Morgunblaðið - 01.06.1977, Síða 26

Morgunblaðið - 01.06.1977, Síða 26
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JUNl 1977 + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐNÝ JÓNSDÓTTIR, andaðístað heimilrsínu 27. mal. Vilborg Björnsdóttir. Jóhann Björnsson, Ingunn Slmonardóttir Guðni V. Björnsson, Hallbjörg Gunnarsdóttir, barnaböm og barnabamabörn. + Faðir minn VETURLIÐI GUÐMUNDSSON andaðist að Hrafnistu á hvltasunnudag Fyrir hönd vandamanna. Guðrún Vaturliðadóttir. + Konan mln ÞÓRA ÁGÚSTDÓTTIR, varð bráðkvödd á heimili okkar, Bárugötu 37, 28. maí. Karl Ó. Jónsson, og fjölskylda. Útför KARLS V. GUÐBRANDSSONAR. verður gerðfrá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 2. júnl kl. 2 e.h Kristfn Hjörleifsdóttir, Theódór Karlsson, Einar Karlsson, Erla Diego. Ingibjörg G. Karlsdóttir, Þorfinnur Jóhannsson, Auðdfs Karlsdóttir. Magnús Sigfússon. Gunnar Þ. Karlsson, Rósa Jones og barnaböm. + Faðir okkar. tengdafaðir, afi og langafi, ELÍAS NÍELSSON, Jaðarsbraut 1 9. Akranesi, verður jarðsungin frá Akraneskirkju fimmtudaginn 2. júnf kl. 2 e.h. Þeim sem vildu minnast hans er bent á sjúkrahús Akranes Börn. tengdabörn. barnabörn og barnabarnabörn. + Faðir okkar, tengdafaðir og afi, INGÓLFUR MAGNÚSSON. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 2. júnl kl. 10.30 árdegís. Magnús Ingólfsson, Kristfn Haraldsdóttir, Ingvar Ingólfsson, Hanna Bárðardóttir, Sverrir Ingólfsson, Guðbjörg Helgadóttir, Guðrún IngóKsdóttir, Úlfar Teitsson, og barnabörn. + Systir okkar og fóstursystir ÞÓRA SIGÞÓRSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 1. júní kl. 1.30 e.h. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu láti llknarstofnanir njóta þess. Skafti Sigþórsson, Vilborg Sigþórsdóttir, Árdfs Mc Andrew. + Móðir okkar, tengdamóðir og amma INGIBJÓRG ÞÓRÐARDÓTTIR frá Laugabóli, Garðabraut 10. Akranesi verður jarðsungin frá Dómkirkjunni 1 Reykjavík fimmtudaginn 2. júnl kl. 2 e h Halla Jónsdóttir, Kristrún Jónsdóttir, Njörður Tryggvason, Ingibjörg Jóna Jónsdóttir, Ingjaldur Bogason, Svava Davfðsdóttir og barnaböm. + Útför konu mirinar og fóstru okkar RAGNHILDAR JÓNSDÓTTUR. MjóuhlfðlO. verður jerð frá Fossvogskirkju föstudaginn 3. júnf kl 13.30 Blóm vinsamlega afbeðin Einar J. EyjóHsson, Ingi Benediktsson. Helena Benediktsson. Helga Sfmonardóttir. Ingvaldur Einarsson Hólm. Hörður Þorsteins- son Minningarorð F. 22. október 1920 D. 26. mal 1977. Höröur Þorsteinsson, stýri- maður og sjóvinnukennari, lézt óvænt að heimili sínu hér í Reykjavík aðfaranótt fimmtudags 26. maí. Sá sjúkdómur, sem lagði hann að velli, hafði gert vart við sig fyrir fáeinum árum. Ekki óraði mig fyrir því, að ég sæi hann f hinzta sinni, er ég hitti hann á förnum vegi í sl. viku, glaðan og reifan að venju. Þá ræddum við stuttlega hugðarefni hans, framgang og stöðu sjóvinnukennslu I landinu, en hann hefur verið um tveggja ára- tuga skeið fremsti málsvari og forgöngumaður þeirrar kennslu og lyft þar grettistaki, sem enginn mun leika eftir. Hörður fæddist i Reykjavík hinn 22. 10. 1920, og var hann því tæplega 57 ára gamall, er hann lézt. Foreldrar Harðar voru hjón- in Þorsteinn Jónsson, sem lengi var bátsmaður hjá Landhelgis- gæzlunni, og Guðmundína Sig- urðardóttir. Foreldrar Harðar eignuðust fimm syni, og var hann elztur . þeirra. Þau skildu. Guðmundína gekk að eiga Eyjólf Finnbogason, leigubílstjóra hér i borg. Þeim fæddust fimm synir og þrjár dætur. Allir albræður Harðar lifa hann og sex hálf- systkini, en tveir hálfbræður hans létust á fyrsta aldursári. Þor- steinn kvæntist Þorbjörgu Gríms- dóttur, sem er á lifi. Foreldrar Harðar eru bæði látin — Þorsteinn lézt árið 1958, en Guðmundína árið 1963. Hörður kvæntist eftirlifandi konu sinni, Vigdísi Steinu Ólafs- dóttur f. 2. 8. 1916 í Flatey á Breiðafirði, hinn 22. 10 1942. og gekk dóttur hennar í föðurstað Ingibjörgu Sigríði Engilberts, f. 31. 10. 1934, en Vigdís var ekkja eftir Arilíus Guðmundsson, bif- vélavirkja, en hann fórst hinn 10. marz 1941 með b/v Reykjaborg, sem þýzkur kafbátur sökkti. Voru ætíð miklir kærleikar milli þeirra Lillýar, eins og dóttir Vigdísar er jafnan kölluð. Eiginmaður hennar, Ingólfur Jónsson, og Hörður urðu miklir vinir sem og börn þeirra fjögur — Jón Arilíus, örn Helgi, Guðbjörg Erla og Hörður Gunnar. Núna í vor eru 30 ár síðan Hörður lauk prófi frá Stýri- mannaskólanum, og það var honum mikið tilhlökkunarefni að mega veita viðtöku prófskírteini Jóns Ingólfssonar, en hann lauk prófi frá Stýrimannaskólanum nú í vor, en var kominn i skipsrúm áður en afhending prófskírteina fór fram. En af þvf varð ekki, því kallið kom daginn áður. Þeim Herði og Vigdísi varð þriggja barna auðið: Arilius Engilbert, múrari, sem starfar sem tollgæzlumaður á Keflavíkur- flugvelli. Hann er fæddur 17. 1. 1943. Kona hans er Steinunn Jónsdóttir, og þau hafa eignazt + Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu SIGRÍOAR HALLDÓRSDÓTTUR fri Gröf, Rauðasandi, Álfheimum 32, fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 2. júnl kl. 3 e.h. Brynjólf ur Kristinsson, Hallfríður Kristinsdóttir Aptiz, Kristrún Kristinsdóttir, Valur Kristinsson. Pétur P. Kristinsson. Gunnar Kristinsson, tengdabörn og barnabörn. t Þökkum samúð og vináttu við andlát og jarðarför SÓLVEIGAR HJARTARDÓTTUR, Ema Tryggvadóttir Stefán Sch. Thorsteinsson Bergþóra Vlglundsdóttir og barnabörn. þrjá syni — Hörð Vigni, Jón Rúnar og Bergsvein. Kolbrún Ólöf f. 26. 1. 1951, er gift Ásbirni Björnssyni, verzlunarmanni. Börn þeirra eru — Ásbjörn Ólafur og Heiða Björk. Hafsteinn, f. 14. 3. 1954, sjómaður og búfræðingur frá Hólum. Hann býr í Varmahlið í Skagafirði en er háseti á togaranum Skafta frá Sauðár- króki. Kona hans er Amalia Árna- dóttir. Synir þeirra eru — Árni Ólafur og Hörður Birgir. Börn voru ákaflega hænd að Herði, enda gaf hann sig talsvert að þeim, fann þar eflaust sakleysi og heiðarleika, sem vandfundnari eru hjá þeim, sem eldri eru. Nú ganga um ungir sveinar, sem ekki fá skilið, að afi þeirra er horfinn yfir móðuna miklu og kemur ekki til þeirra aftur með sögur sinar og ævintýr. Hugur Harðar beindist snemma að sjónum, enda tók faðir hans hann með sér á sjó fljótlega eftir að hann hafði lokið barnaskóla. Upp frá því átti hafið og sjómennskan hug hans allan. Það má i raun skipta æviskeiði Harðar nánast í þrjú jafnlöng tímabil — æsku — og unglingsár, sjómanns- ár og kennaraár. Æskuár sin og unglingsár dvaldi Hörður í Reykjavík. Gekk í Miðbæjarskólann, eins og aðrir reykviskir æskumenn, lék sér niðri við höfn og lét sig dreyma um fagurt fley og fjarlægar strendur. Hann dvaldi stundum austur í Fljótshlíð í frændabyggð. Þrátt fyrir nokkur kynni af land- búnaði var það hafið, sem seiddi hann til sín. Fyrstu ár Harðar á sjó voru um borð . í olíuskipinu Skeljungi eldra. Brátt réðst Hörður um borð i togara og var lengi á b/v Snorra goða; stríðsárin öll sigldi hann með togaranum til Bretlands með fisk gegnum tundurduflagirð- ingar eða tundurdufl á reki; alls staðar leyndust hættur, en is- lenzki sjómaðurinn á stríðs- árunum lét ekki slíkt á sig fá, hann bauð öllu byrginn — hann sigldi samt, færandi varninginn heim. Eins og áður segir, þá lauk Hörður stýrimannspröfi árið 1947, en var um skeið og i skóla- leyfum á b/v Akurey eftir að hún kom til landsins. 1949 hættir hann á togurum og gerist skipstjóri á austfirzka fiskibátnum Ásþóri; árið 1951 var hann stýrimaður á m/b Braga frá Reykjavík, en 1953 kaupir hann m/b Hafþór við ann- an mann, sem þeir gerðu út til ársins 1955. Þessi útgerð var erfið, enda bilaði aðalvél bátsins hvað eftir annað og svo fór, að honum var rennt upp í fjöru í Vatnagörðum, þaðan sem hann átti ekki afturkvæmt. Fjárhags- skuldbindingar i sambandi við þessa útgerð voru svo háar, að Hörður lenti I svo miklum fjár- hagslegum erfiðleikum, að hann missti hús sitt, sem hann hafði lagt svo mikið á sig til að eignast. Það liðu mörg ár, unz hann losn- aði undan þeim skuldaklafa, sem útgerðin hafði bundið honum. Samfara erfiðleikum með út- gerð Hafþórs, þá tóku sig upp gömul meiðsli í baki. Varð hann að gangast undir erfiða skurð- aðgerð, sem varð þess valdandi, að hann gat ekki stundað erfiðis- vinnu, svo það var sjálfgert að taka poka sinn og fara í land. Gerðist hann þá dyravörður í Laugarnesskóla og gegndi því starfi í nokkur ár. Þar komst hann í snertingu við skólastarf, sem höfðaði til þeirrar eigindar Harðar, sem hann átti svo yfrið nóg af, sem var að miðla öðrum af þekkingu sinni og reynslu. Tók hann þvi fegins hendi, er Æsku- lýðsráð Reykjavíkur leitaði til hans um kennslu á sjóvinnu- brögðum á námskeiðum, sem æskulýðsráð hélt fyrir unga Reyk- vikinga. Þar með voru næstu tuttugu og síðustu starfsár Harðar ráðin; upp frá því helgaði hann sig kennarastarfinu. Flest sumarleyfi sín frá kennslu notaði Hörður til beinnar sjómennsku ýmist sem skipstjóri á mótorbátum, sem sigldu með afla sinn til útlanda, eða sem báts- maður eða háseti á ýmsum skipum. Árið 1966 þá fór hann t.d. sem skipstjóri með vélbát til Grænlands með farm frá Kassa- gerð Reykjavíkur. Nokkur sumur var hann um borð i Sæbjörgu, sem var notuð sem skólaskip fyrir pilta frá Æskylýðsráði Reykja- víkur. Þar held ég að hann hafi notið sin bezt, er hann gat miðlað piltunum af reynslu sinni við raunveruleg sjómannsstörf, en ekki einhvers staðar inni í skóla- stofu. Þá sannfærðist hann um nauðsyn þess, að íslendingar ættu skólaskip, þar sem verðandi sjó- menn Islands fengju sína fyrstu raunverulega þjálfun í sjó- mennsku. Árið 1959 ræðst Hörður kennari að Gagnfræðaskólanum við Lindargötu til Jóns Á. Gissurar- sonar, en þá var efnt til kennslu I sjóvinnu við skólann. Þar stund- aði Hörður kennslu næstu 12 árin, og þar tel ég að hann hafi unnið þrekvirki, því nú má fullyrða, og styðja það öflugum rökum, að þar hafi hann lagt grunn að þeirri sjóvinnukennslu, sem nú er óðum að dreifast um byggðir landsins. Enda var honum og mági hans, Pétri Ólafssyni, falið haustið 1973 af sjávarútvegsmálaráðuneytinu og Fiskifélagi íslands i samráði við menntamálaráðuneytið að ferðast um landið þvert og endi- langt, til þess að styðja við bakið á þeim skólum og öðrum aðilum, sem koma vildu upp kennslu I sjóvinnubrögðum. Á sl. vetri náði kennslan til 40 skóla og um 1500 unglinga viðs vegar um landið. Siðan 1973 hafa u.þ.b. 300 ung- menni lokið hinu svonefnda „30 tonna skipstjórnarprófi". Herði var ennfremur falið að standa fyrir kennaranámskeiðum í sjóvinnubrögðum, sem haldin voru á vegum menntamálaráðu- neytis og Fiskifélags íslands. Það gladdi hann, þegar gamlir nemendur hans úr Lindargötu- skóla komu á þessi námskeið. Árið 1951 var tekin upp kennsia í sjóvinnu við Gagnfræðaskóla verknáms, en árið 1959 beitti Jón Á. Gissurarson, skólastjóri Gagn- fræðaskólans við Lindargötu, eins og skólinn nefndist þá, að stofnað var til sjóvinnudeildar við skól- ann, og hann fékk Hörð Þorsteins-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.