Morgunblaðið - 29.09.1977, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1977
37
; i t 1« J i i * \
1 \ ‘ i í"! •' i
: l/rT *Í h '..'Á
TT U ~ ^
= VELVAKANDI
' SVARAR í SÍMA
ÍOIOOKL 10— 11
FRÁ MANUDEGI
mtA£jj^JiyíWnF\-UJa'Li Lf
að leikurinn yrði sýndur í sjón-
varpinu heima og þess vegna væri
óhætt að láta svona vitleysu
flakka? Það hljóta allir sem
leikinn sáu að hafa séð það að
hollenska liðið var i allt öðrum
gæðaflokki og að íslenska liðið
var í vörn allan tímann.
Það hlýtur að vera skýlaus
krafa okkar sem heima sitjum að
við fáum réttar og sannar fréttir
af landsleikjum okkar erlendis,
en ekki jafn litaðar og fjarstæðu-
kenndar fréttir og bárust af
leikjunum við Hollendinga og
Belga.
R.J. er vist ekki einn um þá
skoðun, að lýsingar bæði frétta-
manns útvarpsins og þá ekki
síður blaðamanna hafi verið ansi
fjarri veruleikanum, og meira að
segja er Velvakanda ekki grun-
laust um að íþróttafréttaritararn-
ir viðurkenni það sjálfir — a.m.k.
innra með sér. En þeim er samt
dálitii vorkunn — þeir eru full-
trúar almennings hér heima í
erlendu mannhafi, þar sem er við
ofurefli að etja bæði úti á leik-
vellinum og i áhorfendastúkunni,
svo að allir tilburðir og tilþrif
islenzkra íþróttamanna hafa
dálitla tilhneigingu til að fá á sig
stórkostlegri mynd við slíkar
kringumstæður. Hinu má heldur
ekki gleyma, að sjónvarp er
heldur kaldranalegur fjölmiðill,
tilfinningalaust auga sem sýnir
aðeins nakinn raunveruleikann
en nær ekki að flytja heim i stofu
sjónvarpsáhorfenda spennu og
hrif þeirra atburða sem það er að
sýna okkur.
Þessir hringdu . . .
0 Þakkir til
Hugrúnar
Ein sem hcima situr:
„Ég vil koma á framfæri í
ágætum dálkum yðar þakklæti til
Hugrúnar skáldkonu fyrir fjöl-
breytta og ágæta sögu hennar,
Ulfhildi, sem hún nýlega las i
útvarpið, sérstaklega þó fyrir
þann lærdómsríka boðskap sem
sagan flutti. Við sem heima Og svo þakka ég Velvakanda fyrir
sitjum óskum sannarlega eftir allt það ágæta efni sem hann
meira af slíku í fjölmiðlum okkar. flytur oft.“
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á skákþingi Moskvuborgar í ár
kom þessi staða upp i skák þeirra
Petrienkos, sem hafði hvitt og átti
leik, og Donchenkos.
26. Bxg6! (En ekki 26. Rxf7? —
Kg8) Kxg6, 27. Rxe6! Svartur
gafst upp. Eftir 27. . . fxe6, 28.
Dg5 er hann mát.
Skákmeistari Moskvu varð
Mikhail Zeitlin. Hann hlaut 11 v.
af 15 mögulegum.
HÖGNI HREKKVÍSI
Þú misskilur tilganginn!
Dalakofinn, tízkuverslun
Linnetsstíg 1. Hafnarfirði.
Höfum tekið fram fjölbreytt úrval af haust- og
vetrarvörum á hagstæðu verði. Terylenekápur,
enskar á kr. 1 0. þúsund. Kjólar í yfirstærðum til
nr. 48 á kr. 4.400.
Dalakofinn, tízkuverzlun.
lÆrIo VÉLRITUN
Ný námskeið hefjast fimmtudaginn 6. október.
Engin heimavinna. Kennsla eingöngu á raf-
magnsritvélar. Innritun og upplýsingar í síma
41311 eftir kl. 1 3 daglega.
Vélritunarskólinn
Suðurlandsbraut 20.
Svipmyndir
á svipstundu
Svipmyndir í hvert skírteini
Svipmyndir sf.
Hverfisgötu 18 • Gegnt Þjódleikhúsinu
cVid þörfhumst
Ef þú vilt aðstoða okkur hafðu þá samband við okkur í sima 12802 ...
Ef þú vilt gerast stofnfclagi þá scndu þcnnan miða til SÁÁ - Frakka-
stíg 14B - Reykjavík, eða hringdu í síma 12802 og við komum heim
til þín föstudaginn 30. sept.
SAMTÖK ÁHUGAFÓLKS
UM ÁFENGISVANDAMÁLIÐ
SKRIFSTOFA: FRAKKASTlG 14B - SlMI 12802
Pampers
PAPPIRSBLEIUR MEÐ
ÁKÖSTUM PLASTIKBUXUM
Undramjúkt efni PAMPERS hvílir
næst hörundinu, en rakinn dreifist í
pappírslög sem taka mikla vætu.
Ytrabyrði er úr plasti. Rúm og ytri-
buxur eru því ávallt þurr. PAMPERS
eru sem tilsniðnar fyrir barnið og
gefa mikið frelsi til hreyfinga.
Límbönd á hliðum gera ásetningu
einfalda.
íslensk Ameríska hf. Sími 82700