Morgunblaðið - 12.03.1977, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12 MARZ 1977
31
UNGLINGAHLAUP erfyrir-
bæri sem orðið hefur ákaflega
vinsælt hin sfðari ár. Vfðs veg-
ar um land hafa fþróttafélög
efnt til slfkra hlaupa með góð-
um árangri. Tilgangurinn hef-
ur oftast verið sá að stefna
unglingum saman i keppni á
félagslegum grundvelli til að
efla þroska þeirra og áhuga en
hin sfðari ár hafa margir
fremstu frjálsfþróttamenn
þjóðarinnar hafið feril sinn f
þessum hlaupum. Oftast er um
aldurflokkakeppni að ræða, þar
sem hver unglingur keppir við
jafnaldra sfna. 1 seinni tfð hef-
ur meir og meir rutt sér til
rúms það fyrirkomulag að efna
til hlaupa þar sem uppistaðan f
keppninni er keppni á mifli
bekkjardeilda f skólum, og
keppni skóla f milli.
Eitt slfkt hlaup er Austur-
bergshlaup fþróttafélagsins
Leiknis f Beiðholti. Þetta hlaup
er f dag sennilega vinsælasta
unglingahfaup á fslandi, að
Vfðavangshlaupi tslands
undanskyldu, sé f jöldi þátttak-
enda hafður f huga. Fyrst var
efnt til Austurbergshlaupsins
um haustið 1975 og mættu þá
um 35 börn til leiks. Fvrsta
hlaup þessa vetrar sló hins veg-
ar öll fyrri met hvað þátttöku
snertir þvf þá mættu hvorki
meira né minna en 286 börn til
leiks. Keppt er á vegalengdum
frá 600—1000 metra og er
keppnin bekkjakeppni milli
skóla f Breiðholti, Fellaskóla,
Hólabrekkuskóla og Öldusels-
skóla. Að jafnaði hefur verið
hörð keppni á milli bekkjanna,
en fyrirkomulag keppninnar
gerir það að verkum, að því
fleiri sem hlaupa fyrir bekkinn
þvf betur kemur hann út úr
keppninni.
f þessu vinsæla keppnisformi
frjálsíþrótta hafa nokkur börn
verið með frá upphafi, að sögn
upphafsmanns og aðalskipu-
leggjanda Austurbergshlaup-
anna, Sigvalda Ingimundarson-
ar, fþróttakennara og frjáls-
fþróttaþjálfara Leiknis. Sagði
Sigvaldi að það væri von þeirra
Leiknismanna að út úr hlaup-
um þessum kæmu einhverjir
stórhlauparar framtfðarinnar,
en nú þegar væru margir mjög
efnilegir krakkar sem væru að
jafnaði meðal þátttakenda. „En
við lftum þó miklu fremur á
þessi hlaup sem ánægjulegt
framlag til eflingar þroska
barnanna. Hjá þeim rfkir að
jafnaði mikil keppnisgleði, en
hún grundvallast ekki á
hugsuninni um harða keppni
við fmyndaðan andstæðing
heldur öllu fremur af ánægj-
unni af að vera með,“ sagði
Sigvaldi.
Séu myndirnar á sfðunni
skoðaðar, kemur það berlega f
Ijós að þátttaka barnann ein-
kennist af ánægjunni af að
vera með. Og myndirnar, sem
Jóhannes Long tók, lýsa Ifka
miklu betur en nokkur orð
áhuga barnanna á hlaupunum,
keppnisgleðinni, svo og allri
þeirri skipulagningu sem að
jafnaði liggur að baki hlaupum
sem Austurbergshlaupi Leikn-
is. —ágás.
Anægjan af
að vera með
einkennir
þátttökuna
MYIMDIR: JÓHANNES LONG