Morgunblaðið - 13.12.1977, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1977
21
Ljósm.: Sv. P.
Mánatindur landar
í New Ross í dag
MÁNATINDUR frá Djúpavogi
var væntanlegur til New Ross á
S-lrlandi í gærkvöldi með um 45
tonn af fiski, mest þorsk og ýsu. í
dag verður aflanum landað þar,
en hann er seldur á föstu verði.
Þetta verður í fyrsta sinn, sem
íslenzkt fiskiskip selur afla í Ir-
landi, en undanfarið hafa staðið
yfir samningaviðræður milli
L.I.U. og írskra fiskkaupmanna
um að íslendingar selji Irum fisk
og náðist samkomulag fyrir
skömmu. Morgunblaðið hefur
fregnað að einn íslenzkur togari,
Erlingur GK, selji á Irlandi í þess-
ari viku eða byrjun þeirrar
næstu.
Eins og frá var skýrt
í Morgunblaðinu á
sunnudag var hinu
nýja skipi Öskari
Magnússyni AK 177
hleypt af stokkun-
um hjá Slippstöð-
inni á Akureyri á
laugardagsmorgun.
Skipið, sem er sams
konar og Guðmund-
ur Jónsson GK,
verður afhent
snemma á næsta ári.
Bændafundur í Húnaveri:
Hugmyndir um að stöðva
gæru- og ullarsölu til
að knýja á um kaupmálin
„ÞAÐ kom greinilega fram á fundinum, að það er þungt
í bændum núna, og að þeir eru ófúsir til að leggja á sig
skatt til að greiða sjálfum sér kaup. Bændur telja sig
ekki geta unað því lengur að tekjur þeirra séu þriðjungi
lægri en annarra og það komu fram á fundinum hug-
myndir um að grípa til einhverra ráðstafana vegna
þessa, eins og til dæmis að stöðva sölu á ull og gærum,“
sagði Pétur Hafsteinsson, bóndi í Hólabæ, er Mbl. spurði
hann um bændafund þann, sem haldinn var í Húnaveri á
sunnudag að frumkvæði búnaðarfélaganna í Svínavatns-
og Bólstaðarhlíðarhreppi, en fundurinn stóð í átta og
hálfa klukkustund.
Pétur sagði, að meginumræð-
urnar hefðu snúizt um kjaramálin
og hefðu verið samþykktar álykt-
anir, sem gengju út á óánægju
bænda með framvindu kjaramál-
anna, mótmæli gegn úrskurði yf-
irnefndar um verðlagsgrundvöll-
inn og sérstaklega væri véfengd-
ur lagalegur réttur úrskurðarins
um kaup húsfreyju, en henni eru
ætiuð lægri laun en bóndanum.
Þá var samþykkt krafa um að
felldur yrði niður söluskattur af
kjöti og kjötvörum. Þá sagði Pét-
ur, að fundurinn hefði mótmælt
„órökstuddum áróðri gegn land-
búnaðinum, sem ætti sfna orsök á
sölutregðu landbúnaðarvara, en
vildi treysta vinveittri ríkisstjórn
til að gera nauðsynlegar ráðstaf-
anir.“ Um lánamálin kom það
fram, að bændur töldu vexti alltof
háa og að nauðsynlegt væri að
taka lánamál landbúnaðarins til
endurskoðunar, sérstaklega lána-
mál þeirra, sem væru að byggja
og byrja búskap.
Pétur Hafsteinsson sagði að á
fundinn hefðu mætt um 50 bænd-
ur, mikill hluti bænda i Bólstaðar-
hlfðarhreppi og talsvert af bænd-
um i Svínavatnshreppi.
AUGLYSINCASÍMINN ER: .
22480
jMergnnbfabib
Vestri BA fékk 247 kr.
fyrir kg í Þýzkalandi
VESTRI BA frá Patreksfirði
seldi tæpar 80 lestir af fiski í
Bremerhaven f V-Þýzkalandi f
gærmorgun fyrir 201 þús. mörk
eða 19.6 milljónir króna. Meðal-
brúttóverð á kfló var kr. 247 og
meðalskiptaverð kr. 175. Er þetta
verð eitt hið hæsta, sem fengizt
hefur á v-þýzka markaðnum í
haust.
Mjög mikil eftirspurn er nú
eftir fiski í V-Þýzkalandi, en
desember er yfirleitt bezti fisk-
sölumánuðurinn þar. I þessari
viku eiga nokkur skip að selja f
Þýzkalandi, Helga Guðmundsdótt-
ir BA átti að hefja löndun í Cux-
haven í gær, og lýkur síðan við að
selja aflann í dag. Þá eiga Karls-
efni, Hrafn Sveinbjarnarson 3.;
Sindri og Arni í Görðum ennfrem-
ur að selja fisk í Þýzkalandi í
þessari viku.
Loðnuaflinn nú
243. þús. lestir
SUMAR- og haustloðnuafl-
inn er nú kominn í 243
þúsund lestir, en veiðarnar
hófust 15. júlí s.I. Á síðasta
ári var heildar sumar- og
haustloðnuaflinn 110 þús.
lestir, þannig að nú er afl-
inn 133 þús. lestum meiri.
Mestri loðnu hefur nú ver-
ið landað í Siglufirði eða
107 þús. lestum, í Reykja-
JNNLEIM-T
vík hefur verið landað
21.850 lestum, á Bolunga-
vík tæpum 19 þús. lestum
og á Raufarhöfn 14 þús.
lestum.
Aflahæsta loðnuskipið á
yfirstandandi vertíð er
sem fyrr Sigurður RE með
17.700 lestir, þá kemur
Gísli Árni RE með 12.700
lestir, Gullberg RE hefur
fengið 10.900 lestir,
Víkingur AK er með 10.300
lestir og rösklega 1000
tonn af kolmunna og Börk-
ur NK 8.500 lestir af loðnu
og 3.600 tonn af kolmunna.
Milli 30 og 40 skip hafa
stundað loðnuveiðarnar
frá í sumar.
Stálvík landar í Hollandi
— fisknum ekið til Englands
SIGLUFJARÐARTOGARINN
Stálvfk landar I dag f Ljmuiden f
Hollandi. Þaðan verður fiskurinn
svo fluttur til Englands jafnóðum
og landað er en enskir fiskkaup-
menn hafa þegar fest kaup á
fiskinum.
Gfflirlee eftirsnnrn er mí ef*ír
’ fiski í Englandi og hluti þess
fisks, sem er á boðstólum, er af
lélegum gæðaflokki. Fyrir þrem-
ur vikum landaði fslenzt fiskiskip
í HoIIandi og var fiskinum síðan
ekið til Englands. Gekk sú löndun
mjög vel og gott verð fékkst fyrir
ficHnn
hAíTlAR pÓRS
pRtimupeyquR nonfkBísftw
fliítjur »*g goðsagnír 4 vftin|3ðW
Miignús Mafíiússon
vndir ‘ifúr Weíncf F>
UM ÞÓR MAGNUSAR
ÞÓR MAGNÚSSON ÞJÓÐMINJAVÖRÐ-
UR RITAR UM HINA NÝJU BÓK MAGN-
ÚSAR MAGNUSSONAR, HAMAR ÞÓRS, í
DAGBLAÐIÐ 19. NÓV. OG BER GREININ
OFANSKRAÐA FYRIRSÖGN. ÞÓR SEGIR
M.A. (GREIN SINNI:
HRIFANDI FRÁSÖGN
„Þetta er ekki fræðirit, heldur er reynt á
einfaldan og mjög aðgengilegan hátt að
opna hinn foma trúarbragða- og goð-
sagnaheim öllum almenningi, bæði á
myndrænan hátt og með frásögum. Víða
hAlTIAR hÓRS
eru endursagðar sögur úr Eddu og tekln
upp einstök erlndi úr eddukvæðum ..
„... Þegar maður fær þessa bók i hendur
dettur manni í hug skartgrlpur úr góð-
málmum skreyttur eðalsteinum. Allt ytra
útlit bókarinnar er með miklum glæsi-
brag, prentun og trágangur einkarvand-
aður og fallegur, enda er þessi íslenzka
útgáfa unnin nákvæmlega eftir hinni
ensku og myndaprentunln gerð samtímis
fyrir báðar útgáfurnar.
Þýðing Dags Þorleifssonar er með
miklum ágætum, lipur og skýr, og kemur
hann vel til skila léttlelka höfundar sem
svo víða birtist í frásögninnl.
Þór Magnússon, þjóðminjavörður"
• •
• •
Om&Otiygur
Vestwgötu 42simi:25722