Morgunblaðið - 13.12.1977, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1977
Ný auglýsingaherferð í Bretlandi:
Magnús Magnússon hvetur
Breta til Islandsferðar
Magnús Magnússon talar við fyrsta viðskiptavininn. sem hringdi til þess að
leita nánari upplýsinga. Hjá honum stendur Jóhann Sigurðsson, forstöðu-
maður Flugleiðaskrifstofunnar i London.
„ÍSLAND — eyjan ótrúlega"
er slagorð nýrrar auglýsingar
herferðar, sem Flugleiðir í
London hafa farið af stað
með. Hefur félagið fengið til
liðs við sig hina frægu ís-
lenzku sjónvarpsstjörnu úr
brezka sjónvarpinu, Magnús
Magnússon, og hafa verið
gerð auglýsingaspjöld með
mynd af Magnúsa þar sem
segir: „Heimsækið land mitt.
Ég lofa ykkur einstæðri
reynslu — ævintýri i stað
venjulegs sumarleyfis." Und-
ir þetta ritar svo Magnús
nafn sitt með orðunum „Ykk-
ar einlægur."
Jóhann Sigurðsson, fot-
stöðumaður Flugleiðaskrifstof-
unnar í London, var hér stadd-
ur og ræddi Morgunblaðið þá
við hann um þessa nýju auglýs-
ingaherferð Jóhann kvað
Breta nú á ný vera að endur-
heimta sjálfstraust sitt, sem
beið verulegan hnekki, er sterl-
ingspundið hrapaði skyndilega
úr 2,40 dollurum í 1,70 doll-
ara. Við þetta áfall kipptu Bret-
ar að sér hendinni og menn
horfðu i utanlandsferðir Mikið
dró úr utanlandsferðum og þá
ekki sízt til lands, sem Bretar
stóðu í erjum við Þetta hefði
sítt að segja í sambandi við
ferðir Breta til Islands.
Jóhann sagði að á undan-
förnum 20 til 30 árum hefði
tekizt að mynda ákveðinn
„goodwill" meðal Breta gagn-
vart íslandi og íslendingum,
bæði meðal almennings og
eins meðal brezkra ferðaskrif-
stofa. Með almenningí er átt
við það fólk, sem að jafnaði les
blöð á borð við Daily Tele-
graph, Sunday Telegraph
Magazine, Observer Colour
Magazine, Sunday Tímes,
Country Life, lllustrated Lond-
on News. Geographical Maga-'
zine, svo að nokkur blöð séu
nefnd og hefur verið gerð sér-
stök auglýsingaáætlun i þess-
um blöðum og fleiri fram í
marzmánuð.
,,Við fórum verulega halloka
á brezka ferðamannamarkaðin-
um," sagði Jóhann Sigurðs-
son, ,,meðan á fiskveiðideilunni'
stóð, ekki sízt fyrir þá sök, að
hún hófst í lok ársins 1975 og
stóð fram á mitt ár 1976, en
þetta er einmitt sá undirbún-
ingstími, sem fer i ferðamanna-
straum sumarsins og nauðsyn-
legt er að byggja upp traust
fólks á ákveðnu ferðamanna-
landi. Fiskveiðideilan tók allan
vind úr seglunum árið 1976,
svo að viðskiptin bókstaflega
hrundu Árið 1977 tókst hins
vegar vel og eins og málin
standa nú, getum við státað af
rúmlega 40% fjölgun brezkra
ferðamanna til íslands. Miðað
við þær undirtektir, sem við
höfum og fengið fyrir árið
1 978 frá ferðaskrifstofum, sem
þegar hafa bókað ráðstefnur á
Islandi, litum við björtum aug-
um til ársins 1 978."
„Við höfum allt á það
áherzlu," sagði Jóhann, ,,að
kynna landið eins og það er,
sérstætt náttúruland fyrir sér-
fræðinga og náttúruskoðara,
fyrir þá, er komast vilja á brott
frá skarkala stórborganna og
þeim fjölda manna og farar-
tækja, sem þar hafa safnazt
saman. Við kynnum land, þar
sem fólkið getur áttað sig á
sjálfu sér, land þar sem nátt-
úrufegurð er eins og guð gaf
okkur hana, ósnortið af manna
höndum "
Eins og vikið er að í upphafi
þessa viðtals, er undirbúningur
að sölu fyrir komandi sumar
þegar hafinn, en hann hefst
jafnan að hausti Jóhann Sig-
urðsson sagði: „Við íhuguðum,
hvaða leiðir yrðu áhrifamestar
til þess að draga athygli að
Islandi I því sambandi urðum
við að brydda upp á einhverju
sérstæðu, því að samkeppnin
er hörð í spetember kom upp
sú hugmynd, að hgft yrði sam-
band við Magnús Magnússon,
okkar ágæta landa í því skyni
að athuga, hvort hann yrði fá-
anlegur til þess að vekja athygli
á íslandi sem ferðamannalandi
furir sumarið 1978. Þegar ég
hringdi í Magnús og bar þessa
hugmynd undir hann, svaraði
hann: „Alveg sjálfsagt."
í auglýsingum, sem birtar
verða i blöðum standa orðin:
„Heimsækið land mift . .
o.s.frv. Síðan er ísland kynnt i
stuttu máli, en lesendum blaðs-
ins boðið að rita til Magnúsar
ísland auglýst sem ferðamannaland:
„Heimsækið land mitt. Ég lofa ykkur
einstæðri reynslu — ævintýri í stað
venjulegs sumarleyfis" — orð
Magnúsar Magnússonar sjálfs.
Magnússonar og þeir fái síðan
um hæl nánari upplýsingar um
landið „ísfandsmöppu Magnús-
ar Magnússonar".
Magnús Magnússon er i
raun óþarft að kynna, en ef
einhver skyldi þó ekki vita hver
hann er þá sér hann um viku-
legan spurningaþátt í BBC-
sjónvarpi, þarsem hann spyr til
6 manns i þaula um allt milli
himins og jarðar. Þátturinn
heitir Mastermind og er eitt
vinsælasta sjónvarpsefni á
Bretlandseyjum. Auk þess hef-
ur Magnús séð um margs kon-
ar aðra þætti fyrir sjónvarpið,
enda einhver kunnasti sjón-
varpsmaður i Bretlandi.
Jóhann Sigurðsson sagði að
lokum i viðtali við Morgunblað-
ið: „Magnús Magnússon er ein-
mitt lykill okkar að þvi fólki,
sem við höfum fyrst og fremst
áhuga á á brezka ferðamanna-
markaðinum. Ég vil hér sér-
stakalega láta i Ijós þakklæti
mitt fyrir velvilja hans og höfð-
ingslund i sambandi við þessa
auglýsingaherferð. Hann sem
eins konar „superstar" í Bret-
landi veitir okkur ómetanlega
Framhald á bls. 31
Bezta vörnin gegn
innbrotum er aðstoð
borgaranna sjálfra
HJA lögreglunni í Re.vkjavík
hefur Grétar Norfjörö það starf
með höndum aö annast afhrota-
varnir, en það er upplýsing:- og
fræðslustarf fólgið í því að
benda borgurum á hvernig var-
ast megi innbrot og þjófnaði úr
húsum þeirra, bifreiðum og
f.vrirtækjum. I þessu starfi hef-
ur Grétar m.a. heimsótt fyrir-
tæki og komið á fundi hjá sam-
tökum iðnaðarmanna, kaup-
manna og iðnrekenda til að
fræða og benda á ýmislegt varð-
andi varnir við innbrotum.
Grétar sagði að þessi starfsemi
hefði hafizt í ársbyrjun 1974
einkum fyrir tilstuðlan lög-
reglustjóra, en hann hefði haft
mikinli áhuga fyrir að koma
slíkri starfsemi á laggirnar.
— Skammdegið er einn
mesti innbrota- og þjófnaðar-
líminn, sagði Grétar, en þá geta
þjófar gert ýmislegt í skjóli
myrkurs, en einnig er mjög
mikið um innbrot alls konar á
vorin. Við höfurn átt gott og
Til að verjast innbrotum inn á heimili verður að tryggja öruggan
frágang dyra- og gluggaumbúnaðar og varast að skilja glugga eftir
opna.
Ekki er ráðlegt að skilja verðmæti eftir I bflum, nema að hafa það I
læstu farangursrými þar sem það ekki sést.
mikið samstarf við ýmis samtök
kaupmanna og iðnrekenda svo
og tryggingarfélög og f fyrra
var í samstarfi við Félag ísl.
bifreiðaeigenda gefinn út bækl-
ingur, Læsið bifreið yðar, þar
sem var að finna ráðleggingar
um varnir gegn þjófum.
— í jólamánuðinum er hætt-
an á stunldi úr bifreiðum ein-
mitt mest, þá er fólk á ferðinni
og geymir jólapakkana i bílum
sínum, en það hefur borið
nokkuð á því að inenn séu
kærulausir fyrir því að skilja
dót eftir i ólæstum bílum, en
benda má á nokkur heilræði í
þessu sambandi:
1) Læsið alltaf bifreiðinni.
2) Setjið alltaf pakka í far-
angursge.vmslu og læsið, til að
Grétar Norfjörð lögreglu-
flokksstjóri. Ljósm. RAX.