Morgunblaðið - 24.03.1977, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1977
43
UM sídustu helgi voru leiknir 2
leikir í bikarkeppni Blaksam-
bands Islands og áttust þá við á
Laugarvatni heimamenn og
stúdentar og unnu heimamenn
þar öruggan sigur, 3—1 (10—15,
15—11, 15—11 og 15—13).
I fyrstu hrinunni voru
stúdentar mjög ákveðnir og kom-
ust þeir í 7—0 áður en Laugdælir
tóku leikhlé. Við það skánaði leik-
ur þeirra nokkuð og náðu þeir
aðeins að rétta hlut sinn þó þeim
tækist ekki að vinna og var sigur
stúdenta aldrei i verulegri hættu.
Stúdentar hófu aðra hrinuna
einnig með miklum látum og kom-
ust þeir í 4—0 og 7—5, en þá kom
mjög góður leikkafli hjá Laugdæl-
unum og munaði þar miklu um
góðar uppgjafir Tómasar Jóns-
sonar og breyttu þeir stöðunni i
14— 7 sér í vil á skömmum tíma,
og sigruðu svo auðveldlega með
15— 11.
Báðar síðustu hrinurnar voru
svo mjög jafnar en Laugdælum
tókst með miklu harðfylgi að
knýja fram sigur í þeim báðum og
með því öðluðust þeir rétt til að
leika til úrslita i bikarkeppnínni
gegn Þrótti. Tap stúdenta í þess-
um leik kom nokkuð á óvart og er
þetta í fyrsta sinn i mörg ár að
stúdentar vinna ekki eitt einasta
mót á keppnistímabilinu.
Beztu menn Laugdæla voru
þeir Tómas Jónsson, Haraldur
GLOBETROTTERS KOMA EKKI
ÞAÐ ER nú orðið ljóst að hið
heimsfræga körfuknattkleikssýn-
ingarlið „Harlem Globetrotters“
mun ekki koma hingað til lands
nú i apríl eins og fastlega hafði
verið gert ráð fyrir. Ástæðan er
sú að sögn framkvæmdastjóra
KKÍ, Steins Sveinssonar, að þeir
hjá „Harlem Globetrotters" telja
að vegna óhagstæðra flugáætlana
sé þeim algjörlega ókleift að
koma hingað dagana 23. og 24.
apríl, en þeir segjast munu geta
FRAM-
VALUR
Einn leikur verður í meistara-
keppni KSl annað kvöld. Leika þá
Fram og Valur á Melavellinum og
hefst leikurinn kl. 20.00.
komið upp úr miðjum júní þegar
þeir komi til baka úr sýningarferð
sinni um Evrópu. „Við i núver-
andi stjórn KKÍ teljum okkur
ekki hafa umboð til að semja við
þá um að koma hingað i júní
vegna þess að þá mun Önnur
stjórn vera við völdin og teljum
við rétt að hún ákveði þetta sjálf,
en til þess verður nægur tími
vegna þess að hún verður væntan-
lega kosin á ársþingi sambandsins
6. maí“. sagði Steinn Sveinsson.
Þessar fréttir valda ábyggilega
flestum áhugamönnum um körfu-
knattleik miklum vonbrigðum því
að „Harlem Globetrotters" eru án
nokkurs vafa bezta körfuknatt-
leikslið i heimi og væri reyndar
nær að kalla þá annað hvort
galdrakarla eða „körfuknattleiks-
sirkus“ en þó er ekki öll von úti
enn því að enn er sá möguleiki
fyrir hendi að þeir komi hingað í
júní og leiki listir sínar.
H.G.
Jóhann sigraöi á úrtökumótinu
en Sigurður á Akranesmótinu
Geir Hlöðversson og Torfi Rúnar
Kristjánsson, en liðið átti í heild-
ina góðan leik og barðist af mik-
illi hörku. Hjá stúdentunum voru
það Halldór Jónsson, Júlíus Birg-
ir Kristjánsson og Kjartan Páll
Einarsson, sem mest bar á.
Leikinn dæmdu þeir Guðmund-
ur E. Pálsson og Þorvaldur
Sigurðsson.
Hinn bikarleikurinn var á milli
Þróttar og Víkinga og sigruðu
Þróttarar eins og við hafði verið
búizt 3—1 (15—10, 17—15,
10—15 og 15—10) Þróttarar
höfðu forystuna alla fyrstu hrin-
una og var sigur þeirra aldrei i
hættu, önnur hrinan var jafnari,
en Þróttarar sigruðu einnig í i
henni eftir talsverðan barning. í
þeirri þriðju virtist sem Þróttarar
ætluðu að vinna stórsigur, því að
þeir komust í 9—1 en þá kom
störgóður kafli hjá Víkingum og
tókst þeim að vinna góðan sigur i
hrinunni 15—10. Þróttarar voru
svo aldrei í vandræðum með sigur
í þeirri síðustu og unnu þeir leik-
inn þar með. Bezti maður Víkings
í þessum leik var Páll Ólafsson.
Hjá Þrótti bar mest á þeim
Guðmundi Pálssyni og Gunnari
Árnasyni
Leikinn dæmdu þeir Halldór
Jónsson og Kjartan Páll Einars-
son.
HG
Sigurður Haraldsson og Jðhann Kjartansson — sigurvegarar I tvíliða-
leik á Akranesmótinu og keppendur tslands f heimsmeistarakeppn-
inni.
Hanna Lára og Kristfn — sigurvegarar f tvfliðaleik kvenna á Akranesi
LAUGDÆLIR LÖGÐU STÚDENTA
OG ÞRÓTTUR VANN VÍKING
Sigfús Jðnsson — stðð sig vel f hlaupinu f Hollandi.
SIGFÚS VARÐ 20.
AF170 HLAUPURUM
SIGFÚS Jðnsson, hlauparinn góð-
kunni úr ÍR, stðð sig með ágætum
í stðru götuhlaupi sem fram fór 1
nágrenni bæjarins Lorient í
Frakklandi um helgina. Varð Sig-
fús nr. 20 f hlaupinu af um 170
keppendum sem luku hlaupinu,
en hlaupið var um 16,5 km.
„Ég hljóp mjög vel framan af og
var með i baráttunni. En að lokn-
um 10 kílómetrum kom æfinga-
missir að undanförnu í ljós og ég
missti niður hraða og sæti. Ekki
var tekinn tími nema á 15 fyrstu,
en ég tel mig hafa hlaupið þessa
16,5 km á um 53:20 mínútum, því
15. maður sem var um 250 metr-
um á undan mér fékk um 52:30
mín.“ Sigfús sagði að hlaupaleið-
in hefði verið skemmtileg, en
hlaupið hefði verið í sveitahéraði
á sunnanverðum Bretagne-skaga.
„En hlaupið var að sama skapi
erfitt því þarna er mjög mishæð-
ótt og við alltaf að fara upp og
niður brekkur," sagði Sigfús enn-
fremur.
Sigfús sagði 37 ára gamlan
Frakka, Barret, hafa sigrað, en sá
hefur keppt lengi fyrir Frakkland
í langhlaupum. Bretar urðu i
næstu sætum, og varð félagi Sig-
fúsar, John Mouat, sem útvegaði
Sigfúsi boð á hlaupið, í þriðja
sæti. Aðspurður Sagðist Sigfús
hafa misst talsvert úr æfingum í
janúar og fébrúar vegna meiðsla.
Væri hann þó orðinn góður af
þeim nú og getur hann beitt sér af
hörku á æfingum, og býst hann
við að verða í góðu formi fyrir
5000 metra hlaup i sumar. Mun
hann keppa á hlaupabraut i Stret-
ford við Manchester 2. apríl, en
síðan í viðavangs- og götuhlaup-
um um páskahelgina á eyjunni
Mön. Kemur Sigfús heim annan
dag páska og verður meðal þátt-
takenda i Víðavangshlaupi ÍR,
sem fram fer á fyrsta degi
sumars.
HÓHANN Kjartansson, hinn ungi
badmintonmaður úr TBR. varð sigur-
vegari á úrtökumóti sem Badminton-
samband ísland efndi til vegna fyrir-
hugaðrar þátttöku íslendinga I
heimsmeistarakeppninni I badmin-
ton I Svlþjóð. Bauð Badmintonsam-
bandið átta keppendum til þessa
móts. og var fyrirkomulagið þannig
að einn keppti við alla og allir við
einn. Sýndi Jóhann mikla hæfni i
móti þessu og sigraði alla and-
stæðinga sina. Um helgina fóreinnig
fram opið badmintonmót á Akranesi.
en þar varð Jóhann hins vegar að
láta I minni pokann fyrir félaga
sinum úr TBR, íslandsmeistaranum
Sigurði Haraldssyni. Lék Sigurður
mjög vel i úrslitaleiknum og átti ekki
i erfiðleikum með Jóhann, 1 5—7 og
15—6 urðu úrslit leiksins.
í úrtökumótinu tapaði Sigurður hins
vegar tveimur leikjum Fyrst fyrir Sig-
fúsi Ægi Árnasyni, en hann virðist hafa
einhver tröllatök á Sigurðt og vann
leikinn 1 5— 14 og 1 5— 1 2 og síðan
fyrir Jóhanni 11 —15 og 13 15
Varð Sigurður að gera sér annað sætið
að góðu, en jafnir i þriðja til fimmta
sæti i 'móti þessu urðu þeir Sigfús
Ægir, Jóhannes Guðjónsson frá Akra-
nesi og Haraldur Korneliusson, TBR
Hlutu þeir allir 4 vinninga Hörður
Ragnarsson og Friðleifur Stefánsson
hlutu 2 vinninga og urðu I sjötta til
sjöunda sæti. en Reynir Þorsteinsson
varð i áttunda sæti og hlaut engan
vinning
í mótinu á Akranesi um helgina var
auk einliðaleiks karla einnig keppt i
tvíliðaleik karla og kvenna, einliðaleik
kvenna og tvenndarleik
í undanúrslitum i einliðaleik karla
vann Sigurður Harald Korneliusson
eftir mikinn barning: 15—12,
12—15 og 15—7, en Jóhann
Kjartansson sigraði Sigfús Ægi i und-
anúrslitum, einnig eftir oddaleik
11 — 15, 15—8 og 15—2. í úrslit-
unum var Sigurður svo áberandi betri
aðilinn, svo sem úrslitatölurnar segja
töluvert um
Reykjavíkurmót barna 12 ára og
yngri í svigi og stórsvigi fer fram i
Bláfjöllum n.k. laugardag og
sunnudag. Verður keppt i stór-
svigi á laugardag og svigi á sunnu-
dag. Nafnakall hefst kl. 12.00 og
keppnin klukkustundu síðar.
í tviliðaleik karla komust i úrslit þeir
Sigurður Haraldsson og Jóhann
Kjartansson, og Haraldur Korneliusson
og Steinar Petersen, Léku þeir Sig-
urður og Jóhann úrslitaleikinn mjög
vel og unnu 1 5—3 og 1 5—8
Sigurvegari i einliðaleik kvenna varð
Kristin Kristjánsdóttir, TBR, sem vann
Hönnu Láru Pálsdóttur i úrslitaleik
11 — 4. 5—11 og 11 — 7. Má geta
þess að Lovísa Sigurðardóttir, sem
hefur haft yfirburði i einliðaleik kvenna
i langan tíma, var ekki meðal keppenda
á Akranesi
I tviliðaleik kvenna unnu svo þær
Hanna Lára og Kristín þær Oddfriði
Jónsdóttur og Stellu Matthíasdóttur,
TBR, i úrslitaleik 1 5—-6 og 1 5— 10
Morgunblaðið birti s.l.
þriðjudag athugasemd .frá knatt-
spyrnudeild Armanns, þar sem
undirritaður er sakaður um að
hann hafi verið likastur verkfæri
annars aðila, þegar hann skrifaði
greinarstúf í Timanum 4. marz s.l.
um að alvarlegt ástand ætti sér nú
stað hjá knattspyrnudeild
Ármanns.
Þessar fullyrðingar knatt-
spyrnumanna Ármanns læt ég
lönd og leið enda ekki svara-
verðar — en Ármenningar reyna
i athugasemd sinni að fegra
trassaskap sinn með þvi að saka
undirritaðan um ósannindi og
rógburð. Undirritaður sér því
ekki annað fært en að svara
þessari athugasemd, sem er
krydduð ósannindum, með fáum
orðum:
Undirrituðum þykja það gleði-
leg tíðindi að andi friðarins skuli
ríkja i herbúðum Ármanns. Það
var ekki ætlun hans að kasta rýrð
á „dugnað og eljusemi"
núverandi forystumanna knatt-
spyrnudeildar Ármanns, heldur
skýrði ég í greinarstúf minum i
Sigurvegarar i tvenndarleiknum
urðu svo Hanna Lára Pálsdóttir og
Sigurður Haraldsson sem sigruðu
Stellu Matthiasdóttur og Steinar Peter-
sen i úrslitaleik 1 5—6 og 1 5—8 Má
því með sanni segja, að Sigurður hafi
komið, séð og sigrað á mótmu á
Akranesi, þar sem hann stóð uppi sem
sigurvegari i öllum greinunum sem
hann keppti i,
Badmintonssamband íslands hefur
ákveðið að það verði þeir Jóhann
Kjartansson og Sigurður Haraldsson
sem keppa i heimsmeistarakeppninni i
Sviþjóð Um tíma var ekki vist að
Jóhann kæmist vegna prófa i skóla
sinum. en þau mál hafa nú leysts
Timanum frá hinu uggvænlega
ástandi sem ætti sér stað hjá
Ármanni og skoraði ég á forráða-
menn deildarinnar að vakna af
þyrnirósarsvefninum áður en of
seint væri. Það er þvi gleðilegt
fyrir hina ungu stráka, sem æfa
knattspyrnu hjá Ármanni, að
greinarstúfur minn hefur borið
árangur. Nú virðast Ármenningar
hafa raknað úr rotinp.
Þá er það ánægjulegt að
Ármenningar eru búnir að „finna
menn með kjark" til að taka við
stjórn deildarinnar. Betra seint
en aldrei, því að þessa kjarkmiklu
menn varð undirritaður aldrei
var við — a.m.k. ekki á meðan
hann var varaformaður deildar-
innar um tima. Þá kynntist hann
þessum mönnum sem hafa fengið
kjarkinn — hann var þvi miður
ekki til staðar þá. Því vil ég enda
þessa stuttu athugasemd með
þessum orðum: Batnandi mönn-
um er bezt að lifa, og nota um leið
tækifærið til þess að óska
Ármenningúm alls góðs í fram-
tíðinni.
Sigmundur Ó. Steinarsson
BATNANDIMÖNNUM
ER BEZT AÐ LIFA