Morgunblaðið - 12.11.1976, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1976
17
Danskurgaman-
leikari í
Norrænahúsinu
JESPER Klein, þekktur, danskur
gamanleikari, mun skemmta í Nor-
ræna húsinu tvisvar sinnum, I fyrra
skiptið n.k. sunnudag kl. 16 og kl.
20:30 á miðvikudagskvöid í síðari
skiptið Efnisskráin nefnist á sunnu-
dag „Intim Finkultur tilbydes af
yngre Herra i pæne Omgivelser" en
á miðvikudagskvöldið verður efnið
úr „Kleins komiske Laboratorium",
sem varast ber að rugla saman við
hið þekkta fyrirtæki Steins kemiske
lagoratorium, segir í frétt frá Nor-
ræna húsinu.
Jesper Klein, sem er einn þekkt-
asti gamanleikari Dana, fæddur árið
1 944 og hefur hann leikið í mörg-
um kvikmyndum, m.a. „Balladen
om Carl Henning" og „Blind makk-
er", sem hefur verið sýnd lengi í
Kaupmannahöfn. Jesper Klein kem-
ur oft fram í útvarpi og sjónvarpi í
Danmörku og hér birtist hann ein-
mitt í atriðum á þvf sviði sem hann
er þekktastur fyrir í Danmörku, skop-
kenndum eins manns leik „One-
man-show", þar sem hann tengir
Danski gamanleikarinn Jesper
Klein skemmtir I Norræna húsinu
á sunnudag og miðvikudag.
saman hin spaugilegu atriði með
notalegu rabbi.
Stjórn SÍNE ályktar um lánamálin:
Athugasemdir náms-
manna ekki virtar
STJÓRN Sambands íslenzkra
námsmanna erlendis hefur sent
frá sér ályktun um lánamál náms-
manna og er þar mótmælt harð-
lega þeirri nýsettu reglugerð um
úthlutun Lánasjóðs fslenzkra
námsmanna um námsaðstoð. Segir
stjórnin lagasetninguna vera
harkalega skerðingu á kjörum
námsmanna og gangi hún þvert á
samþykkt rfkisstjórnarinnar frá
13. nóv. 1975 þess efnis að það sé
stefna hennar að öllum þeim, sem
vilja og geta verði gert kleift að
stunda nám án tillits til efnahags.
Jafnframt lýsir Stjórn SlNE van-
trausti sfnu á meirihluta stjórnar
LlN fyrir „þátt þeirra f þessum
atlögum að kjörum námsmanna",
eins og segir f ályktuninni.
Helztu atriði sem stjórn SINE
hefur við hinar nýju úthlutunar-
reglur að athuga eru eftirfarandi:
„1. Að lánsupphæð skuli ekki
miðuð við framfærslu þunga en
það þýðir beinlínis að fjölskyldu-
fólk eigi ekkert erindi á sérnám.
2. Að ekki skuli veitt lán til
skemmra náms en tveggja ára.
3. Að tillit sé aðallega tekið til
barna þegar það horfir til
lækkunar lána.
4. Að hvergi sé tekið tillit til
framfærslu maka, sem hefur ekki
aðstöðu til tekjuöflunar s.s. vegna
veikinda barna o.s.frv.
5. - Að ekki skuli tekið tillit til
skólagjalda nema þau nemi a.m.k.
eins mánaðar framfærslu.
6. Að framfærsla barna skuli
aðeins metin 25% af framfærslu
fullorðins fyrir fyrsta barn en
síðan 12,5% af næstu, þ.e. í þeim
tilvikum þegar tillit er tekið til
þeirra.
7. Að framfærslukostnaður skuli
ekki miðaður við framfærslu-
kostnaðarkönnun er gerð var árið
1973, heldur byggt á ágizkunum og
handahófskenndu mati ein-
staklinga sem virðast hafa þá trú á
námsmönnum, að þeir geri allt til
að svíkja fé út úr LlN.
8. Að ekki sé tryggt að lán
fullnægi fjárþörf námsmanna um-
fram eigin tekjuöflun, þ.e. að
100% lán séu veitt.“
Þá vill stjórn SÍNE mótmæla
þeim drætti sem orðið hafi á út-
hlutun haustlána en úthlutun
þeirra skuli hafin fyrir 15.
október.
Tveir leikaranna f Tony teiknar hest, Arni Kárason t.v. og Björn
Magnússon.
Leikfélag Kópavogs:
Tóny teiknar hest
LEIKFÉLAG Kópavogs er að
hefja aftur sýningar á gaman-
leiknum Tóny teiknar hest, eft-
ir Lesley Storm, en leakstjóri er
Gísli Alfreðsson. Leikritið verð-
ur sýnt fyrst næstkomandi
laugardag kl. 20.30.
Einnig er áformað að hefja
sýningar á barnaleikritinu
Rauðhettu sunnudaginn 21.
nóv. n.k. Leikstjóri Rauðhettu
er Jóhanna Norðfjörð.
Nú standa yfir , sýningar á
Glötuðum snillinéum í Kópa-
vogi, hinu kunna verki Will-
iams Heinesen.
„ Af Sjónar-
hrauni”
— austfirzkir þættir
eftir Eirík Sigurðsson
„AF Sjónarhrauni, austfirskir
þættir" nefnist ný bók eftir Eirík
Sigurðsson skólastjóra.
I þáttum þessum kennir margra
grasa. Sagt er frá prentlist og
blaðaútgáfu á Eskifirði og Seyðis-
firði á fyrri tið og koma ýmsir
þjóðkunnir menn við sögu, svo
sem Jón Ölafsson, Þorsteinn
Erlangsson, Ari Arnalds og Skafti
Jósefsson
Rakið er ábúendatal Dfsastaða í
Breiðdal í hálfa þriðju öld og itar-
leg lýsing á Fossárdal og byggð-
inni þar. Þættinum fylgja mergj-
aðar draugasögur tengdar stöðum
þessum.
Þættir eru um listamennina
Finn Jónsson og Jóhannes Kjar-
Eirfkur Sigurðsson.
val, þáttur um dr. Stefán Einars-
son og annar um Margréti Jóns-
dóttur móður hans. Loks er nokk-
urt safn þjóðsagna úr Borgarfirði
eystra.
Bókin er 192 bls. að stærð. I
henni eru allmargar myndir og
henni fylgir Itarleg nafnaskrá. —
Otgefandi er Skuggsjá.
Vestfjarðabátar:
Heildarafl-
inn í október
GÆFTIR voru góSar hjá VestfjarSa-
bátum fyrri hluta mánaðarins. en
ógæftasamt slSari hlutann. Nokkrir
llnubátar hófu róSra I byrjun mánaS-
arins. en llnuútgerS hófst ekki al-
mennt fyrr en undir lok mánaSarins.
Afli llnubátanna var mjög misjafn. en
afli togaranna var yfirleitt fremur
góSur. Nokkrir bátar voru aS skjót-
ast á færi, áSur en rækjuveiSar byrj-
uSu, en fengu flestir lltiS. Afli drag-
nótabáta, sem ennþá voru aS veiS-
um. var einnig tregur.
Heildaraflinn I mánuSinum var
3.236 lestir, en var 3.165 lestir á
sama tlma I fyrra. Af llnubátunum
var Kristján GuSmundsson frá SuS-
ureyri aflahæstur með 93,4 lestir I
19 róSrum, en I fyrra var Vestri frá
PatreksfirSi aflahæstur I október
meS 104,5 lestir I 22 róSrum. GuS-
bjartur frá ísafirSi var aflahæstur
togaranna meS 371,1 lest en hann
var einnig aflahæstur I október I
fyrra meS 276,4 lestir.
Færeyjar
Markaóur fyrir þig?
Þegar íslendingar leita sér aö markaöi erlendis fyrir framleiösluvörur
sínar, yfirsést þeim gjarnan einn markaöur, þrátt fyrir nálaegð hans
og skyldleika - þaö eru Færeyjar.
Þaö er ef til vill smæö færeyska markaðarins, sem veldur því aó hann
gleymist svo oft, og satt er þaö stærri markaðir finnast - en
stæröin segir ekki allt, söluárangur ræöst ekki alltaf af stærö mark-
aöarins.
Markaður af viöráöanlegri stærö, er þaö sem flest íslensk framleiöslu-
fyrirtæki hefur vantaö - og þaö aö færeyski markaöurinn skuli ekki
vera stærri er einn af kostum hans- þaö gerir seljendum auöveldar
meö aö nálgast hann, meö litlum tilkostnaöi.
í Færeyjum býr 43 þúsund manna dugmikil þjóö, lífskjör eru þar góö,
laun há og kaupgeta mikil.
Sögulegur bakgrunnur færeyinga og íslendinga er hinn sami, og margt
er skylt meö þjóöunum, tengsl á mörgum sviðum mjög náin og tungu-
málaerfiöleikar ekki teljandi í samskiptum þjóöanna. Þessir þættir
skipta miklu máli þegar á reynir - og oft hefur sannast frændsemi
færeyinga og jákvæö afstaða í okkar garö og þess sem íslenskt er.
Aö stunda sölustarfsemi viö slíkar aðstæður sem okkar bjóöast í
Færeyjum, er í rauninni einstakt tækifæri - og þegar allt kemur til alls,
þá eru Færeyjar ekki svo lítill markaöur, íbúafjöldi Færeyja er sá sami
og íbúafjöldi Akureyrar - Kópavogs - Hafnarfjarðar og Keflavíkur til
samans. Og hvaóa íslenskur framleiöandi eöa seljandi myndi vilja
vera án viðskipta viö íbúa þessara staða.
Nokkur íslensk fyrirtæki hafa náö góöum söluárangri í Færeyjum, og
sýnt þannig aö þeir markaðsmöguleikar sem kunna aö bjóöast í
Færeyjum eru sannarlega þess viröi aö þeir séu athugaöir.
Hvernig væri aö kanna máliö?
í vetur munum viö fljúga tvisvar í viku um Egilsstaöi til Færeyja, á
fimmtudögum og sunnudögum. Viö höfum náö hagstæöum samningum
viö Hótel Hafnia um gistingu, og getum þannig boöiö lægra verö,
þeim sem kaupa saman flugfar og gistingu í 3 nætur.
Fjölgun Færeyjaferöa okkar í vetur gera íslendingum kleift aö auka
samskiptin viö færeyinga á öllum sviöum.
Til þess er leikurinn geröur.
AKUREYRI
eSILSSTAÐlR
0 • _
^ ^
REYKJAVÍK* a*
** •
ÞÓRSHÖFN
• VESTMANNAEYJAR
flucfélac L0FTLEIDIR
LSLANDS
VCX3AR