Morgunblaðið - 21.03.1978, Blaðsíða 25
24
MOKGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1978
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1978
25
Stúdentar gáfu
Njarðvíkingum
aukaleik og von
um meistaratitil
KR-INGAR sóttu ekki gull í greipar stúdenta á laugardaginn þegar liðin áttust við í lokaviðureign sinni
í 1. deild íslandsmótsins í körfuknattleik. Súdentar virtust hafa öruggan leik í höndunum þegar aðeins
3 mínútur voru til leiksloka og var þá staðan 91—80 þeim í vil. Við þetta bættist að Einar Bollason
og Andy Piazza, bezti leikmaður KR-inga, voru báðir farnir út af með 5 villur og Jón Sigurðsson var
með 4 villur. En einmitt þá þegar allt virtist löngu tapað fór Jón Sigurðsson í gang og virtist ætla á
eigin spýtur að færa KR ingum meistaratitilinn. Áður en varði var staðan orðin 95 — 90 og þegar 53
sekúndur voru eftir var staðan 95—92 stúdentum í vil. Árni Guðmundsson minnkaði muninn síðan f
1 stig úr vítum og nú þegar sigur var f nánd fékk Jón sfna 5 villu. Stúdentar misstu boltann þegar
aðeins 7 sekúndur voru eftir, en Ingi Stefánsson komst inn f sendingu KR-inga aftur og bjargaði deginum
fyrir stúdenta.
Stúdentar voru án tveggja
sinna beztu manna, Jóns
Heððinssonar og Kolbeins
Kristinssonar, og höfðu ekki
nema 4 af þeim mönnum, sem
mest hefur mætt á í vetur. En
þrátt fyrir þetta tóku stúdentar
strax forystuna í leiknum og
leiddu leikinn þar til 4 mínútur
voru eftir af hálfleiknum, en þá
loks komust KR-ingar yfir og
var staðan þá 34—33. En góður
lokakafli IS-manna kom þeim
yfir aftur og var staðan í
leikhléi 47—43 þeim í vil.
Munaði mestu um stórleik
Bjarna Gunnars Sveinssonar, en
hann skoraði 21 stig í hálfleikn-
um og var nær einráður um öll
fráköst.
í seinni hálfleik má segja að
stúdentar hafi leikið á alls oddi
í sókninni og fléttuðu þeir sig
oft skemmtilega í gegnum vörn
KR-inga, sem vart vissi hvað
sneri upp og hvað niður. Var nú
undramaðurinn Dirk Dunbar
kominn í stuð og var fátt um
varnir þegar hann nálgaðist
kröfu KR-inga. Einu mennirnir,
sem sýnt höfðu lit í KR-liðinu,
voru þeir Andy Piazza og Árni
Guðmundson, en Árni skoraði 8
af 10 fyrstu stigum KR-inga og
þá var honum skipt út af, sem
var nokkuð undarieg ráðstöfun.
Andy Piazza fór útaf á 16.
mínútu eins og áður sagði og var
þá staðan 89—78 stúdentum í
vil, og léku þá stúdentar eins og
meistarar. Þá fékk Helgi Jéns-
son sína 5. villu og við það
riðlaðist leikur IS-manna og Jón
Sigurðsson hóf lokasprettinn
fyrir KR-inga, sem nærri dugði
þeim til sigurs.
Eftir leikinn sagði Bjarni
Gunnar Sveinsson: „Við lékum
meira sem liðsheild en KR-ingar
og það gerði gæfumuninn.
Stúdentar höfðu næga burði til
að sigra Islandsmótið og þessi
leikur sýndi það. Fjarvera
þeirra Kolbeins og Jóns virtist
gera KR-inga örugga um sigur,
en allir okkar menn náðu að
sýna sitt bezta svo að betra liðið
vann“. Það er óhætt að taka
undir þessi orð Bjarna Gunnars
því að stúdentar voru svo
sannarlega vel að þessum sigri
komnir.
Beztir í liði stúdenta voru
Dirk Dunbar og Bjarni Gunnar
og má segja að þeir tveir hafi
hreinlega „drepið í KR-ingum“,
en einnig væru Steinn Sveinsson
og Ingi Stefánsson góðir og
gerðu laglega hluti þegar þess
mest þurfti. Þá skal minnzt á
Helga Jensson, sem sennilega
hefur leikið þarna bezta leik
sinn til þessa, en Helgi hefur
tekið verulegum framförum í
vetur undir stjórn Birgis Arnar
Birgissonar eins og stúdentar
allir.
Hjá KR-ingum voru beztir
Andy Piazza og Jón Sigurðsson,
en einnig var Árni Guðmunds-
son góður þann tíma, sem hann
var inn á. Aðrir voru daufir og
líktust helzt skugganum af
sjálfum sér.
Nú er ljóst eftir að Njarð-
víkingar sigruðu Val, að KR og
UMFN verða að heyja einvígi
um íslandsmeistaratitilinn og
verður sú viðureign að líkindum
söguleg. KR-ingar geta aðeins
sjálfum sér um kennt hvernig
fór gegn stúdentum án þess að
köstuð sé rýr að á leik stúdenta.
Njarðvíkingar eygja nú góða
möguleika á sínum fyrsta Is-
landsmeistaratitli og mega
KR-ingar hafa sig alla við til að
taka slikt frá þeim.
Stig ÍS skoruðu: Dunbar 35,
Bjarni Gunnar 30, Steinn
Sveinsson 12 stig, Ingi Stefáns,
10 og Helgi Jensson og Guðni
Kolbeinsson 4 stig hvor.
Stig KRskoruðu: Piazza 30,
Jón Sig. 23, Árni Guðmundsson
13, Einar Bollason 12, Bjarni
Jóhannesson 6 stig, Ágúst Lín-
dal og Þröstur Guðmundsson 4
stig og Eiríkur Jóhannesson 2
stig.
Dómarar voru Erlendur
Eysteinsson og Þráinn Skúlason
og dæmdu þeir erfiðan leik
nokkuð vel.
GG.
ENGINN GLÆSIBRAGUR
ER FRAM OG ÁRMANN
KVÖDDU 1. DEILDINA
ÞAÐ VAR enginn stórleikur, er Fram og Ármann mættust
í síðasta leik sínum í 1. deild íslandsmótsins í
körfuknattleik á sunnudaginn. Bæði liðin voru þegar fallin,
þannig að til lítils var að vinna, nema þá helzt fyrir
Armann, að vinna einn leik í mótinu. Lengi vel leit úr fyrir
að það ætlaði að takast, en svo fór þó ekki, Framarar voru
sterkari á lokasprettinum og sigruðu 80t75, en í leikhléi var
staðan 42.35 Ármanni í vil. Þessi sigur breytti þó litlu hjá
Fram, þeir voru þegar fallnir, vegna þess að Þór vann ÍR
á laugardaginn.
í fjarveru Símonar Ólafssonar
voru leikmenn Fram nokkuð jafn-
ir. Beztan leik áttu Sigurður
Hjörleifsson og Ómar Þráinsson,
en einnig voru Björn Magnússon
og Þorvaidur Geirsson góðir.
Veturinn hefur verið hálfdapur-
legur hjá Ármenningum, svo ekki
sé meira sagt, og tókst þeim ekki
að hljóta stig í mótinu. í þessum
leik eins og svo oft áður var það
Atli Arason, sem var atkvæða-
mestur, en einnig átti Jón Björg-
vinsson ágætan leik.
Stigin fyrir Fram: Sigurður
Hjörleifsson 18, Björn Magnússon
17, Þorvaldur Geirsson 16, Ómar
Þráinsson 14, Ólafur Jóhannesson
8, Birgir Thorlacius, Björn Jónsson
og Gunnar Bjarnason 2 hver.
Stigin fyrir Ármann: Atli Ara-
son 23, Jón Björgvinsson 19, Rick
Morel 12, Björn Christiansen 11,
Hallgrímur Gunnarsson og Ómar
Sigurðsson 4 hvor og Birgir Örn
Birgis 2.
Góðir dómarar voru Eiríkur
Jóhannesson og Kristbjörn Al-
bertsson.
ÁG
Torfi Magnússon og Rick
Hockenos, voru tveir bestu leik-
menn Vals í leiknum gegn
UMFN. Þeir sjást hér taka
frákast þrátt fyrir tóða tilburði
Jónasar Jóhannessonar, sem átti
góðan leik með UMFN.
(Ljósm. ÁG.)
Dick Dunbar
stigahæstur
Lokastaöan í íslandsmótinu.
UMFN14 12 2 1282.1086 24 91.6.77,6 14.0
KR 14 12 2 1287.1102 24 91.9,78.7 13,2
Valur 14 10 4 1218.1095 20 87.0,78.2 8,8
ÍS 14 10 4 1286,1225 20 91.9,87,5 4,4
ÍR 14 5 9 1181,1260 10 84.4,90.0 -5.6
Þór 14 4 10 1040,1132 8 74.3,80.9 -6,6
Fram 14 3 11 1063,1174 6 75,9,83,9 -8,0
Árm.14 0 14 1105,1389 0 78.9,99.2 -20.3
Eftir er aukaúrslitaleikur milli UMFN <>k
KR um íslandsmeistaratitilinn.
stÍK
leikir
stÍK aö meöal-
tali í leik
Dirk Dunbar ÍS 459 13 35.3
Rick Hockenos Val 407 14 29.1
Mark Christensen Þór 363 14 25.9
Símon Ólafsson Fram 330 13 25.4
Andrew Piazza KR 325 14 23.2
Kristinn Jörundsson ÍR 309 14 22,1
Þorsteinn Bjarnason UMFN 288 14 20,6
Jón Sigurðssqn KR 282 14 20,1
Atli Arason Armanni 250 13 19,2
Erlendur Markússon ÍR 234 10 23.4
SNÆFELL
SIGRAÐI í
2. DEILD
ÚRSLIT eru nú kunn í 2. deildinni í körfuknattleik. Eftir tvísýna
baráttu standa Snæfellingar efstir og munu þeir á að líkindum leika
aukaleik við þriðja neðsta iið 1. deildar, Þór frá Akureyri, um sæti
í Úrvalsdeildinni næsta ár.
Nú um helgina fóru fram síðustu leikir 2. deildar. Léku á
Iaugardaginn Snæfellingar og Breiðabliksmenn. Náðu Snæfellsmenn
strax góðri forystu, sem entist þeim út leikinn og urðu lokatölur
78—72 eftir að staðan hafði verið 51—34 í hálfleik.
Daginn eftir héldu Snæfellingar til Grindavíkur og léku við UMFG
og héldu Snæfellsmenn þaðan með öruggan sigur 107—88 og þar með
sigur í 2. deild. Næst Snæfelli koma síðan UBK, Vestmannaeyingar
og Grindvikingar.
Lið Snæfells er vel að sigrinum komið. í liðinu eru ungir og efnilegir
leikmenn auk reynslumikilla manna eins og t.d. Einars Sigfússonar
og Magnúsar Þ. Þórðarsonar sem lengi lék með liði KR.k GG
Stúdentar stövuðu KR-inga í bili a.m.k. og átti Bjarni Gunnar
Sveinsson einna mestan þátt í því. Hér skorar hann 2 af sínum 30
stigum þrátt fyrir varnartilburði KR-inganna Kristins Stefánssonar
og Andy Piazza. (Ljósm. GG).
ENGIN MISTÖK
MEÐ fremur óvæntum sigri ÍS yfir KR á laugardaginn færðist mikil spenna í íslandsmótið
í körfuknattleik. UMFN eygði möguleika á að hljóta íslandsmeistaratitilinn, en þeir
þurftu að vinna Val til þess að fá aukaleik við KR. Það voru því ákveðnir Njarðvíkingar,
sem mættu til leiksins við Val á sunnudaginn, en einnig var mikiö í húfi fyrir Valsmenn,
því með sigri yfir UMFN hefðu þeir hlotið silfurverðlaunin í mótinu. Eftir jafnan og
spennandi leik stóðu Njarðvíkingar uppi sem sigurvegarar, þeir skoruðu 76 stig gegn
70 stigum Valsmanna. Það verður því að fara fram aukaúrslitaleikur milli KR og UMFN
til þess að fá úr því skorið, hvort liðið hlýtur íslandsmeistaratitilinn 1978.
NJARÐVÍK
HJÁ
Svo við víkjum að gangi leiksins,
þá var leikurinn jafn framan af, en
um miðjan fyrri hálfleik náði
Valur 7 stiga forystu, 27:20, en
munurinn minnkaði fljótlega aftur
og í leikhléi hafði Valur yfir, 47:44.
Þá var allur vindur úr ÍR-liðinu
og Jón Jörundsson fór af velli með
5 villur, en hann hafði hitt með
ólíkindum í seinni hálfleiknum. í
þeim fyrri skoraði hann aðeins 6
stig og Kristinn bróðir hans komst
ekki á blað. Þór vann 86:76 eins og
áður sagði og liðið heldur því sæti
sínu í úrvalsdeildinni, en tap hefði
þýtt aukaleik við Fram.
Jón Indriðason átti nú sinn bezta
leik með Þór og skoraði 26 stig, en
UMFN byrjaði síðari hálfleikinn
vel og komst í 51:47, en Valsmenn
vöknuðu þá aftur til lífsins og
náðu forystunni á ný og höfðu yfir
60:53. En þá fór allt að ganga á
afturfótunum hjá Val og á stuttum
þeir Mark Christiansen og Eiríkur
Sigurðsson áttu einnig góðan leik.
Bræðurnir í ÍR-liðinu voru beztir,
en ÍR-liðið var hálf vængbrotið að
þessu sinni.
Stig Þórsi Jón 26, Mark 21,
Eiríkur 20, Hjörtur 8, Ólafur 7,
Þröstur 4.
Stig ÍRi Jón 26, Kristinn 20,
Kristján 16, Stefán 6, Sigurður
Valur og Gunnlaugur 4 hvor.
— Sig.G.
tíma skoraði UMFN 16 stig gegn
2 og breytti stöðunni í 69:62. Smá
von vaknaði hjá Val, er þeir
minnkuðu muninn í 66:69, en hver
mistökin ráku önnur á lokamínút-
unum og Njarðvík sigraði eins og
áður sagði 76:70.
Rick Hockenos var langbeztur
hjá Val og hefði alveg mátt hafa
sig meira íYrammi. Torfi Magnús-
son gerði margt mjög fallegt, en
gerði sig svo sekan um of mörg
mistök á lokamínútunum. Þá átti
Lárus Hólm mjög góðan leik og
hefði betur verið notaður síðustu
mínúturnar. Þessir þrír leikmenn
voru þeir einu sem eitthvað kvað
að í Valsliðinu, en menn eins og
Kristján Ágústsson og Ríkharður
Hrafnkelsson brugðust alveg.
UMFN-liðið var jafnt að vanda,
en helzt mætti nefna Kára Marís-
son, Þorstein Bjarnason og Jónas
Jóhannesson og er alveg furðulegt
hve sá síðastnefndi er lítið notað-
ur. Þá var Geir Þorsteinsson
sterkur í lokin og Gunnar Þorvarð-
arson var drjúgur að vanda, en
hann ætti að hætta þeim ósið að
vera sífellt að reyna að blekkja
dómara með einhverjum leikara-
skap.
Stigin fyrir UMFN: Gunnar
Þorvarðarson og Kári Marísson 17
hvor, Þorsteinn Bjarnason 15,
Jónas Jóhannesson 11, Geir Þor-
steinsson 10, Brynjar Sigmunds-
son og Stefán Bjarkason 3 hvor.
Stigin fyrir Val: Rick Hockenos
35, Torfi Magnússon 18, Lárus
Hólm 7, Ríkharður Hrafnkelsson
6, Helgi Gústafsson og Kristján
Ágústsson 2 hvor.
Dómarar voru Erlendur Ey-
steinsson og Þráinn Skúlason og
dæmdu þeir vægast sagt illa.
ÁG
ÍS OG
UMFN
LEIKA
í KVÖLD
EINN leikur fer fram í undanúr-
slitum bikarkeppninnar í körfu-
knattleik í kvöld. ÍS og UMFN
mætast þá í íþróttahúsi Kennara-
háskólans og hefst leikurinn
klukkan 20. Er ekki að efa að
hart verður barizt og óhætt er að
spá spennandi leik, þannig hafa
flestir leikir toppliðanna í körfu-
knattleiknum verið í vetur. Ann-
að kvöld leika síðan KR og Valur
í bikarkeppninni.
Þóráfram með-
al þeirra beztu
ÞÓRSARAR tryggðu sér sæti í Úrvaldsdeildinni í kröfuknattleik
næsta vetur en liðið vann IR 86.76 á Akureyri á laugardaginn. í fyrri
hálfleiknum höfðu Akureyringar mikla yfirburði og leiddu 44.22 í
leikhléi. I scinni hálfleiknum var hins vegar mun meiri barátta í
IR-ingum og eftir að Þór hafði komizt í 56.26 sóttu ÍR-ingar í sig
veðrið og munurinn varð aðeins 9 stig, 64.55.
NORÐURLANDA-
MET í METASAFN
GÚSTAFS
GUSTAF Agnarsson úr KR bætti Norðurlandametið í innar — „Súlnasalnum" — um helgina. Gústaf bætti
snörun í glæsilegt metasafn sitt er hann á sunnudaginn þarna met Svíans Lennarts Dahlgren um þrjú kíló og
fór upp með 155 kíló í greininni. Þetta afrek Gústafs var honum ákaft fagnað af yfir 100 áhorfendum. sem
var hápunkturinn á ágætlega heppnuðu íslandsmóti í fylgdust með mótinu báða keppnisdagana.
lyftingum. sem haldið var í anddyri Laugardalshallar-
Auk þessa mets bætti Gústaf einnig
Islandsmetið í samanlögðu í 100 kílóa
flokki, en það met átti Guðmundur
Sigurðsson. Var Guðmundur, ásamt
Skúla Óskarssyni, sá eini, sem maður
saknaði á mótinu að þessu sinni.
Guðmundur mun hafa lagt lóðin á
hilluna, eins og lyftingamenn segja er
þeir hætta keppni, en Skúli undirbýr
sig fyrir Evrópumeistaramótið í
kraftlyftingum, sem hann hefur að
mestu leyti snúið sér að.
Fyrri dag keppninnar var keppt í
íéttari þyngdarflokkum og þar gerðist
það markverðast að Akureyringurinn
Haraldur Ólafsson setti unglingamet í
snörun, jafnhöttun og þá um leið í
samanlögðu. Þá setti félagi hans,
Freyr Aðalsteinsson, íslandsmet í
snörun og unglingamet í samanlögðu.
Seinni keppnisdagurinn byrjaði á
því að Már Vilhjálmsson vann góðan
sigur í 82.5 kílóa flokki og í næsta
flokki kom unglingamet hjá Birgi
Borgþórssyni í jafnhöttun. Sigraði
Birgir í þessum flokki, en hann og
Ólafur Sigurgeirsson lyftu sömu
þyngd. Birgir var léttari og sigurinn
því hans.
í 110 kílóa flokki byrjaði Óskar
Kárason á að jafna met bróður síns,
Ágústs, í snörun. Það stóð þó ekki
lengi því „litli bróðir“ var í miklum
ham á mótinu og setti Ágúst, sem er
aðeins 17 ára, met í ö.llum þremur
greinunum, þ.e. snörun, jafnhöttun og
samanlögðu. Þeir bræður voru þó
hættir keppni er Gústaf, Friðrik
Jósefsson og Óskar Sigurpálsson hófu
keppni.
Óskar Sigurpálsson undirbýr sig
þessa dagana fyrir Norðurlandamót
kögreglumanna, en hann keppti í 110
kílóa flokki. Þessi margreyndi
keppnismaður byrjaði á 115 kílóum í
snörun og átti í erfiðleikum með þá
þyngd. Upp fór hún þó, en Óskar gat
ekki stillt sig um að brosa yfir því
hvað það gekk erfiðlega. Hann bætti
þó um betur og að lokum hafði hahn
snarað 130 kílóum.
Friðrik Jósefsson byrjaði á 137,5
síðan 145 kílóum og reyndi loks við
Norðurlandamet í snörun, 153,5 kíió.
Ekki tókst Friðriki að lyfta þeirri
þyngd og metið varð því ekki hans.
Gústaf Agnarsson hóf keppnina með
því að reyna við 155 kíló, sem var
Norðurlandametstilraun. í fyrstu at-
lögu tókst honum ekki að fara upp með
þyngdina, en í 2. tilraun tókst það hins
vegar léttilega að því er virtist. Gústaf
re.vndi síðan við 160 kíló, en tókst ekki
að þessu sinni.
Keppnin í jafnhöttun var ekki eins
spennandi hjá þeim þyngstu, en með
því að jafnhatta 187,5 kíló tókst
Gústafi að bæta íslandsmet' Guð-
mundar Sigurðssonar í samanlögðu.
Gústaf varð stigahæstur einstaklinga
á mótinu, hlaut samtals 732 stig og
fékk að launum bikar. Keppendur á
mótinu voru um 30 frá fjórum félögum
og var keppt um skjöld fyrir stiga-
hæsta félagið. Hlutu KR-ingar gripinn
að þessu sinni með 93 stig, Akureyr-
ingar urðu í 2. sæti með 81 stig, ÍBV
hlaut 36 stig og Ármenningar 32 stig.
áij
Eftir að Gústaf hafði snarað 155 kílóum og bætt Norðurlandametið bað hann um 5 kfló í viðbót á
stongina. Ilonum tókst ekki að lyfta þeirri þyngd að þessu sinni. en Birgir Borgþórsson og ölafur
Sigurgeirsson óska Gústafi til hamingju með Norðurlandametið. (ljósm. RAX).
*
Urslit á meistaramótinu í lyftingum
56 kg flokkur.
Þorvaldur Rögnvaldsson, KR, 145 (65-80)
Baldur Borgþórsson, KR, 135 (60—75)
60 kg flokkur.
Haraldur Ólafsson, ÍBA, 185 (80,5—105)
Garðar Gíslason, IBA, 147.5 (65—82.5)
Gylfi Gíslason, IBA, 145 (65—80)
67.5 kg flokkur.
Kári Elíasson, Á, 220 (100—120)
Viðar Eðvarðsson, ÍBA, 182,5 (82,5—100)
Hermann Haraldsson, IBA, 170 (75—95)
75 kg flokkur.
Freyr Aðalsteinsson, ÍBA, 240 (113—130)
Þorsteinn Leifsson, KR, 225 (100—125)
Guðmundur B. Helgason, KR, 205 (90—115)
82.5 kg flokkur.
Már Vilhjálmsson, Á 260 (120—140)
Sigmundur Knútsson, ÍBA, 237,5 (102,5—125)
Björn Ingvarsson, Á, 205 (90—115)
90 kg flokkur.
Birgir Þór Borgþórsson, KR, 272,5 (115—158)
Ólafur Sigurgeirsson, KR, 272,5 (120—152,5)
Kristján Falsson, KR, 260 (120—160)
100 kg flokkur.
Gústaf Agnarsson, KR, 342,5 (155—187,5)
Friðrik Jósefsson, ÍBV, 315 (145—170)
Ágúst Kárason, KR, 267,5 (120—147,5)
110 kg flokkur.
Óskar Sigurpálsson, ÍBV, 310 (130—180)
/