Morgunblaðið - 06.04.1977, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1977
3
Hafísinn við 12 mílna mörk-
in undan Norðausturlandi
Það fylgir aldrei neinn hlýleiki (snum, og eins og sést á þessari
mynd eru nokkuð stórir jakar innan um jakahraflið. Ljósm. Mbi. rax.
Ef norðanáttin helzt eitthvað
áfram er hætt við að haffsinn
eða „Landsins forni fjandi"
eins og hann er oft kallaður
leggist upp að austanverðu
Norðurlandi. 1 fyrradag var Is-
brúnin, þar sem hún er næst
landi u.þ.b. 30 sjómflur undan
Melrakkasléttu og Fonti á
Langanesi, en f gær, var brúnin
f aðeins 12 sjómflna fjarlægð
frá Fonti og 15 mflur frá Mel-
rakkasléttu. Á þessum slóðum
var þá hvöss norðaustan átt og f
slfku verði er gert ráð fyrir að
fsinn geti rekið a.m.k. 25 mflur
á sólarhring.
Morgunblaðið brá sér í flug
með flugvél Landhelgisgæzl-
unnar TF-SYN i gærmorgun.
Lagt var af stað skömmu eftir
kl. 10, og var Guðjón Jónsson
flugstjóri, en Sigurjón Hannes-
son skipherra. Flogið var þvert
yfir landið og komið út yfir
hafið við Skjálfanda. Þaðan var
flogið í átt að Grimsey og er
þangað kom var engan is að sjá,
Sigurjón Hannesson skipherra
varpar blaðapakka niður til
skipverja á Ægi.
en þegar búið var að fljúga i
nokkrar minútur norður fyrir
eyna, fór einn og einn jaki að
koma í ljós. Aðalisbrúnin var
svo nokkru fjær, en á þessum
slóðum var þéttleikinn ekki
mikill eða 1 — 3/10. Nú var
haldið austur með ísjaðrinum,
allt austur fyrir Langanes.
Reyndist isinn, eins og fyrr seg-
ir, vera næst landi um 15 sjó-
mílur frá Sléttu og 12 mílur frá
Fonti. Milli þessara staða lá
brúnin í stórum sveig. Svæðið
milli isbrúnarinnar og lands,
var kannað fram og til baka, ef
einstakir jakar skyldu vera á
reki. Ef þeir hefðu fundist
hefði það verið tilkynnt til
skipa á þessari siglingaleið, en
mjög erfitt er að greina litla
jaka í hvassviðri eins og var i
gær, og einn litill jaki getur sett
gat á skip, eins og berlega kom í
ljós á Halamiðum i fyrrakvöld.
í fyrradag sáust jakar á reki á
þessum slóðum, en enginn sást
i gær. Annað hvort hefur þá
rekið á fjörur eða þeir hafa
bráðnað i hlýja sjónum á þessu
svæði.
Veðurhæðin á þessum slóð-
um var i gær 6 — 7 vindstig, en
samkvæmt þvi sem Páll Berg-
þórsson veðurfræðingur tjáði
Mbl. i gær, er gert ráð fyrir, að
norðanáttin haldi áfram Norð-
austanlands, en vindhraðinn
verði þó minni en i gær. Á
vestanverðu Norðurlandi er á
hinn bóginn gert ráö fyrir
hægri norðanátt.
Eftir að isinn hafði verið
kannaður, var haldið suður með
Austfjörðum og lengi vel var
ekkert skip að sjá. Fyrsta skipið
sem komið var auga á, var úti af
Hvalbak. Reyndist það vera
rússneskt vöruflutningaskip
með stefnu í suðvestur. Þegar
að var gáð kom i ljós, að tugir
dráttarvéla voru á aðalþilfari
skipsins, og menn gátu sér til
að það væri á leið til Kúbu með
landbúnaðartæki handa Caströ
og hans félögum.
Næsta skip, sem komið var
að, reyndist vera færeyski skut-
togarinn Polarborg 1, en a.m.k.
þrír færeyskir togarar eru nú
komnir á ný til veiða við ísland,
og hinir tveir voru litlu sunnar
við SA-landið. Þar var líka
varðskipið Ægir og þvi var
tækifærið notað og blaðapakka
varpað niður til skipverja.
Sigurjón skipherra kastaði
pakkanum út, samkvæmt til-
sögn Guðjóns flugstjóra og sam-
starf þeirra félaga var svo gott,
að pakkinn hafnaði í miðjum
gula hringnum á þyrluþilfari
varðskipsins.
Að þessu búnu var haldið
vestur með suðurströndinni og
litið á islenzka trollbáta, sem
þar voru á veiðum, en þeir voru
margir. Reyndust allir halda sig
utan við þá linu, sem þeim er
heimilt að fiska upp að, enda
enginn skipstjóri ginnkeyptur
fyrir því að vera tekinn að ólög-
legum veiðum, eftir að sektir
voru hækkaðar.
í lok gæzluflugsins var haldið
út á Reykjaneshrygginn og litið
Framhald á bls. 21
Rússneska vöruflutningaskipið á siglingu suður með Austfjörðurn.
Eins og sjá má eru tugir dráttarvéla á þilfarinu framan við brú
skipsins og eins fyrir aftan.
Hort tekur sér „veik-
indafrí” svo Spasský
geti jafnað sig vel
Skákin hefst á laugardag og hefur Hort þá hvítt
VLASTIMIL Hort hefur
ákveðið að taka sér veik-
indafrí á fimmtudaginn
og verður þvf fyrsta
aukaeinvígisskák hans
og Boris Spasskys ekki
tefld fyrr en klukkan
4.30 n.k. laugardag f
Menntaskólanum við
Hamrahlfð og hefur Hort
þá hvítt. Hort hefur gefið
upp þá ástæðu, að hann
sé að taka sér frí að
læknisráði vegna smá-
kvefs, en rétta skýringin
mun vera sú, að hann sé
að gera þetta svo að
Spasský þurfi ekki að
tefla fyrr en á laugar-
daginn eins og hann
hafði óskað, og að þetta
sé drengskaparbragð af
hálfu tékkneska stór-
meistarans.
Eins og fram hefur komið i
Morgunblaðinu, hafði Spassky
eindregið óskað eftir þvi að
þurfa ekki að hefja tafl-
mennsku fyrr en á laugardag-
inn vegna þeirra veikinda, sem
hann hefur átt við að stríða.
Reglur Alþjóðaskáksambands-
ins, FIDE mæla aftur á móti
fyrir um, að hver keppandi
megi ekki fresta nema þremur
einvigisskákum vegna veik-
inda. Spassky var skorinn upp á
mánudaginn 28. marz og fyrstu
skákinni var frestað daginn eft-
ir, þriðjudaginn 29. marz. Ann-
arri einvigisskákinni var frest-
að fimmtudaginn 31. marz en
sunnudaginn 3. apríl var skák
felld niður vegna þess að hús-
næði var ekki til reiðu. I gær,
þriðjudaginn 5. apríl, telst þvi
skák frestað í þriðja sinn vegna
veikinda Spasskys, og sam-
kvæmt reglum FIDE hefði
hann þvi þurft að mæta til leiks
á morgun fimmtudag. Vegna
óskar Spasskys um að þurfa
ekki að tefla fyrr en á laugar-
daginn vegna botnlanga-
skurðarins, var fyrirspurn send
til FIDE, sem svaraði strax á þá
leið, að undantekningar væri
ekki hægt að gera frá reglun-
um. Þegar þetta lá ljóst fyrir,
ákvað Hort að ,,gefa“ Spassky
einn veikindadaga sinna, þótt
opinberleg heiti það að Hort sé
að taka sér fri vegna eigin veik-
inda.
Skákmennirnir voru báðir
viðstaddir þegar dregið var um
liti í aukaeinviginu klukkan 16
að Hótel Loftleiðum i gær.
Voru þeir báðir hressir í bragði
og ekki var hægt að merkja á
Spassky að hann væri nýstiginn
upp úr erfiðum veikindum né
mátti sjá á Hort, að hann væri
kvefaður. Guðmundur Arn-
laugsson rétti Spassky tvö peð
og bað hann að fela þau i sitt
hvorum lófa, og hélt Hort hönd-
um fyrir augun á meðan. Síðan
valdi Hort hægri hönd Spasskys
og þar var hvita peðið og hefur
Hort því hvitt i fyrri skák auka-
einvigisins. Þvi næst voru
kapparnir spurðir a'ð þvi
hvenær þeir vildu hefja taflið á
laugardaginn. Spassky vildi
byrja klukkan 17 en Hort
klukkan 16, og sagði Spassky þá
að bezt væri að mætast á miðri
leið og hefja taflið klukkan
16.30 og samþykkti Hort það.
önnur einvigisskákin verður
einnig tefld klukkan 16.30 ann-
an páskadag, mánudaginn 11.
april. Ef fyrri skákin fer í bið,
verður hún tefld áfram á páska-
dag klukkan 16.30. Allar skák-
irnar yfir páskahátíðina verða
tefldar i Menntaskólanum við
Hamrahlíð, en þar hefur verið
útbúin mjög góð aðstaða fyrir
einvigið, eins og lýst var i Mbl. í
gær.
Á blaðamannafundi, sem
haldinn var á Hótel Loftleiðum
í gær, var lesið upp bréf undir-
ritað af Hort og aðstoðarmanni
hans dr. Alster. í bréfinu hæla
þeir stjórnendum og starfsfólki
Hótels Loftleiða á hvert reipi
fyrir lipra og góða þjónustu og
segja staðinn hinn ákjósanleg-
asta einvígisstað. Segjast þeir
ætla að mæla með hótelinu i
fyrirlestrum, sem þeir muni
koma til með að flytja um ein-
vigið og af öðru tilefni.
Hort slær á hegri hönd Spasskys, þar sem hvfta peðfð var falið. Hann hefur
hvftt á laugardaginn. LjAsm. FnAþjAfur.
Spassky og Hort heilsast á Loftleiðahðtellnu f ger. Þeir höfðu ekki hizt sfðan
Spassky kom heim af spftalanum.