Morgunblaðið - 24.03.1977, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1977
21
Ogrun
á norðurvængnum:
BANDARÍSKA tímarit-
ið Time birti í síðustu
viku grein, sem fjallar
um þrýsting Sovét-
ríkjanna á Noreg og
Danmörku á norður-
væng NATO undir
fyrirsögninni: „Ögrun
á norðurvængníim".
Fer grein þessi hér á
eftir þýdd og endur-
sögð.
Þrisvar í mánuði að meðaltali
þurfa norskar herþotur að bægja
sovézkum könnunarþotum af
Badgergerð frá norskri lofthelgi.
Badgerþotan hefur sig yfirleitt til
flugs frá stærsta herflugvelli heims
skammt frá Murmansk á Kolaskaga
og rétt eftir flugtak berast boð um
ferðir hennar til norskra ratsjár-
stöðva í snæviþöktum fjöllum N-
Noregs. Skyndilega beygir sovézka
er í dag, er Ijóst, að við þurfum ekki
á næstunni að óttast stórfellda árás
yfir austurlandamærin, en munum
stöðugt angraðir af óljósu ástandi á
báðum varnarvængjum bandalags-
ins.”
í norðri er það Noregur, sem
finnur mest fyrir síðasta uppátæki
ráðamanna I Moskvu hvað þetta
snertir. Sovétmenn halda nú tvisvar
á ári meiriháttar flotaæfingar undan
ströndum Noregs, stundum með allt
að 50 skipum, sem er svipaður
fjöldi og er » öllum Miðjarðarhafs-
flota Sovétmanna. Hins vegar er
þessi skip>afjöldi aðeins brot af þeim
180 kafbátum og 51 herskipi, sem
bækistöð eiga í Murmansk og eru
meginkjarni kjarnorkuvopnaflota
Sovétríkjanna Norskir eftirlitsmenn
geta gegnum sjónauka fylgzt með
síauknum landgönguæfingum
Sovétmanna á Kólaskaga rétt við
landamæri Noregs og það er opin-
bert leyndarmál að sovézkir kjarn-
orkukafbátar eru tíðir gestir inni á
fjölmörgum fjörðum Noregs Anders
C Sjaastd. sem vinnur að rannsókn-
Kortið sýnir flug og siglingaleiðir Rússa á norðurvæng NATO.
Danir og Norðmenn finna
áþreifanlega fyrir auknum
hernaðarumsvifum Rússa
þotan til austurs og samstundis
gellur viðvörunarkerfið á norskum
herflugvelli i nokkur hundruð milna
fjarlægð Tvær norskar þotur af
gerðinni F 104G Starfighter geysast
I loftið og eru eftir örfáar minútur
komnar upp að sovézku þotunni,
önnur rétt fyrir framan hana, hin
fyrir aftan Norski flugmaðurinn fyrir
framan vaggar vængjum sinum til
að gefa sovézka flugmanninum
bendingu um að snúa til baka áður
en hann rjúfi norska lofthelgi Þegar
Sovétmaðurinn virðir fyrirmælin
ekki lætur Norðmaðurinn vél sina
siga undir Badgerþotuna og lyftir
siðan væng sinum þannig að hann
er aðeins örfáa þumlunga frá væng
sovézku vélarinnar. unz flugmaðurin
neyðist til að vikja
Hættulegur leikur
Þessi hættulegi leikur gerist eins
og fyrr segir að meðaltali þrisvar I
mánuði og er liður i auknum þrýst-
ingi Sovétrlkjanna á norðurvæng
Atlantshafsbandalagsins Danir hafa
einnig orðið varir við þennan aukna
þrýsting einkum vegna þess að Dan-
mörk liggur við op hinnar mikil-
vægu siglingaleiðar úr Eystrasalti út
á Atlantshaf. Þar að auki senda
Sovétmenn kjarnorkukafbáta sina
stöðugt lengra norður í ís-hafið
Alexander Haig. yfírhershöfðingi
herafla Bandamanna i Evrópu, sagði
nýlega um spennuna á báðum
endum varnarlinu NATO: „Ef litið er
á hvernig herstjórnarlegur jöfnuður
■w* ^4^ *l ¥ j^SSBS'Skr
Norsk Starfighterþota beinir sovézkri þotu frá norskri lofthelgi.
arstörfum hjá Alþjóðamálastofnun
Noregs, segir: „Sovétmenn hafa
breytt stöðu sinni úr varnarstöðu i
sóknarstöðu."
Flóknar og erfiðar deilur
Ýmsum kann að finnast að það
væri nægilegt fyrir Norðmenn að
hafa yfir höfði sér svo alvarlega
hernaðarhótun. en auk þess hafa
Norðmenn átt í langvarandi og erfið-
um deilum við þennan risastóra
nágranna sinn vegna landamerkja-
mála og diplómatamála Við-
kvæmasta málið er hvernig land-
grunninu á Barentshafi skuli skipt
milli þjóðanna tveggja og eftir 7 ára
samningaumleitanir hefur enginn
árangur náðst að sögn háttsetts
norsks embættismanns.
Það gerir málið mun erfiðara, að
Sovétrlkin þurfa að standa tryggan
vörð um hina hernaðarlega mikil-
vægu stöðu I Murmansk, svo og
árekstrar vegna fiskveiðiréttinda og
hugsanlegar gas og oliulindir á um-
deilda svæðinu, sem nær yfir um 60
þús fermllur Eitt deiluefnið til við-
bótar er Svalbarði. sem gert var að
hlutlausu svæði skv 40 þjóða sátt-
málanum frá 1920. en sett undir
norsk yfirráð Rússar halda stöðugt
áfram að þrýsta á norsku stjórnina
um að þeir fái „sérsamning', sem
myndi tryggja þeim efnahagsleg
réttindi á eynni Þrátt fyrir að Norð-
menn hafi hafnað þessu hafa Rússar
engu að slður 3400 manna lið á
eynni, flesta sem illa dulbúna
óbreytta borgara á móti 1000 Norð-
mönnum, sem þar búa Ljóst er að
vera þeirra á að halda Norðmönnum
frá þvi að fylgjast með hernaðarum-
svifum á Kólaskaga og halda opinni
siglingaleiðinni frá Barentshafi inn á
N-Atlantshaf, þvi eins og norskur
herforingi sagði nýlega, er Svalbarði
hliðiðað Kólaskaga fyrir Rússa
Danir eiga ekki I svæða- eða dipló-
matadeilum við Sovétmenn, en þeir
eru engu að siður mjög órólegir yfir
vaxandi nærveru sovézka flotans
undan ströndum Danmerkur og
danskir flugmenn þurft oft að gripa
til sömu ráða og norskir frændur
þeirra til að koma i veg fyrir að
sovézkar flugvélar rjúfi danska loft-
helgi
„Yom Kippur einkenni"
Siglingar herskipa Varsjárbanda-
lagsins undan ströndum Danmerkur
hafa einnig aukizt verulega Sovézk,
pólsk og a-þýzk herskip eru nú árið
um kring Eystrasaltsmegin við
dönsku sundin og sovézkir tundur-
spillar halda uppi eftirliti á Skagerak
i mai—október á hverju ári og geta
þannig fylgzt nákvæmlega með allri
umferð inn og út úr Eystrasalti
Sovézkar landgönguæfingar færast
einnig stöðugt nær ströndum Dan-
merkur og á sl. ári héldu Rússar I
fyrsta skipti meiriháttar flotaæfingu
undan V-strönd Danmerkur Hátt-
settur danskur embættismaður
sagði nýlega: „Það leikur ekki
Framhald á bls. 24.
Kosníngabarátta
hafin í Hollandi
liaag, 23. marz. Reuter.
KOSNINGABARATTA er hafin í
Hollandi þar sem stjórn fimm
mið- og vinstriflokka undir for-
ystu Joop den Uyls forsætisráð-
herra hefur sagt f sér, nfu vikum
áður en ganga á til kosninga.
Ástæðan er sú að f jórir ráðherr-
ar kaþólskra og tveir ráðherrar
mótmælenda neituðu að sam-
þykkja umdeilt frumvap
stjórnarinnar um breytingar á
jarðnæðislögum.
Þessir ráðherrar eru undir for-
ystu Andrreas van Agt og halda
því fram að frumvarpið geri ekki
ráð fyrir nógu háum skaðabótum
til eigenda lands sem þeir verða
þvingaðir til að selja.
Júlianna drottning hefur beðið
stjórnina að sitja áfram við völd
til bráðabirgða og enn hefur ekki
verið ákveðið hvenær þing skuli
rofið.
Den Uyl hafði gert sér vonir um
að fá þingið til að samþykkja ýmis
umbótafrumvörp fyrir
kosningarnar og mun nú ráðfæra
sig við leiðtoga þingflokka um
hvaða frumvörp sé unnt að fá
samþykkt.
Ástæðan til falls stjórnarinnar
er talin vaxandi misklíð Verka-
mannaflokks den Uyls og svo-
kallaðra trúarflokka kaþólskra og
mótmælenda vegna vænatanlegra
kosninga. Þriðji trúarflokkurinn,
flokkur kalvínista, er í stjórnar-
andstöðu, en flokkarnir gerðu
með sér kosningabandalag í fyrra.
Stjórn den Uyls var mynduð í
maí 1973 eftir samningaviðræður
sem stóðu hálft ár og hafði á bak
við sig 97 þingenn af 150.
Verkamannaflokkurinn hefur
43 þingsæti. Formaður hans, frú
Ien van den Huvel, sagði að sam-
vinna milli Verkamannaflokksins
og trúnaðarflokkanna myndi
reynast erfið í framtíðinni vegna
þess hvernig fall stjórnarinnar
bar að höndum.
Frændi
Djilas
tekinn
Belgrad. 23. marz. Reuter.
JÚGÓSLAVNESKA lög-
reglan hefur handtekið
lögfræðinginn Vitomir
Djilas, frænda andófs-
mannsins og rithöfundar-
ins Milovan Djilas, og gefið
honum að sök að hafa rekið
fjandsamlegaan áróður
gegn rikinu.
Vitomir Djilas hefur ver-
ið í haldi síðan 14. marz í
Titograd, höfuðborg
Montenegro, samkvæmt
áreiðanlegum heimildum,
en hann hefur ekki verið
formlega ákærður og hand-
taka hans hefur ekki verið
opinberlega staðfest.
Milovan Djilas hefur sætt
harðri gagnrýni yfirvalda þar sem
hann hefur haldið því fram að
pólitiskir fangar i Júgóslvaiu séu
tiltölulega eins margir og í Sovét-
ríkjunum og að yfirvöld hefti
utanlandsferðir menntamanna
sem gagnrýni stjórnina.
Gagnrýni Djilasar hefur valdið
fyrirvöldum áhyggjum þar sem í
sumar á að halda ráðstefnu i
Belgrad i framhaldi af Helsinki-
ráðstefnunni 1975 og ráðamenn
óttast að hún snúist upp í deilúr
um mannréttindamál. Þeir óttast
líka að stjórn Júgóslavfu verði
gagnrýnd fyrir meðferð pólitískra
fanga og andófsmanna.
Vitomir Djilas hefur oft hitt
Milovan Djilas þegar rithöfundur-
inn hefur komið frá Belgrad til
Montenegro þar sem hann er
fæddur.
Annars er ekki nákvæmlega vit-
að um efni ákærunnar á hendur
Vitomir Djilas.
Nýir
kippir
r
í Iran
Teheran, 23. marz. Reuter.
NÝIR kippir fundust í dag
á suðurströnd írans eftir
nokkra jarðskjálfta sem
hafa orðið 83 manns að
bana, en þeir ollu ekki
manntjóni að sögn íranska
útvarpsins.
transkeisari var i orlofi ásamt
fjölskyldu sinni á eynni Kish á
Persaflóa, skammt frá upptökum
jarðskjálítans sem olli eyðilegg-
ingu margra húsa í þorpum um-
hverfis hafnarborgina Bandar
Abbas.
Keisarinn var að halda upp á
írönsku áramótin (Nowruz) eins
og margir :ðrir landar hans en
hvorki hann né fjölskylda hans
mun hafa sakað í jarðskjálftanum
sem mældist sjö stig á Richters-
kvarða.
Hins vegar sagði íranska út-
varpið: „Hjarta keistarans og
þjóðarinnar skalf við fyrstu kipp-
ina.“ Utvapið sagði að enn væri
verið að grafa lík upp úr rústum
húsa sem hrundu og 'að skjótar
björgunarráðstafanir hefðu kom-
ið i veg fyrir að manntjón yrði
meira.
Gundelach:
Tímasprengja undir EBE
Luxemborg, 23. marz. Reuter
EVRÓPUÞINGIÐ setur tíma-
sprengju undir landbúnaðar-
stefnu 'Efnahagsbandalagsins ef
það samþykkir 5% meðalhækkun
landbúnaðarafurða, að þvf er
Finn Olav Gundelach, land-
búnaðarfulltrúi bandalagsins,
sagði þinginu (dag.
Stjórnarnefndin vill aðeins 3%
hækkun og búizt er við að at-
kvæðagreiðslan verði tvisýn.
Sósialistar og ihaldsmenn, yfir-
leitt brezkir, munu aðallega
greiða atkvæði gegn 5% hækkun,
auk nokkurra frjálslyndra. 5%
hækkun mun aðallega njóta fylgis
kristilegra demókrata, gaullista
og kommúnista.
Hins vegar hefur þingið ekkert
vald til að breyta ákvörðunum
stjórnarnefndarinnar þótt reglur
segi til um að hafa verði þingið
með i ráðum.