Morgunblaðið - 01.06.1977, Síða 5

Morgunblaðið - 01.06.1977, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JtJNl 1977 5 „Það má aldrei verða” Verður reynt að þurrka út nafn Menntaskólans í Reykjavík? Komið fram i nýju frumvarpi á Alþingi t RÆÐU þeirri er Guðni Guð- mundsson, rektor Menntaskóians i Reykjavlk, hélt við skólaslitin sl. föstudag, er M.R. var slitið i 130. sinn, kom það vissulega eins og þruma úr heiðskfru lofti yfir nær alla viðstadda er Guðni rekt- or skýrði frá því, að sér hefði borizt til umsagnar frumvarp til laga um framhaldsskóla. Þar kemur fram, að nú eru uppi hug- myndir um að menntaskólar landsins verði lagðir niður sem slfkir. Þetta þýddi það að nafn Menntaskólans f Reykjavfk, sem er ein af þrem elztu stofnunum íslenzku þjóðarinnar, yrði lagt niður og honum valið nýtt nafn sem falla myndi undir ,Jterfið“. — Það fór vissulega kliður um hinn mikla bíósal Háskólabfós, þéttsetinn áheyrendum, sem um leið spurðu sjálfa sig þeirrar spurningar hvort um misheyrn væri að ræða eða hvað rektor ætti við. Dómkirkjukórinn í r Gautaborg til Islands Dómkirkjukórinn f Gautaborg kemur næstkomandi föstudag, 3. júnf, í heimsókn til Íslands og hefur hér fimm daga viðdvöl. Mun hann á þeim tfma halda hér fjóra tónleika undir stjórn Hen- riks Jansson dómorganista. Laug- ardaginn 4. júnf kl. 14.30 syngur kórinn f Selfosskirkju og sfðar um daginn f Skálholtskirkju eða kl. 17.30. Sjómannadaginn 5. júni, syngur kórinn við hátfða- messu f Dómkirkjunni, en á mánudaginn 6. júni verða tón- leikar f Akraneskirkju kl. 19.00. Þriðjudaginn júni verða tónleik- ar f Dó kirkjunni og hefjast þeir kl. 19.00. í kórnum eru 30 söngvarar og er hér um að ræða einn af fimm kórum kirkjunnar en hinir eu drengjakór, stúlknakór, unglinga- kór og „Kammerkór". Saman standa þessir kórar allir að flutn- ingi stærri kirkjulegra verka f Dómkirkju sinni. Kórinn sem hingað kemur hefur víða haldið tónleika bæði innan lands og ut- an. Efnisskrá kórsins er mjög fjöl- breitt og inniheldur bæði gamla og nýja tónlist og má nefna höf- unda eins og Fr. Correa (1580), Palestrina (1525), Vulpius (1570), M. DuruflÉ (1902), O. Messiaen (1908) og B. Lewkov- itch (1927). Stjórnandi kórsins, Henrik Jansson, er einn af framámönn- um Svía í kirkjulegu tónlistarlifi og setið i mörgum ábyrgðarstöð- um á sviði tónlistar í Svíþjóð m.a. í Konunglegu músikakademiunni í Stokkhólmi. Hér á landi taka Dómkórinn og Óratóríukór Dómkirkjunnar á móti hinum sænsku gestum. Aðgangseyrir verður enginn að tónleikunum, en tekið verður við fjárframlögum þeirra sem styrkja vilja kórinn þegar gengið verður úr kirkju. Einnig mun kórinn hafa þá á boðstólum hljómplötur með söng kórsins fyrir þá sem kaupa vilja. Guðni Guðmundsson rektor MR. Um þetta mál fðrust honum m.a. orð á þessa leið: „Menntaskólanum í Reykjavík er slitið i 130. sinn, frá þvi að hann fluttist aftur til Reykjavík- ur i það hús, sem Danakóngur hafði látið smíða honum og skól- inn starfar enn að mestu leyti í. En á þessari stundu er einnig vert að minnast þess, að saga skólans spannar ekki aðeins þessi 130 ár, sem hann hefur starfað í slakkan- um austan við Lækinn. Hana má rekja rúm 900 ár aftur í tímann um Bessastaði og Hólavöll aftur til Skálholts og Hóla. Slíkra stað- reynda er sjálfsagt að minnast á afmælisári, en enn þá meiri ástæða nú, er lagt hefur verið fram frumvarp um framhalds- skóla, sem raunverulega gerir ráð fyrir, að þessi skóli verði lagður niður sem slikur, en gerður að einhverju, sem á að heita „al- menn bóknámsbraut". Hann má ekki einu sinni heita menntaskóli áfram, því að slíkt gæti valdið „merkingarlegum misskilningi", eins og segir í athugasemdum með fyrrnefndu frumvarpi. Þrjár stofnanir i þessu þjóðfélagi eiga sér áberandi lengsta sögu: Al- þingi, kristin kirkja og Mennta- skólinn í Reykjavik. Ef svo er komið fyrir Menntaskólanum, að yfirleitt er ýjað í þá áttina, að hans saga skuli eigi verða lengri, væri þá ekki mál til kornið fyrir hinar stofnanirnar tvær að fara að vara sig. Sú árátta hjá mörgum manni hér á landi að þora ekki að vera öðru vísi en aðrir, að halda, að allt sé gott, ef það er útient, og þó einkum ef það kemur frá Norðurlöndum, að vera tilbúinn að kasta menningarverðmætum og ana út í næsta fen, af því að „frændur vorir á Norðurlöndum“ hafa gert það, er að verða næsta hvimleið, að ekki sé sagt hættu- leg. Þvi fer svo mörgum orðum um þetta atriði hér á hátíðarstundu, að fyrir mér er þetta mikið al- vörumál og hér eru viðstaddir svo margir af nemendum skólans, öldnum og ungum, sem verða að gera sér ljóst, hver hætta er á ferðum, og ég vil brýna til varnar alma mater. Það verður að tryggja áframhaldandi tilveru þessa skóla, þriðju elztu stofnun- ar þessa lands, hvað svo sem post- ular hvatvisinnar og nýjungagirn- innar segja. Við verðum öll að standa vörð um gamla skólann." „Á þessu stigi tel ég ekki ástæðu til að ræða þetta stórmál frekar," sagði Guðni Guðmunds- son rektor, er Mbi. átti við hann stutt samtal í gær. „Ég er sann- færður um að það sé skoðun alls þorra manna er ég segi: Þessi hugmynd má aldrei verða." Sv.Þ. A. JÓHANNSS0N & SMITH H/F. tilkynnir viðskiptavinum sínum: ÁkveðiS hefur verið, að A. JÓHANNSSON & SMITH H/F. hætti smásöluverzlun að Brautarholti 4 Reykjavík frá og með 1. júní 1 977 og snúi sér einvörðungu að umboðs- og heildverzlun. J. ÞORLÁKSSON & NORÐMANN H/F. hefur keypt mestan hluta vörubirgða okkar og tekið að sér afgreiðslu þeirra pantana, sem nú eru á leið til landsins. J. ÞORLÁKSSON & NORÐMANN H/F. mun því hafa flestar vörur frá A. JÓHANNSSON & SMITH H/F á boðstólum í verzlun sinni að Skúlagötu 30 Reykjavík. Eru viðskiptavinir okkar því vinsamlega beðnir að beina þangað smásöluviðskiptum sínum. Um leið og við þökkum viðskiptavinum okkar ánægjuleg samskipti á liðnum árum, lýsum við þeirri von okkar, að við megum hér eftir sem hingað til njóta viðskiptanna á sviði umboðs- og heildverzlunar. A. JÓHANNSS0N & SMITH H/F. P.0. Box 873 Sími: 2-4244 Opna tkiri fetóankktuleika Þegar fjölskyldan feröast saman og notar fjölskyldu- fargjöld, þá borgar einn fullt fargjald, en allir hinir aöeins hálft. Þannig eru fjölskyldufargjöld okkar er gilda nú allt áriö til allra Norðurlandanna og Bretlands. Fjölskyldufargjöld henta vel jafnt vetur sem sumar, og hvort heldur um er aö ræöa orlofsferö eöa vióskipta- erindi. Spyrjið sölufólk okkar, umboösmenn og ferðaskrif- stofurnar um þessa auknu ferðamöguleika allrar fj ölskyldunnar. Fullt fargjald fyrir einn, hálft fyrir alla hina. flucfélac L0FTLEIDIR LSLAJVDS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.