Morgunblaðið - 12.03.1977, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 12.03.1977, Blaðsíða 38
38 MORG UNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12 MARZ 1977 Þingræða Ellerts B. Schram: Jöfnun kosningaréttar er lýðræðisleg krafa Allt að fimmfaldur munur á vægi atkvæða frá einu kjördæmi til annars Hér fer á eftir framsaga Ellerts B. Schram með tillögu til þingsályktunar um að fela stjórnarskrárnefnd að leggja fram tillögur til breytinga á stjórnarskránni, sem miði að jöfnun kosningaréttar, sem hann flutti f sam- einuðu þingi f vikunni sem leið. FLUTNINGSMENN UR FJÓRUM ÞING FLOKKUM Tillaga sú, sem ég geri nú grein fyrir, er flutt af mér ásamt 16 öðrum þingmönnum — þing- mönnum sem eru úr 4 þingflokk- um. Af því sést að stuðningur með þessari tillögu er mjög viðtækur og er fyrir hendi í flestum ef ekki öllum stjórnmálaflokkum á Islandi. Efni tillögunnar er einfaldlega það, að fela stjórnarskrárnefnd að leggja fram tillögu til breytinga á stjórnarskránni, sem miði að jöfn- un kosningarréttar. I grg. með þessari tillögu eru rakin stuttlega rökin, sem búa að baki henni og þarf ég f sjálfu sér ekki að fara mörgum orðum um þau. Vakin er athygli á þvf, að frá einum tíma til annars hafa verið gerðar verulegar breytingar á stjórnarskránni hvað snertir kjör- dæmaskipan og kosningarrétt og þær breytingar hafa allar hnigið í þá átt, að jafna kosingaréttinn, ekki aðeins milli einstakra flokka heldur og milli einstakra byggðar- laga. Segja má þó, að lengi fram- an af hafi breytingarnar stefnt að því að jafna kosningarétt og að- stöðu einstakra flokka þannig að ekki skapaðist mikið ójafnvægi milli atkvæðafylgis þeirra og þingstyrks þeirra hér á Alþingi. En með breyt. á stjórnarskránni árið 1959 var reynt, jafnfram því að jafnræði átti að verða meira milli flokkanna, að nálgast þetta sjónarmið hvað snertir einstök byggðarlög. Vegna þess fyrir- komulags, sem þá hafði verið ríkj- andi, hafði skapast verulegt ójafnvægi milli kjósenda, sem kusu f hinum ýmsu kjördæmum. FIMMFALDUR ATKVÆÐISRÉTTUR Frá þvf, að þessi breyting átti sér stað árið 1959 eða fyrir 17—18 árum sfðan, hefur aftur sigið mjög á ógæfuhliðina. í greinar- gerð með tillögunni er birt tafla, 5em sýnir hversu mikill fjöldi ibúavar f einstökum kjördæmum, annars vegar árið 1960 og svo hins vegar 1974. Eins og öllum er kunnugt um, þá hefur fólksfjölgun verið mjög mikil hér á þéttbýlissvæðinu, einkum í Reykjavík og Reykja- neskjördæmi og nú er svo komið, að atkvæðaréttur hvers kjósanda er allt að fimm sinnum meiri í hinum fámennustu kjördæmum ef tekið er mið af fjölda íbúa annars vegar og þingmannafjölda þeim, sem kosinn er í hinum ein- stöku kjördæmum, hins vegar. Ég rek ekki einstakar tölur, sem fram koma f þessari töflu, en vek athygli á því, að þær eru fyrir hendi í grg. með tillögunni. JAFNRÉTTI — LÝÐRÆÐI Hér á hinu háa Alþingi og reyndar meðal alls almennings, er mjög talað um jafnrétti borgar- anna og það er talin sjálfsögð almenn mannréttindi, að allir, án tillits til kyns eða búsetu, njóti sömu réttinda f þjóðfélaginu. Ég hygg, að þessi sjónarmið eigi sér fylgi innan allra stjórnmála- flokka, allir flokkar vilja styðja að auknu jafnrétti, auknu jafn- ræði og þeir vilja halda hér uppi f þessu landi lýðræði, sem sé f sam- ræmi við lýðræðisvitund þjóðar- innar, en auðvitað er jafnrétti og jafnræði meginforsendur lýð- ræðisins. Ef lý2ræðið er verulega skert með einum eða öðrum hætti, þá býður það heim vissum hættum og ég held, að það sé ekki til góðs, ef einstök byggðarlög eða hópar fófks telja, að sinn réttur sé lítils eða einskis metinn. Það er enginn vafi á þvf, að hér f Reykjavfk og á Reykjanesi er risin mjög mikil óánægja með þá þróun, sem átt hefur sér stað, og kröfurnar um lagfæringu á kosningalögum og kjördæmaskipun gerast æ hávær- ari. Þetta hljóta allir að skilja, hva'ðan sem þeir koma og hvaða flokki sem þeir fylgja. Reynslan hefur hinsvegar sýnt, að menn eru misjafnlega áhugasamir um breytingar sem sjálfsagt stafar af hagsmunum þeirra sjálfra, hagsmunum ákveðinna flokka eða viðkomandi byggðarlaga. Það er mitt álit og þeirra, sem að þessari tillögu standa, að ekki megi undir nokkrum kringum- stæðum láta persónulega hags- muni eða hag einstakra flokka ráða ferðinni í þessum efnum. Það er skylda okkar alþingis- manna, sem mótum löggjöfina, að færa hana í réttlætisátt hvað þetta snertir og til samræmis við það, sem fólkið f landinu telur rétt og sanngjarnt. HÆTTULEG TREGÐA A sfðari árum hafa hinar dreifðu byggðir í þessu landi vak- ið athygli á margvfslegu misrétti og mismunun sem á sér stað milli byggðarlaga, eftir því hvort þau eru hér f þéttbýli eða dreifbýli og byggðastefnu hefur mjög vaxið fylgi. Það hefur komið fram f margvíslegri löggjöf og margvfs- legum ákvörðunum, sem teknar eru m.a. á Alþingi. Þessa þróun er sjálfsagt að viðurkenna og styðja, og ég held að þeir, sem 1 þéttbýli búa, hafa sýnt henni fulkominn skilning jafnt sem þeir, sem fyrir henni berjast. Það er mjög árfðandi, að ekki skapist mikil gjá á milli fólks eftir því hvar það býr, og mikil hætta er á því, að klofningur verði, að svo djúpur ágreiningur eigi sér stað milli fólks eftir því hvar það býr á landinu, að flest verður að gera til að forða þvf. Ég hef haft áhyggjur af þessari þróun og ég tel, að öll tregða eða skammsýni varðandi breytingar á kjördæmaskipan og breytingar í jafnréttisátt sé til þess eins að breikka bilið á milli fólksins eftir þvf hvar það býr og þegar til lengdar lætur getur orðið mjög hættulegt fyrir lýðræðið og fyrir stjórnmál á Islandi. Þess vegna hefur verið vakin athygli á þvf oftar en einu sinni að nauðsynlegt sé að gera breyt- ingar sem allra fyrst á annaðhvort stjórnarskránni eða kosningalög- um, sem snúi við þeirri öfugþró- un, sem átt hefur sér stað, þegar litið er til fólksfjölda og til þing- mannaf jölda sem kosinn er f kjör- dæmunum. ÝMSAR leiðir MÖGULEGAR Bent hefur verið á margar Ieið- ir f þessu sambandi, Tillagan, sem hér er flutt, fer ekki út f það af tillitsemi við margvísleg sjónar- mið og með hliðsjón af þvf, að nú starfar stjórnarskrárnefnd sem á að leggja fram tillögur að þessu leyti. Ég vil þó aðeins geta nokkurra helstu leiða, sem til greina koma ef um slfka breytingu verður að ræða. Annars vegar kemur til greina að breyta kosningalögum, sem hægt er að gera með einfaldri lagabreytingu hér á Alþingi, en hins vegar að breyta stjórnar- skránni sem er miklu þyngra f vöfum. Þeir sem leggja mikla áherzlu á stjórnarskrárbreytingu hafa ver- ið að gæla við þær hugmyndir að breyta kosningalögum þannig að þessi breyting geti átt sér stað sem allra fyrst og hafa í þvf sam- bandi bent á þá möguleika, að breyta mætti reglunum, sem gilda um úthlutun uppbótarsæta. Breyting f þá átt þarfnast ekki stjórnarskrárbreytingar. Þær Eilert B. Schram. breytingar gætu orðið með þeim hætti að fella niður þá reglu að úthluta uppbótarsætum sam- kvæmt hlutfallsreglunni og taka aðeins tillit til atkvæðafjölda sem er á bak við hvern mann, sem úthlutað fær uppbótarsæti, og svo er hins vegar sú leið möguleg að fella niður það ákvæði, sem felur það í sér, að aðeins megi úthluta einum uppbótarmanni til hvers flokks í einu og sama kjördæmi. Við nána athugun á þessum hugsanlegu breytingum kemur f ljós sú athyglisverða niðurstaða, að ef úthlutað er fleiru en einu uppbótarsæti til flokks í sama kjördæmi og miðað er við kosningatölu frá 1974, að þá hefðu 8 uppbótarsæti komið í hlut Reykjavfkur f stað fjögurra núna, en 3 í hlut Reykjaneskjördæmis, sem er sú hin sama tala og Reykjaneskjördæmi hefur í dag. Af þessu er strax ljóst, að þessi leið er ekki mjög aðgengileg ef við viljum lagfæra hlut Reykja- neskjördæmis og vissulega sýnist það vera brýnast verkefnið f augnablikinu, þvf að munurinn á milli Reykjaneskjördæmis annars vegar og þess kjördæmis , sem fæsta kjósendur hefur hins vegar, þ.e.a.s. Vestfjarðakjördæmis, er langsamlega mestur og meiri en þegar Reykjavík á f hlut. Mér sýnist þess vegna þessi leið ekki vera fær ef við viljum ná þvf markmiði, sem flutningur þess- arar tillögu stefnir að. Ef menn fallast á þessa niður- stöðu, þá sýnist varla mögulegt annað en að breyta stjórnar- skránni. Ymislegt kemur til greina f þvf sambandi, hægt er að taka upp einmenningskjördæmi að nýju, með eða án uppbótar- sæta, hægt er að kjósa helming þingmanna, sem þá yrðu kosnir f einmenningskjördæmi og svo hinn helmingurinn af landslista. Þá gæti hugsanlega atkvæðisrétt- ur kjósandans verið tvöfaldur eins og dæmi eru til um erlendis. Énn má nefna þá leið að taka upp tví- eða þrfmenningskjör- dæmi með eða án uppbótarsæta og svo hefur verið bent á þá möguleika að landið allt væri gert að einu kjördæmi. PERSÓNUKJÖR í þessu sambandi er lfka rétt að nefna leið, sem gerð var grein fyrir í blöðum og fjölmiðlum fyrir nokkrum vikum. Það var fyrir- komulag, sem ungir menn í 3 stjórnarflokkum komu sér saman um að mæla með. Það fyrirkomu- lag er sniðið eftir frsku kerfi. Það er nokkuð flókið, en felur það í sér f aðalatriðum, að frambjóð- endum er þar raðað í stafrófsröð, kjósandinn hefur þar eitt at- kvæði, en getur einnig gefið til kynna valkosti sfna að frágengn- um þeim, sem hann kýs, þannig að hann tölusetur frambjóðendur. Kjósandinn er því óbundinn af flokkum í valkostum sinum. í sambandi við persónukjör, sem þetta frska kerfi felur í sér, hefur einnig verið bent á þá möguleika sem f gildi eru f Dan- 'mörku og Vestur-Þýzkalandi, þ.e.a.s. að kjósendum er gert kleift að kjósa bæði frambjóðend- ur og flokk í stórum kjördæmum og þeir geta krossað við ann- aðhvort flokkinn eða frambjóð- andann f þeim flokki, sem hann vill styðja. En einnig er sú leið fær, sem Vestuur-Þjóðverjar hafa, að kjósandinn getur bæði kosið frambjóðanda og flokk, enda þótt frambjóðandinn sé ekki úr þeim sama flokki sem kjósand- inn greiðir atkvæði sitt. Allar þessar leiðir þarf að at- huga, þær hafa allar sfna kosti og galla. Ég skal ekki leggja neinn sérstakan dóm á þessar mismun- andi aðferðir við kosningar, en eftir því sem ég hef sjálfur skoðað þetta betur, þá hneigist ég meir að þvf fyrirkomulagi, sem rikj- andi er í Danmörku. Ég geri ráð fyrir því, að flutningsmenn þessarar tillögu svo og aðrir alþingismenn hafi sfnar skoðanir á þessum mögu- leikum og þvf hefur ekki verið lagt út f það í þessari tillögugerð að mæla með neinni sérstakri að- ferð heldur leggja áherslu á það meginatriði, að lögum eða stjórnarskrá yrði breytt þannig, að kosningaréttur yrði jafnaður meir frá þvf, sem nú er. HVER ER VILJI ALÞINGIS Ég geri mér fulla grein fyrir því, að þetta mál er vandasamt og þarf að ræðast mjög ítarlega f stjórnmálaflokkunum, en ég tel þó, að Alþingi eigi og sé fært um að láta í ljós vilja sinn eða skoðun sína á því, hvort þetta meginatriði sé ekki orðið nauðsynlegt og reyndar óhjákvæmilegt. Því er þessi tillaga flutt til þess að fá fram viljayfirlýsingu af hálfu Alþingis, þ.e. viljayfirlýs- ingu sem þjóðin fær þá að heyra og lýðum verður ljóst að alþingis- menn og stjórnmálaflokkarnir eru ekki algjörlega sinnulausir um þessi málefni og vilja láta einhverjar breytingar koma til framkvæmda sem allra fyrst. Það yrði lfka til leiðbeiningar fyrir stjórnarskrárnefnd sem nú situr að störfum og yrði gott veganesti og stuðningur fyrir hana f hennar störfum. Herra forseti. Ég tel ekki ástæðu til að orðlengja þetta öllu frekar. Ég hef hér gert grein fyrir þeirri tillögu, sem á dagskrá er, þeim rökum, sem búa að baki henni og þeirri nauðsyn, sem við flutningsmenn teljum vera á því, að þessu máli sé hrint í fram- kvæmd sem allra fyrst. Ég legg svo til að að lokinni þessari umræðu verði tillögunni vfsað til alisherjarnefndar. Fjöldi íbúa eftir kjördæmum 1960 og 1974. 1960 1974 Reykjavík 72 407 84 772 Reykjanes 26 010 43 944 Vesturland 11973 13 862 Vestfirðir 9 940 Norðurland vestra .... 10 241 10 090 Norðurland eystra .... 19 769 23 572 Austurland 10 367 11 919 Suðurland 18 529 Aukning 12 365 17 934 1 889 -í- 567 —f— 151 3 803 1552 2 511 íbúar að baki hvers þingmanns 1960 og 1974. 1960 Reykjavík (12) ............................ 6 034 Reykjanes (5) ............................ 5 205 Vesturland (5) ............................ 2 395 Vestfirðir (5) .............................. 2 101 Norðurl. vestra (5) .......................... 2 048 Norðurl. eystra (6) ........................ 3 295 Austurland (5) ............................ 2 073 Suðurland (6) ............................ 2 670 1974 7 064 8 789 2 772 1 988 2 018 3 928 2 384 3 088

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.