Morgunblaðið - 12.03.1977, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 12.03.1977, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12 MARZ 1977 21 Heilsuverndarhjúkrunarfræðingur mælir blóðþrýsting hjá eldri sjúklingi. Reglulegar blóðþrýstingsmælingar minnka hættuna á hjarta-áfalli og heila- blóðfalli i því héraði Finnlands, sem hættan á hjarta — og æðasjúkdómum er mest. notuð til að mæta fram- kvæmdarþörfum þessarar rannsóknaráætlunar, þ.e.a.s. að reyna að hefta þessa ný- tízku „farsótt". Af þvi að vandamálið snertir raunverulega lifnaðar- hætti og siði ibúanna, og verkefnið er að breyta þeim, er nauðsynlegt að sem flestir taki þátt í að leysa það. Það reyndist auðveldara að hrinda verkefninu i fram- kvæmd vegna mikillar al- mennrar þátttöku frá byrjun. Hin heilsufarslega upplýs- ingaherferð hefur haft i för með sér félagsleg áhrif á breiðum grundvelli, svo sem breytingará framleiðslu og sölu matvæla, og einnig er hér gripið inn á svið fjölda embættismanna og félags- samtaka, og sérstaklega þó hvað viðkemur stórum hópi húsmæðra. Hérereinnig um að ræða þjálfun á kennurum á heilsufarslega sviðinu og skipulagningu á starfsemi til upplýsinga almennings. Verkefnið til varnar reyk- ingum, nær yfir stöðugar heilsufarslegar upplýsingar gegnum útvarp, dagblöðog auglýsingabæklinga. Reglu- legri ráðgjöf er beitt í barna- og mæðraskoðunum, í skól- um og í heilsufarsskoðunum á hermönnum, við heilsufars- legar leitarrannsóknir og meðal þeirra er hafa mikla hættuþætti, svo sem fólk með háþrýsting og hjarta- sjúkdóma. Sérstakir „gegn reykingum" hópar eru settir á stofn í öllum þorpum. Þjálfun og ráðgjöf gegn reykingum og heilbrigðisleg þjálfun í þessum efnum er gefin hin- um ýmsu starfshópum hér- aðsins. Að lokum hafa verið bannaðar reykingar á öllum opinberum stöðum. Háþrýstingsverkefnið, sem er hluti af sameiginlegri rannsóknaráætlun Alþjóða- heilbrigðismálastofnunarinn- ár, er að taka til meðferðar fólk, sem finnst við rannsókn á heilsugæzlustöðvum með ákveðinn hækkaðan blóð- þrýsting. Þeir, sem eru í slíkri hættu, eru skráðir, fylgt eftir reglulega aðallega af hjúkr- unarfræðingum, sem fengið hafa sérlega þjálfun í því starfi. Læknir rannsakar hvern sjúkling árlega og færir rannsóknir sínar á sérstaka skýrslu í háþrýstingsskrán- inguna. Hjúkrunarfræðingar hafa á hendi heilsufarslega kennslu um háþrýsting og aðra hættuþætti. Þær kalla einnig inn þaðfólk, sem mætir ekki í árlegt eftirlit. Rannsóknarverkefnið í Norður-Kirjála héraði er opin- ber framkvæmd finnskra heilbrigðisyfirvalda, þannig aðframkvæmd og stjórnun er bundin venjulegri heilbrig- isþjónustu héraðsins. Deild heilbrigðismála og félags- mála héraðsins hefirábyrgð á framkvæmdum áætlunar- innar með ráðgjöf sérstaks hóps rannsóknarmanna. Verulegur hluti rannsókn- arverkefnisins er að mæla niðurstöður vísindalegra rannsókna og tlmamörkin eru fimm ára, tímabilið 1 972— 1 977. Rannsóknar- verkefnið þarf að sýna gagn- semi sína, áhrif og útgjöld, og fá fram alhliða mynd af áhrifum þess á héraðsbúa. Rannsókn þessi er fram- kvæmd af sameinaðri mið- stöð, sem er í sambandi við háskólann í Kuopio. Stöðug skipulagning áætl- unarinnar er nátengd þjóð- legum undirtektum við þessa rannsókn, sem verðuræjá- kvæðari þegar niðurstöður safnast fyrir. Markmiðiðer að nota niðurstöður, og reynslu á þessu fyrsta rann- sóknarsvæði í Norður- Kirjálahéraði sem uppistöðu fyrir eftirlit og meðferð á hjarta-og æðasjúkdómum I öllu Finnlandi. Endanlegt mat á niðurstöðum verður framtíðarleiðatvísir á þessu sviði fyrirfinnsku þjóðina Þrátt fyrir skort á læknis- fræðilegri þjónustu hefur stjórn og framkvæmd að- gerða tekist vel og verið vel tekið af íbúum og starfsfólki. Þátttaka í rannsókninni og á leitarstöðvum er um 90% og starfsfólkið, sérlega þó hjúkr- unarkonur, hafa unnið heils- hugar að framkvæmdinni. Fyrsta uppgjörið sýnir að hin tveggja og hálfs árs gamla áætlun hefur náð til flest allra íbúanna. Prósentu- tala miðaldra karla sem reykja, hefur minnkað frá 54 i 42. Þar sem mestur hluti allrar fitu, sem neytt er i héraðinu er dýrafita, hefur verið lögð mikil áherzla á að breyta þessum neyzluvenj- um Prósentutala miðaldra karla, sem neyttu mjólkur með lágu fituinnihaldi jókst á J sama timabili frá 1 7 i 72. Blóðþrýstingur var mældur hjá öllum fullorðnum i hérað- inu á rannsóknartimabilinu, og prósentutala miðaldra karla, sem notuðu blóðþrýst- ingslækkandi lyf jókst frá 3 til 9. Skráning háþrýstings- fólks sýndi að blóðþrýstingur hafði lækkað í þessum hópi, sem telur 1 6.000 manns. Um allt héraðið hafa verið komið á fót starfshópum sem hafa með að gera endurhæf- ingu og fyrirbyggjandi að- gerðir til varnar endurtekn- um kransæðastíflum. Það er auðvitað of snemmt að segja til um ákveðnar breytingará dánar- og sjúk- dómstíðni. Samt sem áður virðist skráningin þó sýna að tala hjarta-áfalla vex ekki lengur, og frá byrjun þriðja árs rannsóknarinnar hefur tala heilablóðfalla farið fækk- andi i héraðinu. Hér er um að ræða fyrsta uppgjör og hafa niðurstöður ekki verið sam- ræmdar héraðinu, sem haft er til samanburðar. Sú reynsla sem fengist hefur i Norður-Kirjálahéraði með þessum rannsóknaraðgerð- um bendirtil, aðeftirlit með hjarta- og æðasjúkdómum í ákveðnu héraði með sér- hæfðu starfsliði og þjónustu hafi borið heilsufarslegan árangur. Álita verður, að svæði þetta hafi takmarkaða læknisfræðilega þjónustu samanborið við flestar hinar þróuðu þjóðir. Hinarjákvæðu niðurstöður, sem að ofan getur, gætu verið að þakka þeim almenna og mikla áhuga sem rannsóknin hefur hlotið i héraðinu og vegna kerfisbundinnar sérhæfðrar þjónustustarfsemi. Framtiðin á eftir að leiða i Ijós, hver verður endanlegur heilsufars- legur árangur rannsóknarinn- ar. Pylsur framleiddar í héraðinu eru vinsæl fæðutegund. Góð samvinna tókst við verksmiðjustjórnina um að minnka fituinnihald i pylsunum. Heilsuverndarhjúkr- unarfræðingur i heimsókn á af- skekktum sveitabæ.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.