Morgunblaðið - 12.03.1977, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.03.1977, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12 MARZ 1977 LOFTLEIDIR IsSmBÍLALEIBAI /p BÍLALEIGAN '&IEY5IR LAUGAVEGI 66 CAR RENTAL 24460 28810 & . . . ShlPAUTGCRB RlhlSIINS m/s Baldur fer frá Reykjavík föstudaginn 1 8. þ.m., til Breiðafjarðarhafna. Vörumóttaka: miðvikudag og fimmtudag. ± SKIPAUTfiCRB RIKISINS m/s Esja fer frá Reykjavik miðvikudaginn 1 6. þ.m., vestur um land i hring- ferð. Vörumóttaka: mánudag og þriðjudag til Vestfjarðahafna, Norðurfjarðar, Siglufjarðar, Ólafsfjarðar, Akureyrar, Húsavik- ur, Raufarhafnar og Þórshafnar. Kirkjuvika á Akureyri Akureyri, 10. marz. KIRKJUVIKA verður haldin í Akureyrarkirkju dagana 13.—20. marz undir kjörorðinu: „Ástunda réttlæti, trú og kærleika“. Fram- kvæmdanefnd, sem er kosin af safnaðarráði, skipa Gunnlaugur P. Kristinsson, Rafn Iljaltalfn og Ragnheiður Árnadóttir, en auk þess hafa sðknarprestarnir starf- að að undirbúningnum með nefndinni. Alls koma fram á kirkjuvikunni sex vfgðir menn og 21 leikmaður. Alla dagana nema laugardag verður eitthvað um að vera. Sungnar verða þrjár messur og haldnar f jórar kvöldsamkomur. A hverri samkomu er lesin dæmi- saga, flutt tónlist, þ.á.m. syngja einsöngvarar Iagið „Ljúfur ómur“ við texta séra Jónasar Jónssonar frá Hrafnagili, flutt verða ávörp og leikið á orgel. Einnig verður samlestur prests og safnaðar og almennur söngur. Jórunn Ólafs- dóttir frá Sörlastöðum hefur ort ljóð, sem hún tileinkar kirkjuvik- unni og er það birt i efnisskránni. Sunnudaginn 13. marz prédikar séra Jón A. Baldvinsson á Staðar- felli við messu. Á mánudagskvöld verður Helgi M. Bergs bæjarstjóri aðalræðumaður og á þriðjudags- kvöld Gunnar Rafn Jónsson lækn- ir, en það kvöld verður helgað æskulýðsstarfi. Á miðvikudags- kvöld verður föstumessa, þar sem Ragnheiður Árnadóttir les úr píslarsögunni, en séra Vigfús Þór Árnason i Siglufirði prédikar. Á fimmtudagskvöld er samkoma til- einkuð heimili og kirkju og þá verða ræðumenn Guðriður Eiríks- dóttir húsmæðrakennari og Jón Björnsson félagsmálastjóri. Aðal- ræðumaður á föstudagskvöld verður Valdimar Björnsson frá Minnesota, en kirkjuvikunni lýk- ur með guðsþjónustu sunnudag- inn 20. marz, þar sem biskupinn yfir Islandi, herra Sigurbjörn Einarsson, flytur prédikun, en Finnbogi S. Jónasson, formaður Sóknarnefndar Akureyrarkirkju, flytur lokaorð kirkjuvikunnar. —Sverrir k Útvarp ReykjavíK L4UG4RD4GUR 12. marz MORGUNIMINN________________ 7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimí kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for- ustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.50. Morgunstund barnanna kl. 8.00: Guðni Kolbeinsson les söguna af „Briggskipinu Blá- Iilju“ eftir Olle Mattson (28). Tilkynningar kl. 9.00. Létt lög milli atriða. Óskalög sjúklinga kl. 9.15: Dóra Ingvadóttir kynnir. Barnatfmi kl. 11.00: Stjórn- andi: Ágústa Björnsdóttir. Kaupstaðír á Islandi: Hafnarfjörður. M.a. flytur Ólafur Harðarson staðarlýs- ingu og Egill Friðleifsson skýrir frá starfsemi kórs Öldutúnsskólans. 12.00 Dagskráin, Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. SÍÐDEGIÐ 13.30 Á prjónunum. Bessf Jóhannsdóttir stjórnar þættinum. 15.00 1 tónsmiðjunni. Atli Heimir Sveinsson sér um þáttinn (18). 16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir. tslenzkt mál. Jón Aðalsteinn Jónsson cand. mag. talar. 16.40 Létt tónlist. '17.30 Framhaldsleikrit barna og unglinga: „Kötturinn Kolfinnur“ eftir Barböru Sleigh. (áður útv. 1957 — 58) Þýðandi: Hulda Valtýsdóttir, Leikstjóri: Helga Valtýsdóttir. Persónur LAUGARDAGUR 12. mars 17.00 Holl er hreyfing. Léttar ifkamsæfingár eink- um ætlaðar fólki komnu af léttasta skeiði. Þýðandi og þulur Sigrún Stefánsdóttir. (Nordvision — Norska sjón- varpið). 17.15 Iþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 18.35 Emil f Kattholti. Sænskur myndafiokkur. Ævintýri grfslingsins. Þýðandi Jóhanna Jóhanns- dóttir. Sögumaður Ragn- heiður Steindórsdóttir. 19.00 íþróttir. Hlé 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dag- skrá. 20.30 Hótel Tindastóll. Breskur gamanmyndaflokk- ur. Þýðandi Stefán Jökuls- son. 21.00 Mannraunir f óbyggð- um. . Sfðari hluti myndar um dvöl fimm unglinga f óbyggðum Natalhéraðs f Suður-Afrfku. Þýðandi og þulur Stefán Jökulsson. 21.25 öllspjótúti. (The Hustler) Bandarfsk bfómynd frá ár- inu 1961. Leikstjóri Robert Rossen. Aðalhlutverk Paul Newman, Jackie Gleason, Piper Laurie og George C. Scott. Eddie Felson er snjall knatt- borðsleikari, og hann hefur hug á að komast f fremstu röð f fþrðtt sinni. Hann held- ur tii stórborgarinnar f þvf skyni að etja kappi við kon- ung knattborðsleikaranna. Þýðandi Ragna Ragnars. 23.35 Dagskrárlok. og leikendur f sjötta og sfðasta þætti: Kolfinnur/ Helgi Skúlason, Rósa María/ Kristfn Anna Þórarinsdóttir, Jonni/ Baldvin Halldórsson, Frú Elín/ Guðrún Stephen- sen, Sigrfður Péturs/ Helga Valtýsdóttir, Brandur/ Flosi Ólafsson, Silfri/ Jóhann Pálsson. 18.00 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. KVÖLDIÐ 19.35 Gerningar. Hannes Gissurarson sér um þáttinn. 20.10 Frá tónlistarhátfð f Helsinki f fyrrasumar. Andreas Schiff leikur á pfanó Sinfónfskar etýður op. 13 eftir Robert Schumann. 20.45 Tveir á tali. Valgeir Sigurðsson ræðir við Tryggva Emilsson. 21.10 Hljómskálatónlist frá útvarpinu f Köln. Guðmund- ur Gilsson kynnir. 21.40 Allt í grænum sjó. Stolið stælt og skrumskælt af Hrafni Pálssyni og Jörundi Guðmundssyni. Gestur þátt- arins ókunnLestur Passíu- sálma (30) 22.25 Danslög. 23.55 Fréttir. Dagskrárlok. Klukkan 21.25: Öll sp jót úti Öll spjót úti heitir bíó- myndin í sjónvarpinu í kvöld, sem hefst klukkan 21.25. Myndin er banda- rísk frá árinu 1961 og er leikstjóri Robert Rossen. í aðalhlutverkum eru ekki ófrægari menn en Paul Newman, Jackie Gleason, Piper Lauri, og George C. Scott. Söguþráður er í stuttu máli þessi: Eddie Felson er snjall knattborðsleik- ari, og hann hefur hug á að komast í fremstu röð í íþrótt sinni. Hann heldur til stórborgarinnar í því skyni að etja kappi við konung knattborðsleikar- anna. Þýðandi myndarinnar er Ragna Ragnars. Leikstjóri myndar þessarar, Robert Rossen, fæddist í New York árið 1908 og lést fyrir ellefu árum. Hann þótti bæði gæddur miklum hæfileik- um sem leikstjóri og rit- höfundur. Og tókst bezt upp við að lýsa eftirsókn landa sinna eftir frama og þeirri spillingu, sem framagræðginni er oft samfara. Deildi hann oft í verkum sínum hart á mikilmennskuóra stjórn- málamanna. Fyrir kvik- myndina „All the King’s Men“ (1949) hlaut hann kvikmyndaverðlaun. Einnig fékk hann ágæta dóma fyrir myndina „The Hustler", eða „Öll spjót úti“, sem við sjáum í kvöld. Robert Rossen kom til Hollywood-borgar árið 1934 og vann sem hand- ritahöfundur fyrir Warner Brothers í sjö ár. Hann skrifaði t.d. hand- ritið fyrir kvikmyndina ,,A walk in the Sun“ (1945). Fyrsta kvik- myndin, sem hann leik- stýrði var „Johnny O’Clock” (1947). Síðasta kvikmyndin sem hann leikstýrði fyrir dauða sinn, „Lilith“ (1964), var gerð við mjög erfiðar kringumstæður, hefur oft verið,nefnd sem dæmi um erfið og viðkvæm sambönd fólks á geð- sjúkrahúsum. Flestir kannast við Paul Newman sem leikur eitt aðalhlutverkið í myndinni í kvöld. Hann er fæddur í Ohio í Banda- ríkjunum árið 1925. Paul Newman þykir öðrum fremur hafa tekist að túlka hina svokölluðu antihetju síðari tima kvikmynda eða þegar Hollywood-glansinn var farinn að mást af upp úr 1960 og hetjurnar fengu á sig mannlegri blæ. Eft- ir að hann útskrifaðist úr leiklistarskóla vann hann um tima við leikhúsið og sjónvarpið og fannst fólki hann minna mikið á þá enn þá þekktari leik- ara, sem var Marlon Brando. Það voru Warner Brothers, sem fengu hann til Hollywood og þar lék hann í sinni fyrstu kvikmynd, „The Silver Chalice" (1955). Verulega þekktur varð liann þó ekki fyrr en í myndinni „Somebody up there likes me“ (1957), eftir líkti honum enginn við Marlon Brando (þótt það sé kannski ekki leið- um að líkjast). í þeirri mynd lék hann hnefa- leikakappa og sýndi þar og sannaði einstaklings- eðli sitt eða hugsjón, sem æ síðan hefur einkennt hann og gert hann frá- brugðinn öðrum kolleg- um sínum. Paul Newman hefur leikið í ótal þekkt- um kvikmyndum, má þar nefnd „Cat on a Hot Tin Roof“, „The Hustler", „Cool Hand Luke“, „Butch Cassidy and the Sundance Kid“. Þá hefur hann leikið í mörgum myndum ásamt eigin- konu sinni, leikkonunni Joanne Woodward og einni mynd „Rachel, Rachel“ þar sem hún lék Bíómynd með Paul Newman, George C. Scott og fleirum Paul Newman f einu atriða myndarinnar, „ÖIl spjót úti“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.