Morgunblaðið - 22.01.1978, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JANUAR 1978
37
Aðí
Þrtfyudag
°pfóðraðtr
nnnfrakkar
etnskr.28.0(
'yrtur í
lbreyttu
trteti 4
miövikudai
•Stnókir,
%prakka
' •Gallabu.
*°fl. o.t7
'Sskyrtur
Mohairgarnið komið.
Tökum í innrömmun.
HANNYRÐAHÚSIÐ
Grettisgötu 46.
Horni Grettisgötu og Vitastígs.
Minning:
Erik Ingvarsson
mjólkurfrœðingur
Fæddur 13. desember 1915.
Dáinn 11. janúar 1978.
A morgun veröur jarðsunginn
frá Fossvogskirkju Erik Ingvar
Ingvarsdson mjólkurfræðingur,
Hvassaleiti 8, en hann andaðist i
Borgarspítalanum 11. janúar s.l.
eftir langa sjúkdómslegu.
Erik var fæddur í Kaupmanna-
höfn 13. desember 1915, sonur
hjónanna Kristine og Jóhanns
Albine Ingvarssonar, sem var
sænskrar ættar.
Erik fluttist með foreldrum sín-
um og fimm systkinum til
Horsens í Danmörku og ólst þar
upp. Ujigur að árum kynntist
eignaðist það eigið húsnæði fyrir
forgöngu og framsýni Eriks, en
hann hafði um lengri eða
skemmri tíma haft skrifstofu þess
á heimili sínu. öll störf í þágu
félagsins leysti hann af hendi af
sérstakri ósérhlifni og samvizku-
semi, og mun varla á nokkurn
hallað þó sagt sé, að enginn hafi
unnið jafn mikið fyrir félagið og
hann.
Erik stundaði ýmis störf fyrstu
ár sín hér á landi, en siðustu
þrjátiu árin hefur hann starfað
hjá Mjólkursamsölunni í Reykja-
vik og veit ég að það eru margir
sem sakna hans þar eftir áratuga
samstarf.
Það má hverjum Ijóst vera, að
það þarf sterka manngerð til að
þola þann harm að standa uppi
foreldralaus unglingur i byrjun
heimskreppunnar og flytjast sið-
an til ókunns lands og setjast þar
að, aðeins átján ára að aldri, og
komast heill i gegnum það. Við
sem kynntumst Erik og hinni ró-
legu og æðrulausu skaphöfn hans
undrumst þetta ekki, við vissum
hvern mann hann hafði að geyma.
Þó komu mannkostir Eriks bezt
fram í -þeirri miklu umhyggju,
sem hann bar fyrir konu sinni og
börnum og heimilinu, svo og
hversu hann lét sér annt um upp-
vöxt og framtíð barnanna, og að
veita þeim þá föðurumhyggju,
sem hann sjálfur fór á mis við
sem unglingur.
Að leiðarlokum þakka ég þess-
um vini mínum öll okkar kynni og
bið Guð að blessa minningu hans.
Eiginkonu hans, börnum,
tengdabörnum og barnabörnum
votta ég mína dýpstu samúð.
Magnús Ólafsson.
heldur að venju sína árlegu vetrarhátíð á Þorra,
laugardaginn 4. febrúar í golfskálanum. Verð-
lag verður án verðbólgu, þátttaka með 40%
veðbólgu, fjör og endurminningar með 100%
verðbólgu. Félagar það er betra fyrr en seinna
að skrá sig til keppni og hafið ykkar góðu félaga
með.
Eftirtaldir félagar taka á móti skráningu og
afhenda miða. Ólafur Þorsteinsson í síma
85044. wguðmundur S. Guðmundsson í síma
31279, 40965. I rakarastofu Halla, Leifs og
Kára. Njálsgötu 1 1 . Síma 1037 5.
Erik sorginni. þvf sex ára gamall
missti hann föður sinn og móður
sína missti hann þegar hann var
fjórtán ára.
Arið 1933 kom Erik fyrst til
Islands og var þá aðeins sautján
ára. Hér dvaldist hann þá f hálft
ár, en sneri þá aftur til Danmerk-
ur. Kom aftur hingað árið 1934 og
bjó hér upp frá því.
Eftirlifandi eiginkonu sinni,
Elinborgu Bjarnadóttur, kvæntist
Erik árið 1941, og eignuðust þau
fjögur börn, sem öll eru á lífi.
Erik Ingvarsson var mjög virk-
ur félagi í Mjólkurfræðingafélagi
Islands og einn af frumhverjum
þess. Hann var fyrst kjörinn í
stjórn félagsins 1958 og var gjald-
keri þess í fjórtán 'ár, auk þess
sem hann gegndi fjölda annarra
trúnaðarstarfa fyrir félagið. A
þessum árum urðu á margan hátt
þáttaskil í sögu félagsins, m.a.
— Minning
Bjarni
Framhald af bls.35
hans var allur bundinn símanum
og velferð hans.
Bjarni Forberg kvæntist 11.
mars 1933 eftirlifandi konu sinni,
Agústu Petersen, ættaðri frá
Vestmannaeyjum, Þeim varð
þriggja barna auðið. Þau eru Orn,
skólastjóri f Grundarfirði, kvænt-
ur Guðrúnu Guðmundsdóttir frá
Hafnarfirði, Asbjörg búsett i
Hafnarfirði og Jenný, gift Vali
Jóhannssyni, skrifstofumanni.
Agústa var áður gift Ölafi
Magnússyni, læknanema og rit-
stjóra i Vestmannaeyjum. Ölafur
andaðist 1930, með honum eignað-
ist hún tvo syni, Magnús lækni i
Reykjavík og Ölaf lyfsala á Húsa-
vik. Magnús ólst upp á heimili
móður sinnar og Bjarna.
Ég votta frú Agústu, börnum
hennar, tengdabörnum og barna-
börnum mina innilegustu samúð.
Með Bjarna er genginn mikill
símamaður og sérstakur persónu-
leiki, sem seint mun gleymast
þeim, er honum kynntust.
Blessuð sé minning Bjarna For-
berg.
Golfklúbbur
Reykjavíkur
t
Þökkum auðsýnda samúð við útför og jarðarför,
SIGURÐAR BJARGMUNDSSONAR,
trésmiðs, Bústaðavegi 95.
Björn J. Sigurðsson.
Eybjörg Sigurðardóttir, GeirJ. Geirsson.
Dagbjört Sigurðardóttir. Kjartan Guðmundsson.
Erna S. Sigurðardóttir, Pétur Kjartansson,
barnabörn og barnabamabörn.
Hafsteinn Þorsteinsson.