivalasal
Rondo" um kvöldið.
Námsmönnum erlendis fjár vant
Á FUNDI námsmanna,
sem haldinn var nýlega í
Helsingör, var þeim til-
mælum beint til rákis-
stjórnarinnar að hún hrað-
aði afgreiðslu námslána.
Segir í frétt frá fundinum,
að mörgum námsmönnum
þar sé orðið fjárvant og
hafi orðið að vinna fyrir
sér og því sé nájpisárangur
minni og námstími að lík-
indum meiri.
■
m
m , :
attBjMMMBBBIS
LÆKJARGÖTU 2 — SÍMI FRÁ SKIPTIBORÐI 28155
#141