Morgunblaðið - 12.03.1977, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12 MARZ 1977
5
Paul Newman ásamt Elfsabetu TQAYLOR I MYNDINNI
„Cat on a Hot Tin Roof“.
George C. Scott f hlutverki Pattons hershöfðingja.
aðalhlutverkið, leikstýrði
hann og fékk frábæra
dóma fyrir.
Annar þekktur leikari
er í aðalhlutverki í mynd-
inni í kvöld. Það er
George C. Scott, fæddur
árið 1926 í Virginiufylki,
Bandarikjunum. Hann
þykir frábær leikari,
hvort sem er i kvikmynd-
um eða á sviði. Mörgum
mun minnisstætt þegar
hann neitaði að taka við
Oskarsverðlaununum
hér um árið, en hann hef-
ur mjög gagnrýnt verð-
laun þessi. En þrátt fyrir
háværa andstöðu sina og
mótmæli i garð þeirra
var hann kjörinn bezti
leikari ársins 1970, fyrir
leik sinn í myndinni um
Patton hershöfðingja
(Patton — Lust for
Glory).
Hann lærði sína leiklist
við leikhúsið sjálft og lék
i sinni fyrstu kvikmynd
árið 1959. Þar kom leik-
stjórinn Otto Preminger
auga á hann og fékk hon-
um hlutverk í myndinni
„Anatomy of a Murder“
(árið 1959). Hans næsta
stóra hlutverk var svo í
myndinni „The Hustler“,
sem við sjáum í kvöld og
fyrir leik sinn í þeirri
mynd, gáfu gagnrýnend-
ur honum það orð að
hann væri frábær skap-
gerðarleikari, sem gæfi
hlutverkum sinum
þungamiðju og fjöl-
breytni. Að frátöldum
kvikmyndum hefur hann
einnig leikið í mörgum
sjónvarpsþáttum. Stór-
stjarna í kvikmynda-
heiminum varð hann þó
fyrst i hlutverki Pattons.
Frædslu-
kvöld í
Neskirkju
SÓKNARPRESTAR og safnaðar-
félög Nesprestakalls hafa ákveðið
að boða til sérstakra fræðslu-
funda fyrir foreldra og aðra að-
standendur og fleiri, sem áhuga
hafa, dagana 14.—16. marz n.k. Á
þessum fræðslukvöldum verða
flutt erindi um ýmislegt er varðar
tengsl unglinga og foreldra
þeirra við kirkjuna og verða
fengnir ýmsir sérfræðingar til
þess. Að sögn forráðamanna Nes-
sóknar er með þessu ætlunin að
auka samskipti heimilanna við
kirkjuna og er þetta þjónusta sem
lengi hefur verið ráðgert að koma
á fót, en ekki orðið af fyrr en nú.
Á fyrsta kvöldinu, mánud. 14.
marz, flytur sr. Karl Sigurbjörns-
son erindi sem nefnist kirkjan og
heimilið. Á þriðjudagskvöld tala
þau Jón Tynes félagsráðgjafi, og
Margrét Hróbjartsdóttir, Jón um
fjölskylduna og þjóðfélagið og
Margrét um hjúkrun og umönn-
un. Siðasta kvöldið mun Þórir
Guðbergsson félagsþráðgjafi
ræða um nám og frístundir. Gert
er ráð fyrir að þátttakendum gef-
ist kostur á að bera fram fyrir-
spurnir til framsögumanna og
verða umræður eftir því sem til-
efni gefst til.
Eins og fyrr segir eru þessi
fræðslukvöld einkum ætluð for-
eldrum og uppalendum en öllum
er heimill aðgangur meðan hús-
rúm leyfir.
Dagur Ekkna-
sjóðs íslands
á sunnudag
ÁRLEGUR söfnunardagur
Ekknasjóðs Islands er annar
sunnudagur í marz og verður
hann þvf 13. marz n.k.
Frú Guðný Gilsdóttir, sem
stofnaði sjóðinn ásamt manni sin-
um á striðsárunum, hefur annazt
umsjón með merkjasölu i Reykja-
vík þennan dag og hefur hún not-
ið hjálpar Margrétar Þórðardótt-
ur undanfarin ár. Hlutverk
Ekknasjóðs er að hlaupa undir
bagga með ekkjum, sem eru i
nauðum staddar fjárhagslega og
segir í frétt frá Biskupsstofu, að
þó að hann hafi ekki getað bætt
úr nema broti af þeirri þörf sem
greiða þyrfti úr, hefði hann orðið
mörgum að liði í timabundnum
erfiðleikum.
Á siðasta ári veitti sjóðurinn 3
ekkjum styrk að upphæð samtals
700 þúsund krónur. Er ráðstöfun-
arfé sjóðsins nær eingöngu ágóði
af merkjasölu i Reykjavik og
söfnunarfé í kirkjum.
Félag framreiðslumanna:
Áskorun til Sigurlaugar Bjarnadóttur
BLAÐINU hefur borizt eftirfar-
:ndi frá Félagi framreiðslu-
manna:
Vegna ummæla sem frú Sigur-
laug Bjarnadóttir alþingismaður
viðhafði i sjónvarpsþætti um bjór-
málið hinn 1. marz s.1., þess efnis
að barþjónar hefðu hærri laun en
ráðherrar, skorar stjórn- og trún-
aðarráð Félags framreiðslumanna
á alþingismanninn að finna þess-
um ummælum sinum stað á opin-
berum vettvangi, t.d. með því að
benda á þá ábyrgu aðila, sem upp-
lýsingar hennar um þetta efni eru
fengnar frá. Verði þingmaðurinn
ekki við þessari áskorun verður
félagið að lita svo á að þessi um-
mæli þingmannsins séu dauð og
ómerk.
f.h. Félags framreiðslumanna,
Haraldur Tómasson, formaður.
AKUREYRI
Kynning á
sólarlandaferðum
Mallorca
Ea M ta EyCa Eðta yB o?
Steinn Lárusson framkv.stj. Úrvals
verdur til viðtals um val
sólarlandaferða hjá Ferðaskrifstofu
Akureyrar, mánudaginn 14. marz
kl. 10—12 f.h. og 14—18 e.h.
FERDASKRIFSTOFAN
URVAL
jiimfekipafélagshúsinu simi 26900
Umboð Akureyri:
FERÐASKRIFSTOFA
AKUREYRAR