Morgunblaðið - 28.01.1977, Page 3

Morgunblaðið - 28.01.1977, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JANUAR 1977 3 N eskaupstaður: Rafmagns- málin loks- ins í lag Neskaupstað27. janúar. RAFMAGNIÐ hefur hvergi verið tekið af i bænum f dag, þannig að nú hefur létt mikið yfir mönnum. Um leið og rafmagnsmálin kom- ust I lag, batnaði veður og sást I fyrsta skipti til sólar á árinu I morgun. Þá kom áætlunarvél frá Flugfélaginu hingað I morgun I fyrsta sinn I nokkurn tfma. Tólfhundruð tonna pláss var laust hjá sildarbræðslunni hér I morgun, en landað verður i það i dag. Á morgun verður aftur laust 1200 tonna pláss og má því búast við að einhverjir loðnubátar komi hingað einnig á morgun. Loðnu- bátarnir, sem hér lágu héldu á miðin í gærkvöldi og einn þeirra Magnús NK, sem fór ekki út fyrr en kl. 9 I gærkvöldi var kominn aftur inn um kl. 10 i morgun með fullfermi. Asgeir. Tekinn með pillur í þús- undatali UNGUR maður var handsamaður í Reykjavík I fyrrakvöld, grunað- ur um að hafa eitthvað óhreint í pokahorninu. Fundust á honum pillur I þúsundatali, mestmegnis róandi pillur. Hafði hann stolið þeim í Selfossapóteki þetta sama kvöld. Maður þessi hefur fleiri innbrot á samvizkunni og fyrir nokkrum dögum var hann tekinn við inn- brotstilraun í Ingólfsapótek. Til stóð að úrskurða hann í gæzlu- varðhald hjá sakadómí Reykjavík- ur í gær. Leiðrétting I FRÁSÖGN af umræðum um ör- yggismál SVR hér í gær var m.a. greint frá tillögu er Sveinn Björnsson flutti varðandi snjó- ruðning. Sagt var að Leifur Karls- son hefði greitt atkvæði á móti tillögunni en hið rétta er, að hann sat hjá. Hlutaðeigandi eru beðnir afsökunar á þessum mistökum. Dagur iðnað- arins í Kópa- vogi í dag I DAG er I Kópavogi dagur iðnað- arins. Hefst dagskráin kl. 8:45 með þvf að Skólahljómsveit Kópa- vogs leikur við Félagsheimili Kópavogs og kl. 9:00 verða fánar dregnir að hún. Klukkan 9:15 fara ýmsir for- ráðamenn iðnaðarins I heimsókn í ýmis iónfyrirtæki í Kópavogi en kl. 11:00 verður opnuð sýning í Víghólaskóla, sem nemendur skólans hafa að öllu leyti séð um. Er það nýmæli og stendur hún í sambandi við starfsdvöl nemenda hjá ýmsum fyrirtækjum til að kynna sér starfsemi þeirra og er hluti af valgrein. Að loknum hádegisverði verða skoðuð fleiri iðnfyrirtæki en kl. 14:30 verður fundur um iðnaðar- mál I Félagsheimili Kópavogs. Þar mun iðnaðarráðherra; dr. Gunnar Thoroddsen, flytja ávarp og sfðan flytja framsöguerindi Björgvin Sæmundsson bæjar- stjóri, og Davíð Sch. Thorsteins- son, formaður Félags ísl. iðnrek- enda. Fundarstjóri verður Magn- úð Bjarnfreðsson bæjarfulltrúi. Skýrt frá atburðarásinni er fanginnstrauk á Keflavíkurflugvelli: Læsti tveimur hurðum og reif síma úr sam- bandi áður en hann fór FRÉTTAMENN voru I gær boð- aðir á fund Howards Matsons, blaðafulltrúa Varnarliðsins á Keflavfkurflugvelli, og greindi hann þar frá nokkrum atriðum varðandi rannsóknina á flótta Christophers Barba Smiths, sem strauk úr fangelsi Varnar- liðsins miðvikudaginn 19. janú- ar sfðastliðinn. Sagði Matson meðal annars á fundinum að ekkert hefði komið fram við rannsóknina, sem benti til þess að fangaverðirnir tveir, sem gættu hans, hefðu verið I vit- orði með strokufanganum. Þá vfsaði Matson fréttum um að háttsettir menn innan varnar- liðsins hefðu vitað um flóttann og jafnvel átt frumkvæðið að honum, heim til föðurhúsanna. — Slfkar sögur eru fáránlegar, sagði Matson. Rakti Matson atburðarásina kvöldið, sem ,,Korkurinn“, eins og hann er kallaður, slapp úr fangelsinu. Verðirnir tveir og fanginn voru í gangi fangelsis- ins, á milli klefa „Korksins" og anddyrisins, en þar er stúka fyrir fangaverðina. Var verið að sýna kvikmynd, þar sem sjónvarpið í fangelsinu var bil- að. Var sýningartjaldið sett upp í innri enda gangsins, en sýn- Mynd af Cristopher Barba Smith frá því í ágúst 1972. regluna, sem nú svaraði og hringdi strax í Njarðvikurhlið- ið. Fengu íslenzki lögreglumað- urinn í hliðinu og bandaríski hermaðurinn tilkynningu um strokið á svipuðum tíma. Hlupu þeir báðir út í hliðið er þeir sáu í sömu andránni hvítan bíl kóma akandi þangað. Hægði bifreiðin á sér, en er þeir tveir komu nær jók bifreiðastjórinn hins vegar ferðina aftur og t gegnum Njarðvíkurhliðið ók strokufanginn miðvikudaginn fvrir viku síðan. ingarvélin framar á ganginum og nær útihurðinni. Varð að hafa hurð á miðjum ganginum opna, til að nægilegt bil væri á milli vélarinnar og tjaldsins. Voru verðirnir þannig stað- Settir að annar var vinstra meg- in við hurðina, hinn aðeins inn- ar á ganginum. ,,Korkurinn“ var hins vegar hægra megin við hurðina og allt i einu stökk hann fram á ganginn f áttina að kvikmyndavélinni og skellti á eftir sér hurðinni, sem er stjórnað með rafútbúnaði. Fyrir ofan hurðina og vegg- inn sem þiljaður er af á miðjum ganginum, er um eins metra stórt gat upp að loftinu. Tókst fangavörðunum að klifra upp vegginn og komast I gegnum þetta gat eftir nokkra erfið- leika. Er þeir komu fram í and- dyrið sáu þeir að síminn i stúku þeirra hafði verið rifinn úr sambandi og gátu þeir því ekki gert viðvart. Dyrunum að and- dyrinu hafði fanginn læst á eft- ir sér og mun hafa haft í fórum sinum lás til þess. Tókst fanga- vörðunum að brjóta upp hurð- ina og var það ekki erfitt verk, að sögn Howards Matsons. Er þeir komu út úr bygging- unni hlupu þeir strax f átt að útvarps- og sjónvarpsbygging- unni, sem er rétt hjá fangels- inu. Á leiðinni þangað sáu þeir „Korkinn" — Christopher Barba Smith — aka fyrir horn- ið á þeirri byggingu og virtist þeim hann aka í átt að Njarð- vfkurhliði Keflavíkurflugvall- ar. Er þeir komu í sjónvarps- húsið hringdu þeir strax í öryggislögreglu Varnarliðsins. Þar var á tali. Hringdu þeir þá f aðalhliðið á vellinum og til- kynntu það sem gerzt hafði. Síðan hringdu þeir í öryggislög- hvarf mönnunum tveimur út í sortann. TlMASETNINGAR NOKKUÐ A REIKI Á blaðamannafundinum í gær sagði Matson að fangaverð- irnir tveir álitu að „Korkurinn“ hefði sloppið úr gæzlu þeirra á timabilinu frá 20.30 til klukkan 20.35 á miðvikudagskvöldið í síðustu viku. Eru allar tíma- setningar nokkuð á reiki um hvenær atvikin áttu sér stað. Þó munu verðirnir hafa tilkynnt öryggislögreglunni um strokió klukkan 20.40, en fanginn ekið f gegnum Njarðvíkurhliðið klukkan 20.50. Hefur strokufanginn því haft 15—20 minútur á Keflavíkur- flugvelli áður en hann ók i gegnum Njarðvíkurhliðið. Hvað hann gerði þennan tíma er ekki vitað, því að sögn Mat- sons blaðafulltrúa, sá enginn neitt til fangans frá því hann slapp úr fangelsinu, þar til hann ók í gegnum hliðið út af vellinum, að vörðunum tveimur undanskildum. Blaðamenn könnuðu það í vikunni hve langan tima tekur að aka frá fangelsinu að Njarðvikurhlið- inu og tekur það um 5 mínútur. Hvernig fanginn komst yfir lyklana að bifreið fangavarðar- ins, sem hann notaði til flótt- ans, er ekki alveg ljóst. Frakki varðarins hékk nálægt útidyr- unum og telur fangavörðurinn að lyklarnir hafi verið i frakka- vasanum, er hann þó ekki alveg viss um þetta atriði og segir að lyklarnir hafi jafnvel verið i bílnum. Að sögn Guðfinns Bergssonar yfirlögregluþjóns í Grindavík í samtali við Mbl, sem fann bil- inn daginn eftir flóttann, í fjör- unni skammt frá Grindavík, virtist honum sem lyklarnir væru fastir i „svissinum" eins og þeir hefðu ekki verið hreyfð- ir þaðan lengi. Var Matson spurður að þvi i gær hvort mögulegt væri að svo hefði verið. Sagðist hann ekki vita það, en sagði að fangavörð- urinn æki nú um á bíl sínum, og ætti ekki í erfiðleikum með að taka lyklana úr bílnum. ALLAR HERFLUGVÉLAR ATHUGAÐAR Margar spurningar voru lagð- ar fram á blaðamannafundin- um í gær, meðal annars hvernig leitinni og rannsókninni væri hagað frá Keflavíkurflugvelli. Sagði Matson að allar herflug- vélar, sem færu frá landinu væru vandlega athugaðar og sömuleiðis áhafnir þeirra. Hefði fyrsta vélin farið af land- inu 12.15 daginn eftir flóttann Howard Matson útskýrir á korti ýmis atriði í sambandi við flóttann. Séð inn eftir gangi fanga- geymslunnar. Barba Smith læsti dyrunum á miðjum gang- inum á eftir sér, en verðirnir klifruðu yfir millivegginn í ganginum. Á snögunum til hægri var frakki annars varð- anna með bíllyklunum í að því er talið er. og allt siðan þá hefði verið fylgst náið með öllu flugi á veg- um varnarliðsins. Reynt væri að hafa eins náið samstarf við íslenzku lögregl- una og framast væri unnt. Skipst væri á upplýsingum og slíku, en utan Keflavíkurflug- vallar væri það íslenzka lög- reglan, sem annaðist leitina. Aðspurður um hve þungan dóm strokufanginn hlyti ef hann næðist, sagðist Matson ekkert geta sagt. Kæmi fernt til greina; fangelsi, sektir, lækkun í tign eða brottrekstur úr hern- um með smán. Lægi þó beint við að maðurinn hlyti harða refsingu og þá fangelsi. Um lög- fræðing „Korksins", sem kom til landsins sama kvöld og hann strauk, sagði Matson að það væri ekki rétt að lögfræðingar á Keflavikurflugvelli hefðu ekki viljað taka mál hans að sér. Heldur hefði verið talið réttara að fá mann frá Banda- rikjunum til að taka málið að sér þannig að fanginn fengi eins góða málsmeðferð og unnt væri. Þeir sem væru á Kefla- víkurflugvelli væru frekar bún- ir að mynda sér skoðun á fang- anum fyrirfram. Matson var spurður hvort hann teldi mögulegt að Christopher Barba Smith væri enn þá á Keflavikurflugvelli. Sagði hann að sér fyndist það harla ótrúlegt. Lögreglumenn Framhald á bls. 31 r z í w 1— TOT VARPA KLE.R FAN6ANS tjald m jSYNm&' /VRVtL Afstöðumynd af fangageymslunni, þar strokufanginn Smith. sem V er merkt inn á myndina voru verðirnir, en S er

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.