Morgunblaðið - 18.03.1978, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. MARZ 1978
Sovétþota rauf
lofthelgi
Tokýo 17. marz. AP.
SOVÉZK sprcngiþota rauf í dag
lofthelKÍ Japans yfir Tshus-
hima-eyju í Suður-Japan, að sögn
japanska varnarmálaráðuneytis-
ins.
Fregnir hermdu að sprengiþot-
an, sem er af gerðinni Tu-95, oft
Japans
kölluð „Björninn", hefði rofið
lofthelgina í eina mínútu og 15
sekúndur. Vélin var á flugi ásamt
annarri sams konar vél, en sú hélt
sig utan við lofthelgi Japans.
Þ'etta er í sjötta sinn sem sovézk
flugvéí rýfur lofthelgi Japans
síðan 1967.
Frá lögreglunni:
Lýst eftir vitn-
um að ákeyrslum
SLYSARANNSÓKNADEILD lög-
reglunnar hefur beðið Mofgun-
hlaðið að auglýsa eftir vitnum að
eftirfarandi ákeyrslum en f öllum
tilvikunum viku tjónvaldar af
vettvangi án þess að láta af sér
vita. Sími slysarannsóknadeildar-
innar er 10200.
Mánud. 20.2.
Ekið á bifreiðina R-21594, Toyota fólksb.,
Kula að lit, þar sem hún stóð á Vitastíg á
móts við hús nr. 11 á tímabilinu kl. 15.30 —
6.30. Hægra framaurbretti var dældað.
Miðvikud. 22.2.
Ekið á bifreiðina Y-3775, Opel Fólksb.,
árg. ,71, rauða að lit, þar sem hún stóð á
móts við Síðumúla 11. Skemmdir á vinstra
afturaurbretti.
Fimmtud. 23.2.
Ekið á bifreiðina R-56100, Ford-Cortina,
árg. ,72, rauða að lit, á bifreiðastæði á móts
við Jörfabakka 26—32. Bifreiðinni hafði
verið lagt á stæðið 19.2. Kistulok var dældað.
Rostropo-
vich krefst
réttarhalda
París 17. marz AP.
MSTISLAV Rostropovich, hinn
heimsfrægi sellóleikari, scm
sviptur hefur verið sovézkum
horgararétti sínum, sagði 1 dag,
að hann væri fórnarlamb „sið-
ferðislegrar hryðjuverkaherferð-
ar“ og sendi bréf til Leonid
Brezhnevs, flokksleiðtoga Sovét-
ríkjanna. og krafðist þess að opin
réttarhöld yrðu haldin 1 máli sinu
til að rökstyðja þá gerð. að hann
fengi ekki lengur að vera sovézk-
ur borgari.
„Þér eruð að svipta okkur
möguleikunum til að lifa, starfa og
deyja í föðurlandi okkar, í því
landi sem við erum fædd og höfum
fórnað megninu af lífsstarfi okk-
ar“, sagði í bréfinu til Brezhnevs.
Bréfið var undirritað af
Rostropovich og Galinu eiginkönu
hans og dreift til skara frétta-
manna í Grand Hotel í París, þar
sem þau hjónin hafa aðsetur um
sinn.
Rostropovich sem fór frá Sovét-
ríkjunum árið 1974 er fastur
hljómsveitarstjóri bandarísku sin-
fóníuhljómsveitarinnar í Was-
hington D.C. Kona hans er þekkt
óperusöngkona og giftist selló-
leikaranum árið 1955. Hún var
einnig svipt ríkisborgararétti sín-
um og þar með er þeim meinað að
snúa nokkru sinni aftur til Sovét-
ríkjanna.
— Sýnir list-
ræn rúmteppi
Framhald af bls. 2
og segir Linda aö þrátt fyrir aö þetta
sé mjög gömul listgrein sem rekja
megi til Forn-Egypta sé hún alveg
ný fyrir Evrópubúum. Kínverjar
notuöu hins vegar stungin teppi til
klæöageröar og gera enn.
Linda hélt fyrirlestur um listgrein
sína í Menningarstofnun Bandaríkj-
anna nú í vikunni og sóttu hann um
tvö hundruö manns.
Sýningin á verkum hennar veröur
opnuö eins og fyrr segir í dag og
stendur til 8. apríl.
í kvöld eftir opnun sýningarinnar
mun hún kynna listgrein sína,
aöferöir og svara fyrirspurnum.
Lauvcard. 25.2.
Ekið á bifreiðina R-9670, Fíat fólksb., árg.
,74, græna að lit, þar sem hún stóð á móts
við Víðimel 57, á tímabilinu kl. 18.00 þ. 24.
til kl. 10.30 þennan dag. Vinstri hlið
bifreiðarinnar var dælduð.
• Mánud. 27.2.
Ekið á bifreiðina R-56867, Datsun fólksb.,
árg. ,71, rauða að lit á móts við Hótel
Loftleiðir. Bifreiðinni hafði verið lagt þarna
miðvikud. 22. 2. kl. 07.00 og þar til
sunnudaginn 26.2. kl. 14.00, en á þessum tíma
hafði verið ekið á hana og var hægra
afturaurbretti skemmt og stefnuljós brotið.
Mánud. 27.2.
Ekið á bifreiðina 1>3288. Mazda fólksbifr.,
árg. ,78, brúna að lit, Þar sem hún atóð é
Snorrabraut skammt noröan gatnamóta
Grettisgötu á tímabilinu kl. 20.30 — 23.00
kvöldiö áður. Skemmdir voru á haagri
afturhurð og afturaurbretti.
Priðjud. 28.2.
Ekið á bifreiðina Y-6790, Austin-Mini
fólksb., árg. ,73, rauða að lit, þar sem hún
stóð fyrir framan anddyri Laugarásbíós á
tímabilinu kl. 23.10 — kvöldið áður til kl.
00.15 þennan dag. Vinstri hurð var dælduð
og hurðarhúnn brotinn. Svartur litur var í
ákomu.
Miðvikud. 1.3.
Ekið á bifreiðina R-4690, Fíat, fólksb.,
Ijósrauða að lit, á stæði við Landspítalann
á tímabilinu kl. 15.30—16.00. Vinstra
framaurbretti var dældað.
Fimmtud. 2.3.
Ekið á bifreiðina R-49695, Ford-Cortina,
árg. ,68, bláa að lit, á móts við Verslun-
arbankann í Bankastræti, átímabilinu kl.
13.10 — 13.30. Vinstra afturljós var brotið.
Fimmtud. 2.3.
Ekið á bifreiðina R-8496, Datsun
fólksbifr., árg. ,74, græna aö lit, á
bifreiðastæði á móts við Rauðarárstíg 20 á
timabilinu kl. 14.00 — 17.20. Vinstra
framaurbretti var dældað.
Fostud. 3.3.
Ekið á bifreiðina R-7167, Volvo fólksb.,
árg. ,73 bláa að lit, þar sem hún stóð á móts
við Grettisgötu 48 um kl. 21.30. Ekið hafði
verið aftan á bifreiðina og henni ýtt áfram
og hafði sést til ferðar brúnnar bifreiðar,
sennilega af amerískri gerð, sem var ekið
þarna á brott á miklum hraða. R-7176 var
mikið skemmd að aftan og á vinstri hlið.
Laugard. 4.3.
Ekið á bifreiðina R-2569, Mazda fólksb.,
rauða aö lit, þar sem hún stóð á móts við
Álftamýri 14 um kl. 22.00. Talið er að
tjónvaldur sé á bifreið af amerískri gerð.
Skemmdir á R-2569 voru á framaurbretti
vinstra megin.
Miðvikud. 8.3
Ekið á bifreiðina Y-6889, Fíat fólksb., þar
sem hún stóð á móts við Yogastöðina við
Hátún um kl. 22.30. Skemmdir eru á vinstri
hlið fyrir aftan hurð.
Föstud. 10.3. Ekiö á bifreiðina R-45067,
Ford-Escort, hvíta að lit, þar sem hún stóð
á móts við Suðurlandsbraut 20, norðan við
húsið, á tímabilinu kl. 10.00—10.45.
Skemmdir voru á vinstri hurð.
Laugard. 11.3.
Ekið á bifreiðina R-51474, Transit sendi-
ferðab., árg. ,70, rauða að lit, þar sem hún
stóð á móts viö Nýlendugötu 27. Skemmdir
voru á hægra framaurbretti.
— Sprengja
Framhald af bís. 1.
kjarnorkuversins og sagt að innan _
fárra mínútna spryngi sprengja í
verinu.
Lögregla sagðist telja, að að-
skilnaðarhreyfing Baska, ETA,
hefði komið sprengjunni fyrir.
Þátttakendur í mótmælagöngu
sem var farin í Bilbao á sunnudag
til að mótmæla smíði kjarnorku-
versins, hótuðu því að sprengja
verið í loft upp áður en kjarna-
kljúfar þess kæmust í gang.
Kjarnorkuverið er í 35 kílómetra
fjarlægð frá Bilbao.
Gjaldkeri í vegatollhúsi á hrað-
brautinni milli Bilbao og frönsku
landamæranna var skotinn til
bana í nótt og lögreglan telur að
einnig þar hafi ETA verið að verki.
Vitni segja að skotið hafi verið
á gjaldkerann úr bifreið með
vélbyssu, en áður hafði ETA
oftsinnis hótað gjaldkeranum.
Þessi sendibíll fór út af Suðurgötunni og steypti sér niður Tjarnarbrekkuna að húsabaki. Enginn
meiddist þó við þetta ferðalag og bfllinn skemmdist sama og ekkert.
— Aldo Moro
Framhald af bls. 1.
samtakanna sem sitja í fangelsi
verði ekki sleppt úr haldi.
Leitað hefur verið í hverju húsi
í úthverfinu Monte Mario í Róm og
hafin er leit í hellum og yfirgefn-
um byggingum í sveitinni í
grenndinni. Tollverðir leita á sjó
og leit er haldið áfram úr þyrlum.
Á landamærunum er leitað í
öllum bifreiðum þar sem óstað-
festar fréttir herma- að hryðju-
verkamenn í mörgum löndum
kunni að hafa staðið að mannrán-
inu. Meðal margra sem hafa
hringt til fjölmiðla og sagzt bera
ábyrgð á mannráninu var maður
nokkur sem kvaðst vera félagi í
vestur-þýzku hryðjuverkasam-
tökunum Baader-Meinhof. „Moro
er hjá okkur", sagði hann.
Lögreglan segir að ógerningur
sé að ganga úr skugga um hvort
mark sé takandi á hringingunum,
en þó telja þeir sem rannsaka
málið að erlendir hryðjuverka-
menn séu viðriðnir málið þótt þeir
hafi lítið við að styðjast.
— Olíubrák
Framhald af bls. 1.
gífurleg. Skipið strandaði rétt
fyrir utan lítið fiskiþorp og
ferðamannastað, Portsall. Um
2.000 íbúar þorpsins óttast að
mengunin leggi fiskveiðar
þeirra í rúst og verði til þess að
ferðamenn hætti við að koma
til þorpsins í sumar.
Fiskimenn í þorpinu hafa í
hyggju að efna til mótmæla þar
sem lífsafkoma þeirra hefur
komizt í hættu.
44 manna áhöfn skipsins var
flutt burtu í þyrlum í nótt.
Skipið er fimm ára gamalt og
sigldi undir Líberúufána. Það
var á leið frá Persaflóa til Le
Havre með 230.000 lestir af
hráolíu.
Þúsundir manna söfnuðust
saman á ströndinni og fylgdust
af áhuga með skipinu, en
talsmaður fiskimanna sagði:
„Þetta lendir allt á okkur. Það
eru alltaf fiskimennirnir sem
verða að taka á sig byrðarnar".
Þetta er fjórði olíulekinn sem
veldur mengun á strönd
Bretagne síðan 1967 og getur
orðið sá alvarlegasti. Mesta
tjóninu til þessa olli Torrey
Canyon 1967 þegar 30.000 lestir
af 110.000 lesta farmi skipsins
bárust á land í Englandi og
Frakklandi.
r
— Israelsmenn
Framhald af bls. 1.
leigubílana. Aðrir segja að leigu-
bílarnir hafi orðið fyrir sprengi-
kúlum frá ísraelskum fallbyssu-
bátum. En enginn staðfesti pale-
stínskar fréttir um harða bardaga
milli skæruliða og ísraelsks land-
gönguliðs sem sagt var að reyndi
að einangra hafnarbæinn Tyrus. í
Tel Aviv vildi talsmaður Israels-
hers ekkert um málið segja.
Fámennir hópar Palestínu-
manna berjast enn að baki víglínu
Israelsmanna og þeir segjast hafa
hæft ísraelskar byggðir með eld-
flaugum. Palestínskur talsmaður í
Beirút sagði að skæruliðar sæktu
niður úr hæðum Suður-Líbanons
og réðust aftan að Israeslsmönn-
um.
Fréttaritari Reuters á víg-
stöðvunum segir að ísraelskt
herlið hafi sótt inn í Tebnine, eitt
helzta vígi Palestínumanna í
hæðunum. Hann segir að skæru-
liðar og vinstrisinnaðir Líbanir
hafi hörfað frá bænum eftir
loftárásir og fótgönguliðsárásir
Israelsmanna.
I Jerúsalem hugleiddi Israels-
stjórn í dag tillögu Bandaríkja-
manna um brottflutning ísraelska
herliðsins frá Suður-Líbanon en
án sýnilegs áhuga. ísraelsstjórn
sagði skömmu eftir innrásina að
það væri ekki ætlunin að ísraelskt
herlið yrði til frámbúðar í Suður—
Líbanon og að herliðið yrði kallað
burtu þegar samkomulag næðist
um að palestínskum skæruliðum
yrði bægt frá svæðinu.
— 1500 falla
Framhald af bls. 1.
við að tilraun yrði gerð til að rjúfa
umsátrið um Asmara eftir ófarir
Sómalíumanna í Ogaden-auðninni.
Talsmaðurinn sagði að fjöldi
þeirra kúbönsku hermanna, sem
hefðu verið sendir til Asmara
flugleiðis, væri kominn upp í 3.500.
— Felldu niður
Framhald af hls. 48
skips taldi Gylfi að ynnu rúmlega
200 manns. Við uppskipunina
hefðu verið 8 gengi og því kvað
hann þetta vera um 16 tíma tap
fyrir fyrirtækið. Ætti þá eftir að
draga kaffitímann frá. Þetta hlyti
því að seinka afgreiðslu eitthvað,
þótt það hefði ekki þau áhrif að
skip tefðust í gær. Tvö Eimskipa-
félagsskip voru í Reykjavíkurhöfn
í gær.
Guðmundur J. Guðmundsson,
varaformaður Dagsbrúnar, kvað
hér eingöngu hafa verið um að
ræða aðgerðir, sem verkamennirn-
ir sjálfir hefðu ákveðið. „Er það
ekki þetta, sem kallað er Alþingi
götunnar?" spurði Guðmundur og
hló. Guðmundur kvað menn hafa
reiknað út, að mismunur á því
kaupi, sem samið hafi verið um við
atvinnurekendur, og því, sem nú
væri greitt, væri andvirði tveggja
klukkustunda. „Það er eins og
menn ynnu 40 klukkustundir á
viku, en fengju greiddar 38,“ sagði
Guðmundur. Morgunblaðið spurði
hann þá, hvort verkamennirnir
ætluðu að gera þetta að vikulegri
venju til þess að jafna metin og
kvað hann þá nei við. Ekkért slíkt
lægi fyrir. Hins vegar lægi fyrir sú
spurning, hvort í raun væri ekki
komin 38 stunda vinnuvika, þar
sem ekki væri greitt nema fyrir
þær. Effektífar vinnustundir eins
og það hafi verið kallað hafi verið
37 stundir og 5 mínútur og því
gætu þær nú verið 35 stundir og
5 mínútur ef kaffi- og matartímar
væru ekki taldir með.
— Verðlagsdóm-
ur hafnar . . .
Framhald af bls. 48
kæmu fram í vísitölu er tekin væri
1. maí nk. og kæmi hún þannig
fyrst fram í launum 1. júní, sem
aftur yrði þá ekki greidd í flestum
tilfellum fyrr en í lok þess
mánaðar hjá verzluninni. Kvað
Georg það hafa komið skýrt fram
á fundi verðlagsnefndar þegar
umrædd ákvörðun hefði verið
tekin, að í haust gæti því verið
eðlilegt að endurskoða þessa
ákvörðun aftur og í samræmi við
þetta hefði síðan annar fulltrúi
verzlunarinnar lagt fram á fund-
inum tillögu þess efnis að ákvörð-
unin félli úr gildi 15. júlí nk. enda
yrði þá launakostnaður af völdum
gengisfellingarinnar farið að gæta
að marki.
Georg kvaðst einnigTiafa vitn-
eskju um, að Verðlagsdómur hefði
neitað að taka umrædda kæru
verzlunarinnar til meðferðar fyrir
dóminum, þar sem þarna væri ekki
um opinbert mál að ræða og því
kvaðst Georg ekki telja tímabaért
að ræða þessa kæru verzlunarinn-
ar frekar að sinni.
— Minning
Guðrún
Framhald af bls. 39
samhent við að byggja upp heimil-
ið og hlúa að því á allan hátt. —
Hver fær skilið þá ráðstöfun
almættis að kalla nokkurn burt úr
starfi svo þýðingarmiklu? E.t.v.
var tilgangurinn sá að kenna
okkur, samferðarmönnum Rúnu,
að lifa lífinu. Eitt er víst, að
lærdómsríkt var það, þótt sárt
væri, að kynnast þeirri hetjulund,
sem Rúna sýndi í þessari löngu
baráttu við manninn með ljáinn.
— Þjáningar sínar bar hún ekki á
torg, heldur reyndi af öllum mætti
að dylja þær á bak við glaðlyndi
sitt, létt spaug, æðruleysi og
óbilgirni.
Ég er forsjóninni þakklát fyrir,
að mér auðnaðist að eiga Guðrúnu
Valtýsdóttur að vini, samfylgdin
með henni var ómetanleg og
gleymist aldrei. — Ég og fjöl-
skylda mín öll biðjum henni
blessunar.
Eiginmanni hennar og börnum,
móður, systkinum og öðrum ást-
vinum vottum við okkar dýpstu
samúð og biðjum þess, að ljúfar
minningar megi verða þeim hugg-
un harmi gegn.
Rannvcig Edda Hálfdánard.