Morgunblaðið - 12.03.1977, Side 38
38 MORG UNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12 MARZ 1977
Þingræða Ellerts B. Schram:
Jöfnun kosningaréttar
er lýðræðisleg krafa
Allt að fimmfaldur munur á vægi atkvæða frá einu kjördæmi til annars
Hér fer á eftir framsaga Ellerts B. Schram með tillögu
til þingsályktunar um að fela stjórnarskrárnefnd að
leggja fram tillögur til breytinga á stjórnarskránni, sem
miði að jöfnun kosningaréttar, sem hann flutti f sam-
einuðu þingi f vikunni sem leið.
FLUTNINGSMENN UR
FJÓRUM ÞING FLOKKUM
Tillaga sú, sem ég geri nú grein
fyrir, er flutt af mér ásamt 16
öðrum þingmönnum — þing-
mönnum sem eru úr 4 þingflokk-
um. Af því sést að stuðningur með
þessari tillögu er mjög viðtækur
og er fyrir hendi í flestum ef ekki
öllum stjórnmálaflokkum á
Islandi.
Efni tillögunnar er einfaldlega
það, að fela stjórnarskrárnefnd að
leggja fram tillögu til breytinga á
stjórnarskránni, sem miði að jöfn-
un kosningarréttar.
I grg. með þessari tillögu eru
rakin stuttlega rökin, sem búa að
baki henni og þarf ég f sjálfu sér
ekki að fara mörgum orðum um
þau.
Vakin er athygli á þvf, að frá
einum tíma til annars hafa verið
gerðar verulegar breytingar á
stjórnarskránni hvað snertir kjör-
dæmaskipan og kosningarrétt og
þær breytingar hafa allar hnigið í
þá átt, að jafna kosingaréttinn,
ekki aðeins milli einstakra flokka
heldur og milli einstakra byggðar-
laga. Segja má þó, að lengi fram-
an af hafi breytingarnar stefnt að
því að jafna kosningarétt og að-
stöðu einstakra flokka þannig að
ekki skapaðist mikið ójafnvægi
milli atkvæðafylgis þeirra og
þingstyrks þeirra hér á Alþingi.
En með breyt. á stjórnarskránni
árið 1959 var reynt, jafnfram því
að jafnræði átti að verða meira
milli flokkanna, að nálgast þetta
sjónarmið hvað snertir einstök
byggðarlög. Vegna þess fyrir-
komulags, sem þá hafði verið ríkj-
andi, hafði skapast verulegt
ójafnvægi milli kjósenda, sem
kusu f hinum ýmsu kjördæmum.
FIMMFALDUR
ATKVÆÐISRÉTTUR
Frá þvf, að þessi breyting átti
sér stað árið 1959 eða fyrir 17—18
árum sfðan, hefur aftur sigið
mjög á ógæfuhliðina. í greinar-
gerð með tillögunni er birt tafla,
5em sýnir hversu mikill fjöldi
ibúavar f einstökum kjördæmum,
annars vegar árið 1960 og svo hins
vegar 1974.
Eins og öllum er kunnugt um,
þá hefur fólksfjölgun verið mjög
mikil hér á þéttbýlissvæðinu,
einkum í Reykjavík og Reykja-
neskjördæmi og nú er svo komið,
að atkvæðaréttur hvers kjósanda
er allt að fimm sinnum meiri í
hinum fámennustu kjördæmum
ef tekið er mið af fjölda íbúa
annars vegar og þingmannafjölda
þeim, sem kosinn er í hinum ein-
stöku kjördæmum, hins vegar.
Ég rek ekki einstakar tölur,
sem fram koma f þessari töflu, en
vek athygli á því, að þær eru fyrir
hendi í grg. með tillögunni.
JAFNRÉTTI — LÝÐRÆÐI
Hér á hinu háa Alþingi og
reyndar meðal alls almennings, er
mjög talað um jafnrétti borgar-
anna og það er talin sjálfsögð
almenn mannréttindi, að allir, án
tillits til kyns eða búsetu, njóti
sömu réttinda f þjóðfélaginu. Ég
hygg, að þessi sjónarmið eigi sér
fylgi innan allra stjórnmála-
flokka, allir flokkar vilja styðja
að auknu jafnrétti, auknu jafn-
ræði og þeir vilja halda hér uppi f
þessu landi lýðræði, sem sé f sam-
ræmi við lýðræðisvitund þjóðar-
innar, en auðvitað er jafnrétti og
jafnræði meginforsendur lýð-
ræðisins.
Ef lý2ræðið er verulega skert
með einum eða öðrum hætti, þá
býður það heim vissum hættum
og ég held, að það sé ekki til góðs,
ef einstök byggðarlög eða hópar
fófks telja, að sinn réttur sé lítils
eða einskis metinn. Það er enginn
vafi á þvf, að hér f Reykjavfk og á
Reykjanesi er risin mjög mikil
óánægja með þá þróun, sem átt
hefur sér stað, og kröfurnar um
lagfæringu á kosningalögum og
kjördæmaskipun gerast æ hávær-
ari. Þetta hljóta allir að skilja,
hva'ðan sem þeir koma og hvaða
flokki sem þeir fylgja. Reynslan
hefur hinsvegar sýnt, að menn
eru misjafnlega áhugasamir um
breytingar sem sjálfsagt stafar af
hagsmunum þeirra sjálfra,
hagsmunum ákveðinna flokka
eða viðkomandi byggðarlaga.
Það er mitt álit og þeirra, sem
að þessari tillögu standa, að ekki
megi undir nokkrum kringum-
stæðum láta persónulega hags-
muni eða hag einstakra flokka
ráða ferðinni í þessum efnum.
Það er skylda okkar alþingis-
manna, sem mótum löggjöfina, að
færa hana í réttlætisátt hvað
þetta snertir og til samræmis við
það, sem fólkið f landinu telur
rétt og sanngjarnt.
HÆTTULEG TREGÐA
A sfðari árum hafa hinar
dreifðu byggðir í þessu landi vak-
ið athygli á margvfslegu misrétti
og mismunun sem á sér stað milli
byggðarlaga, eftir því hvort þau
eru hér f þéttbýli eða dreifbýli og
byggðastefnu hefur mjög vaxið
fylgi. Það hefur komið fram f
margvíslegri löggjöf og margvfs-
legum ákvörðunum, sem teknar
eru m.a. á Alþingi.
Þessa þróun er sjálfsagt að
viðurkenna og styðja, og ég held
að þeir, sem 1 þéttbýli búa, hafa
sýnt henni fulkominn skilning
jafnt sem þeir, sem fyrir henni
berjast.
Það er mjög árfðandi, að ekki
skapist mikil gjá á milli fólks eftir
því hvar það býr, og mikil hætta
er á því, að klofningur verði, að
svo djúpur ágreiningur eigi sér
stað milli fólks eftir því hvar það
býr á landinu, að flest verður að
gera til að forða þvf.
Ég hef haft áhyggjur af þessari
þróun og ég tel, að öll tregða eða
skammsýni varðandi breytingar á
kjördæmaskipan og breytingar í
jafnréttisátt sé til þess eins að
breikka bilið á milli fólksins eftir
þvf hvar það býr og þegar til
lengdar lætur getur orðið mjög
hættulegt fyrir lýðræðið og fyrir
stjórnmál á Islandi.
Þess vegna hefur verið vakin
athygli á þvf oftar en einu sinni
að nauðsynlegt sé að gera breyt-
ingar sem allra fyrst á annaðhvort
stjórnarskránni eða kosningalög-
um, sem snúi við þeirri öfugþró-
un, sem átt hefur sér stað, þegar
litið er til fólksfjölda og til þing-
mannaf jölda sem kosinn er f kjör-
dæmunum.
ÝMSAR leiðir
MÖGULEGAR
Bent hefur verið á margar Ieið-
ir f þessu sambandi, Tillagan, sem
hér er flutt, fer ekki út f það af
tillitsemi við margvísleg sjónar-
mið og með hliðsjón af þvf, að nú
starfar stjórnarskrárnefnd sem á
að leggja fram tillögur að þessu
leyti.
Ég vil þó aðeins geta nokkurra
helstu leiða, sem til greina koma
ef um slfka breytingu verður að
ræða.
Annars vegar kemur til greina
að breyta kosningalögum, sem
hægt er að gera með einfaldri
lagabreytingu hér á Alþingi, en
hins vegar að breyta stjórnar-
skránni sem er miklu þyngra f
vöfum.
Þeir sem leggja mikla áherzlu á
stjórnarskrárbreytingu hafa ver-
ið að gæla við þær hugmyndir að
breyta kosningalögum þannig að
þessi breyting geti átt sér stað
sem allra fyrst og hafa í þvf sam-
bandi bent á þá möguleika, að
breyta mætti reglunum, sem gilda
um úthlutun uppbótarsæta.
Breyting f þá átt þarfnast ekki
stjórnarskrárbreytingar. Þær
Eilert B. Schram.
breytingar gætu orðið með þeim
hætti að fella niður þá reglu að
úthluta uppbótarsætum sam-
kvæmt hlutfallsreglunni og taka
aðeins tillit til atkvæðafjölda sem
er á bak við hvern mann, sem
úthlutað fær uppbótarsæti, og svo
er hins vegar sú leið möguleg að
fella niður það ákvæði, sem felur
það í sér, að aðeins megi úthluta
einum uppbótarmanni til hvers
flokks í einu og sama kjördæmi.
Við nána athugun á þessum
hugsanlegu breytingum kemur f
ljós sú athyglisverða niðurstaða,
að ef úthlutað er fleiru en einu
uppbótarsæti til flokks í sama
kjördæmi og miðað er við
kosningatölu frá 1974, að þá
hefðu 8 uppbótarsæti komið í hlut
Reykjavfkur f stað fjögurra núna,
en 3 í hlut Reykjaneskjördæmis,
sem er sú hin sama tala og
Reykjaneskjördæmi hefur í dag.
Af þessu er strax ljóst, að þessi
leið er ekki mjög aðgengileg ef
við viljum lagfæra hlut Reykja-
neskjördæmis og vissulega sýnist
það vera brýnast verkefnið f
augnablikinu, þvf að munurinn á
milli Reykjaneskjördæmis annars
vegar og þess kjördæmis , sem
fæsta kjósendur hefur hins vegar,
þ.e.a.s. Vestfjarðakjördæmis, er
langsamlega mestur og meiri en
þegar Reykjavík á f hlut.
Mér sýnist þess vegna þessi leið
ekki vera fær ef við viljum ná þvf
markmiði, sem flutningur þess-
arar tillögu stefnir að.
Ef menn fallast á þessa niður-
stöðu, þá sýnist varla mögulegt
annað en að breyta stjórnar-
skránni. Ymislegt kemur til
greina f þvf sambandi, hægt er að
taka upp einmenningskjördæmi
að nýju, með eða án uppbótar-
sæta, hægt er að kjósa helming
þingmanna, sem þá yrðu kosnir f
einmenningskjördæmi og svo
hinn helmingurinn af landslista.
Þá gæti hugsanlega atkvæðisrétt-
ur kjósandans verið tvöfaldur
eins og dæmi eru til um erlendis.
Énn má nefna þá leið að taka
upp tví- eða þrfmenningskjör-
dæmi með eða án uppbótarsæta
og svo hefur verið bent á þá
möguleika að landið allt væri gert
að einu kjördæmi.
PERSÓNUKJÖR
í þessu sambandi er lfka rétt að
nefna leið, sem gerð var grein
fyrir í blöðum og fjölmiðlum fyrir
nokkrum vikum. Það var fyrir-
komulag, sem ungir menn í 3
stjórnarflokkum komu sér saman
um að mæla með. Það fyrirkomu-
lag er sniðið eftir frsku kerfi. Það
er nokkuð flókið, en felur það í
sér f aðalatriðum, að frambjóð-
endum er þar raðað í stafrófsröð,
kjósandinn hefur þar eitt at-
kvæði, en getur einnig gefið til
kynna valkosti sfna að frágengn-
um þeim, sem hann kýs, þannig
að hann tölusetur frambjóðendur.
Kjósandinn er því óbundinn af
flokkum í valkostum sinum.
í sambandi við persónukjör,
sem þetta frska kerfi felur í sér,
hefur einnig verið bent á þá
möguleika sem f gildi eru f Dan-
'mörku og Vestur-Þýzkalandi,
þ.e.a.s. að kjósendum er gert
kleift að kjósa bæði frambjóðend-
ur og flokk í stórum kjördæmum
og þeir geta krossað við ann-
aðhvort flokkinn eða frambjóð-
andann f þeim flokki, sem hann
vill styðja. En einnig er sú leið
fær, sem Vestuur-Þjóðverjar
hafa, að kjósandinn getur bæði
kosið frambjóðanda og flokk,
enda þótt frambjóðandinn sé ekki
úr þeim sama flokki sem kjósand-
inn greiðir atkvæði sitt.
Allar þessar leiðir þarf að at-
huga, þær hafa allar sfna kosti og
galla. Ég skal ekki leggja neinn
sérstakan dóm á þessar mismun-
andi aðferðir við kosningar, en
eftir því sem ég hef sjálfur skoðað
þetta betur, þá hneigist ég meir
að þvf fyrirkomulagi, sem rikj-
andi er í Danmörku.
Ég geri ráð fyrir því, að
flutningsmenn þessarar tillögu
svo og aðrir alþingismenn hafi
sfnar skoðanir á þessum mögu-
leikum og þvf hefur ekki verið
lagt út f það í þessari tillögugerð
að mæla með neinni sérstakri að-
ferð heldur leggja áherslu á það
meginatriði, að lögum eða
stjórnarskrá yrði breytt þannig,
að kosningaréttur yrði jafnaður
meir frá þvf, sem nú er.
HVER ER VILJI
ALÞINGIS
Ég geri mér fulla grein fyrir
því, að þetta mál er vandasamt og
þarf að ræðast mjög ítarlega f
stjórnmálaflokkunum, en ég tel
þó, að Alþingi eigi og sé fært um
að láta í ljós vilja sinn eða skoðun
sína á því, hvort þetta meginatriði
sé ekki orðið nauðsynlegt og
reyndar óhjákvæmilegt.
Því er þessi tillaga flutt til þess
að fá fram viljayfirlýsingu af
hálfu Alþingis, þ.e. viljayfirlýs-
ingu sem þjóðin fær þá að heyra
og lýðum verður ljóst að alþingis-
menn og stjórnmálaflokkarnir
eru ekki algjörlega sinnulausir
um þessi málefni og vilja láta
einhverjar breytingar koma til
framkvæmda sem allra fyrst. Það
yrði lfka til leiðbeiningar fyrir
stjórnarskrárnefnd sem nú situr
að störfum og yrði gott veganesti
og stuðningur fyrir hana f hennar
störfum.
Herra forseti. Ég tel ekki
ástæðu til að orðlengja þetta öllu
frekar. Ég hef hér gert grein fyrir
þeirri tillögu, sem á dagskrá er,
þeim rökum, sem búa að baki
henni og þeirri nauðsyn, sem við
flutningsmenn teljum vera á því,
að þessu máli sé hrint í fram-
kvæmd sem allra fyrst.
Ég legg svo til að að lokinni
þessari umræðu verði tillögunni
vfsað til alisherjarnefndar.
Fjöldi íbúa eftir kjördæmum 1960 og 1974.
1960 1974
Reykjavík 72 407 84 772
Reykjanes 26 010 43 944
Vesturland 11973 13 862
Vestfirðir 9 940
Norðurland vestra .... 10 241 10 090
Norðurland eystra .... 19 769 23 572
Austurland 10 367 11 919
Suðurland 18 529
Aukning
12 365
17 934
1 889
-í- 567
—f— 151
3 803
1552
2 511
íbúar að baki hvers þingmanns 1960 og 1974.
1960
Reykjavík (12) ............................ 6 034
Reykjanes (5) ............................ 5 205
Vesturland (5) ............................ 2 395
Vestfirðir (5) .............................. 2 101
Norðurl. vestra (5) .......................... 2 048
Norðurl. eystra (6) ........................ 3 295
Austurland (5) ............................ 2 073
Suðurland (6) ............................ 2 670
1974
7 064
8 789
2 772
1 988
2 018
3 928
2 384
3 088