Morgunblaðið - 06.10.1977, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1977
Oddný Sveinsdóttir
frá Ási—Minning
ODDNÝ fæddist 3. október 1897
og hefði því orðið áttræð nú í
haust, en hún andaðist 2. ágúst s.l.
Þótt Oddný væri flutt suður til
Reykjavíkur fyrir nokkrum árum,
býst ég við að flestir sem þekktu
hana muni minnast hennar sem
Oddnýjar í Ási. Þar lifði hún og
starfaði öll sin beztu ár og bjó
manni sínum og börnum yndis-
legt heimili.
Oddný giftist ung Björgvini
Þorsteinssym. sem lengi var
kaupmaður á Búðum. Hann var
atorkumaður og sístarfandi,
meöan heilsan entist. En þegar
hann var orðinn sjúklingur fluttu
þau suður og þar andaðist hann i
febrúar 1964.
Með þeim hjónum var mikið
ástríki og var öllum auðséð, er til
þekktu, að gagnkvæm ást og virð-
ing rikti i sambúð þeirra. Þau
eignuðust fjórar dætur: Gunn-
þóru, Ragnheiði, Valborgu og
Ásu, sem allar eru giftar, tvær
búsettar í Reykjavík þær Gunn-
þóra og Asa, Ragnheiður býr í
Englandi en Valborg er sú eina
sem eftir er á Búðum.
Oddný og Björgvin ólu enn-
fremur upp tvö börn Ragnheiðar
dóttur.sinnar og eru þau kjörbörn
þeirra, en þau heita Oddný og
Björgvin. Oddný býr í Reykjavik
en Björgvin í New York.
Ég kom að Ási til vetrardvalar
haustið 1950, en alls urðu veturn-
ir fimm sem ég hafði þar fæði og
húsnæði. Þar var gott að vera og á
ég margar góðar og skemmtilegar
minningar frá þeim tíma. Hjónin
voru mér afar góð og vildu allt
fyrir mig gera til að mér liði sem
bezt. Þá voru dæturnar fjórar
farnar að heiman en Oddný og
Björgvin, litlu systkinin, 10 og 5
ára gömul. Með okkur tókst vin-
átta, sem enn helzt þótt nú sé vik
milli vina.
Umhyggja Oddnýjar fyrir börn-
unum var einstök. Hún annaðist
þau af þeirri alúð og festu, sem
börnum er nauðsynlegt og
stundum fannst mér lagni hennar
og þolinmæði takmarkalaus. Það
mátti segja að hún væri sifellt
vakandi yfir velferö þeirra. En
þau launuðu sannarlega ást
hennar með allri framkomu sinni
þá og ævinlega. Og umhyggja
Oddnýjar náði lengra en til barn-
Það er ætíð sviplegt er menn
kveðja svo skjótt á miðjum aldri.
Þótt þeir hafi lengi verið sjúkl-
ingar þá vonar maður i lengstu
lög að einhverntímann komi bat-
ínn.
Louis ólst upp hjá foreldrum
sinum ásamt 6 systkinum norður í
Siglufirði á tímum mikils af-
hagnalífs sem þróaðist i kringum
hinar miklu sildveiðar sem voru á
þeim árum. Louis var ekki gamall
er hann fór að vinna á söltunar-
stöð þar sem faðir hans var verk-
stjóri og þótti hann þá strax mjög
duglegur og samviskusamur.
Hann vann sem unglingur við út-
burð hjá pósti og sima i Siglufirði,
annars stundaði hann margvísleg
störf. Lengst vann hann sem mál-
--------------------------\
anna hennar, þvi að barnabörnin
nutu kærleika ömmu sinnar i rík-
um mæli og ekki efa ég að barna-
barnabörnin muni hafa fengið
sinn skerf. Ég kynntist því ekki
sízt fyrir jólin. þegar hún prjón-
aði og saumaði á allan hópinn og
sendi litla fólkinu sínu náttföt
peysur o.fl. Oddný var sivinnandi !
og mjög myndvirk, enda saumaði
hún og prjónaði marga flikina.
Þar að auki saumaöi hún út og
prýddi heimilið með mörgum
fallegum munum sem hún vann
sjálf.
Margar myndir koma fram i
huga minn er hann reikar austur
að Ási. Mynd Oddnýjar er skýr og
vekur hlýju. Oddný var glæsileg
kona, prúð og myndarleg og vakti
eftirtekt með framkomu sinni og
snyrtimennsku. Með foreldrum
mínum og hjónunum i Ási var góð
vinátta alla tið og við Tungufólk
minnumst þeirra með þakklæti og
virðingu.
Eg þakka af alhug hin góðu
kynni og bið guð að blessa minn-
ingu Oddnýjar.
Ástvinum hennar sendi ég inni-
legar samúðarkveðjur.
Elínborg Gunnarsdóttir
frá Tungu.
ari. Hann þótíi mjög góður og
vandvirkur í þeirri grein, list-
fengur var hann með afbrigðum.
Gerði hann töluvert af þvi að
mála í silki og flauel og þóttu það
hrein listaverk. Þá málaði hann
landslagsmyndir.
Louis var mjög eftirsóttur til
vinnu sökum góðra kosta sinna, af
vinnufélögum sínum fær hann
það orð að þeir hafi ekki getað
kosið sér heiðarlegri né trúrri
vin. Louis þótti af öllum sem hon-
um kynntust sérlega skemmtileg-
ur maður sem öllum gat komið i
gott skap. Lengst af vann Louis
hjá Antoni Víglundssyni og Stef-
áni Guðmundssyni málarameist-
urum í Siglufirði og fór ætið vel á
með þeim. Louis bar ætíð mikið
lof á þessa menn og aðra vinnufé-
laga sína í málarastörfum i Siglu-
firði, og sagði að hann hefði ekki
getað kosið sér betri vinnufélaga
né vini. — Fagurt dæmi, sem mér
finnst lýsa frænda minum vel,
hver innri maður hans var, er
atvik sem amma mín sagði mér
frá. Það gerðist er hann var lítill
drengur og hafði unnið sér inn
sina fyrstu aura. Hann hafði þá
farið beint í verslun og keypti
fallega gjöf handa móður sinni
fyrir alla aurana sína. Svona var
hann alla tið meðan heilsan ent-
ist, vildi alltaf vera að gleðja aðra
og ekki sist þá er minna máttu sín
i lifinu. Þar áttu þeir góðan að.
Ég bið Guð að blessa ömmu
mína og systkini Louisar í þeirra
sáru sorg sem þau hafa orðið fyrir
við fráfall ástkærs sonar og bróð-
ur sem þeim þótti svo vænt um,
en minningarnar um Louis eru
fagrar og þær munu aldrei mást
út. Systkini Louisar eru Alfreð
kennari, giftur Sigriði Sigmunds-
dóttur, búsett á Völlum við Nes-
veg; Pollí-Anna vinnur við hjúkr-
un; Svanhvit, gift Ásmundi Magn-
ússyni bifreiðarstjóra, búa að
Hjaltabakka 20, Rvk; Karl, Einar
og ívar halda heimili með móður
sinni að Blikahólunt 8 Rvk.
Eg kveð kæran frænda minn
með versi Valdimars Briem:
Oss hédan klukkur kalla,
sm kallar (iurt oss alla
lil sín úr hoimi hór,
þá söfnuú hans vór sjáum
ojí sanian vora fáuni
í húsi þvf. si»m eilífl «»r.
Guð blessi minningu hans.
Álfhildur K. Fugo.
Louis Einarsson frá
Siglufiröi — Minning
I dag fer fram útför Louisar
Einarssonar móðurbróður mins
frá Fossvogskirkju, en hann varó
bráðkvaddur að bænum Flögu i
Vatnsdal. Austur-Húnavatns-
sýslu, þar sem hann dvaldi
hin sióari ár hjá þeim ágætu
hjónum Guðrúnu og Ivari Niels-
syni bónda þar en þau hjón
voru honum framúrskarandi góð
og umhyggjusöm og einnig börn
þeirra hjóna og vil ég sérstaklega
nefna yngsta soninn, Sigurð, sem
ég vissi að Louisi þótti mjög vænt
um. Hann eins og sólargeisli á
heimilinu og hafði upplífgandi og
góð áhrif á frænda minn þau síð-
ustu ár er hann lifði. Við ættingj-
ar Louisar þökkum þessu góða
fólki innilega fyrir það sem það
hefur gert fyrir hann þessi ár.
Guð blessi það fyrir það.
Louis var fæddur í Siglufirði
15. febrúar 1925, sonur Krist-
mundar Einarssonar bryta, er lést
árið 1961 og Borghild Einarsson,
f. Hernes, er lifir son sinn og býr
að Blikahólum 8 hér i borg.
Stykkishólmur
Opnum í dag
nýja verzlun í húsnæði okkar að
Þvervegi 8, Stykkishólmi.
Við bjóðum alla Hólmara og aðra góða íbúa
Vesturlands velkomna að skoða úrvalið.
Hagstætt verð og greiðsluskilmálar, munið hina
þægilegu J.L. kaupsamninga — engir víxlar, heldur
gíróseðlar, sem greiða má í næsta pósthúsi,
banka eða sparisjóði.
Jón Loftsson h.f.,
Þvervegi 8, Stykkishólmi,
sími 93 8333.
33
Mjúkar
freistandl
varir
Mary Quant blýanturinn
gerir allar varir mjukar
og freistandi.
Litir:
Prune Crush
Chilli Crush
Choosy Cherry
Grape Crush
Ruby Wine
Tokyo Rose
Revielle Rose
Gold Garnet
Precious Pink
Mary Quant snyrtivörur.
Útsölustaðir á landinu.
Verzl. Bonný, Laugavegi 35
Verzl. Topptízkan,
Aðalstræti 9
Laugavegs Apótek,
Laugavegi 16
Laugarness Apótek,
Kirkjuteigi 21
Vesturbæjar Apótek,
Melhaga 20—22
Árbæjar Apótek, Hraunbæ
1 02b
Glæsibær, Snyrtivörudeild
Verzl. Andrea, Laugavegi 82
Verzl. Dalla, Snorrabraut 22
Regnhlífabúðin, Laugavegi 11
Verzl. Spáin,
Skólavörðustíg 17 B
Verzl. Nína, Miðbæ,
Háaleitisbr. 58—60
Snyrtistofa Gróu,
Vesturgötu 39
Rammagerðin,
Hótel Loftleiðum
Rammagerðin, Hótel Sögu
Sölubúð Rauðakrossins,
Landspitalanum
Sölubúð Rauðakrossins,
Grensásdeild
Verzl. Jóna Sigga, Breiðholti
Verzl. Hygea,
Austurstræti 16
Verzl. Mirra, Hafnarstræti 17
Verzl. Elin, Hafnarfirði
Verzl. Kyndill, Keflavik
Verzl. Mozart,
Vestmannaeyjum
Verzl. Elva, Akranesi
Verzl. ísbjörninn Borgarnesi
Sauðárkróks Apótek
Túngata 1, Siglufjörður
Verzl. Vörusalan, Akureyri
Kaupf. Þingeyinga, Húsavík
Verzl. Elis Guðna, Egilsstöðum
Verzl. Elis Guðna, Eskifjörður
Verzl. Karólina,
Seyðisfjörður
Verzl. Lindin, Selfoss
Verzl. Hraunbær, Grindavik
Verzl. Glaumbær,
Höfn Hornafirði
Verzl. Rós Húsavik
Verzl. Einars Guðfinnssonar
Bolungarvik.