Morgunblaðið - 13.12.1977, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 13.12.1977, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1977 45 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL. 10—11 FRÁ MANUDEGI íuj'd ir # Þakkir til Germaníu „Germania á þakkir skildar fyrir að gefa okkur höfuðstaðar- búum kost á að sjá Hamborgaróp- eruna flytja Töfraflautu Mozarts í kvikmyndabúningi í Nýja Bíói sl. laugardag. Sýningin var vel sótt sem vænta mátti og vonandi hafa flestir not- ið hennar enda ekki sparað til að gera hana sem glæsilegasta, vald- ir söngvarar með heimsfrægð að baki, leiksvið, búningar og tækni- brellur, allt fyrsta flokks. Það var hins vegar leiðinlegt að sýningin naut sín ekki sem efni stóðu til vegna kæruleysis þeirra, sem sjá áttu um hljómburðinn. Hljómtækin voru allt of hátt stillt á stundum svo að stór skemmd var að. Þarna hefði þurft rnagn- aravörð, stjórnanda, sem skildi efni verksins og hefði stjórn á öllum styrkleikaþáttum þess svo að samræmis væri ávallt gætt. Því miður var svo ekki og þess vegna fór margt fallegt úr þessu undur- fagra verki framhjá áheyrendum. Þá var annað hvimleitt, sem skemmdi sýninguna. Dragtjöld voru ekki að fullu dregin frá svo myndin náði yfir á fellingar drag- tjaldsins og lýtti það sýninguna og skemmdi áhrif hennar. Svona lagað kæruleysi á ekki að lfða enda til skammar og er grófleg móðgun við gesti og þá ekki siður við Germaníu, sem bauð til sýn- ingar á meistaraverki, sem allt of fáir fá nokkurn tíma notið. Von- andi að betur verði hugað að flutningi næstu sýningar af svip- uðu menningargildi. R.S.“, Þá eru hér næst nokkur orð um málfar auglýsinga í sjónvarpi, en um það mætti eflaust hafa langt mál. Reyndar ekki bara auglýs- inga í sjónvarpi heldur auglýs- inga yfirleitt og t.d. telur Velvak- andi það alltof oft korna fyrir að ekki sé getið verðs er hlutir eru auglýstir. # Er þetta lýðræði? „Þátturinn um prestkosning- ar i sjónvarpinu hefur vakið um- ræður manna f milli. Mönnum þótti áberandi hversu stjórnandi var hlutdrægur gagnvart þátttak- endum, en það gat þó ekki hindr- að það að rök gegn prestkosning- um kæmust til skila enda hélt Þórarinn Þórarinsson vel á mál- um. Hvað ráðið hefur því að Gunnar Benediktsson var kallað- ur á vettvang og að enginn yngri eða þjónandi prestur þótti eins æskilegur, það er ráðgáta nema það hafi verið gert í því skyni að skemmta mönnum með þvi að láta hann tala um „helgan rétt" lýðs- ins og samvizkunnar. Þetta var f sjálfu sér nógu gaman. Frú Ragnhildur Helgadóttir tal- aði skynsamlega um meinlega galla núgildandi laga en það er furðulegt að hún skuli þá ekki fylgja þvf eftir á Alþingi að lögin verði afnumin f staðinn fyrir að flækja og tefja þetta mál með tillöguflutningi um þjóðarat- kvæði. Það er „lýðræði“ sagði frú- in, en skammt nær lýðræðið í landinu ef þjóðaratkvæði á að vera slfk fyrirmynd lýðræðis því það er heldur sjaldgæft eins og allir vita. Yfirleitt eru alþingismenn ekki að velta vöngum yfir því að setja hin margvíslegustu lög án þess að láta sér til hugar koma að leita þjóðaratkvæðis. Hvers vegna voru grunnskólalögin t.d. ekki borin undir þjóðaratkvæði? Margt fleira mætti segja í þessu sambandi t.d. af hverju fær al- menningur ekki að kjósa útvarps- ráð, bankaráðin öll og banka- stjóra? Lýðræðistalið i sambandi við prestkosningar er ekki annað en blekking og áróður. S.“ Þessir hringdu . . . # Eitt símtal hefði nægt Einar Sveinsson frkvstj. B.U.R. „Eins og kunnugt er eiga mörg fyrirtæki í fiskiðnaði og út- gerð i miklum greiðsluerfiðleik- um og gildir það einnig um B.U.R. Þar af leiðandi gat B.U.R. þvi miður ekki gert skil á orlofi i tæka tfð. Hins vegar hefur fyrir- tækið verið að endurgreiða ungl- ingum orlof og fæst það greitt i skrifstofunni gegn framvísun vottorðs frá skóla. Ef unglingur undir 16 ára /ddri hefur verið látinn greiða í líl'eyrissjóð er um mistök f tölvuvinnslu að ræða, sem hefði verið hægt að leiðrétta strax og kvörtun hefði borizt. Við- komandi er því beðinn um að hafa samband við skrifstofu B.U.R. til að fá endurgreiðslu. Hefði því ekki þurft nema eitt sfmtal á skrifstofu B.U.R. til að fá þessu máli svarað.“ SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson A skákmóti í Sovétríkjunum í fyrra kom þessi staða upp í skák þeirra Katalimovs, sem hafði hvítt og átti leik, og Mukhins: Hann er mát eftir 21 ... Kxd8, 22. Rc6 + + — Ke8,2áí'Hd8. # Heldur mikið popp Kristfn: — Mér finnst vera orðið heldur mikið um popptónlist f út- varpi um þessar mundir, en þó hefur eitthvað dregið úr þvf að mfnu viti og er það vel. En það verður að gæta þess að gera ekki of mikið með þetta popp, ungling- arnir hafa áreiðanlega nóg tæki- færi til að hlusta þó það þurfi ekki alltaf að vera f útvarpinu. En hitt hef ég orðið vör við og það er að’textameðfei'ð er nokkuð frjáls- leg. T.d. syngur einhver hljóm- sveitin Fyrr var oft í koti kátt og á bak við heyrast raddir, sem syngja gott er að riða sandana mjúka, það gerir ekki hestana sjúka. Ég man ekki eftir að þetta stæði í kvæði Erlings Þorsteins- sonar. Svona meðferð á texta á ekki að heyrast. Annað sem ég vil gleðjast yfir i þessu sambandi er að nú er mun meira farið að heyr- ast á fslenzku, en áður voru allir textar á ensku þegar hljómsveit- irnar stefndu á heimsmarkaðinn. HÖGNI. HREKKVÍSI Jólasveinarnir taka þá upp á rófunni, sem þannig haga sér. Svipmyndir á svipstundu Svipmyndir í hvert skírteini Svipmyndir sf. Hverfisgötu 18 ■ Gegnt Þjóðleikhúsinu Demantshringar Draumaskart KJARTAN ASMUNDSSON Gullsmíðav. - Aðalstræti 8 Jónas Rafnar: i -----I____I-I-----—_s____ EYFIRZKAR SAGNIR Erlendur Jónsson, í Morgunhlaóinu 9. des. ] 1977: Þessar eyfirzku sagnir eru að mínuni dómi svo læsilegar, vandaðar og skemmtilegar sumar hverjar — að þær mættu gjarnan vera munaðar og lesnar lengur en á eintim • jólum eins og obhinn af bókuni þeiu: sem úl eru gefnar þessi árin. /-.... " 'w. Almenna bókafélagið Austurstræti 18. Bolholti 6. sími 19707 sími 32620

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.