Morgunblaðið - 28.02.1978, Qupperneq 26
34
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRUAR 1978
Sveinn Hjörleifsson
Gilhaga — Minning
Allt er hurfið, — dagur dvln,
dauðinn leiðir mig til grafar.
Allt er hljótt, og augun mín,
óljóst sjá. hvar geisli stafar.
Lof mér, guð þitt Ijós að sjá.
leið mig heim, ó, vak mér hjá!
(Guðm. Guðm.son).
Mig langar til að minnast
tengdaföður míns, Sveins, sem
svo skyndilega er horfinn sjónum.
Þótt hann væri kominn á efri ár
og heilsan nokkuð tekin að bila,
var dauðinn honum fjarlægur og
þó svo nálægur í raun — er hann
kvaddi okkur að áliðnum degi þ.
13. þ.m. og hélt austur að Selfossi
til heimkynna sinna. Hann hafði
dvalið í Reykjavík um helgina og
vitjað barna sinna, er þar bjuggu.
En á bökkum ölfusár undi
hann best — og þar var hann
sistarfandi til hinstu stundar —
og nú vildi hann ljúka þar verki
áður en sól hnigi til viðar. En
vegir guðs eru órannsakanlegir
og áður en eldaði fyrir nýjum
degi var hann allur.
Sveinn var fæddur á
Eyrarbakka h. 14. sept. 1904 og
voru foreldrar hans Hjörleifur
Hjörleifsson söðlasmiður og kona
hans Margrét Eyjólfsdóttir bæði
ættuð úr Skaftafellssýslu.
Sveinn varð ungur að taka þátt i
lifsbaráttunni, sem oft var hörð á
þeim árum. Hann sótti sjóinn og
stundaði aðra vinnu er til féll.
Stin> alærði hann múrverk ogvar
meistari í þeirri grein. A árunum
1928—29 vann hann á Laugar-
vatni við bygginu skólahúss, þar
var þá við nám Elin Arndís
Sigurðardóttir frá Vatnsleysu í
Biskupstungum, þau felldu hugi
saman og ást kviknaði er varði á
meðan bæði lifðu. Frá þessum
æskudögum hefur Sveinn eflaust
átt margar sínar sælustu minning-
ar, og þar átti hann hvítan gæðing
sem var nú ekki svo lítill hluti
kærra minninga en alla tíð átti
Sveinn hesta og naut samskipta
við þá.
— Um góð verk-
föll og vond
Framhald af bls. 19
bótum setur jafnframt á markað
visitölutryggð skuldabréf. Hér
birtist ljóslega mismunandi af-
staða til dauðra fjármuna og lif-
andi vinnuafls.
Réttur fjármagnsins setturofar
þörfum lifandi fólks. Þeim sem
eru aflögufærir umfram daglegar
þaríir tryggður fullur verðbóta-
réttur eigna sinna en hlutur hins
vinnandi manns skertur að mun.
Við viljum ei una því að vera
sett skör lægra.
A Alþingishátiðinni á Þingvöll-
um 1930 giftu þau Sveinn og Elín
sig, en þar voru þau bæði við
störf. Sveinn vann þar við lög-
gæslu og vakti nær samfleytt i
þrjá sólarhringa, þar var mikil
rigning og eftir þá vosbúð veiktist
hann af lungnabólgu en Elín
vakti yfir honum þar til lífs-
löngunin hafði sigrað. Þannig
voru hveitidrauðsdagar þessarra
ungu hjóna og þannig urðu
búskaparár þeirra, skin og skúrir,
eins og hjá öllum mannanna börn-
um.
Þau hófu búskap í Bræðra-
tungu og seinna að Drumbodds-
stöðum i Biskupstungum og þar
fæddust elstu börnin. En árið
1937 fluttu þau niður að ölfusá
þar sem þéttbýliskjarninn Selfoss
var þá að myndast. Sveinn tók
virkan þátt í uppbyggingu staðar-
ins, en í hjarta sínu var hann
alltaf bóndi og ætíð átti hann
hesta og kindur sem hann annað-
ist af alúð. Vinnudagur varð oft
langur því hinar ljósu sumarnæt-
ur eru bjartar og sá sem er ungur
gleymir þreytunni þegar áhuginn
er ríkur og margs er þörf þegar
fjölskyldan er stór. Sveinn og
Elin eignuðust sjö börn og barna-
börnin eru orðin fjórtán.
Börn þeirra eru: Margrét, versl-
unarkona, búsett í Reykjavík. Sig-
ríður búsett á Selfossi, maki Lár-
us Jóhannsson bílasmiður, Sig-
urður bifreiðarstjóri í Reykjavík,
maki undirrituð. Elias landbúnað-
arhagfræðingur búsettur í Upp-
sala, maki Yvonnie Tidbech.
Hilmar húsasmiður á Selfossi
kvæntur Gyðu Gunnarsdóttur, og
Svanhildur búsett í Hafnarfirði
gift Steini Þorgeirssyni tækni-
fræðingi.
Eina dóttur, Ingigerði, misstu
Sveinn og Elín á öðru ári.
Sveinn lét börn sín ekki alast
upp í iðjuleysi og snemma fóru
þau að hjálpa til við að afla heim-
ilinu tekna á einn eða annan hátt.
Án vinnu — engín verðmæti.
Réttur til handa þeim er selja
vinnuafl sitt eigi siðri en þeirra er
hirða afrakstur vinnunnar.
— Hjalti Geir
Framhald af bls. 1.
15. Gunnar Asgeirsson, heild-
verslun h.f., 16. Haljdór Jónsson,
Steypustöðin, 17. Þorvaldur
Guðmundsson, Síld & Fiskur,
18. Otto Schopka, Kassagerð
Reykjavíkur, 19. Pétur O.
Nikulásson, P.O. Nikulásson h.f.
Hjalti Geir Kristjánsson var
kjörinn formaður Verzlunarráðs
Islands til næstu 2ja ára.
Síðan uxu börnin úr grasi og
stofnuðu eigin heimili og árið
1969 missti Sveinn konu sína, er
hafði átt við langa vanheilsu að
striða. En Sveinn tók breyttum
aðstæðum með jafnaðargeði. Og
eftir að hafa búið hjá sonum sín-
um tveim í nokkur ár, reisti hann
sér nýbýli á bakka ölfusár, gegnt
Selfossi og nefndi það Gilhaga.
Var hann þá kominn fast að
sjötugu. Þar bjó hann síðustu ár
ævinnar einn síns liðs, fyrir utan
einn vetur er dótturdóttir hans
Jónina, bjó þar honum til mikillar
gleði.
Þótt þannig væru breyttir tím-
ar, hjá Sveini, frá mannmörgu
heimili, yfir í líf einbúans, var
hann í rauninni ekki einmana, því
börn hans og barnabörn á Selfossi
vöktu yfir velferð hans. Og elsta
barnabarnið Elín Arndís sá vel
um allt er að þjónustu laut.
Að leiðarlokum vil ég og fjöl-
skylda min þakka Sveini allar
góðar samverustundir, og sérstak-
lega ánægjulega samfylgd út til
Svíþjóðar og Danmerkur á liðnu
sumri, þar sem við lifðum ógleym-
anlega sólskinsdaga á heimili
sonar hans i Uppsala.
Hafi hann þökk fyrir einlægt
hjarta, hlý bros og aðstoð þegar
hennar var þörf.
Gunnlaug Úlafsdóttir.
— Indira
Framhald af bls. 1.
kommúnistar fjögur og óháðir
átta.
Stjórnmálasérfræóingar telja
að á næstu dögum muni margir
stuðningsmenn gamla Kongress-
flokksins snúa baki við honum og
ganga í Kongressflokk Indiru. Sá
möguleiki er ekki útilokaður að
flokkarnir sameinist i einn flokk
undir forystu frú Gandhi.
I fylkinu Assam hefur Janata-
flokkurinn unnið 14 sæti af 126,
gamli Kongressflokkurinn 10 og
Kongressflokkur Indiru þrjú en
aðrir flokkar sjö. I Meghalaya
hefur gamli Kongressflokkurinn
unnið 14 sæti af 60, en tveir flokk-
ar sem starfa aðeins í fylkinu
hafa fengið 12 og 11 þingsæti.
I fyikinu Maharsahtra á Vestur-
Indlandi hefur gamli Kongress-
flokkurinn fengið 18 sæti af 64,
Kongressflokkur Indiru 12 og aðr-
ir flokkar 13.
tJrslitin í Karnataka urðu þau
að Kongressflokkur Indiru hlaut
152 sæti af 224, Janata 58, óháðir
og smáflokkar níu, kommúnistar
þrjú og gamli Kongressflokkur-
inn aðeins tvö þingsæti.
— Loðnuaflinn
Framhald af bls. 19
Aflamagn á einstökum stöðum 25.
febr.
Vfkuafli heildarafli
Seyðisfjörður 11534 35897
'Siglufjörður 750 33294
Eskifjörður 10045 31419
Neskaupsstaður 4919 30755
Norglobal 5298 29115
Rau farhöfn 2829 25132
Vopnafjörður 1443 20117
Re.vðarfjörður 4129 10131
Vestmannaeyjar 7502 8405
Akure./ Krossan 6403
Hornafjörður 3948 6015
Fáskrúðsfjörður 1073 4887
Djúpivogur 2571 3674
Bolungarvík 2571 3674
Stöðvarf jörður 986 2632
Akranes — 1658
Breiðdalsvfk 485 1486
Þorlákshöfn 846 995
Reykjavfk — 335
— Begin
Framhald af bls. 1.
grundvallaryfirlýsingu um fram-
hald friðarviðræðna.
Begin afhenti Atherton endur-
skoðaða tillögu Israelsstjórnar
sem aðstoðarutanríkisráðherrann
fer með til Kaíró á morgun. Begin
sagði að ein grein í tillögum ísra-
elsmanna og Egypta væru sam-
hljóða og aðeins vissar breytingar
þyrftu að gera á nokkrum öðrum
greinum.
Einn helzti ráðunautur Begin,
Eliahu Ben-Elissar, sagði að af-
staða Egypta hefði harðnað og
hann kenndi Bandaríkjamönnum
um að hvetja Egypta til að taka
harðari afstöðu. Egyptar segja
einnig að afstaða Israelsmanna
hafi harðnað.
Atherton sagði fréttamönnum
að hann væri ekki með nýjar
bandarískar tillögur meðferðis og
bæri aðeins skilaboð á milli
Egypta og Israelsmanna.
Jafnframt herma fréttir að Dav-
id Owen, utanríkisráðherra Breta,
hafi sagt Israelsmönnum þegar
hann kom frá Jórdaniu í gær að
Hussein konungur héldi opnum
þeim möguleika að taka þátt í
friðarviðræðum síðar meir. Isra-
elsmenn telja þátttöku Jórdaníu-
manna nauðsynlega í friðarvið-
ræðunum og eru sannfærðir um
að Egyptar neiti að komast að
samkomulagi nema Jórdaníu-
menn setjist að samningaborðinu.
Owen mun hafa sagt Moshe
Dayan utanríkisráðherra að Isra-
elsmenn verði að reyna að fá
Hussein til að taka þátt í viðræð-
unum með því að gera honum
eitthvert freistandi tilboð. Begin
hefur verið mikið kappsmál að fá
Breta til að taka þátt í friðartil-
raununum.
Kunnugir telja að nokkur ár-
angur muni sjást af ferð Ather-
tons fyrr en Begin fer til
Washington til viðræðna við Cart-
er forseta. Tilkynnt var í
Washington i dag að Begin færi
til Washington 13. marz og yrði
þar til 16. marz.
I Kaíró sagði Ibrahim Kamel
utanríkisráðherra blaðamönnum
í dag að tsraelsmenn torvelduðu
friðartilraunir með þeirri ákvörð-
un að viðhalda ísraelskri byggð á
herteknu svæðunum og sakaði
Israelsmenn um að bregðast ekki
jákvætt við frumkvæði Sadats.
— Nokkrir
þættir
Framhald af bls. 15
Seðlabankanum batnaði lausa-
fjárstaða flestra innlánsstofnana
afar mikið, einkum á fyrstu mán-
uðum áfsins, og í desember. Út-
lánagetan var því mun meiri en
upphaflega var reiknað með og er
ljóst að innlánsstofnanir hafa lát-
ið undan þeim eftirspurnarþrýst-
ingi sem að þeim steðjaði, því
almenn útlán viðskiptabanka
hækkuðu um 34,9% og sparisjóða
um 39,1%, en stefnt var að því, að
þessi lán ykjust ekki um meira en
20% á árinu. Við þetta bættust
endurseld lán, sem áður er getið,
og nam aukning heildarútlána
innlánsstofnana 42,2% samanbor-
ið við 26,2% árið 1976. A móti
kemur að þróun innlána og lausa-
fjárstöðu varð hagstæðari en
undanfarin ár. Lausafjárstaða
batnaði um 3.145 m. kr. hjá inn-
lánsstofnunum I heild en árið
1976 nam batinn 518 m. kr.
Heildarinnlán innlánsstofnana
jukust um 42,9% samanborið við
32,8% árið 1976. Aukningin var
að langmestu leyti i formi spari-
innlána sem jukust um 42,4% en
höfðu aukist um 36% árið áður.
Svo sem 1. línurit (bls. 6) sýnir
var aukning spariinnlána mikil á
fyrstu mánuðum ársins. A tíma-
bilinu apríl til ágúst minnkaði
hún hins vegar stig af stigi, en
hækkaði svo aftur eftir það. Þetta
bendir til þess, að vaxtabreyting-
ar hafi haft jákvæð áhrif, en svo
sem kunnugt er hækkuðu vextir á
vaxtaaukainnlánum um 3% þann
1. ágúst sl. og 21. nóvember hækk-
uðu vextir á spariinnlánum og
öllum tegundum útlána um 3%.
Heildarinnlán að viðbættum seðl-
um og mynt í umferð, þ.e. pen-
ingamagn og sparifjáreign, jukust
um 43,1% árið 1977, en 32,6%
árið 1976.
Fjárfestingar-
lánasjóðir
Nýjar lánveitingar fjárfesting-
arlánasjóðanna námu skv. bráða-
birgðauppgjöri 20.978 m. kr. til
samanburðar við 18.295 m. kr.
skv. lánsfjáráætlun. Miðað við
fyrra ár nam aukning útlánanna
40,6% á móti 21,6% skv. áætlun.
Að næstum helmingi var aukning-
in umfram áætlun fjármögnuð af
auknu eigin fjármagni úr rekstri
sjóðanna, sem er árangur raun-
hæfari lánskjara, en að öðru leyti
með sjálfkrafa aukningu mark-
aðra tekjustofna, skyldusparnað-
ar og lána bankakerfisins.
— Tónlist
Framhald af bls. 13.
ötu eftir Vivaldi. Camilla
Söderberg hefur nú um nokk-
urt skeið haldið flaututónleika
og má mikið vera ef framlag
hennar á ekki eftir að hafa'
áhrif á íslenska tónlistarsögu.
Yfir leik hennar er sérstæður
þokki og ef svo heldur sem
horfir, er hún verðandi „virtú-
ós“ á þetta mjög svo misskilda
og erfiða hljóðfæri. Helga
Ingólfsdóttir stóð fyrir sínu og
Lovisa Fjeldsted, sem nýlokið
hefur námi frá Tónlistarskólan-
um í Reykjavík, lék sinn „basso
continue" af smekkvísi og
þokka.
fyrst og fremst beinst að þvi að rannsaka
sögu kirkjubygginganna.
Krogh sagði að frekari uppgröftur og
nánari rannsóknir myndu eflaust leiða í
ljós að hér væri um gröf Gorms gamla og
Þyry Danabótar að ræða.
Þór Magnússon þjóðminjavörður sagði
í samtali við Mbl. í gær að full ástæða
væri til að telja fund þennan mjög mark-
verð tíðindi, Knud Krogh væri virtur
fornleifafræðingur, arkitekt og kirkju-
byggingafræðingur. Þá sagði Þór, sem
heimsótti Jalangur s.l. sumar að staður-
inn væri fræðimönnum mikil ráðgáta.
Margar hugmyndir hefðu komið fram
um minnismerki þar, en Jalangur á Suð-
ur-Jótlandi er fyrsti höfuðstaður danska
ríkisins.
— Gröf Gorms
Framhald af bls. 1.
unum heiðnu eftir að hann sjálfur tók
kristni.
Krogh sagði enn fremur að allt benti
til þess að fyrsta kirkjan hefði verið reist
sem grafhýsi fyrir Gorm og Þyry. Sagði
Krfurbikarinn, sem fannst í öðrum graf-
hauganna árið 1820. Þá benti Krogh á
það að beinin lægju á víð og dreif í
gröfinni, sem sýndi að þetta væri ekki
fyrsti legstaður þeírra.
Hingað til hefur aðeins einn þriðji
hluti kirkjugrunnsins verið rannsakað-
ur, en hann er þrjú hundruð fermetrar
að flatarmáli og hefur uppgröfturinn
radauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar
Sölubúð með bakherbergi
til leigu hentug fyrir verzlun, iðnað ofl.
Sími 1 5275.
Skrifstofuhúsnæði
þriflegur iðnaður
Til leigu er í verzlunarhúsi við Háaleitis-
braut um 65 ferm. húsnæði á 2. hæð
ásamt snyrtiherb. Hentugt fyrir skrifstofur
eða þriflegan iðnað. Upplýsingar í síma
3 1 380 daglega frá kl. 9 — 6.
Til leigu
Til leigu 3ja herb. íbúð í litlu fjölbýlishúsi
í vesturbænum. íbúðin er á 2. hæð 85
fm. Sjálfvirkar vélar í þvottahúsi. íbúðin
er laus nú þegar og leigist til lengri tíma.
Tilboð sendist Mbl. með upplýsingum um
fjölskyldustærð' og leigu fyrir 4. marz
merkt: „Laus strax — 923".