Morgunblaðið - 12.03.1977, Qupperneq 1
48 SÍÐUR
57. tbl. 64. árg.
LAUGARDAGUR 12. MARZ 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Náðun fanga
rædd á Spáni
Madrid, 11. marz Reuter
SPÆNSKA stjórnin kom saman í
dag til ad ræða náðun um 200
pólitlskra fanga og tilhögun
kosninganna i júni og á sama
tíma börðust lögreglumenn og
þjóðernissinnaðir Baskar þriðja
daginn í röð i San Sebastian.
Lögreglan beitti gúmmikúlum
og reyksprengjum til að dreifa
þjóðernissinnum sem notuðu
strætisvagn til að reisa götuvigi.
Margar verzlanir i gamla
hverfinu i San Sebastian voru
lokaðar og göturnar voru þaktar
glerbrotum.
Þjóðernissinnarnir kröfðust
náðunar fanga og mótmæltu at-
burði þeim fyrir þremur dögum
þegar tveir hryðjuverkamenn
Baska féllu fyrir löjgreglunni.
Biskupar San Sebastian birtu i
dag yfirlýsingu þar sem þeir
hvöttu til rannsóknar á málinu.
Fyrirhuguð náðun er aðallega
hugsuð til að friða Baska enda er
um helmingur fanganna Baskar.
Náðun fanga er ein helzta krafa
stjórnarandstöðufiokkanna i fyr-
irhuguðum koSningum. Óvist er
hvort náðunin muni ná til öfga-
manna til hægri og vinstri.
I kvöld tilkynnti spænska
stjórnin að náðanir yrðu auknar
og það er túlkað þannig að flestir
pólitískir fangar verði iátnir
lausir.
James Callaghan, forsætisráðherra Breta, sem hér sést með Carter forseta, sagði f iok heimsóknar
sinnar til Washington f gær að hann teldi að Rússar fylgdu slökunarstefnu og að vestrænar þjóðir ættu
ekki að skelfast aukinn hernaðarmátt Rússa. Hann taldi þá tilraun Carters að vekja athygli á
mannréttindum f heiminum byggða á „þaulhugsaðri Iffsspeki" og kvaðst vilja umræður um málið um
allan heim. Hann taldi að vcrðbólga og atvinnuleysi mundi aukast f vestrænum iðnaðarrfkjum öðrum
en Bandarfkjunum á þessu ári og kvaðst engu nær um afstöðu yfirvalda f New York til þess hvort leyfa
ætti Concorde-þotunni að lenda þar.
LEIÐTOGI mannræningjanna og Hanafi-safnaðarins, Khalifa
Hamaas Abdul Khaalis, sem látinn var laus þegar gfslunum hafði
verið sleppt, ræðir við lögreglumenn á heimili sfnu. Lögreglan kom
vegna þess að óþekktur maður hringdi og hótaði að sprengja upp
húsið.
Z aireher nær
bæjum af inn-
rásarmönnum
Kinshasa, 11. marz. Reuter. AP.
Mobutu Sese Seko, forseti
Zaire, sakaði f dag áhrifamikil
erlend rfki um að skipuleggja
málaliðainnrás sem hefði verið
gerð f landið og yfirvöld sögðu að
tveir bæir hefðu verið teknir af
innrásarmönnum.
Mobutu nafngreindi ekki rfkin,
en bæði Rússar og Kúbumenn
hafa veitt nágrannalandinu
Angola öflugan stuðning. Nokkur
þúsund kúbanskir hermenn eru í
Angóla samkvæmt vestrænum
heimildum og þar að auki mikill
fjöldi útiaga frá koparhéraðinu
Katanga, sem nú heitir Shaba.
Þeirri skoðun vex fylgi að útlag-
arnir hafi gert árásina.
Zairemenn segja að máliðar frá
Angóla hafi ráðizt á nokkra bæi í
Shaba á þriðjudag og náð þeim á
sitt vald, en herlið Zairestjórnar
hafi gert gagnárás og náð aftur á
sitt vald stöðvum við Kasaji og
Difuma. Sagt er að sótt sé til,
þriggja annarra bæja, 150 — 200
km. frá landamærunum Angóla
— Dilolo, Kapanga og Kisengi.
Framhald á bls. 26
Chirac mun fá
harða keppni
Parfs, 11. marz. Reuter.
EINHVERJAR mikilvægustu
bæjar- og sveitarstjórnarkosning-
ar, sem um getur i Frakklandi,
fara fram á sunnudag, þar sem
þær eru taldar nokkurs konar
lokaæfing fyrir þingkosningar á
næsta ári og þar sem Jacques
Chirac fyrrverandi forsætisráð-
herra keppir við stuðningsmann
Valery Giscard d’Estaing forseta
um stöðu borgarstjóra'Parísar.
Framboð gaullista-leiðtogans
Chiracs hefur valdið klofningi í
herbúðum stjórnarsinna og getur
leitt til stjórnarkreppu. Chirac
gaf kost á sér í janúar til að stöðva
framgang bandalags vinstriflokk-
anna, sem standa sameinaðir í
þessum kosningum, þótt Giscard
d’Estaing hefði þegar fengið
Michel dórnano, iðnaðarráð-
herra, úr flokki sinum, Óháða lýð-
veldisflokknum, til þess að bjóða
sig fram.
Skoðanakannanir benda til þess
að úrslitin verði tvisýn og að
endurtaka verði kosningarnar að
viku liðinni þar sem enginn fram-
bjóðandi fái tilskilinn meirihluta
atkvæða.
Kosningarnar geta ráðið úrslit-
um um pólitiska framtíð Chiracs,
sem sagði af sér embætti forsætis-
ráðherra i fyrrasumar vegna
ágreinings um stefnu stjórnar-
innar og neitar því að hann ætli
að nota borgarstjóraembættið fyr-
ir stökkpall í stöðu Giscards.
Chirac bíður alvarlegan álits-
hnekki ef hann tapar, en gaull-
istar hafa stjórnað Paris i 18 ár og
eru enn stærsti stjórnarflokkur-
inn og aðstaða þeirra mun styrkj-
ast til muna ef Chirae verður
borgarstjóri. Margir sérfræðingar
telja að borgarstjóraembættið
verði þriðja valdamesta embætti i
Frakklandi á eftir embættum for-
seta og forsætisráðherra, en Paris
hefur ekki haft borgarstjóra í
rúma öld.
Jafnfram er búizt við tvisýnni
baráttu í mörgum þeirra 220
borga og bæja með meira en
30.000 íbúum þar sem einnig er
kosið.
Gíslarnir þreyttir en
ánægðir eftir vistina
mannræningjanna, Hamaas
Abdul Khaalis, yrði látinn laus án
tryggingar og að bráðabirgða-
vitnaleiðslur hæfust i máli hans
31. marz. Dómarinn sagði að
Khaalis væri látinn laus sam-
kvæmt samkomulagi um að
gislunum yrði sleppt.
Khaalis er 54 ára gamall fyrr-
verandi trommuleikari i hljóm-
sveitum í New York, hefur stund-
að viðskipti i Washington og er
leiðtogi sértrúarflokks sem
kallast Hanafi. Ellefu félagar
hans voru handteknir og verða
ákærðir fyrir mannrán. Flestir
gislanna voru á valdi Khaalis og
Framhald á bls. 26
□ -------------------------n
„ Sjá fréll á bls 23
□ -------------------------□
Washington. 11. marz Reuter
TÓLF menn úr fámennum sér-
trúarflokki múhameðstrúar-
manna, sem höfðu 134 menn í
gfslingu í þremur byggingum í
tvo daga í Washington gáfust upp
í dag gegn þvf að leiðtogi þeirra
yrði látinn laus án tryggingar.
Glslarnir voru þreyttir eftir
vistina hjá mannræningjunum en
þeir voru ánægðir og líðan þeirra
var annars góð. Vinir og
ættingjar föðmuðu þá þegar þeir
komu út úr byggingunum og þeir
voru sfðan fluttir i sjúkrahús.
Mannræningjarnir höfðu gefizt
upp skömmu áður án þess að veita
mótspyrnu, aðallega fyrir tilstilli
sendiherra írans, Egyptalands og
Pakistans sem töluðu við þá og
lásu fyrir þá Ijóð og kafla úr
kóraninum á löngum fundi.
Fundurinn fór fram í aðal-
stöðvum hjálparstofnunar
Gyðinga, B’nai B’rith, sem
mannræningjarnir lögðu undir
sig. Að honum loknum ákvað
Harold Greene dómari að leiðtogi
Herlið
á götum
Karachi
Karachi, 11. marz. Reuter.
Athafnalff lamaðist f Karachi f
dag vegna verkfalls sem efnt var
til fyrir tilstilli stjórnarandstöðu-
flokka til að mótmæla nýafstöðn-
um kosningum sem þeir segja að
stjórnin hafi tryggt sér sigur f
með svikum.
Skriðdrekar voru sendir út á
götur til að halda æstum mann-
grúa í skefjum og hermenn skutu
yfir höfðum fólks sem reyndi að
vinna skemmdarverk á járn-
brautarteinum.
Lögregla beitti táragasi til að
dreifa reiðu fólki sem hafði að
engu bann við fundahöldum og
flæma burtu stjórnarandstæðinga
sem reistu götuvirki til að stöðva
umferð.
Stjórn samsteypu stjórnarand-
stöðuflokka, PNA, sagði að þátt-
taka i verkfallinu hefði verið svo
góð að ákveðið hefði verið að
hefja óhlýðnisaðgerðir um allt
landið á morgun gegn stjórn Ali
Bhutto forsætisráðherra sem fékk
150 þingsæti af 200 i kosningun-
um.