Morgunblaðið - 12.03.1977, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 12.03.1977, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12 MARZ 1977 VIÐSKIPTI Umsjón: Pétur J. Eiriksson 99 „Almennt talaó þá virðast mér þær vörur, sem ég sé í verzlunum hér á landi, ekki hafa náð sama gæðastigi og er í Evrópu og í Banda- rikjunum.“ ff I vetur hefur brezkur sér- fræðingur í smásölu- verzlun komið hingað i tvö skipti og starfað með og leiðbeint starfsfólki Hag- kaups í Reykjavík. Sér- fræðingur þessi heitir Stanley Carter og starfar hann fyrir samtökin British Executive Service Overseas, BESO, en þessi samtök eru að hluta til fjármögnuð af ráðuneyt- inu um þróun erlendis. Carter kom fyrst til Hag- kaups í byrjun september síðasliðinn og var fram í lok nóvember. Síðan kom hann aftur eftir áramót og hefur verið með Hagkaups- fólkinu undanfarnar vikur. Carter sagði í samtali við Morgunblaðið, að tilgangur BESO væri að veita ókeypis sérfræðiþjónustu við uppbyggingu fyrirtæka í þróunarlöndunum, ekki sízt í nýfrjalsum ríkjum Afríku. Samtökin hafa á sínum snærum sér- fræðinga i svo til öllum sviðum rekstrar, fram- leiðslu og viðskipta og að mest væru það menn, sem komnir væru á eftirlaun, en væru reiðubúnir að fara utan um tíma til að leiðbeina. „ísland var eiginlega ekki á listanum yfir þær þjóðir, sem fttu að njóta þessarar aðstoðar, en utan- ríkisráðuneytið í London beitti sér fyrir því að ég yrði sendur hingað þegar óskir bárust um það frá íslandi. Þetta var í lok þorskastríðsins og ráðu- neytió leit á þetta sem lið í að bæta sambúðina við ís- lendinga." sagði Carter. „Það æxlaðist því svo að ég kom til Hagkaups sem alhliða viðskiptaráðgjafi. Helzta vandamál fyrir- tækisins virtist vera það, að það hafði vaxið mjög hratt á mjög stuttum tíma og Pálmi Jónsson, eigandi, gerði sér fulla grein fyrir því að stærð fyrirtækisins var orðin skipulagi þess of- viða. Það voru þrír megin- þættir, sem við tókum til meðferðar. í fyrsta lagi að Stanley Carter — I Evrópu fara meir en 90% matvælainnkaupa fram í stórmörk- uðum. Reykjavlk er ekki ennþá orðin Mekka neytandans bðta rekstrarbókhaldið þannig að hægt væri að fylgjast betur með gangi rekstrarins viku fyrir viku og deild fyrir deild. Því næst var hugað að birgðaeftirliti. í því felst ýmislegt en megintil- gangurinn er að fylgjast með hreyfingum hinna ýmsu vara, og gera sér grein fyrir því hvaða vörur seljast og hverjar ekki. Með góður birgðaeftirliti getur fyrirtækið forðast vörur, sem seljast illa, og tryggt jafnframt að vörur, sem njóta mikillar eftir- spurnar séu stöðugt fáan- legar. Þriðja atriði var að meta notkunina á plássi. Þar gátum við gert miklar endurbætur og aukið hag- kvæmni í notkun húsnæðisins. Síðan eyddum við miklum tima í ýmsa þætti innkaupatækni, eins og að gera okkur grein fyrir. hvaðan við fáum vörurnar, hvar bezt sé að gera innkaup og hvernig bezt sé að haga þeim og hvers „Hvarf heildsölukerfisins í Bretlandi leiddi 99 tt til 10 til 15% lækkunar á vöruverði.“ konar vörur eigi að kaupa inn. Tilgangurinn með þessu var að fá betra fram- boð af betri vörum á lægra verði. Við náðum góðum árangri þannig að þó að verðið hjá Hagkaup hefði verið lágt fyrir, þá tókst okkur að lækka það meira meðal annars með því að kaupa sjálfir beint frá til dæmis Bretlandi í stað þess að kaupa í gegnum heild- sala.“ 2Stanley Carter hefur mikla reynslu af smásöluverzlun. Hann starfaði í áratugi fyrir verzlunar- keðjuna John Lewis i Bretlandi og sat í stjórn fyrirtækisins. Hann var jafnframt aðalframkvæmda- stjóri vöruhúss John Lewis í Ox-. ford Street í London og siðustu 10 ár var hann yfirmaður matvæla- hluta John Lewis samsteypunnar, Waitrose, sem bæði sér um fram- leiðslu, pökkun og dreifingu á matvælum og vöruþróun. En nú er hann kominn á eftirlaun, „Þégar ég kom til Hagkaups gengu viðskiptin mjög vel og fyrirtækið var vel rekið, en hafði eins og ég sagði áðan, ofvaxið. Við lögðum hart að okkur við að bæta reksturinn og starfsfólkið vann langan vinnudag f því skyni. Upprunalega átti ég aðeins að vera hér í þrjá mánuði, en ég varð mjög hrifinn af fyrirtækinu og hugmyndum Páls um rekstur þess. Tilgangur hans er ekki að reka viðskipti til að skapa sjálfum sér góð lifskjör heldur hefur hann þá hugsjón að geta veitt samfélaginu góðar vörur á hag- stæðu verði, auðvitað jafnframt því að reka fyrirtækið vel. Ég gat ekki annað en hrifizt af þessu, þannig að þegar Pálmi bað mig að koma aftur, þá varð ég mjög ánægður og sagði strax já“ sagði Carter. Um helztu vandamál íslenzkrar smásöluverzlunar, eins og hann sér þau, sagði Carter: „Mesta vandamálið tel ég vera fjarlægð upprunastaðar margra vörutegunda frá islenzka smá- sölumarkaðinum, sem auðvitað stafar af litlum iðnaði hér á landi. Þetta leiðir svo til þess að langur tími liður frá þvi að varan er pöntuð þar til hún kemur. Þetta skapar þá miklu hættu að vöru- skortur verði hjá verzlunum. Það er léleg verzlunarmennska að láta sig vanta vörur, því þar með ér maður að valda neytendum óþæg- indum. Þetta veldur einnig ýmsum aukakostnaði, svo sem við sérstaka pökkun, flutninga og tryggingar, sem gerir vörurnar dýrari og minna seljanlegar. Skattakerfið hér á landi veldur þvi einnig að verðlag er geysilega hátt miðað við önnur Evrópulönd. Óbeinir skattar eru hér mun hærri en til dæmis i Bretlandi, þar sem mestur hlutinn af tekjum rikisins er af tekjusköttum, sem geta orðið allt upp í 98% af tekjum manna. Óbeinu skattarnir þrýsta upp verðlaginu hér á Islandi, en á móti kemur auðvitað að þið haldið meiru af tekjum ykkar eftir en Bretar. Annað atriði, sem heldur uppi verði er heildsalakerfið." saeði Rætt við Stanley Carter, viðskipta- ráðgjafa Hagkaups Carter, „Heildsalar hafa að mestu horfið af sjónarsviðinu í öðrum löndum Evrópu og flestar verzlanir panta vörur sínar beint frá framleiðanda. Hnignunar- skeið heildverzlunarinnar i Bret- landi var á milli 1930 og 1945 og því fylgdi mikið stríð, hótanir og erfiðíeikar. Það má fullyrða að hvarf heildsölukerfisins hafi leitt til 10 til 15% lækkunar á vöru- verði. Hér á landi hafa heildsalar sterkari tök á markaðnum vegna þess að flestar smásöluverzlanir eru of litlar til að flytja sjálfar inn og ef þær gera það þá veldur hinn langi afgreiðslutími þeim erfiðleikum. Ekki þar fyrir að afgreiðslutiminn er einnig oft erfiður fyrir heildverzlanir þannig að þær verða uppiskroppa „Ég held að afskipti ríkisins af markaðnum •• hafi yfirleitt slæm áhrif og haldi alls ekki verðlagi niðri.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.