Morgunblaðið - 11.03.1978, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. MARZ 1978
7
Stjórnlaust
rekald
Alþýðuílokkurinn er
um þessar mundir
stjórnlaust rekald.
Fæstum hefði dottið í
huK, að vegur flokksins
gæti enn minnkað frá
því, sem verið hefur
undanfarin ár, en því
virðast í raun engin
takmörk sett, hve langt
flokkurinn kemst í
þcim efnum. Alþýðu-
flokkurinn hugðist
taka forystu í baráttu
verkalýðshreyfingarinnar
gegn efnahagsaðgerð-
um ríkisstjórnarinnar.
Sú tilraun Alþýðu-
flokksins til frumkvæð-
. is fór út um þúfur.
I Tveir helztu forystu-
| menn flokksins. þeir
l Benedikt Gröndal og
Gylfi Þ. Gíslason, lentu
í hár saman út af
ólöglegum verkfallsað-
gerðum verkaiýðsfé-
laga um síðustu mán-
aðamót. Benedikt Grön-
dal lýsti hér í Morgun-
blaðinu yfir eindregn-
um stuðningi Alþýðú-
flokksins við þær að-
gerðir. en kvaðst leiða
hjá sér spurninguna um
það, hvort þær aðgerðir
væru brot á lögum.
Hvernig getur formað-
ur stjórnmálaflokks,
sem vill láta taka sig
alvarlega „leitt hjá sér“
að taka afstöðu til stór-
felldra lögbrota fjöl-
mennra almannasam-
taka? Jafn fróðlegt var
að fylgjast með því
hvernig Benedikt Grön-
dal sjálfur, sem opinber
starfsmaður tók þátt í
verkfallsaðgerðum.
Hann mætti til vinnu en
fór svo úr vinnu. Eftir
stendur að formaður
Alþýðuflokksins tók
þátt í ólöglegum verk-
fallsaðgerðum með
minnihluta launþega í
landinu.
Gylíi Þ. Gíslason lýsti
því hins vegar yfir í
viðtali við Morgunblað-
ið. að verkalýðssamtök-
in ættu að heyja baráttu
si'na innan ramma lag-
anna. Gylfi hefur gegnt
slíkum ábyrgðarstöðum
í samfélagi okkar, að
hann gat ekki tekið
aðra afstöðu. Engu að
síður sýndi afstaða
Gylfa. að óeining ríkti
innan Alþýðuflokksins
um afstöðuna til
þessara ólöglegu verk-
fallsaðgerða. Benedikt
togaði í eina átt en
Gylfi í aðra. Þess vegna
er Alþýðuflokkurinn
stjórnlaust rekald.
Afstaða,
sem vekur
eftirtekt
Gylfi Þ. Gíslason læt-
ur af þingmennsku í
vor. Benedikt Gröndal
hefur tekið við forystu
Alþýðuflokksins og
slær tóninn. Alþýðu-
flokkurinn á sér merka
sögu. Hvað cftir annað
hefur lýðræðissinnað
fólk komið til stuðnings
við Alþýðuflokkinn
vegna þess. að það hef-
ur talið. að hann væri
ein af kjölfestum okkar
þjóðfélags og styrkur
hans væri nokkur
trygging fyrir því. að
sæmilegt jafnvægi ríkti
á vettvangi stjórnmál-
anna. Alþýðuflokkur
inn stóð í 13 ár að
ríkisstjórn. sem vann
merkilegt umbótastarf
og tryggði slíkt jafn-
vægi. Þetta sama fólk
mun vafalaust hugsa
sig um tvisvar áður en
það veitir Alþýðu-
flokknum stuðning
sinn nú. þegar það sér,
að hann er ekki sú
kjölfesta sem hann var.
heldur stjórnlaust
rekald. Lýðraeðissinnað
fólk. sem vill standa
traustan vörð um utan-
ríkisstefnu íslands.
aðild landsins að At-
lantshafs bandalaginu
og varnarsamninginn
við Bandaríkin hlýtur
að hugsa sig um tvisvar
áður en það veitir Al-
þýðuflokknum stuðn-
ing nú. þegar það sér
hvernig hann feykist til
eftir því. sem vindurinn
blæs hverju sinni. Lýð-
ræðissinnað fólk, sem
heíur litið á Alþýðu-
flokkinn sem jákvætt
umbðtaafl. hlýtur að
hugsa sig um tvisvar
áður en það veitir þeim
flokki stuðning nú. þeg-
ar formaður hans tekur
undir með þeim þjóðfé-
lagsöflum. sem vilja
okkar lýðræðislega
þjóðfélag feigt. Menn
verða að hafa kjark og
þor til að standa við
sannfæringu sína. Það
þor og þann kjark hef-
ur Alþýðuflokkurinn
haft í gcgnum árin —
en síðustu atburðir
vekja upp spurningar
um það. hvort þrekið sé
að bresta.
iMtáóur
á morgun
DÓMKIRKJAN Messa kl. 11 árd.
Ljóöakórinn syngur m.a. Máríubæn
eftir dr. Pál ísólfsson og Faðirvoriö
eftir Malotte. Organisti Gústaf
Jóhannesson. Séra Þórir Stephen-
sen. Föstumessa kl. 2 síöd. Séra
Hjalti Guðmundsson.
LANDAKOTSSPÍTALI Messa kl. 10
árd. Séra Hjalti Guömundsson.
ÁRBÆJARPRESTAKALL
Barnasamkoma í Árbæjarskóla kl.
10:30 árd. Síödegismessa fellur
niöur vegna flutnings á orgeli. Séra
Guðmundur Þorsteinsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL:
Barnasamkoma í Ölduselsskóla
laugardag kl. 10:30. Barnasamkoma
í Breiöholtsskóla sunnud. kl. 11.
Föstuguðsþjónusta í Breiöholts-
skóla sunnud. kl. 2. Séra Lárus
Halldórsson.
BÚSTAÐAKIRKJA Barnasamkoma
kl. 11. Guösþjónusta kl. 2, séra
Jónas Gíslason predikar. Kaffi og
umræður eftir messu. Séra Ólafur
Skúlason.
DIGRANESPRESTAKALL
Barnasamkoma í safnaöarheimilinu
viö Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjón-
usta í Kópavogskirkju kl. 2. Séra
Þorbergur Kristjánsson.
FELLA- og Hólaprestakall
Barnasamkoma í Fellaskóla kl. 11
árd. Guðsþjónusta í safnaöarheimil-
inu aö Keilufelli 1 kl. 2 síöd. Séra
Hreinn Hjartarson.
GRENSÁSKIRKJA Barnasamkoma
kl. 11. Guösþjónusta kl. 2, organ-
leikari Jón G. Þórarinsson. Séra
Halldór S. Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA Messa kl. 11.
Messa kl. 2. Dagur eldra fólksins.
Lesmessa n.k. þriðjudag kl. 10:30
árd. Beðiö fyrir sjúkum. Séra
Ragnar Fjalar Lárusson. Landspítal-
inn: Messa kl. 10 árd. Séra Ragnar
Fjalar Lárusson.
HÁTEIGSKIRKJA
Barnaguösþjónusta kl. 11 árd. Séra
Arngrímur Jónsson. Guösþjónusta
kl. 2. Séra Tómas Sveinsson.
Tónleikar kl. 5 síöd.
KÁRSNESPRESTAKALL
Barnasamkoma í Kársnesskóla kl.
11 árd. Messan sem vera átti kl. 11
í Kópavogskirkju fellur niöur vegna
veikinda. Séra Árni Pálsson.
LANGHOLTSPREST AK ALL
Minnumst í dag 25 ára afmælis
kvenfélagsins. Barnasamk. kl.
10:30. Séra Árelíus Níelsson. Guðs-
þjónusta kl. 2. Ræðuefni: „Konan
með fjöregg heimsins í fangi". í stól
sr. Sig. Haukur Guöjónsson, viö
orgelið Helgi Þorláksson, skóla-
stjóri. Safnaðarstjórn.
LAUGARNESKIRKJA
Barnaguösþjónusta kl. 11. Messa
kl. 2. Sóknarprestur.
NESKIRKJA Barnasamk. kl. 10:30
árd. Guösþjónusta kl. 2 e.h. Bæna-
guðsþjónusta kl. 5 síðd. Séra
Guðm. Óskar Ólafsson.
FÍLADELFÍUKIRKJAN
Safnaðarguðsþjónusta kl. 2 síöd.
Almenn guösþjónusta kl. 8 síðd.
Einar J. Gíslason.
AÐVENTKIRKJAN Reykjavík
Biblíukynning kl. 5 síöd. Siguröur
Bjarnason.
FRÍKIRKJAN Reykjavik
Barnasamkoma kl. 10:30 árd. Guöni
Gunnarsson. Messa kl. 2 síöd.
Aðalsafnaðarfundur kl. 3 síðd. Séra
Þorsteinn Björnsson.
SELTJARNARNESSÓKN
Barnaguðsþjónusta í félagsheimil-
inu kl. 11 árd. Séra Frank M.
Halldórsson.
KIRKJA óháöa safnaöarins.
Messa kl. 2 síöd. Séra Emil
Björnsson.
DOMKIRKJA Krists Konungs
Landakoti Lágmessa kl. 8.30 árd.
Hámessa kl. 10:30 árd. Lágmessa
kl. 2 síöd. Alla virka daga er
lágmessa kl. 6 síðd., nema á
laugardögum þá kl. 2 síðd.
GRUND Elli- og hjúkrunarheimiliö
Messa kl. 10 árd. Séra Lárus
Halldórsson.
ÁSPRESTAKALL Kirkjudagur —
Fjáröflunardagur. — Messa kl. 2
síðd. að Norðurbrún 1. Kaffisala.
Kirkjukór Hvalsneskirkju kemur í
heimsókn og syngur undir stjórn
Þorsteins Gunnarssonar. Séra
Grímur Grímsson.
GUOSPJALL DAGSINS:
Lúk. 1:
Gabriel engill sendur.
LITUR DAGSINS:
Fjólublár. Litur iörunar og
yfirbótar.
HJÁLPRÆDISHERINN
Helgunarsamkoma kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl. 2 síðd. Hjálp-
ræöissamkoma kl. 8.30 siöd.
Lautinant Evju.
SUNNUDAGASKÓLI K.F.U.M.
Amtmannsstig 2 b — fyrir öll börn
kl. 10:30 árd.
FÆREYSKA Sjómannaheimilið
Samkoma í heimilinu kl. 5 síöd.
GARDASÓKN Barnasamkoma í
skólasalnum kl. 11 árd. Séra Bragi
Friöriksson.
KAPELLA St. Jósefssystra í Garða-
bæ Hámessa kl. 2 síðd.
HAFNARFJARÐARKIRKJA
Barnasamkoma kl. 11 árd. Guðs-
þjónusta kl. 2 síðd. — Kvöldvaka kl.
8.30 síöd. Þátttöku fermingarbarna
og forráðamanna þeirra sérstaklega
vænst. Bænastund n.k. þriðjudags-
kvöld kl. 20.30. Séra Gunnþór
Ingason.
FRÍKIRKJAN Hafnarfiröí
Barnasamkoma kl. 10:30 árd. Safn-
aðarprestur.
VÍDISTAÐASÓKN Barnasamkoma
kl. 11 árd. Almenn guðsþjónusta kl.
2 síöd. í Hrafnistu. Séra Sigurður H
Guðmundsson.
KÁLFATJARNARKIRKJA
Guösþjónusta kl. 2 síöd. Séra Bragi
Friöriksson.
N JARÐVÍKURPREST AK ALL
Sunnudagaskóli í Stapa kl. 11 árd.
og i safnaöarheimilinu í Innri-Njarö-
vík kl. 1.30 síöd. Séra Páll Þóröar-
son.
KEFLAVÍKURKIRKJA
Sunnudagáskóli kl. 11 árd. Munið
skólabílinn. — Föstukvöld í kirkj-
unni n.k. fimmtudagskvöld kl. 20.30.
Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA
Guösþjónusta kl. 2 síöd. Sóknar-
prestur.
STOKKSEYR ARKIRK JA
Barnaguösþjónusta kl. 10:30 árd.
Sókarprestur.
AKRANESKIRKJA
Barnasamkoma kl. 10.30. árd.
Messa kl. 2 síðd. Séra Björn
Jónsson.
Kökubazar og flóamarkaður
veröur haldinn í dag í Safnaöarheimili
Neskirkju, kl. 3 síðdegis.
6. bekkur Verzlunarskóla íslands.
Flutningur til og frá Danmörku
og frá húsi til húss
U mboðsmaður
i Reykjavik.
Skipaafgreiðsla
JesZimsen.
Skapraunið ekki sjálfum yður að óþörfu — Notið margra ára reynslis
okkar Biðjið um tilboð Það er ókeypis. — Notfærið yður það. það
sparar.
Uppl um tilboð:
Flytterfirmaet AALBORG Aps.
Lygten 2—4, 2400 Köbenhavn NV.
simi (01) 816300. telex 19228.
Orð krossins
Fagnaðarerindið verður boðað frá Trans World
Radio, Monte Carlo, á hverjum laugardags-
morgni kl. 1 0.00—10.15. Sent verður á stutt-
bylgju 31 metra, (9,5 MHZ.)
Orð Krossirts, pósth. 4187, Reykjavik.
Verksmiðjuútsala —
Verksmiðjuútsala
Seljum í dag og næstu daga lítið gölluð eldhús-
borð og stóla, barnastóla og borð í barnaher-
bergi. Einnig gallon- og dralonáklæði.
Veruiegur afsiáttur. Opið laugardag
STÁLHÚSGAGNAGERÐ
STEINARS HF.
Skeifan 8, Rvík.
Kópavogsbúar
afskiptir?
Matthías Á Mathiesen
fjármálaráðherra svarar
þessari spurningu á
fundi hjá félagini laugar-
daginn 1 1. marz kl. 14
að Hamraborg 1, 3.
hæð.
Matthias A.
Mathiesen.
Rætt verður um ríkisfjármálin og hags-
munamál Kópavogsbúa.
TYRf félag ungra
Sjálfstæðismanna
í Kópavogi auglýsir: