Morgunblaðið - 12.03.1977, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12 MARZ 1977
Formáli
Tfmaritsgrein meB ofan-
greindri fyrirsögn birtist ný-
lega I einu tímaritanna,
sem AlþjóSaheilbrigSis
málastofnunin gefur út.
ÞýBingin er nokkuB stytt.
Greinin fjallar um fbúa
NorBur-KirjálahéraBs
(NorBur Karelia) í Austur-
Finnlandi, en þarerein
hæsta tlBni hjarta- og æBa-
sjúkdóma í heimi. íbúar eru
180.000 aB tölu. Þar er
dreifbýli og um 70% Ibú-
anna bændafólk. Lýst er,
hvernig héraBsbúar og heil-
brigBisstjórn Finnlands
skipulögBu aBgerBir út í
æsar, þjálfuBu hjúkrunarliB
og leikmenn, og leituBu aB-
stoBar AlþjóBaheilbrigBis-
málastofnunarinnar. Al-
menningsrannsókn þessi
hófst 1972 og lýkur 1977,
stendur sem sé fimm ár.
Höfundurinn er læknirinn
PEKKA PUSKA, sem er aB-
alframkvæmdastjóri rann-
sóknaráætlunarinnar. Hin-
ar fyrirbyggjandi aBgerBir
gegn æBakölkunarsjúk-
dómum voru aBallega
fólgnar aB berjast gegn
þremur áhættuþáttum:
REYKINGUM, meB þvíaB
stofna starfshópa í hverri
sveit héraBsins, sem unnu
gegn reykingum, HÁ-
ÞRÝSTING, meBþvíaB
mæla blóBþrýsting hjá sem
flestum íbúanna og beita
meBferB þar sem þurfti,
HÆKKAÐRI BLÓÐFITU,
meB því aB minnka fitu í
fæBunni t.d. með aB ráð-
leggja fólki að drekka mjólk
með lækkuðu fituinnihaldi
(1 — 2% „látt mjölk") og i
samvinnu viB matvæla-
framleiðendur héraðsins að
minnka fituinnihald í pyls-
um o.fl. Strax á þriBja ári
starfstímabilsins sáust
merki árangurs af þessu
víBtæka samstarfi i barátt-
unni viB þrjá aðalhættu
þættina: REYKINGAR, HÁ-
ÞRÝSTINGS OG HÆKK-
AÐA BLÓÐFITU, sem eru
fyrirrennarar kransæða-
sjúkdóms og æðakölkunar.
Allir þessir þrir hættuþættir
hofðu lækkaB að tiðni þeg-
ar tvö og hálft ár voru liBin
af rannsóknartimabilinu.
Þá hafði einnig tekist að
halda tíðni kransæðastiflu i
skefjum, og tiBni heilablóð-
falla hafði lækkaB.
Ég tel þetta framlag
finnskra heilbrigðisyfir-
valda á þessu sviði það
merkilegasta i heiminum,
enda er talið, að verði
árangurinn eins og nú horf-
ir, muni sömu aðferðum
beitt við alla aðra ibúa
Finnlands. Því á þessi grein
sérstakt erindi til lands-
manna allra, en sér í lagi til
lækna, heilbrigðisstétta og
heilbrigðisyfirvalda íslands.
Verkamenn í verksmiðju hlusta á erindi heilsu-
verndarfulltrúa um skaðsemi reykinga.
Sigoröor ifeunnelsson. próf.:
Aðal-
hættar
hrir
hjarlað
íbúar Norður-Kirjála hér-
aðs í Austur-Finnlandi þjást
af hárri tíðni hjarta- og æða-
sjúkdóma, sérstaklega af
kransæðasjúkdómi. Hjarta-
og æðasjúkdómar hafa i
auknum mæli orðið eitt aðal
heilsufarsvandamál þróuðu
landanna, en þar valda þeir
um helming dauðsfalla og
stytta æviskeið fólks um tíu
ár. Venjulega fylgir krans-
æðasjúkdómurinn iðnþróun,
streitu og minnkaðri likam-
legri áreynslu, eða aukinni
líkamsþyngd. Þetta á sér þó
ekki stað í Norður-Kirjála hér-
aði. Kransæðasjúkdómur er
þar langalgengastur meðal
karla, sem búa út á lands-
byggðinni, sem vinna hörð-
um höndum, og likams-
þyngd þeirra er vemjulega lít-
ið aukin
Allar skýrslur og skoðanir
staðfesta ofangreint ástand i
Norður-Kirjálahéraði Hæsta
dánartíðni í heimi af völdum
kransæðasjúkdóms er meðal
karla í Finnlandi. Innan Finn-
lands er Norður-Kirjálahérað
með hæstu tíðni í þessum
efnum. Þetta héraðer
1 8.000 ferkílómetrar, og þar
eru aðallega fagrar sveitir
meðvötnum, hæðum og
miklum skógum. Næstum
70% hinna 1 80 000 íbúa
búa í sveitum og aðal at-
vinnuvegir eru landbúnaður
og skógrækt. Höfuðborgin
heitir Joensuu með 40.000
íbúa.
Hin háa tíðni kransæða-
sjúkdóms meðal karla kom
einnig í Ijós við faraldsfræði-
lega rannsókn, sem fram-
kvæmd var samtímis í sjö
löndum og birt var í Finn-
landi 1 966, og einnig við
skráningu kransæðastíflu til-
fella, þar sem beitt var að-
ferðum Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunarinnar. Skrán-
ing þessi sýndi að árið 1 972
voru um 1000 tilfelli af
kransæðastiflu meðal íbú-
anna, og helmingur þessara
hjartakasta kom hjá körlum
innan 65 ára aldurs. Hin háa
sjúkdómstíðni er ennfremur
staðfest af þeirri staðreynd,
aðárið 1972 höfðu næstum
einn þriðji hluti karla á aldrin-
um 45 til 59 ára, sem
bjuggu utan höfuðborgarinn-
ar, og fengið höfðu hjarta-
áfall, orðiðað þiggja örorku-
bætur vegna heilsufars-
ástands síns.
Við undirbúning og skipu-
lag rannsóknarinnar var tekið
tillit til allrar tiltækrar þekk-
ingar svo og baksviðs rann-
sóknarinnar. Einnig allra far-
aldsfræðilegra rannsókna I
Norður-Kirjálahéraði og ann-
ars staðar í heiminum. Sam-
tvinnuðtíðni hinna þriggja
„hörðu" hættuþátta —
REYKINGA, HÁRRAR
BLÓÐFITU (CHOLESTEROL)
OG HÁÞÝSTINGS var mjög
algeng meðal karla og virtist
skýra að mestu leyti hina háu
tíðni kransæðasjúkdóms.
Upplýsingum var safnað um
íbúana og héraðið, um hegð-
un og skoðanir íbúa héraðs-
ins, ráðamanna og heilbrigð-
isstétta, og um uppbyggingu
á : Imenningsþjónustu. Tak-
markið var að komast að
góðri greiningu á þvi ástandi,
sem ríkti í héraðinu.
Nokkur markmið voru
ákveðin, sem eru mikilvæg til
fyrirbyggingar á sjúkdómum.
Hér ber hæst að hætta reyk-
ingum, breyta mataræði til
að lækka blóBfitu og lækka
háþrýsting. Aðgerðir þessar
beinast að öllum íbúum hér-
aðsins, en fyrst og fremst að
fólki, sem reynist hafa mikla
hættuþætti.
Þar sem sjúkdómurinn er
það algengur að hættuþætt-
irnir ná til flestra íbúanna, er
reynt með víðtækum aðgerð-
um að hafa áhrif á sem flesta
þeirra. Þvi var öll þessi starf-
semi bundin við þá heilbrigð-
is- og félagslegu þjónustu
sem til var í héraðinu, og hún