Morgunblaðið - 06.04.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1977
5
Klukkan 20.00:
Ljóð og ýmislegt
gamalt á kvöldvöku
KVÖLDVAKAN hefst að
venju með einsöng og í
kvöld er það Kristinn
Hallsson, sem syngur
íslenzk lög við undirleik
Árna Kristjánssonar. Á
éftir söng Kristins gluggar
Sigurður Ó. Pálsson í kver
Gisla Gíslasonar í Hóishjá-
leigu og er það fytri hluti.
Síðan kemur liður, sem
nefnist Gamalt fólk. Geir-
laug Þorvaldsdóttir, leik-
kona, velur til lestar nokk-
ur kvæði Jóns úr Vör og les
ásamt Hjalta Rögnvalds-
syni, leikara. Þá er þáttur
Gríms M. Helgasonar,
cand. mag., Haldið til haga,
og fjallar hann um gömul
handrit, og kvöldvakan
endar síðan með söng
Árnesingakórsins í Reykja-
vík undir stjórn Þuríðar
Pálsdóttur.
Klukkan 19.35:
Framhaldsskólinn,
sundraður eða
samræmdur?
Séra Guðmundur Sveins-
son, skólastjóri Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti, flytur
í kvöld erindi undir ofan-
greindu heiti og verða þau
alls þrjú, en samheiti
þeirra allra er Sundraður
framhaldsskóli. Hefst
erindaflutningurinn kl.
Sr. Guðmundur Sveinsson,
skólastjóri.
19:35 og verða tvö síðari
erindin flutt með hálfs-
mánaðar millibili, að sögn
Guðmundar.
—í fyrsta erindinu fjalla
ég um hvort framhalds-
skólinn sé sundraður eða
samræmdur, en eins og
framhaldsskólarnir eru nú
eru blindgötur víða í þeim,
sagði Guðmundur blind-
götu, sem gera það að verk-
um að ekki er hægt að
flytja sig á milli skóla, ef
nemandi vill fara úr einni
brautinni í aðra verður
hann að hefja námið frá
grunni að nýju. Þá ræði ég
einnig nokkuð þá tilhneig-
ingu, sem virðist ríkjandi
hér, að færa allt nám upp á
háskólastig, en t.d. á
Norðurlöndum og í Banda-
ríkjunum er reynt að hag-
nýta sem mest framhalds-
skólana.
—Einnig vík ég að því að
búið er að færa margar
námsgreinar niður í grunn-
skólann úr framhaldsskól-
unum, sérstaklega tungu-
málin, en einnig eðlisfræði
og náttúrufræði. En þetta
gerir það að verkum að
hægt er að gera meiri kröf-
ur til framhaldsskólanna,
þar sem undirstaðan til
náms í þeim er orðin betri,
nemendur koma með svip-
aðan undirbúning til náms
í framhaldsskólana.
Þá upplýsti Guðmundur
Sveinsson, skólastjóri, að
hann myndi einnig ræða
nokkuð um forsögu skól-
anna, klausturskólana, for-
sendum framhaldsskól-
anna eins og þeir hafa ver-
ið hingað til. Eins og áður
segir verða tvö síðari
erindi Guðmundar á dag-
skrá með hálfsmánaðar
millibili.
hewhÍ
Leikritið „Endatafl** eftir
Samuel Beckett hefur verið
sýnt I nokkur skipti á Litla
sviði Þjóðleikhússins og hlotið
góða dóma, en aðeins verður
unnt að hafa fáar sýningar I
viðbót. Helgi Skúlason, Gunn-
ar Eyjólfsson, Arni Tryggva-
son og Guðbjörg Þor-
bjarnardóttir fara með aðal-
hlutverkin, en leikstjóri er
Hrafn Gunnlaugsson. —
Myndin er af Helga Skúlasyni
f „Endatafli".
Islenzkar þjóðsög-
ur í enskri útgáfu
ICELAND Review hefur nýlega
gefið út úrval fslenzkra þjóðsagna
í enskri þýðingu. Eru þær í þrem-
ur bindum og hefur prófessor
Alan Boucher valið og þýtt allar
sögurnar. Eru bækur þessar f
flokki ICELAND REVIEW
LIBRARY.
Þetta safn er flokkað eftir eðli
sagnanna og bera bækurnar þrjár
eftirfarandi heiti:
GHOSTS, WITCHCRAFT AND
THE OTHER WORLD; ELVES,
TROLLS AND ELEMENTAL
BEINGS; ADVENTURES, OUT-
LAWS AND PAST EVENTS.
Alan Boucher er prófessor i
ensku við Háskóla íslads og hefur
samhliða kennslustörfum skrifað
fjölmargar skáldsögur — og
unnið að þýðingum islenzkra
verka á ensku undanfarin ár. í
formála þessarar nýju útgáfu
segist hann vonast til að úrval
þetta veiti lesendum gott sýnis-
horn hins bezta úr íslenzkum
þjóðsögum. Hann segir
ennfremur, aö þótt tækniöld hafi
breytt mörgu á íslandi — þá þurfi
ekki að kafa langt undir yfir-
borðið til að komast að raun um
að viðhorfin hafi ekki breytzt
mjög mikið — og þeim, sem kynn-
ast vilji íslendingum samtíðarinn-
ar sé ekki hægt að ráða neitt betra
en að lesa hinar litríku þjóðsögur
landsins.
Áður hafa komið út i flokki
ICELAND REVIEW LIBRARY
eftirtaldar bækur: POEMS OF
TODAY, safn nútima ljóðagerðar
eftir 25 skáld, SHORT STORIES
OF TODAY, úrval smásagna eftir
12 islenzka höfunda, og A QUIRE
OF SEVEN, Sjöstafakver
Halldórs Laxness. Alan Boucher
þýddi einnig þessar fyrri bækur
og valdi ljóðin og smásögurnar.
Um kápu og útlit bókanna hefur
Auglýsingastofan Lágmúla 5 séð,
en þær eru atlar i ódýrum út-
gáfum.
Ertu að byggja?
Það fyrsta, sem hver húsbyggjandi þarf að hafa
í huga er að tryggja sér gott timbur.
í meir en 70 ár höfum við verslað með timbur.
Sú mikla reynsla kemur nú viðskiptavinum
okkar til góða. Við getum m.a. boðið:
Móta og byggingatimbur í uppsláttinn og
sperrurnar. Smíðatimbur og þurrkað timbur í
innréttingar. Réttheflað timbur í skilrúmin.
Gagnvarið timbur í veggklæðningar, girðingar
og gróðurhús. Viðarþiljur á veggina.
Einnig höfum við margar þykktir og gerðir af
krossvið og spónaplötum, svo og harðtex,
olíusoðið masonite, teak, oregonfuru eða cypress
í útihurðir o.fl. Eik og teak til húsgagnasmíði.
Efni í glugga og sólbekki.
Onduline þakplötur á þökin.
Þá útvegum við límtrésbita og ramma í ýmiss
konar mannvirki.
w
Timburverzlunin
Völundur hf.
I KLAPP.ARSTIG 1, SIMI 18430 - SKEIFAN 19. SÍMI 85244