Morgunblaðið - 13.12.1977, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1977
Brezkur blaðamað-
ur myrtur í Kairó
Sýnishorn af Kennedyskjölunum.
Kennedyskjöl FBI:
Þar er svarid
ekki að finna”
99
Washington. 12. desember. AP
VMSIR bjuggust við meiriháttar tfðindum, er
skjöl bandarfsku alrfkislögreglunnar FBI um
morðið á Kennedy Bandarfkjaforseta voru gerð
opinber, þ.e.a.s. helmingur þeirra, 40 þús. bls. í
allt, en hinn helmingurinn verður opinber gerður
í janúar nk. AIIs vó pappfrsstaflinn hálft tonn, en
í honum var ekki að finna neinar niðurstöður,
Þar er ekki að finna svar Lee Harway Oswalds, er
Marina kona hans spurði hann fyrir mörgum
árum: „Hvað ertu eiginlega að reyna að gera,
koma af stað annarri byltingu?“
1 skjölunum er ekkert að finna, sem breytir
þeirri trú manna, að Oswald hafi drepið John F.
Kennedy f Dallas 22. nóvember 1963 og að hann
hafi gert það einn og án hvatningar einhverra
annarra manna. Skjölin sýna að rannsókn málsins
hafi verið gífurlega umfangsmikil og allt gert til
að komast að hugsanlegu samsæri. Niðurstöðurn-
ar eru þær sömu og hjá Warrennefndinni, ekkert
samsæri. Þetta er ekkert einkennilegt, þvi að
Warrennefndin byggði rannsókn sína að mestu á
skjölum FBI.
Umfang skjaiafargsins ber vitni um hinar
óheyrilegu afleiðingar 6 sekúndna brjálæðis
þennan dag i Dallas og undir lokin sýna skjölin að
allur þessi herskari manna gat ekki áttað sig á
þankagangi ógæfumannsins.
I skjölunum er aó finna, að f herbergi Oswalds
hafi fundist tvær Ian Flemming bækur um James
Bond, „Live and let die“ og „The spy who loved
me“. Þar er einnig hægt að lesa að kúlan, sem
skotið var að Edwin A. Walker hershöfðingja,
íhaldsmanni í Dallas hafi verið úr sams konar
riffli og þeim, sem Oswald notaði er hann myrti
Kennedy, Sömuleiðis að Oswald hafi sagt við
konu sina að hann gæti drepið: „Þaó þurfti að
drepa Hitler,“ sagði hann. Margt annað er þar að
finna eins og hatrið sem virðist hafa fylgt honum
gegnum lífið eins og logandi kveikjuþráður,
lýsing á ófullnægðri þrá eftir hlýju, ofsafengnum
draumórum og sálarflækjum á unglingsárum
hans og stöðugt ráf; ráf í átt til hvers? Það kemur
bkki fram, enda til of mikils ætlast að svar við því
sé að finna i skjölunum.
EBE-fiskveiðar:
Miðar í rétta átt en
erfið vandamál óleyst
Kairð. 11. des. AP.
LlK Davids Holden aðalfréttarit-
ara stórblaðsins Sunday Times í
London fannst í útjaðri eyði-
merkur nálægt flugvellinum í
Kairó að sögn blaðafulltrúa
brezka sendiráðsins f Kairó.
Holden var skotinn til bana í bak-
ið. Holdens, sem er 53 ára gamall
hafði verið saknað síðan á þriðju-
dag, en þann dag kom hann til
Kairó og fannst líkið á miðviku-
dag í útjaðri Nasserborgar, sem
er úthverfi í Kairó. Ekki voru
borin kennsl á Ifkið fyrr en á
laugardag, en það hafði verið
rænt og öll persónuskilrfki fjar-
lægð.
Lady
Churc-
hill
látin
London — 12. des. — Reuter
HAVAXIN Ijóska með klassfska
andlitsdrætti hryggbraut tugi
vonbiðla til að giftast stjórnmála-
manni, Winston Churchill að
nafni, og voru samfarir þeirra
góðar í meira en háifa öld.
Spencer-Churchill barónsfrú,
er lézt f London f dag, 93 ára að
Lady Spencer-Churchill, er lézt á
mánudag, 93 ára að aldri
aldri, var öðluð, er eiginmaður
hennar féll frá f janúar 1965. Hún
vissi betur en nokkur stjórn-
vitringur annar í veröldinni
hvernig átti að temja stórt skap
bónda sfns og opna hamingjunni
veginn inn í stormasamt og
viðburðaríkt lff hans.
Hún fæddist í apríl 1885, önnur
dóttir Sir Henry Hozier ofursta og
lady Blanche Ogilvy, dóttur
níunda jarlsins af Airlie. Hún
Framhald á bls. 28.
13 farast
í flugslysi
Kanarfeyjar, 12. des. AP.
ÞEIR Þrettán menn, sem voru f
herflugvélinni sem hrapaði á
sunnudag á Hierroeyju í Kanarí-
eyjaklasanum létu allir lffið að
þvf er fréttir frá handaríska
sendiráðinu f Madrid herma.
Lík mannanna sem fundust
nálægt þorpinu Valverde voru
flutt þangað frá flaki vélarinnar,
sem var af gerðinni P-38 orion.
Vélin hrapaði í fjallshlíð og var
veður slæmt. Hún var á leið frá
bandarísku herstöðinni á Azoreyj-
um. Lík hermannanna voru
óþekkjanleg, að því er fregnir frá
flotastöðinni bandarísku við Rota-
flóa á Spáni herma.
I gær fór leiðangur frá herstöð-
inni við Rotaflóa á vettvang til
Hierroeyjar til að kanna aðdrag-
anda slyssins og flytja líkin til
Bandaríkjanna, þar sem þao
verða jarðsett.
Að því er sendiráðsritari brezka
sendiráðsins í Kairó, Kenneth
Taylor, sagði, veit enginn hvað
gerðist nákvæmlega. Stórblaðið
Times sagði, að liklega hefði verið
um rán að ræða en egypzka lög-
reglan gefur engar upplýsingar.
Times skýrði einnig frá því að
Holden hefði komið frá austur-
hluta Jerúsalem til Jórdaníu á
þriðjudag og flogið þaðan til
Kairó. Frá Kairó heyrðist ekkert
frá honum og hafði Sunday Times
því strax samband við brezka
sendiráðið þar. Sendiráðið gerði
egypzku lögreglunni viðvart og á
laugardag bárust fregnir af því að
lík Holdens væri komið í lík-
geymslu.
Lögreglan skýrði frá því að inn-
anríkisráðherra Egyptalands,
Nabawi Ismail, hefði fyrirskipað
stranga rannsókn á því hvað
leiddi Holden til dauða og hvað
hann hafi aðhafzt eftir að hann
kom til Kairó.
Holden hafði ekki vegabréfs-
áritun við komuna til Kairó en
var útveguð ein slík við komuna
þangað. Af eyðublöðum, sem
hann fyllti út á flugvellinum, þeg-
ar hann kom, mátti merkja að
hann hafi haft 200 dali meðferðis,
þá kom hann aldrei á það gisti-
hús, sem hann sagðist ætla að
dvelja í til 20. desember.
David Holden var viðurkennd-
ur sem einn fremsti fréttamaður
Breta. Hann hafði skrifað fréttir
frá Austurlöndum nær síðastliðin
20 ár og var þaulkunnugur þar
um slóðir.
Þetta
gerðist
Þettagerðisí 13. desember: (AP)
1970 — Fyrrverandi for-
sætisráðherra Tékkósló-
vakíku, Oldrich Cernik, rekinn
úr kommúnistaflokknum.
1969 — Bretland samþykkir
að flytja allt lið sitt frá Líbýu.
1967 — Herforingjastjórnin
í Grikklandi bælir niður gagn-
byltingu og Konstantín
konungur flýr til Rómar.
1939 — Sjóorrustan hefst
við Rio de la Plata, sem þýzka
orrustuskipið Graf Spee tók
þátt í.
1937 — Japanskar hersveit-
ir taka Nanking i Kína.
1935 — Benes tekur við af
Masaryk sem forseti í
Tékkóslóvakiku,
1921 — Bandaríkin, Bret-
land, Frakkland og Japan gera
með sér í Washington sáttmála
um yfirráð sín á Kyrrahafi.
1918 — Bandariskar her-
sveitir sækja yfir Rín við
Koblenz f fyrri heimsstyrjöld-
inni.
1897 — Rússneskar
hersveitir hertaka Port Arthur
við Kyrrahaf.
1808 — Madrid gefst upp
fyrir Frökkum.
1789 — Héruð ' Austurríkis-
keisara í Niðurlöndum (síðar
Belgía) lýsa yfir sjálfstæði.
1577 — Enski sæfarinn Sir
Francis Drake leggur í sögu-
fræga siglingu umhverfis
heiminn frá Plymouth í Eng-
landi.
1570 — Friðurinn í Stetten,
Danmörk viðurkennir sjálf-
stæði Svíþjóðar.
Afmæli:
Felice Peretti (Sixtus V
páfi) (1521—1550). Heinrich
Heine, Þýskt skáld
(1797—1856). Ernst Wernér
Von Siemens, þýzkur verk-
fræðingur (1816—1892). John
Vorster, forsætisráðherra
Suður-Afríku (1915—).
Setning dagsins: „Það eina,
sem við þurfum að óttast á
jörðunni er maðurinn." Carl
Jung, svissneskur
sálfræðingur (1875—1961).
FISKVEIÐIVIÐRÆÐUM EBE
hefur nú verið frestað fram til 16.
janúar nk. eins og fram hefur
komið í fréttum. Sfðasti fundur f
aðalstöðvum bandalagsins um
þessi mál var haldinn sl. fimmtu-
dag. I fréttabréfi EBE segir að
viðræðurnar í fiskimálaráði þrjá
daga f sfðustu viku hafi verið
mjög gagnlegar og sé óhætt að
segja að málið sé komið af hreinu
viðræðustigi og öll aðildarrfkin
hafi látið f Ijós samkomulagsvilja
Moskvu, 12. des. AP
SOVEZKA sjónvarpið sýndi í dag
myndir af geimförunum um borð
í rannsóknastöðinni Salyut 6, sem
geimfar þeirra var tengt við á
laugardag. Sýndu myndirnar þá
Yuri Romanenko ofursta og
Georgy Grechko verkfræðing við
störf í geimrannsóknastöðinni.
Myndirnar birtust aðeins
skamma stund á sjónvarpsskerm-
inum og voru geimfararnir
klæddir léttum göllum, skoðuðu
skjöl og handléku ýmis tæki.
Geimrannsóknastöðin er sjö og
hálft tonn að þyngd og er í 166 til
204 mílna fjarlægð frá jörðu.
Getgátur eru um að aðrir tveir
geimfarar verði sendir af stað til
og að gengið verði frá sameigin-
legri stefnu fyrir árið 1978.
í bréfinu segir að hins vegar
verði næsta stig erfitt, þar sem þá
verði farið að ræða hlutfallsskipt-
ingu auðæfa hafsins milli ein-
stakra aðildarríkja. Ma. hafi
brezka ríkisstjórnin lagt fram
beiðní til Finn Olaf Gundelachs
um 45% heildaraflans í efnahags-
lögsögu bandalagsins, sem sé
óheyrilega mikið í augum nokk-
urra annarra aðildarrikja. Fyrstu
að vinna með þessum tveimur í
rannsóknastöðinni. Tassfrétta-
stófan sovézka skýrði frá því að
hægt væri að tengja tvö geimför
við Salyut 6 geimrannsókna-
stöðina, og væru geimfararnir að
yfirfara tengingarútbúnaðinn
núna.
Talið er líklegt að geimfararnir
séu einnig að rannsaka hvort önn-
ur tenging við Saluyt 6 hafi orsak-
að það að tilraunin til að tengja
geimfar við geimrannsóknarstöð-
ina í október mistókst.
Tassfréttastofan skýrði frá því
að geimfararnir Romanenko og
Grechko væru afslappaðir og nú
fyrst óþvingaðir í samtölum sin-
um við stjórnstöðina á jörðu niðri.
tillögur framkvæmdanefndar
EBE um aflaskiptingu milli þjóð-
anna byggðust á 2.254.000 lesta
heildarafla og áttu Bretar að fá
29.3%, Danir 26.9%, Frakkar
24.3%, V-Þjóðverjar 12.7% og
Hollendingar 6.7% þannig að
ljóst er að miklu munar hér og á
kröfum Breta. Hins vegar segir i
bréfinu, að Bretar hafi nú ekki
talað um einkalögsögu né einka-
veiðisvæði. Þá segir að þótt þarna
sé erfitt vandamál óleyst hafi
miðað verulega á öðrum sviðum,
eins og um fiskvernd og heimildir
aðildarríkjanna til að gera ein-
hliða ráðstafanir til verndunar,
en þó ekki fyrr en bandalaginu
hefði verið frá þeim skýrt.
Heimsmet
í málæði
Oxford, 10. des. Reuter.
RAY Cantwell varð í dag
heimsmeistari í viðstöðulausu
málkjaftæði. Hann opnaði
munninn við upphaf keppn-
innar sfðastliðinn mánudag og
lokaði honum loksins aftur 150
klukkustundum sfðar.
Einu hléin sem hann fékk
var klukkustund á dag, til að
snæða, baða sig og raka. Hann
fékk 900 sterlingspund í verð-
laun, en verðlaunaféð var sam-
skot frá góðgerðafélögum.
Verður annað geimfar
tengt við Salyut 6.?