Morgunblaðið - 18.02.1977, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. FEBRUAR 1977
Aston Villa og QPR þurfa
að mætast í þriðja sinn
ASTON Villa og Queens Park
Rangers skildu iiðru sinni jöfn í
undanúrslitaleik í ensku deildar-
bikarkeppninni í knattsp.vrnu (
fyrrakvöld, en þá mættust liðin á
Villa Park f Birmingham. Verða
liðin að reyna með sér í þriðja
sinn, og fer sá leikur væntanlega
fram f London.
Um 55 þúsund manns fylgdust
með leiknum í fyrrakvökd, og
áttu flestir áhangendur Aston
Villa von á sigri iiðs sins. Lið
Queens Park Rangers, sem ekki
hefur vegnað of vel i 1. deildar-
keppninni í vetur, barðist hins
vegar mjög vel, með Gerry Franc-
is, sem nú leikur með liðinu að
nýju, í broddi fylkingar. Var leik-
urinn lengst af tiltölulega jafn, en
þó átti Villa öllu hættulegri tæki-
færi. Á 64. mínútu var fyrsta
mark leiksins skorað og var þar
að verki hinn ungi framherji
Aston Villa, John Deehan. Q.P.R.
tókst svo að jafna þegar tæpar 10
mínútur voru til leiksloka og var
það Francis sem markið skoraði.
Var staðan 1—1 að loknum venju-
legum leiktíma, og leikurinn því
framlengdur. I framlengingunni
skoraði Deehan fljótlega aftur
fyrir Aston Vílla, en er leiktiminn
var að renna út jafnaði Peter
Estoe sem komið hafði inná sem
varamaður fyrir Queens Park
Rangers.
í fyrrakvöld fóru einnig fram
nokkrir leikir í 1. deildar keppn-
inni og vakti viðureign Manchest-
er United og Liverpool mesta at-
hygli. Var þar um að ræða mikinn
baráttuleik. ‘Liverpool lagði mikla
áherzlu á vörnina og tókst að
halda marki sínu hreinu, þrátt
fyrir töluverðan þunga í sókn
United-iðsins á köflum. Var
greinilegt að Liverpool-
leikmennirnir voru hinir ánægð-
ustu með úrslitin að leikslokum,
enda dýrmætt að fá stig á útivelli.
Newcastle og Manchester City
gerðu einnig jafntefli, eftir að
Manchester City hafði haft 2—0
forystu í háfleik með mörkum
þeirra Tuearts og Brian Kidd. í
seinni hálfleik tókst Neweastle
svo að jafna með mörkum Mike
Burns.
Urslit leikja í Bretlandi í fyrra-
kvöld urðu annars sem hér segir:
Deildarbikarkeppnin —
undanúrslit:
Aston Villa — Q.P.R. 1—1
1. deild:
Manchester United —
Liverpool 0—0
Newcastle —
Manchester City 2—2
Stoke — Coventry 2—0
3. deild:
Chesterfield — Grimsby 0—1
Reading — York 1—1
4. deild:
Torquay — Bournemotuh 2—1
Workington — Aldershot 1—1
SKOTLAND — ÚRVALSDEILD:
Dundee Utd. — Motherwell 1—1
Hibernian —Rangers 0—0
Partick Thistle — Ayr Utd 0—1
SKOTLAND I. DEILD:
Clydebank —
St. Johnstone 2—0
Hamilton — East Fife 1—2
Raith Rovers —
Airdrieonians 2.—2
IIT
UTSJÓNVARPSTÆKI
ITT sjónvörp eru að sjálfsögðu með köldu kerfi.
VIDOM KERFI ITT byggir litsjónvarpstæki sín upp á einingum og við hverja einingu
er tengt ljós. Þegar bilun verður í einingu slökknar ljósið. Þetta auðveldar mjög
viðgerðir, þannig að 90% viðgerða fer fram í heimahúsum.
ITT hefur í sinni þjónustu 25.000 manns sem eingöngu vinna við rannsóknir
og tilraunir. Þetta tryggir að nýjasta tækni er ávallt notuð í tækjum frá ITT.
ITT hefur á litsjónvarpstækjum sínum sérstakan takka, sem sjálvirkt, samræmir bestan
lit og skarpleika myndar.
ITT er búið sjálfvirku öryggi, sem virkar þannig að ef rafmagnsspennan fer upp eða
niður fyrir æskilega spennu, þá slökknar á tækinu,
og fer það ekki í gang aftur fyrr en spennan er orðin eðlileg. Þetta kemur
í veg fyrir að viðkvæmir hlutir skemmist.
HAFNARSTRÆTI 17
SÍMÍ 20080
Stúlkurnar sem sjást á þessari mynd koma allar við sögu f keppninni
sem hefst f kvöld. Þær eru Guðrún Sverrisdðttir, Oddný Sigsteinsdótt-
ir, Björg Jónasdóttir og Kristfn Orradóttir.
KVENFÓLKIÐ
SVIÐSLJÓSINU
- Holland, Færeyiar og A og B-
liö Islands í móti
í KVÖLD hefst í Laugardalshöllinni
handknattleiksmót kvenna með
þátttöku fjögurra liða, þar af þriggja
landsliða. Er mót þetta sett upp með
svipuðum hætti og svokallaðar
,,turneringar" sem eru nú að verða
mjög algengar í handknattleiksvið
skiptum þjóða. Auk landsliðs íslands
taka þátt I móti þessu lið Færeyja og
Hollands, og einnig B landslið ís-
lands, sem kemur í stað bandaríska
landsliðsins, sem afboðaði þátttöku
sína I mótinu á siðustu stundu. B
landsliðið verður að mestu skipað
stúlkum sem eru eldri en 23 ára og
voru ekki valdar til æfinga með
Islanzka landsliðinu, en sem kunn-
ugt er varð töluverður úlfaþytur með
val þess.
Ætla má að mótið geti orðið hið
skemmtilegasta, þar sem liðin eru
örugglega nokkuð áþekk að styrk-
leika. Reyndar má ætla að hollenzku
stúlkurnar séu einna sigurstrangleg-
astar, en margar hafa þær allnokkra
reynslu i landsleikjum. Hefur ein
þeirra t.d. leikið 51 landsleik. Fróð-
legt verður svo að fylgjast með
hvoru Íslenzka liðinu vegnar betur i
keppninni, en ætla má að stúlkurnar
sem skipa B-landsliðið láti ekki hlut
í Laugardalshöll
sinn i þessu móti baráttulaust, og i
þessu liði eru stúlkur sem verið hafa
Í fremstu röð íslenzkra handknatt-
leikskvenna um árabil, eins og t.d.
Ragnheiður Lárusdóttir, Björg
Guðmundsdóttir og Oddný Sig-
steinsdóttir. Timi sem lið þetta hefur
haft til æfinga er hins vegar mjög
skammur. M.a. þess vegna sagði
Bjarni Jónsson, annar af stjórn-
endum liðsins, að sá kostur hefði
verið tekinn við val liðsins, að velja
kjarna þess úr tveimur félögum, Val
og Fram.
Leikjaprógramm mótsins verður
sem hér segir:
FÖSTUDAGUR 18 FEBRÚAR:
Kl. 20.00: ísland — Færeyjar
Kl. 21 00: Holland — ísland B
LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR:
Kl. 15.30: Ísland — ísland B
Kl. 16.30: Færeyjar— Holland
SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR:
Kl. 20.00: ísland B — Færeyjar
Kl. 21.00: ísland — Holland
Allir leikirnir fara fram í Laugar-
dalshöll og dómarar verða hinir
sömu á öllum leikjunum, annars veg-
ar þeir Kjartan Steinbach og Karl
Jóhannsson og hins vegar Björn
Kristjánsson og Óli Olsen.
LIÐIN í
KVENNA-
KEPPNINNI
LIOIN sem taka þátt ! kvenna
mótinu sem hefst i Laugardals-
höllinni i kvöld verða þannig skip-
u8
A LANDSLIÐ ÍSLANDS:
Magnea Magnúsdóttir, Ármanni
Kolbrún Jóhannsdóttir. Fram
Inga Birgisdóttir. Val
Hansina Melsteð. KR
Katrin Danivalsdóttir. FH
Margrét Brandsdóttir, FH
Guðriður Guðjónsdóttir. Fram
Kristjana Aradóttir, FH
Ágústa Dúa Jónsdóttir, Val
Anna Gunnarsdóttir, Ármanni
Svanhvít Magnúsdóttir, FH
Hjördis Sigurjónsdóttir, KR
Halldóra Magnúsdóttir, Val
Margrét Theódórsdóttir, Haukum
Harpa Guðmundsdóttir, Val
Oddný Sigurðardóttir, Val
Sigrún Sigurðardóttir. FH
Þjálfari: Pétur Bjarnason
Liðsstjóri: Svana Jorgensdóttir
B LANDSLIÐ ISLANDS
Auður Dúadóttir, Þór, Ak.
Sigurbjörg Pétursdóttir. Val
Ragnheiður Lárusdóttir, Val
Björg Guðmundsdóttir. Va!
Biórg Jónsdóttir, Val
Elln Kristinsdóttir, Vaí
Oddný Sigsteinsdóttir. Fram
Jóhanna Halldórsdóttir, Fram
Kristin Orradóttir, Fram
Guðrún Sverrisdóttir, Fram
Jóhanna Magnúsdóttir, Vikingi
Guðrún Sigurþórsdóttir, Ármanni
Anna Gréta Halldórsdóttir. Þór,
Ak.
Liðsstjórar og þjálfarar: Guðjón
Jónsson og Bjarni Jónsson.
LIÐ HOLLANDS:
Jenny Rogge, DVO
Arja Reinders, Swift
Els Boesten, Mora/Swift
Suzanne Geerdink, Mora/Swift
Nel Martens. Mora/Swift
Marie Louise Puts, Mora/Swift
Marjo Smeets. Mora/Swift
Hannie de Kok, Idem / Hellas
Ingrid van Koppen. Idem/Hellas
Marja Noldus, Idem/Hellas
Mieke Pottuyt, Idem/Hellas
Toos Alsemgeest — Von den
Voort
Joke Rombouts — von den Voort
Miep van Beek. A.M.C. Niloc
Marjan Houtepen, E.M.M.
LIÐ FÆREYJA:
Marjun Jakobsen, Kyndli
Sigrid Andreasen. Stjörnan
Haldis Poulsen, Kyndli
Rannva Hanussardottur. Neistin
Svanna Hanussardottur. Neistin
Herborg Joensen, Kyndil
Gudrun Dalsgard, Kyndil
Jacobina Joensen, Stjörnan
Susanna Michaelsen. Stjörnan
Ottolina Hansen, Stjörnan
Vivian Wraae. Kyndil
Asa Hansen, Neistin
Sonja Jörgensen, Neistin
Emmy Joensen, M .B
UMa Bærentsen, Neistin
Margit Frisdahl, Kyndil.