Morgunblaðið - 08.02.1978, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRUAR 1978
5
Smá athugasemd
frá Páli Líndal
Mbl. barst f gær eftirfarandi
athugasemd frá Páli Lfndal:
Ég hafði satt að segja vonað, að
með greinargerð minni, sem birt-
ist í blaðinu í gær, væri lokið af
minni hálfu heldur óskemmtileg-
um ritstörfum varðandi mál, sem
mér og mínum nánustu hefur ver-
ið velt upp úr síðastliðna tæpa tvo
mánuði.
I morgun kl. 11.00 barst mér
einkabréf frá Jóni G. Tómassyni
skrifstofustjóra borgarstjórnar,
þar sem hann segir, að fréttatil-
kynningin ásamt allri syrpunni
um mig, sem birtist I blöðunum
s.l. laugardag, hafi átt að boðsend-
ast mér „með hraði“ eftir að borg-
arráðsfundi lauk kl. 15.00 s.l.
föstudag. Hafi þessi gögn verið
látin í póstlúgu heima hjá mér kl.
16.05 eða því sem næst, „þar sem
hringingu var ekki svarað".
Tengdamóðir mín, Hulda A. Stef-
ánsdóttir, var heima á þessum
tíma og varð einskis vör, fyrr en
rétt fyrir kl. 17.00, en einmitt þá
kom ég heim frá starfi mínu.
Ég brá því við skjótt og gekk frá
kærunni á borgarendurskoðanda
og fleiri, sem fóru í læstar hirzlur
mínar og kom henni í blöðin milli
kl. 19.00—20.00. í þeim leiðangri
sá ég alla syrpuna, ásamt bréfi
undirrituðu af Jöni. Ég spurði,
hvenær þetta hefði komið og var
mér svarað, að það hefði verið
upp úr þrjú.
Ut frá þessu og reynslu af ýmsu
fólki, sem ég hef algerlega treyst
hingað til, taldi ég, að Jón G.
Tómasson hefði staðið fyrir ákaf-
lega ódrengilegu atferli gagnvart
mér að þessu leyti.
Vegna gamallar vináttu og ára-
tugar samstarfs, féll mér þetta
sérstaklega illa.
Ég hef hins vegar ekki þá
reynslu af Jóni, að ég telji rétt að
útmála hann ódrengilegan mann i
þessu efni, eftir að bréfleg skýr-
ing hans liggur fyrir. Mér sýnist,
að hér sé frekar um að ræða mis-
tök í útsendingu.
Þvi vona ég, að lesendur meti
Jón G. Tómassyni þetta ekki til
ámælis. Það væri mér vissulega á
móti skapi.
Allt annað, sem í greinargerð-
inni segir, stendur óhaggað, að
því er ég tel eftir beztu samvizku.
Ritvilla var í handriti mínu,
sem mátti misskilja. Ljósrit af
'bréfi Þorkels Valdimarssonar
fékk ég hjá Ulfari Þormóðssyni
blaðamanni eins og áritun á ljós-
riti bar með með sér, en þau ljós-
rit fóru til allra blaðanna.
Ritstörfum mínum um þetta
„mál“ er hér með algerlega lokið,
nema eitthvað alveg sérstakt til-
efni skapist.
Reykjavík, 7. febrúar 1978.
Páll Líndal.
Trúin í stöð-
ugri þróun
segir R. Mohajer, persneskur Bahaí-maður
AÐ UNDANFORNU hefur
verið staddur hér á landi
persneskur læknir dr. R.
Mohajer, en hann er Bahaí
maður og er á ferð um ýmis
lönd og heimsækir sam-
félög Bahaí-manna. Dr.
Mohajer gegnir embætti
sem kallað er „hönd mál-
staðar Guðs" en alls eru 27
slík embætti innan Bahai-
hreyfingarinnar. Á fundi
með fréttamönnum fyrir
stuttu rakti dr. Mohajer til-
gang heimsóknar sinnar
hingað til lands:
— ð undanförnu hef ég
verið á ferð víða um heim til
að heimsækja gamfélög
Bahaí-manna Er það m.a. í
þeim tilgangi að ræða um
starfið á viðkomandi stað,
Dr. R. Mohajer persneskur laeknir,
sem heimsótti Bahaí-menn hér-
lendis fyrir stuttu.
ræða við ráðamenn og fjöl-
miðla, blöð, útvarp, til að
koma á framfæri boðskap
Bahaullah, en hann var pers-
neskur spámaður sem boðaði
einingu allra trúarbragða.
Hann kom fram á árinu
1863 og nú hefur Bahaí náð
útbreíðslu mjög víða um
heim, aðallega í Asíu, Suður-
og Norður-Ameríku. Einnig
er hún mjög útbreidd í
Persíu, en þar hefur hún hins
vegar verið bönnuð Ekki get
ég sagt til um hversu margir
áhangendur Bahaullah eru
nú en þeir skipta allmörgum
milljónum i heiminum öllum.
A fundinum voru einnig
Halldór Þorgeirsson og Eð-
varð Jónsson en þeir eru
báðir meðlimir svonefnds
þjóðráðs Bahaí á íslandi, sem
er ráð 9 manna er hefur með
höndum skipulagningu
starfsins. Sögðu þeir að
Bahaí ætti hér um 140
áhangendur
Dr. Mohajer sagði að Baha-
ullah hefði boðað að allir
ættu að sameinast, sem fyrr
segir, og gætu menn allra
trúflokka tekið þátt í starfi og
verið með Bahaí-
samfélaginu. Öll jörðin væri
eitt land og menn ættu ekki
að láta tungumál og deilur
skilja sig að, allir væru grein-
ar á sama trénu. Þá sagði dr.
Mohajer að spámaðurinn
Bahaullah væri ekki hinn sið-
asti sem fram ætti að koma,
það kæmu fleiri á eftir, trúin
væri i stöðugri þróun og mót-
un, og sú þróun tæki langan
tima.
Útsala Torgsins
aðeins þessa viku
í Iðnaðarmannahúsinu
Hallveigarstíg 1
ÚTSALAN STENDUR
AÐEINS EINA VIKU
Austurstræti 10
sími: 27211
Mikið úrval af
vör um f rá öll um
deildum Torgsins