Morgunblaðið - 12.11.1976, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1976
VIÐSKIPTI
Umsjón: Pétur J. Eiríksson
Lágmarksdagvinnukaup Verkalýdsfélagsins Dagsbrúnar
(Útborgud laun án orlofs)
Viðskipta-
dómstóll til
Stokkhólms
TILRAUNIR Bandrikjamanna og
Sovétmanna til að semja um úr-
skurði I alþjóðlegum viðskipta-
deilum gætu gefið Svlum gull I
mund. Að sögn Newsweek, er
orðrómur um það að Stokkhólm-
ur sé llklegur staður fyrir alþjóð-
legan viðskiptadómstóll, sem
heyrði undir samkomulagið. Ef
stórveldin tvö ákveða að gera
Stokkhólm að heimaborg dóm-
stólsins munu önnur lönd. þar á
meðal Klna og þriðji heimurinn
tæpast beita sér gegn þvl.
notkun perlusteins til þilplötu-
gerðar og hitaeinangrunar, en sá
markaður er um 6—700 milljóna
króna virði árlega.
Með hagkvæmum framleiðsluað-
ferðum ættu perlusteinsafurðir að
vera vel samkeppnishæfar hvað
verð snertir. Hver rúmmetri þan-
ins perlusteins frá Akranesi hefur
verið seldur á 5000 krónur, en þar
sem um tilraunaframleiðslú hefur
verið að ræða í mjög smáum stfl er
það verð, ekki raunhæft til saman-
burðar. Með hæfilegri stækkun til
að anna þörfum innanlandsmark-
aðarins eingöngu mætti ná verð-
inu niður 1 um 2000 til 2500 krón-
ur. Miðað við einangrunarhæfi-
leika perlusteins, sem eru mjög
góðir og reyndar aðeins lakari en
beztu einangrunarefni, sem til eru
í dag, yrði samt sem áður um 20%
ódýrara að einangra með honum,
auk þess sem hann hefur þann
kost að geta ekki brunnið. Er ljóst
að perlusteinn getur komið í stað
ýmissa innfluttra efna, sem notuð
eru í byggingariðnaði.
Varðandi útflutning, þá er verð-
lag á flokkuðum óþöndum perlu-
steini hagstætt í Vestur-Evrópu og
miðað við það mikla magn, sem
jarðfræðingar álíta að sé af fyrsta
flokks perlusteini I Prestahnúki
(liklega um 17 til 30 milljónir
rúmmetra), er um veruleg verð-
mæti að ræða. Hafa allmargir aðil-
ar látið f ljós áhuga á kaupum á
óþöndum íslenzkum perlusteini,
en ekki er ljóst hvað gert verður í
útflutningsmálum á næstunni.
í>rjú f arrými
í f lugvélar
EKKI er óhugsandi að flugfélög sem aðild eiga að IATA, alþjóða-
samtökum flugfélaga, komi á þriðja farrými í áætlunarfluga og
minnki mat við afsláttarfarþega. Kom það fram á blaðamanna-
fundi, sem haldinn var fyrir slit ráðstefnu IATA f Singapore á
miðvikudaginn.
I áætlun, sem lögð var fyrir ráðtefnuna, var lagt til að núverandi
ferðamannafarrými verði skipt í tvö ný farrými. Eitt með bættri
þjónustu og annað með lélegri sætum, þjónustu og mat. Er tilgang-
urinn með þessu að nýta betur flugvélar með þvf að ná hinum
vaxandi markaði fyrir ódýrar ferðir.
Þá svaraði lögfræðinefnd IATA á öðrum blaðamannafundi ásök-
unum um að flugfélögin sýndu farþegum lftilsvirðingu og ranglæti
með yfirbðkunum, sem oft leiddu til að bókuðum farþegum væri
vfsað frá ef of margir skrá sig til flugs. Sagði formaður nefndarinn-
ar, Glen Harlan frá Eastern Airlines, að erfitt væri að gera nokkuð
við þessu þar sem svo aigengt væri að farþegar, sem létu bóka sig
kæmu ekki til flugs. Ylli þetta, svo og sffelldar breytingar á
bókunum farþega, flugfélögunum miklu tjóni. Sagði hann nefndina
hafa samþykkt að prenta söluskilmálana f flugmiðanum að flug-
miði sé ekki trygging fyrir sæti.
Líkur á 15 en ekki
10% hækkun olíu
OLlUVERÐ mun að Ifkindum hækka um 15% eftir fund samtaka
olfuflutningsrfkja, OPEC, í Quatar f desember, en ekki 10% eins og
almennt hefur verið búist við að sögn tfmaritsins Afrique-Asie á
miðvikudaginn. Tímaritið, sem gefið er út f Parfs og sérhæfir sig f
málefnum þriðja heimsins staðhæfir að hækkunin hafi verið sam-
þykkt á leynilegum fundi fjögurra stærstu aðildarrfkja OPEC,
Saudi Arabfu, Iran, Alsfr, og Venezuela í Taiz f Saudi Arabfu í
ágúst. Hafði blaðið það eftir ónefndum háttsettum saudi-arabfskum
embættismanni að Saudi Arabfa hafi ekki viljað nema 10% hækk-
um en fallist á 15% hámarkshækkun vegna „afstöðu hinna rfkj-
anna“. Sagða blaðið að þó að önnur rfki eins og Nfgerfa, Irak og
Lfbya krefðust 25 til 30% hækkunar þá sé fuil ástæða til að ætla að
samkomulag náist um 15%.
Periusteinn hefur góða einangrunareiginleika. Myndin sýnar tvöfald-
an hlaðinn vegg einangraðan með vatnsvörðum perlusteini.
Perlusteinn:
Tilraunaframleiðsla
lofar góðu
um verðmætasköpun
A SlÐUSTU þrem árum hefur Iðn-
þróunarstofnun tslands unnið að
rannsóknum á gæðum, magni og
notagildi perlusteins úr Presta-
hnúki, en alllangt er sfðan að Ijóst
var að mikil verðmætaeru fólgin f
fslenzkum perlusteinsnámum.
Hefur stofnunin notið tækniað-
stoðar Sameinuðu þjóðanna en
Hörður Jónsson verkfræðingur
hefur unnið mikið við rannsókn-
irnar. Nú á þessu ári var byrjað á
tilraunaframleiðslu á þöndum
perlusteini við Sementsverksmiðj-
una á Akranesi.
Á þriðjudag var opnuð sýning á
nokkrum sýnishornum af árangri
þeirrar tilraunaframleiðslu og
nokkrum nýtingarmöguleikum í
húsakynnum Byggingarþjónustu
Arkitektafélagsins við Grensás-
veg.
Helztu not perlusteins eru til
léttsteypugerðar, einangrunar og
sem fylliefni til framleaðslu á ým-
iss konar plötum, sem hafa marga
ákjósanlega eiginleika meðal ann-
ars vegna léttleika sfns, til múr-
húðunar, brunavarna á stálgrind-
arhúsum og síunar í iðnaði. Þá er
perlusteinn einnig notaður sem
fyllingarefni i málm- og plastiðn-
aði.
Notkun perlusteins hefur aukist
verulega á undanförnum árum,
ekki sízt í Evrópu þar sem áætlað
er að hún aukist um 9 til 10%
árlega á næstu árum. Bandarfkja-
menn eru lengst komnir í nýtingu
perlusteins og notuðu árið 1974
um 500 þúsund lestir, en Vestur-
Evrópuþjóðir notuðu um 350 þús-
und lestir sama ár. Það virðist því
ljóst að mikill markaður er fyrir
íslenzkan perlustein í nágranna-
löndunum austan og vestan hafs.
Að auki er innlendur markaður,
sem reyndar er lítill. Iðnþróunar-
stofnunin bendir þó á að mikinn
gjaldeyri megi spara með aukinni
Á KORTINU hér að ofan má sjá þróun lágmarksdagvinnukaups Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar sfðast liðin 70 ár færðar á lógariþmiskan skala. Kortið gerði Freyr
Jóhannsson tæknifræðingur hjá Almennu verkfræðistofunni, en hann starfar mikið
við kostnaðaráætlanir og útreikninga fram og aftur f tfmann. Ef litið er neðst á
vinstrihluta kortsins, sést að miklar sveiflur verða f launum á árunum 1906 og 7. Stafar
það af þvf að annar kauptaxti gilti á vetrum en sumrum. Var tfmakaup 30 aurar yfir
sumarmánuðina en lækkaði f 25 aura á vetrum. 1907 er svo samið um fast kaup. Mikill
stöðugleiki er til ársins 1913 en þá hefst mikað kauphækkunartfmabil. Magnast
hækkanir á strfðsárunum og ná hámarki 1921. Þá versnar efnahagsástand hér og
erlendis. Atvinnuleysi er mikið vfðast hvar f Evrópu og viðskiptakjör tslendinga
- versna, og lfklega dregur úr styrk verkalýðshreyfingarinnar.
1924 verður kauphækkun og á eftir kemur nær 16 ára stöðugleikatfmabil, að
undanskildum öldudal 1927 til 30. Efnahagskreppa hefur þá heltekið heiminn og
gengishækkun á Islandi gerir stöðnunina alvarlegri. Stöðugar hækkanir verða svo eftir
1932.
Skýringar á snöggri kauphækkun sfðla árs 42 er að finna f skæruverkfölfunum, sem
þá urðu. Eftir stöðugar hækkanir verður afturkipps og stöðnunar vart 1953 eftir
Kóreustrfðið. 55 verður svo skyndileg hækkun eftir langt verkfall. Á árinu 1958 missir
vinstristjórnin fyrri tökin og hámark næst um áramót áður en Hermann Jónasson biðst
lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt.
Minnihlutastjórn Alþýðuflokksins tekur svo við 59 og lækkar laun og vöruverð með
niðurgreiðslum og lagasetningum. Tímakaup var þá 20,67 krónur.
Eftir gengisfellingar er aftur haldið á brattann 1961. Sfldarhagnaður veldur launa-
skriði og tök stjórnvalda minnka. Á seinni hluta 66 dregur úr hagvexti og samdráttur
fer f hönd. Sfðan má lesa þróunina fram til dagsins f dag og sjá verðstöðvunartfmabil.