Morgunblaðið - 28.01.1977, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JANUAR 1977
VtK>
M0RödK/-V?A_
KAfr/Nö ;1 r®
GRANI göslari
UJIU0U6HBV
tHO^LEr- 1535
Við snjðmoksturinn þarf líka að kunna tökin á tækninni.
— Því miður get ég ekki hitt
þig á fimmtudaginn, sagði
Magga við vin sinn. En á föstu-
daginn, stakk hann upp á.
— Já, já, það er allt f lagi, sagði
hún áköf — sérðu til, ég er
nefnilega að fara að gifta mig á
fimmtudaginn.
Forstjórinn var á sjúkrahúsi og
sölustjórinn kom f heimsókn.
— Þér skuluð ekki hafa neinar
áhyggjur af verzluninni, herra
forstjóri, sagði sölust jórinn.
Það hefur ekki hræða látið sjá
sig meðan þér hafið verið f
burtu.
Stattu þarna svo sem hálftfma
f viðbót, sjónauka- og mynda-
vélabirgðirnar eru alveg að
seljast upp.
— Mér geðjast vel að þvf hvern-
ig þú hefur innréttað þessa
nýju íbúð ykkar og raðað öllu
smekklega, sagði Júlfus við vin
sinn — mikið er þetta ein-
kennileg bréfapressa á skrif-
borðinu þfnu — bætti hann við.
Ó, hún, sagði vinurinn Jón
brosandi, þetta er fyrsti búð-
ingurinn, sem konan mfn
reyndi að búa til.
Faðir við dóttur sfna: Vendu
þig á að hugsa áður en þú talar.
Dóttirin: Það er ekki hægt
pabbi — þá verða hinar stelp-
urnar húnar að segja allt á
undan mér.
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
1 VÖRN leynist stundum örlítill
möguleiki, sem erfitt er að koma
auga á við spilaborðið.
Norður, blindur
S. ÁG9
H. K953
T. KDG9
L. D6
Austur
S. K62
H. A864
T. 108543
L. Á
Norður gaf og opnaði á einu
grandi (16—18p ). Þú ert í aust-
ur, lesandi góður, og sagðir auð-
vitað pass. Suður stökk í þrjá
spaða (sterkt, a.m.k. fimmlitur),
sem norður hækkaði í fjóra spaða.
Félagi þinn, vestur, spilaði út
laufgosa, lágt frá blindum og þú
tekur á ásinn.
Er nokkur möguleiki að fá fjóra
slagi og hnekkja spilinu?
Það er auðvitað útilokað, að
makker eigi tígulás. En innkomu
verður hann að eiga — eða fá.
Allt spilið var þannig:
Norður
S. ÁG9
H. K953
T. KDG9
L. D6
O o°o
o o
o“qd~° ° °0V o <
<D O 0 0 Q O" O O O ° o o ° 0 ° o o c
3 Vo°Aoo° oo°y\oo O O 0 ° o 0 o „ °
o O 0 r, „ c
(£) PIB''-'
conaMCix Vj Q
. _ o ° o O o
0 o 0 c OyQ
,0oOo o — o o
O oo o O ° o o O °
o °0 o ° O
n o oCOSPER.
Of sein. — Nei ég kem ekki of seint, þú stendur hér enn?
Snúa bændur
hlutunum vid ?
„Kæri Velvakandi.
Egg og kjúklingar eru nú lík-
lega bezti og „billegasti“ matur,
sem framleiddur er á Islandi. Ég
er ekki viss um að landanum sé i
þetta ljóst. Svipað gildir um
svínaafurðir.
Frá efnahagslegu sjónarmiði er
þetta kraftaverk, því að hænsni
og svín verður að ala hér í upphit-
uðum húsum og á innfluttu fóðri,
en kindur og kýr ganga hluta úr
ári sjálfala á beit, eru að öðru
leyti alin aðallega á innlendu
fóðri og hýst í óhituðum ódýrum
húsakynnum.
Hvernig ,,bændur“ fara að því
að snúa hlutunum svona við er
mér óskiljanlegt. Getur verið að
samkeppni vanti í gömlu búgrein-
arnar eða er um „einokun í hag-
kvæmnisskyni" að ræða í við-
skiptum með sumar búvörur? Eða
er innflutt fóður ódýrara en sum-
arbeit og hey af túnum? Eða er
sláturkostnaður meiri á kíló af
stærri dýrum? Hvað er að?
Fullyrðinguna um að egg og
kjúklingar (og svínakjöt) séu
bezti matur byggi ég m.a. á þeirri
staðreynd, að þessar matarteg-
undir fást ferskar og nýjar, en
lambakjöt og nauta fæst naumast
öðruvísi en gamalt, fryst, saltað,
súrsað eða reykt og lífefnalaust
eftir því, nánast sagt fóður en
ekki matur.
Jæja, volaða þjóð, vakna þú sem
sefur.
Þórarinn."
Þetta eru miklar spurningar og
sennilega tímabærar því nú er
rætt nokkuð um t.d. eggjaverðið,
sagt er að heildsöluverð sé 450 kr.
íyrir kílóið ef Velvakandi man
rétt, en svo er hægt að fá eggja-
kílóið á rúmlega 300 krónur úr
búðum í Reykjavík. Það á sér
e.t.v. aðrar orsakir en Þórarinn
ræóir um i sínu bréfi, en það væri
ekki úr vegi að biðja einhvern
sérfróðan mann að upplýsa þessi
mál.
0 Maðurinn
er allt af
sjálfum sér
„Flytti ég nýársræðu í dóm-
kirkju og fyrirlestur um kirkju-
lega trú í útvarp, myndi ég koma
efni ræðunnar og fyrirlestursins
fyrir í aðeins einni málsgrein. Sú
málsgrein myndi hljóða þannig:
Maðurinn er allt — af sjálfum sér
og lífríkissamfélagi sínu.
Kristin trúarbrögð hafa um
timaskeið, sem svarar nokkrum
augnablikum móts við sögu líf-
ríkisins, jafnvel sögu mannkyns-
ins eins, verið að burðast við að
boða til yztu marka jarðkringl-
unnar þá semitísku trú, að maður-
inn sé ekki neitt og að svonefnd
heilög ritning sé orð hins eina og
þó þokukennda og torskiljanlega
guðs, sem nú er fyrir löngu orð-
inn úreltur. Non-modern, — án
þess að þó þurfi að sleppa bróður-
hug til litla drengsins frá Nazaret,
sem fékk þá stjörnu í afmælis-
gjöf, er síðan hefir fylgt minn-
ingu hans í tvöþúsund ár.
Þessi litli góði drengur var að-
eins venjulegur maður með sér-
staka hæfileika, sem hann lærði
að þroska og komst á sporið eftir
mikilvægum sannleika, án þess að
þekkja stillilögmál og lífsmögn-
un, sem fundin urðu fyrir rann-
sóknir náttúrufræðings á fyrri
hluta 20. aldar. Viljandi og
óviljandi misskildu og rangfærðu
kirkjustofnanir þær, sem áttu að
byggja á boðskap Krists, svo
kenningar hans, að þjóðir þær
sem kenna sig til þeirra, bera enn
og áfram þyngstu ábyrgðina á
hryllilegustu fjöldamanndrápum
um heim allan. Hefir þar mólokk
Karþagóborgar borið sigurorð af
guðshugmynd Gyðinga.
William Dampier segir svo í
bók um heimspeki og trúarbrögð:
„Enn á vorum dögum gýs og hvar
upp hatur á vísindamönnum af
trúarlegum ástæðum og má af því
sjá að ennþá gætu verið hættur á
ferðum, líks eðlis og áður. Og það
er líklegt að alltaf geti verið illra
tíðinda von úr þessari átt, meðan
menn hafa ekki skilið að fullkom-
lega áreiðanleg vitneskja um æðri
Vestur
S. 83
H. D102
T. 62
L. G109843
Austur
S. K62
H. Á864
T. 108543
L. A
Suður
S. D10754
H. G7
T. Á7
L. K752
Jafnvel þó allar hendurnar sjá-
ist er lausnin ekki auðfundin. En
þegar spilið kom fyrir fann aust-
ur eina möguleikann. Hann spil-
aði lágu hjarta. Tía vesturs var
tekin með kóng og þegar sagnhafi
svínaði spaða tók austur á kóng-
inn. Aftur Spilaði hann lágu
hjarta. Vestur varð dálítið
undrandi þegar hann fékk á
drottninguna en hann áttaði sig
— og vörnin fékk fjórða slaginn
þegar austur trompaði lauf.
R0SIR - K0SSAR - 0G DAUÐI
17
kannski bara einhvern sann-
leika ... Sannieika um hina
horfnu Gertrud frá Odda og son
hennar ... eða sannleika um
einhvern annan.
Eftir þessi torráðnu orð mín
sem sögð voru lágri og heldur
sljólegri raustu yfirgaf ég sant-
kunduna og gekk upp í her-
hergið mitl lil að reyna að sofa
úr mér hitann.
Eg leit á kliikkuna mína, þeg-
ar ég kom upp í herbergið.
Þetta var sumarheitan sunnu-
dag i júlí og þá \ar klukkan á
mínútunni sjö.
4. Kapituli
Eg vaknaði um það hil tveim-
ur klukkutimum seinna við það
að Mina frænka stóð við rúm-
stokkinn meiFbakka sem s\ign-
aðí undan góðgerðum og heitu
te. Þegar hún hafði helll i holl-
ann settist hún á rúmstokkinn
og hristi ma-ðulega hófuðið sitt
gráa.
— Maður hefði sannarlega
getað ætlað að mannesKja sem
er gift og á að heita að hafa til
að bera heilbrigða skynsemi,
hefði rænu á því að kla'ða sig
almennilega þegar hún hefur
fengið inflúensu. Að liggja of-
an á sænginní .... s\ona eins
og þú gerir það er eitthvað það
alha-ltulegasta seni er hægt að
hugsa sér .... og breiða ekki
einu sinni ofan á sig. Ef Fanny
fengi að \ita um þetta yrði hún
al\eg miður sín, það þori ég að
hóka.
— Æ, ég var svo þreytt, sagði
ég afsakandi — og svo lagðist
ég aftur út af og steinsofnaði.
En hvers vegna einmitt Fanny?
Ég meina... hvers vegna hefði
hún til dæmis átt að verða
meira niiður sína en þú, Mina
frænka, sjálf?
Hún horfði vinalega á mig og
ég virti fyrir mér upphrett nef-
ið og kringluleitt andlitið og
tryggðarleg augun. Svo hallaði
hún undir flatt og kipraði sam-
an augun.
— Fanny er menntuð
hjúkrunarkona. og það er ekk-
ert okkar hinna. Hún lauk
hjúkrunarprófi þegar hún var
bara liðlega tvftug og auk þess
giftist hún seinna lækni. Svo að
hún veit um allt si svona sem
einhverju máli skiptir í sam-
bandi við sjúkdóma — þér er
óhætt að trúa þvf. Og Fanny er
ekkert fyrir að snúast að
óþörfu f kringum fólk eða
dekra við það. en hún vill að
það fari vel með sig, þegar það
er f alvöru veikt.
11 ún hélt áfram að skrifa
meðan ég borðaði nokkrar
smákökur meira af vilja en
mætti og skolaði því niður með
heitu teinu. Frá henni
streymdi vinsemd og móðurleg
umhyggja og loks spurði ég —
án þess kannski að gæta allra
kurteisissiða:
— Hefur þú aldrei verið gift,
Mina frænka?
— Nei, en þó á ég stóra fjöl-
skyldu, sem ég þarf að annast,
sagði hún glaðlega. — svona
nú, farðu nú undir sængina aft-
ur, væna mín, og ég skal koma
og færa þér magnyltöflu og ær-
legt rauðvínstoddí? Eða
kannski þú viljir heldur heitan
bjór með hræðri eggjarauðu?
Hún amma mfn notaði það við
hverju sem var og það veit trúa
mfn að það virtist bókstaflega
vera allra meina bót.
Framhaldssaga eftir Mariu
Lang
Jóhanna Kristjónsdóttir
þýddi
£g ætlaði einmitt að fara að
fullvissa hana um að ég vildi
frekar sitja uppi með hvimleitt
kvef mitt en svelgja f mig heit-
an bjór með hræðri eggja-
rauðu, þegar við urðum allt f
einu fyrir þeirri truflun að
Gabriella kom inn í gestaher-
hergið. Stór mislit augu hennar
voru aivarleg og ringluð og það
var eins og hún skildi varla
orðin sem hún mælti af munni
fram:
— Afi, sagði hún hægt — bað
mig að skila kveðju... og spyr
um hvort þú sért nógu hress til
að koma augnablik til hans.
Mér sýndist hann vera mjög...
áfjáður í að tala viö þig. En ég
hef satt að segja ekki minnstu
hugmynd um hvað hann vill
eiginlega.
Mina frænka tautaði að
klukkan væri að verða hálftfu
og að ba-ði forstjórinn og ég
hefðuni betra af því að liggja í
okkar rúmum, en ég renndi þó
greiöu í flýti gegnum hárið og
hraðaði mér niður... Þessi
óvænta beióni hafði vakið hjá
mér sérstaka spennu. Og það
var með nokkurri lotningu að
ég sté inn í vistarverur F'reder-
iks Malmers.
I