Morgunblaðið - 11.03.1978, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. MARZ 1978
Valþór missti af
markaðssölu í Hull
VALÞÓR frá Siglufirði seldi
í gær í Hull fyrstur ís-
lenzkra báta í 16 mánuði, 67
tonn af fiski fyrir tæpar 14
millj. kr. Meðalverð var um
210 kr. á kg en reiknað hafði
verið með um 250 kr. á kg.
Vegna bilunar varð Valþór
að fara inn til Færeyja í
viðgerð og á leiðinni frá
Færeyjum til Hull lenti
báturinn í vondu veðri og
tepptist þannig að hann náði
ekki til hafnar í Hull fyrr en
á morgunflóðinu í gærmorg-
un og misstu skipverjar því
af sölu fiskmarkaðnum.
Fyrirtækið Bird Eyes keypti
hins vegar allan aflann og
gekk löndun eðlilega fyrir
Landað úr Valþór í IIulI í jja'r.
sig í alla staði. Skipstjóri á
Valþóri er Númi
Jóhannsson.
Næsta markaðssala er ekki fyrr
en á mánudag og vegna þeirra tafa
sem Valþór hafði orðið fyrir þótti
ekki fært að geyma aflann lengur
vegna hættu á skemmdum.
Fiskkælitank-
ar settir upp
á Húsavík
Fiskiðjusamlag Húsavíkur cr
nú að undirhúa notkun á tönkum
til kælingar á fiski. Tryggvi
Finnsson framkvæmdastjóri
Fiskiðjusamlagsins sagði í sam-
tali við Mbl. í gær að hér væri um
að ræða tvo 30 tonna tanka til
þess að geyma óslægðan fisk í. en
fiskurinn er geymdur í 0 gráðu
heitu vatni með salti í og jafnvel
aðeins kaldara. Tryggvi sagði að
það væri gömul aðferð að geyma
fisk á þennan hátt. en hins vegar
hefðu ávallt verið vandræði með
að tæma tankana. Norðmenn
heíðu nú fundið lausn á því máli
og þá hugmynd kaupir Fiskiðju-
samlagið frá Noregi. Tæming fer
fram með þeim hætti að lofti er
dælt inn í tankana þannig að
straumur myndast í þeim og
flytur fiskinn að færihandi til
vinnslu.
Tryggi sagði að þeir hefðu
haldið að þeir væru með besta
hráefni í heimi þar sem var
Framhald á bls. 26
Olíusamningurinn
bætir vöruskipta-
jöfnuð við Portúgal
EINS OG sagt var frá í
Morgunblaðinu í gær hefur
viðskiptaráðuneytið gert
kaupsamning við Portúgal
um kaup á 35 þús. tonnum
af gasolíu og 7. þús. tonnum
af bensíni fyrir u.þ.b. 1300
millj. kr. Vöruskiptajöfnuð-
urinn milli Islendinga og
Portúgal hefur verið mjög
óhagstæður Portúgölum um
árabil þar sem þeir hafa
keypt saltfisk fyrir millj-
arða króna, en Islendingar
hafa hins vegar aðeins
keypt fyrir nokkur hundruð
millj. kr. á ári frá Portúgal.
Árið 1977 fluttu íslendingar út
til Portúgal fyrir 5719 milljónir
króna, en innflutningur til Islands
frá Portúgal var fyrir 343 millj. kr.
Árið 1976 var flutt út til Portúgals
fyrir 7602 millj. kr. en inn fyrir
269 millj. kr.
Á árinu 1977 voru flutt inn til
Islands alls 322 þús. tonn af
gasolíu og þar af voru 233 þús.
tonn frá Sovétríkjunum.
Allt bílabensín var flutt inn frá
Sovétríkjunum s.l. ár, alls 78 þús
tonn.
Á undanförnum árum hafa
Islendingar ke.vpt vefnaðarvörur,
vín og fleira frá Portúgal fyrir
200—300 millj. kr. á ári, en nú er
útlit fyrir að sú upphæð hækki upp
í a.m.k. 1500—1600 millj. kr.
Sjálfstæðismenn
í Fólkvangi
AÐALFUNDUR í kjördæmisráði
Sjálfstæðisflokksins í Reykjanes-
kjördæmi verður haldinn næst-
komandi laugardag 18. marz að
Fólkvangi á Kjalarnesi kl. 14.
Fundarefni verða venjuleg aðal-
fundarstörf og gengið verður frá
framboðslista sjálfstæðismanna
fyrir komandi alþingiskosningar.
Slæmar horfur með loðnufrystingu:
bessar myndir tók Sigurgeir í Eyjum í gærdag þegar verið var
að landa loðnuhrognum. en efri myndin sýnir^ þar _sem
loðnuskiljararnir eru að skilja loðnu úr Víkingi og sjómennirnir
fylgjast með hvort allt sé í lagi. Um 30 tonn af loðnuhrognum
fengust úr 1000 tonnum hjá Víkingi og er verðmæti
loðnuhrognanna um 1 millj. kr. Neðri myndin sýnir þar sem
japanskur eftirlitsmaður er að kanna gæði hrognanna og ein af
stúlkunum á stiiðinni fylgist með.
Vignir Þor-
bjömsson varð
efstur á Höfn
Ntl LIGGJA fyrir úrslit í próf-
kjöri sjálfstæðismanna á Höfn í
Hornafirði vegna komandi
hreppsnefndarkosninga. Úrslitin
urðu þessi>
Atkvæði
1. Vignir Þorbjörnsson 230
2. Albert Eymundsson 197
3. Árni Stefánsson 172
4. Unnsteinn Guðmundss. 154
5. Ingólfur Waage 154
Alls kusu 293, þar af voru 46
atkvæði auð og ógild.
Prófkjör sjálf-
stæðismanna
í Hafnarfirði
FULLTRÚARÁÐ sjálfstæðisfélag-
anna í Hafnarfirði hefur ákveðið
að viðhaft skuli prófkjör vegna
væntanlegra bæjarstjórnarkosn-
inga.
Kjörnefnd hefur verið skipuð og
vinnur hún nú að skipulagningu
prófkjörsins.
Samkvæmt reglum fulltrúaráðs-
ins um prófkjör er meðlimum
sjálfstæðisfélaganna 16 ára og
eldri heimilt að gera tillögur um
prófkjörsframbjóðanda. Skal slík
tillaga því aðeins gild, að hún sé
bundin við einn mann og undirrit-
uð af minnst 15 félagsbundnum
sjálfstæðismönnum.
Tillögum skal komið til for-
manns kjörnefndar, Jóns Kr.
Jóhannessonar, Reykjavíkurvegi
38, í síðasta lagi kl. 21.00 n.k.
þriðjudag 14. þ.m.
Hlaut styrk úr
Leiklistarsjóði
Brynjólfs
Jóhannessonar
TILKYNNT hefur verið um
styrkyeitingu úr leiklistarsjóði
Brynjólfs Jóhannessonar. en
stvrkinn hlaut að þessu sinni
Randver Þorláksson leikari.
Styrkupphæðin var 325 þúsund
krónur og var styrkurinn afhent-
ur á heimili frú Guðnýjar Helga-
dóttur. ekkju Brynjólfs Jóhannes-
sonar. að viðstaddri stjórn leik-
listarsjóðsins.
Valur Gíslason form. sjóðs-
stjórnarinnar greindi á aðalfundi
Félags ísl. leikara frá styrkveit-
ingunni, en tilgangur sjóðsins er
að st.vrkja unga og efnilega leikara
Framhald á bls. 26
Aðeins fryst upp í
brot af samningum
—en hrognafrysting er 1 fullum gangi
ALLT útlit er fyrir að
frysting loðnu á Japans-
markað verði ekki nema
brot af því sem áætlað hafði
verið og ekki takist að
frysta nema upp í hluta af
þeim samningum, sem búið
var að gera við Japani.
Betra útlit er með frystingu
loðnuhrogna og hófst hún
t.d. af fullum krafti í gær í
Vestmannaeyjum.
Að sögn Hjalta Einarsson-
ar framkvæmdastjóra hjá
Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna hefur langmest af
loðnunni verið fryst í frysti-
húsum suðvestanlands und-
anfarin ár. Þau hafa verið
tilbúin til loðnufrystingar
síðan um miðjan febrúar s.l.
en loðnugöngurnar hafa ver-
ið svo hægfara að ekki hefur
reynzt unnt að flytja loðnuna
alla leið frá miðunum útaf
Stokksnesi til hafna á
Reykjanesi og í Faxaflóa.
Einnig hefur verið mikið af
smælki í loðnunni og töluvert
af átu sem hefur spillt fyrir
við frystingu. Hins vegar er
hrognafylling stærri loðn-
unnar góð og hún orðin hæf
til frystingar og hrognin eru
orðin nógu þroskuð til fryst-
ingar á Japansmarkað.
I frystihúsum SH suðaust-
anlands er búið að frysta 50
tonn af loðnu samkvæmt
upplýsingum Hjalta Einars-
sonar en í frystihúsum Sam-
bandsins er búið að frysta
um 30 tonn samkvæmt upp-
lýsingum Ólafs Jónssonar
framkvæmdastjóra. SH gerði
samninga um sölu á 3000
tonnum af frystri loðnu til
Japans og Sambandið gerði
samninga um 2000 tonn en
Japanir höfðu áhuga á að
kaupa mun meira magn.
Hins vegar er útlitið þannig
að sögn Hjalta og Ólafs að
varla tekst að frysta upp í
nema brot af samningnum.