Morgunblaðið - 06.04.1977, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 06.04.1977, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1977 Halldór Jónsson verkfræðingur: Raunvexti til að lag- færa mengaðan verð- bólguhugsunarhátt Umhorf Manni hefur skilizt helzt á ræð- um landsfeðranna undanfarið, að hin sanna dyggð sé fólgin í sam- drætti, hjöðnun, útiánabindingu, mittisólareyringu, spariskírteina- útgáfu og hverskyns afneitan holdsins, hvort sem nokkur trúir þessu eða ekki flytjendur eða þol- endur. 2. lögmál Parkinsons segir, að útgjöld vaxi ávallt til þess að mæta tekjunum. Þannig minnki ríkisútgjöld venjulega ekki nema með byltingu, sem gerð sé eftir að ríkið sé gjaldþrota, þ.e. þegar rík- ið hefur ofboðið gjaldþoli þegn- anna. Sem dæmi er hér franska stjórnarbyltingin. H:nn segir ennfremur að þær þjóðir sem sífellt séu að auka ríkisútgjöld sín séu á hnignunarbraut. Hann tek- ur sem dæmi Bretland, „jm hafi mistekizt að minnka skattheimtu rikisins að afloknum styrjöldum sínum á þessari öld. Bretlandi hafi hnignað jafnt og þétt, meðan Bandaríkin, sem hafi sýnt sveigjanleik í skattheimtunni, hafi eflst. Við íslendingar vor- kennum Bretaskömminni fyrir heimskuna um leið og við gleymum þvi, að við erum sjálfir með fulla striðsskattlagningu miðað við Vestmannaeyjagos, þó sá skattur renni núorðið minnst tii Eyja, en hefur horfið auðveld- lega inn í kerfið. Og vantar víst meira. öllu þessu ráðum við í gegnum stjórnmálin þar sem við erum lýð- ræðisþjóð eins og Bretar og Bandarikjamenn. Og þar sem við erum hversdagslega fremur gæfir menn, — bjórlausii að minnsta kosti, og óliklegir til þess að fara að kukla við byltingar, þá er gaman að hugleiða aðeins hvert stefnir. Stjórnmálaúrræði Ef maður ætlar að reyna að vega og meta við hvaða stjórn- málaúrræðum megi búast i næstu framtíð, þá verður maður fyrst að lita til þess hverju verður úr að spila, eða hvaða efnivið verður hægt að hafa í kosningaloforðin. Við Islendingar höfum núna náð okkar merkasta áfanga, en það er 200 milna landhelgin. Utlit er fyrir að við ætlum að ná þeirri stjórn á veiðum okkar og annarra, sem nauðsynleg er til verndunar stofnunum. Þjóðartekjur af fisk- veiðum eiga að geta farið vaxandi, ef ekki ríður kreppa yfir heiminn. Skuldabyrðin við útlönd er orðin töluverð, svona 10 — 15 föld sú upphæð á mannsbarn, sem of- bauð dönskum kjósendum nú á dögunum. Nú er í sjálfu sér allt í lagi að skulda, meðan við verjum peningunum í arðsama hluti. En yfirstór fiskveiðifloti, sem við keyptum fyrir þessar skuldir flestar, leiðir aðeins til versnandi afkomu útgerðar og lægri lífs- kjara. Þangað til að fiskunum fjölgar. Iðnaður okkar hefur orðið út- undan eins og fyrri daginn. Við höfum látið undir höfuð leggjast að tryggja honum jafnréttisað- stöðu, skatta- tolla- og peninga- lega til samkeppni við erlendan iðnað hvað sem verður. Af þessu munum við súpa seyðið I færri atvinnutækifærum og lægri kjör- um. Urræði A.S.I þegar þessar afleiðingar vanefnda stjórnvalda blasa við, er að stinga upp á inn- flutningshöftum til þess að vernda atvinnuna. Maður hélt að kjarabarátta væri til þess að bæta kjörin en ekki rýra. Við höfum líka látið undir höfuð leggjast að byggja upp sam- göngukerfi okkar, þó svo að bandalagsþjóðir okkar séu reiðu- búnar til þess að hjálpa okkur til þess af öryggisástæðum einum saman. Slæmar samgöngur eru meiri dragbítur á efnahagsþróun landsins alls en menn taka eftir daglega. Við höfum ennfremur látið undir höfuð leggjast að uppfræða æskuna og þá eldri líka um lög- mál efnahagslífsins. Afleiðingu þessa sér stað í allri hegðun okk- ar. Fjármagn allra fyrirtækja hef- ur brunnið upp skilningslaust í verð- og skattabólgunni og afleið- ing þess er meiri völd í hendur færri. Meirihluti þjóðarinnar virðist halda að verðbólga og gengisfellingar séu annað hvort náttúrulögmál eða samsæri auð- valdsins, sem er þó hvort tveggja jafn fráleitt. Meirihlutinn virðist líka halda að fjármagn sé i eðli sínu andfélagslegt fyrirbrigði, sem sé aðeins notað til þess að kúga alþýðuna. Mér hefur stund- um fundist, að aðgerðarleysi skólayfirvalda landsins í þessum uppfræðingarþætti hljóti að vera skipulagt og sé i ætt við latínu- söngl miðaldaprestanna, mennta- sefnu rauðu kmeranna í Laos og bókabrennur Göbbelsar. Almenn þekking er nefnilega óvinur blekkingarinnar, en minnihlutinn getur aðeins haldið völdum með blekkingum og ofbeldi. Almenn vanþekking á þessu sviði er því þáttur i vaidabaráttunni. Þetta er sem sagt að sjá á svið- inu. Fólkið er heilbrigt og vinnu- samt, hað sem það hugsar. Félags- hyggja og vinstri stefna allskonar virðist eiga rík itök í pólitískri hegðun Islendinga, þrátt fyrir það að manni finnist þeir alltaf vera einstaklingshyggjumenn í viðræðum. Það verður þvi mikið höfðað til þessa tvískinnungs þeg- ar biðlað verður til valdanna. Ef maður lítur á flokkakerfið, þá er ekki liklegt að mikið breyt- ist. Menn eru nokkuð stöðugir í sinum flokki. Þv er jafnvel haldið fram að stjórnmálaskoðanir íslendinga séu erfðafræðilegt fyrirbrigði mestan part, t.d. megi þekkja Framsóknarmenn úr á blóðkornalöguninni einni, hvort sem satt er. Það má því búast við þvi, að umhverfi frjáls atvinnurekstrar muni áfram verða óvinsamlegt og hann eigi undir högg að sækja, þar sem áhugi almennings á eðli vandans er hverfandi og vanþekk- ing útbreidd. Ef grannt er skoðað þá byggja stjórnmálaflokkat-nir í rauninni völd sín á því að hafa lögboðna Halldór Jónsson inn- og útlánsvexti minni en verð- bólguna hverju sinni, og sitja þannig yfir hvers manns hlut. Verðgólgan getur þvi minnkað og vaxið, hvort tveggja án þess að það breyti nokkru fyrir þá. Frjáls- ir vextir myndu hinsvegar kippa spjöldunum frá augum almenn- ings, völdin gætu riðlast og þjóðin kannski að fá allskyns ófyrirséðar tilhneigingar. Sem sagt er ekki trúlegt að neitt breytist verulega á næstunni. Vonin liggur aðeins i auknum skilningi manna á tafl- inu sem er leikið með þá. Valda- mennirnir munu hinsvegar áfram skrifa greinar eins og t.d. Ieiðara Timans 8.3. ’77 um nauðsyn vaxta- lækkunar í sjálfsvarnarskyni. Við höldum mörg að við græðum á verðbólgunni. Það getur verið rétt að sumir græði um stund og skuldirnar léttist. En þetta er skammsýni. Við eigum sjálf að ákveða á stjórnmálasviðinu hvernig auðnum skuli dreift. Eng- inn getur átt neitt í andstöðu við meirihlutann, nema hann geti beitt ofbeldi eða blekkingum. Okkar höfuðvilla er sú, að við höfum týnt niður hinum gömlu búhyggindum, að til þess að mjólka kýrnar með árangri þurfi að fóðra þær vel. Og svo þeirri dyggð, að maður skuli skila aftur því sem maður fær lánað jafn- miklu eða betra. Hagfræðivað- allinn með óskiljanlegu orðskrúði um að þessi einföldu hugtök, séu misskilningur, hefur ringlað okk- ur svo að við megum ekki skilja lengur að ekkert verður til af engu og að þorskar verða ekki veiddir á opinberum skrifstofum og nefndafundum. Hvað verður í vor? Ef við lítum fram á vorið, þá fara kjarasamningar i hönd. Þá verður ákvarðað hversu mikið kaupið skuli „hækka”. Ef það yrði „hækkað” 100% þá myndu menn nú tauta eitthvað um að ekki væri það álitlegt. Ef það „hækkaði” ekkert eða ekkert yrði gert til þess að létta láglaunafólki og eftirlaunafólki baráttuna við þeg- ar framkomna dýrtíð, þá fyndist mönnum það ekki sanngjarnt heldur. Hver er þá lausnin? Hvað þurfum við að gera áður en hún finnst? Er hægt að vinna kjara- bætur án verulegra taxtahækk- ana? Getum við hvilt lífeyrissjóð- ina um tíma? Getum við lækkað skattana með því að létta af okkur framlögum til samgöngumála? Getum við hækkað gengið eða létt af „styrjaldarsöluskattinum”. Getum við gert annað en bara fjölga krónunum? Ekki öfunda ég þá, sem um mál þessi verða að fjalla, en óska þeim vits og gengis og þjóðinni þeirrar gæfu, að ekki þurfi fullfrískir menn að halda að sér höndum langtimum saman vegna fárra prósenta, sem ekki skipta neinu máli fyrir framtið þjóðarinnar fremur en önnur verkfalla- prósent liðinna ára. Ef við ætlum ofan af þessum hjallanum, þá stoppar okkur enginn. Ef við vilj- um þræða hliðina, þá getum við það lika. Niðurstaða kjarasamn- inganna mun ákvarða að miklu leyti hve mikil verðbólga mun verða í landinu á næstunni. En það verður stefnan í fjárfest- ingarmálum sem mun ákvarða lífskjörin að miklu leyti. Munum við beina athyglinni að arðsömum fjárfestingum til aukinnar fram- leiðslu, eða munum við beita afl- inu í tilfærslur og aðstöðujöfnun? Hvaða stefnu tekur auðvald v erk alýsðf élagann a, líf ey riss j óð- irnir? Ætlar það að efla atvinnu- vegina eða beinast í ríkisbrambolt og félagsmál? Stjórnmál næstu ára munu fást við þessi atriði. Nógur er efni- viðurinn, annað er Jbað hvernig úrvinnslan verður. Sem fyrr munu þenslutilhneigingar gera vart við sig þegar vel veiðist. Nauðsynlegt er því að athuga einn þátt atvinnulífsins sér á parti, vegna mikillar sérstöðu hans í verðbólgunni og tvígildis fyrir almenning raungildi og sparnaðargildi. Byggingariðnaöurinn. Það er mikið apparat hjá hag- fræðingum að kenna byggingar- iðnaðinum um að vera aðal þensluvaldinn í þjóðfélagi okkar. Með því að kreppa að honum, láta verða peninga- og lóðaskort, þá sé hægt að „stýra“ efnahagslífinu, Framhald á bls. 21 Nýja kökuhúsid: Kökuhús og veitinga stofa vid Austurvöll NÝJA KÖKUHUSIÐ, sem nú hefur opnað kaffihús eða „konditori” við Austurvöll í Reykjavík, rekur einnig sem fyrr bakari að Fálkagötu 18. Þar verða kökur bakaðar, en fluttar í kaffihúsið. Jafnframt því, sem kökur verða á boð- stólum, verður hægt að fá smurt brauð, gosdrykki og súkkulaði með rjóma. Enn er ekki endanlega af- ráðið hve lengi opið verður, en í sumar a.m.k. verður opið fram á kvöld. Meiningin er, að hið hýja „konditori” verði einnig útsala fyrir bakaríið, þar verði til dæmis seld brauð. heilar kökur o.fl, en einnig verður tekíð við pöntunum á sérstökum tertum, kransakökum o.þ.h. Veg og vanda af allri skipu- lagningu á Litla teiknistofan, Hafnarfirði, sem hjónin Óli Starfsstúlkur Nýja kökuhúss- ins við afgreiðsluborðið. G.H. Þórðarson, arkitekt, og Lovísa Christiansen, innan- hússarkitekt, reka. Magnús Jóhannsson, húsasmiða- meistari, Hafnarfirði, hefur annart allar ínnréttingar. Var nær allt unnið á staðnum, en segja má, að húsnæðið hafi allt verið endurbyggt. Þessu verki hafa Magnús og hans menn lok- ið á aðeins tveimur mánuðum. Um' raflagnir hefur Samvirki séð, en pipulagnir lagði Samúel V. Jónsson. pípulagninga- meistari í Hafnarfirði. Fyrirtækinu stjórnar Birgir Páll Jónsson, bakarameistari, en auk hans eru tveir bakarar starfandi við það, þeír Valdimar Bergsson, yfirbakari, og Jón Pétursson. Arkltektar Nýja kökuhússins, Óli G.H. Þórðarson og Lovfsa Christiansen, og tii hægri er Birgir Páll Jónsson, bakarameistari. Þau sitja þarna við eitt af borðunum f veitingaskálanum, sem rúmar alls um 50 manns f sæti, en f salnum var forðum prentsmiðja Morgunblaðsins. Tugir gamalla mynda skreyta húsnæðið. Glugg- arnir snúa að Austurvelli en hægt er að ganga inn f Kökuhúsið bæði frá Austurvelli og Austurstræti. Ljósmynd Mbl. Ól. K.M. Það er von aðstandenda Nýja Kökuhússins, að Reykvíkingar kunni vel að meta nýja kaffi- húsið, en það er skreytt myndum frá gömlu Reykjavik, sem Óskar Gíslason hefur unn- ið. Þá má telja til nýbreytni, að margar verzlanir og fyrirtæki ten'gjast hvert öðru i gömlu ísa- foldarhúsunum við Austurvöll, og nefnast einu nafni V;allar- torg, og er fyrsta yfirbyggða göngugatan í Reykjavik. Þar eru undir sama þaki 9 fyrir- tæki, og er innangengt milli þeirra allra, tveir inngangar eru frá Austurstræti, en veróa þrí frá Austurvelli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.