Morgunblaðið - 24.03.1977, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1977
17
umhverfi marka — hagnýtir þá mögu-
leika sem gefast og tengist að þvl leyti
samtlðinni og endurspeglar þroska
hennar. í frumstæðu fámenni okkar
samfélags voru möguleikarnir hvorki
márgir né miklir i fyrstu og urðu þvi
brautryðjendur iðulega aðskapa þá,
eða a.m k. að koma á þá auga og opna
um leið augu annarra á gildi þeirra
fyrir þjóðfélagið.
Slikt var viðhorfið og vist er að hér
var sizt um gerviþörf að ræða, svo sem
gerist i auglýsingaiðnaði nútimans,
heldur miklu fremur að mæta kalli
vaxandi fagurfræðilegra þarfa og
menningar á faglegum sviðum.
Mér er í fersku minni er ég fyrst leit
myndir eftir Halldór Pétursson en það
var i forna Listamannaskálanum við
Kirkjustræti að mig minnir haustið
1947. Þetta voru nokkrar teikningar úr
þjóðsögunum og i þær mikið borið
Vöktu þær mikla athygli sökum fágætr-
ar tæknileikni höfundarins — og siðan
hef ég fylgst með þessum sérstæða
listamanni, en úr nokkurri fjarlægð
vegna þess að við vorum ekki persónu-
lega kunnugir en þess sakna ég í dag.
Það voru teikningar listamannsins
ásamt lituðum rissum af leikurum og
þjóðkunnum persónum og margvisleg-
um fyrirbærum er vöktu öðru fremur
athygli mina, og ég tel að vel muni
geyma nafn hans
Á seinni árum markaði Halldór sér
að nokkru nýja tækni við skreytingu
bóka („Hófadynur" og „Helgi skoðar
heiminn") Hér birtast markdvisomelld
vinnudbrögðer létu honum einkar vel,
og er auðsæ sú alhæfing er hann
leggur hér i gerð myndanna og jafn-
framt það að hér er hann kominn inn á
svið er hann gjörþekkir og veitir
ánægju og útrás frjórri sköpunargleði
Og nú voru að bera að timaskil i
fjölþættri list Halldórs Péturssonar er
teiknun og málun hafði tekið hug hans
allan. En hér var taflinu lokið og
saknað verður snjallra leikbragða frá
hendi fjölhæfs listamanns — og Ijúft
má vera að þakka framlag hans til
menningar og yndisauka
Bragi Ásgeirsson.
stofa fær nú sérstaka starfskrafta til að
inna af hendi. Það var þvi með ólik-
indum hve miklu menn komu þá I
verk, svo sem Halldór Pétursson sem
var víkingur til allra verka.
Þeim sem þekkir til lifsverks
Halldórs Péturssonar getur ekki dulist
hin óvenju haga hönd hans og náðar-
gáfa sem teiknara í hinum fyrstu
myndum er eftir hann liggja og varð-
veitzt hafa, kemur það skýrt fram
hvaða braut listagáfa hans muni marka
sér. Hann ræktar siðan þessa náðar-
gáfu innan þess ramma er fag hans og
honum ætlað annarsstaðar tekur
við, erum við sem eftir lifum rík
af minningum um góðan frænda
sem hafði stóra og göfuga sál.
Guð blessi hann.
E.M.L.
Karlakórinn Fóstbræður á nú
meir en sex áratuga óslitinn
starfsferil að baki. Söngfélagarn-
ir hafa komið og farið og munu
þeir nú orðnir meira en tvö
hundruð talsins, sem lagt hafa
hönd á plóginn og fórnað söng-
gyðjunni og Fóstbræðrum starfs-
kröftum sinum. Allir þeir, sem til
kórsins hafa leitað til fullnæging-
ar listþrá sinni og sönggleði, hafa
fest þar rætur og bundizt honum
tryggðaböndum ævilangt. Þar
hefur ávallt ríkt hugljúfur and-
blær, þar sem sönglist og athafna-
þrá hefur fengið útrás.
Á svo löngum tíma höfum við
Fóstbræður hlotið að sjá á bak
mörgum góðum félaga og vini, og
nú eru flestir frumherjanna
gengnir á vit feðra sinna. En
þetta er lífsins saga og tjáir ekki
um að fást. Ekki fer þó hjá því, að
í hvert sinn sem einhver söngfé-
laganna hverfur af sjónarsviðinu
finnum við til sársauka og tóms,
sem erfitt er að fylla. Við minn-
umst nýlátinna félaga okkar,
manna eins og Halls heitins Þor-
finnssonar og Sigurðar Waage,
sem ekkert létu ógert til þess að
vinna kórnum og styðja hann til
meiri þroska og vegsauka.
Og nú er Halldór Pétursson list-
málari horfinn úr hópnum langt
um aldur fram. Fer okkur nú sem
Agli Skallagrímssyni forðum að
„mjög erum tregt tungu að
hræra“. Svo margs er að minnast
og svo taargt kemur i hugann, að
örðugt er að koma því á framfæri
svo vel sé. Mun best fara á því að
hafa sem fæst orð, enda mundi
Halldóri það kærast, svo hógvær
sem hann var að eðlisfari.
Hér mun hvorki rakin ævi — né
starfsferill Halidórs Péturssonar,
enda munu aðrir gera það. Hér
verður aðeins vikið nokkrum orð-
um að þeim þáttum í lífi hans,
sem að Fóstbræðrum sneru.
Halldór var sonur Péturs heit-
ins Halldórssonar fyrrum borgar-
stjóra í Reykjavik, eins hins
mesta og ágætasta söngmanns,
sem Fóstbræður hafa átt bæði
fyrr og síðar. Hann hafði óvenju
djúpa og hreimfagra bassarödd,
sem ávallt setti svip sinn á kórinn
og gæddu söng hans fyllingu og
fegurð. En hann var ekki einung-
is mikill og tónnæmur söngmað-
ur, heldur var hann og um árabil
einn af helztu stjórnarmönnum
kórsins og einn í hópi þeirra, sem
leiddu hann til frægðar og frama
og lögðu grundvöllinn að starf-
semi hans eins og hún hefur verið
æ síðan. Glæsimennska hans og
sönggleði er i minnum höfð meðal
allra eldri Fóstbræðra og ann-
arra, sem á hann hlýddu.
Ekki verður Péturs heitins svo
getið, að ekki sé minnzt á bróður
hans Jón Halldórsson, sem frá
upphafi vega hefur mótað sönglíf
Fóstbræðra með festu sinni og
óvenjulegum söngstjórnar- og
hljómlistarhæfileikum. Á enga
mun hallað þótt sagt sé, að þessir
tveir menn hafi ásamt Halli heitn-
um Þorleifssyni öðrum fremur
gert Karlakórinn Fóstbræður að
því mikla og fágaða hljóðfæri sem
við njótum nú.
Halldór Pétursson hlaut mikið í
vöggugjöf. Hann var ekki einung-
is mikilvirkur teiknari og listmál-
ari, heldur tók hann að arfi hljóm-
listargáfu ættar sinnar. Hann bjó
yfir fagurri og dugandi bassarödd
sem fram kom þegar er hann var
ungur piltur í skóla. Og hann var
ekki gamall þegar hann kom i hóp
Fóstbræðra árið 1945. Þannig fet-
aði hann í fótspor föður síns og
frænda, og þarf naumast að taka
fram, að hann skipaði sæti sitt
með sóma. Hann var lagviss og
öruggur eins og hánn átti kyn til
og bjó yfir þeirri sönggleði og
áhuga, sem prýða hvern góðan
söngmann.
En Fóstbræður nutu ekki ein-
ungis sönghæfileika hans, heldur
miðlaði hann þeim einnig af hin-
um fágætu listmálarahíefileikum
sínum. Hann málaði þannig mynd
af frænda sínum Jóni Halldórs-
syni, er nú skipar heiðurssess í
félagsheimili kórsins. Og siðustu
árin teiknaði hann og málaði afar
skemmtilegar myndir ,af öllum
eldri kórfélögum sem hann náði
. jtU. Eru þær hreint augnayndi, til
mikillar prýði og ómetanlegur
skerfur til fegrunar félagsheimii-
isins. Undruðumst við oft, hversu
létt honum var um að búa þessar
myndir til og hversu auðveldlega
honum tókst að ná fram með
græskulausum hætti ýmsum sér-
kennum kórfélaganna. Hentum
við oft gdman að þessu. Víst er, að
Fóstbræður munu ávailt varð-
veita þessar myndir hans sem
dýrmæta endurminningu um hug-
ljúfan félaga og listamann. Þær
munu um ókomin ár skreyta fé-
lagsheimilið, eldri sem yngri
Fóstbræðrum til gleði og hug-
ljóma.
Halldór Pétursson var maður
mjög vel á sig kominn svo sem
faðir hans og frændur allir. Hann
var allmikill vexti, svipmikill og
sómdi sér ávallt mjög vel í hópi
söngmanna. En hann var umfram
allt hógvær og góður félagi, sem
Fóstbræður munu minnast með
þakklæti og virðingu. Hans mun
jafnan minnzt þegar góðs manns
er getið.
Að lokum vil ég fyrir hönd okk-
ar Fóstbræðra þakka honum liðn-
ar ánægjustundir og samstarf
jafnframt því sem við flytjum eig-
inkonu hans og börnum innilegar
samúðarkveðjur. Við erum þess
fullvissir, að minningin um góðan
(jreng og græðandi máttur tímans
muni lækna öll sár.
R.I.P.
Haraldur Hannesson
Er ég frétti lát vinar mins,
Halldórs Péturssonar snemma
morguns í síðast liðinni viku, kom
fréttin mér ekki beint að óvörum,
þar sem ég vissi að Halldór hafði
verið mjög heilsutæpur undan-
farin ár, en engu að síður snart
hún mi'g og konu mína mjög illa,
því Halldór var einn nánasti
vinur okkar hjóna i áratugi. Við
Halldór kynntumst ungir, og ör-
lögin höguðu því þannig til, að við
Ieigðum saman íbúð í New York i
heil þrjú ár á stríðsárunum. Við
eigum ekkert nema dásamlegar
minningar um samveru okkar
með Halldóri, þvi hann var gull af
manni. Traust handtakið gaf
strax til kynna heilsteyptan og
vandaðan mann, enda var Halldór
með afbrigðum vinsæll maður hjá
ölium sem einhver kynni höfðu af
honum. New York-dvölin var
ævintýri líkust, hver dagur hafði
upp á eitthvað skemmtilegt að
bjóða, bæði i námi og í því sem
var að gerast í stórborginni. Mál-
verkasýningar, leikhús og hljóm-
leika sóttum við af kappi, en
Halldór hafði mikið yndi af góðri
hljómlist og voru þeir ófáir hljóm-
leikarnir sem við hlustuðum á
saman. Ég var hálft i hvoru
hræddur um að hann myndi gef-
ast upp á því að búa undir sama
þaki og undirritaður vegna píanó-
æfinganna, en það var öðru nær.
Þegar ég impraði á því, hvort
hann væri ekki orðinn uppgafinn
á glamrinu í mér, svaraði Halldór
að sér þætti alltaf jafn gaman að
því að kynnast nýjum verkum og
heyra þau mótast með æfjngunni.
En hafi honum þótt gaman að
kynnast mínu starfi, þá þótti mér
ekki siður gaman að fylgjast með
hans. Ég var alltaf jafn furðu
lostinn að sjá hann handleika blý-
antinn. Kannski gerði hann að-
eins nokkur strik, og, þar var
komin karakterlýsing eða ævi-
saga þess sem hann teiknaði, á
borðið fyrir framan mann. Það er
engin þörf á þvi að segja frá ferli
listamannsins Halldórs, svo
þekktur sem hann var orðinn
bæði hér og erlendis, en vil fyrst
og fremst minnast hans sem vinar
hér. Halldór steig sitt gæfuspor í
lifinu er hann gekk að eiga Fjólu
Sigmundsdóttur, ættaða frá ísa-
firði, og var sambúð þeirra með
afbrigðum góð. Ekki get ég
ímyndað mér betri konu fyrir
Halldór en Fjólu. Hún var vakin
og sofin í því að skapa manni
sinum sem bezt skilyrði til vinnu-
aðstöðu, og aö gefa honum gott og
friðsælt heimilislif, enda naut
Halldór sín hvergi betur en i
faðmi fjölskyldunnar og meðal
náinna vina sinna. Börn þeirra
eru þrjú: Dóra, Pétur og Ágústa,
öll hin mannvænlegustu. Fyrir
um það bil 30 árum stofnuðum við
nokkrir vinir skák-klúbb og var
Halldór potturinn og pannan í
þeirri ráðagerð. Ekki datt okkur i
hug að klúbburinn myndi endast
nema þá ef til vill út þann vetur,
en raunin varð sú, að hann stóð
óbreyttur þangað til á síðasta ári,
að okkar góði vinur Viðar Thor-
steinsson lézt úr hjartaslagi. Og
nú er Halldór farinn frá okkur
líka, og býst ég ekki við að
klúbburinn beri sitt barr eftir það
áfall. Ég mun sakna Halla vinar
míns meðan lif endist.
Rögnvaldur Sigurjónsson.
Kveðja frá Skáksambandi
íslands.
Halldór Pétursson listmáljjri er
fallinn frá. Hann lézt í önn og erli
dagsins, hafði kvöldinu áður
fylgzt með skákeinvíginu og bjóst
til að teikna áttundu myndina frá
baráttu þeirra kappanna, Horts
og Spasskys.
Skákeinvígið ber sterkan svip
af listamanninum Halldóri
Péturssyni. Tákn einvigisins,
Riddaraslagur, er frábært mál-
verk sem var á sýningu lista-
mannsins á Kjarvalsstöðum á sl.
hausti. Það listaverk, sem Skák-
samband islands hefur fest kaup
á, ber fagurt vitni þeim hug, sem
listamaðurinn bar til skákiþrótt-
arinnar.
Þegar heimsmeistaraeinvígið í
skák var haldið hér í Reykjavík
sumarið 1972, vöktu hinar frá-
bærlega snjöllu myndir Halldórs
af viðureign meistaranna mikla
athygli og voru birtar i blöðum
víða um heim og báru hróður
listamannsins um víða vegu.
Halldór var mjög handgenginn
skákinni og þegar hann er nú
kvaddur hinzta sinni, vill Skák-
samband tslands flytja honum
einlægar þakkir allra islenzkra
skákmanna fyrir hans velvild og
gáskafulla framlag til skáklistar-
innar.
Ekkju hans* og vandamönnum
fsérum við innilegar samúðar-
kveðjur.
Stjórn Skáksambands Islands.